Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 13 Beðið eftir dómi Athugasemd frá menntamálaráðherra Það kemur mér á óvart og sárn- ar það raunar satt að segja að Erl- ingur Sigurðarson og Njörður P. Njarðvík skuli sameinast um að bera mig alvarlegum sökum í Morg- unblaðinu miðvikud. 6. febrúar, og gengur Erlingur Sigurðarson þar reyndar feti framar. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Ekki mun ég elta ólar við stað- lausa stafi né heldur það þegar fullyrt er að ég vilji að engu hafa forsendur þjóðmenningar á íslandi. Þykir mér vissulega enginn sómi að því að vera í skrifum þeirra fé- laga minna flokkaður í hópi þeirra VL-manna forðum. Þeir skilja það kannski sem kunna að muna eftir því að enginn hefur fleiri hæstarétt- ardóma á hryggnum fyrir meiðyrði um það lið en undirritaður. Sömu- leiðis þykir fulllangt gengið að bregða þeim mönnum um verkleysi sem hafa í stjórn landsins knúið það fram að framlög til íslenskrar menningar eru hærra hlutfall nú af ríkisútgjöldum en nokkru sinni fyrr. Og ég fullyrði: Engin ein að- gerð í þágu íslenskrar menningar mun hafa meiri áhrif til lengri tíma en niðurfelling virðisaukaskatts af bókum og annarri menningarstarf- semi. En samt, samt. Nei. Mig brestur geð til þess að Svavar Gestsson sitja þegjandi í fúkyrðaflauminum miðjum, en finn um leið að mér er tregt um tungu að hræra þegar mér eru borin á brýn svik við þjóð- menningu okkar. Sá maður á bágt með að veija sig sem er borin slíkum sökum. En þessum ósanngjörnu ummælum verður svarað í verki og hefur þegar verið svarað í verki. Meðal annars með því — eins og hefur legið fyrir lengi — að ný reglugerð um þýðingar og íslensku í útvarps- og sjónvarpsstöðvum mun senn sjá dagsins ljós. Það hef ég löngu ákveðið og marg oft til- kynnt opinberlega en þeir Erlingur kjósa að vita ekki um í greinum sínum. í reglugerðarnefndinni sitja fulltrúar ráðuneyta tveggja, sam- göngu- og mennta, íslenskrar mál- nefndar, útvarpsréttarnefndar og útvarpsstöðva. Veit ég víst að þetta „svar“ verð- ur talið til marks um óheyrilega viðkvæmni stjórnmálamanns. En ég á mér það eitt til málsbóta að íslensk menning stendur mér hjarta nær en allt annað sem ég hef sýsl- að við sem stjórnmálamaður. Heið- ur hennar vil ég veija mót trylltri öld sem þeir magna nú á mig sem síst skyldi. Þessi athugasemd er skrifuð til þess að minna á að hér er verið að vinna að nýrri reglugerð og það væri gott að fá að ljúka því verki áður en landsdómurinn verður kallaður saman í fyrsta sinn. í grimmum heimi er gott að sjá líka ljósar hliðar: Kosturinn er sá þrátt fyrir allt að nú geysast menn fram á ritvöllinn og skrifa í þágu íslenskrar menningar. Gott væri svo, eftir syndafallið, að fá nokkrar greinar um tillögur til úrbóta. Þær hef ég fáar séð enn. í vinsemd þrátt fyrir allt. Svavar Gestsson, menntamálaráðherra. Sr. Yngrvi Þórir Árnason Séra Yngvi Þ. Arnason frá Prests- bakka látinn SÉRA Yngvi Þórir Árnason frá Prestsbakka, Reynigrund 39 í Kópavogi, lést á Landspítalanum 4. febrúar s.l. 74 ára að aldri. Hann kvæntist Jóhönnu G. Helgadóttur 10. nóvember 1945 og lifir hún mann sinn. Þau áttu 10 börn. Yngvi Þórir Ámason fæddist í Reykjavík 17. september 1916. Foreldrar hans vora Bjarni ívarsson bóndi og sjómaður í Litla-Seli í Reykjavík og kona hans, Ragnheið- ur Magnúsdóttir Blöndal prests í Vallanesi. Kjörforeldrar Yngva Þór- is voru Ámi Gíslason verslunarmað- ur í Reykjavík og eiginkona hans, Sigurbjörg Sigurðardóttir. Yngvi Þórir varð stúdent í Reykjavík árið 1938 og útskrifaðist sem guðfræðingur frá Háskóla ís- lands árið 1944. Hann var við fram- haldsnám í samstæðilegri guðfræði og kirkjusögu við Kaupmannahafn- arháskóla árin 1952-1953. Yngvi Þórir var settur til prédikunarstarfs í Sandfellsprestakalli sumarið 1942 en settur sóknarprestur í Árnes- prestakalli 18. júní 1944. Honum var veitt Árnes 16. nóvember 1944 frá fardögum 1945 og Prestsbakki í Hrútafirði í júní 1948. Yngvi Þór- ir var einnig prófdómari við Reykja- skóla í Hrútafirði áram saman. IIÝTT SÍMANÚMER a i IP,'Ý5'NGADE'IDAR_ «nn fttergpsitMafrifr - þegar þú kaupir bíl! JOFUR Nýbýlavegi 2, sími 42600 Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá kl. 13—17. Jöfurkynnir Jeep Cherokee 1991 Sýnum laugardag og alla næstu viku árgerð 1991 af Cherokee jeppum. Láttu sjá þig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.