Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 15 hún hafði ekki heilsu tl að taka þátt í, kom hún og hellti upp á könnuna „til að gera eitthvað“. Þannig var hún, vildi vera með og láta gott af sér leiða. Aðgerðin fyrrnefnda tókst vel og hún var ótrúlega fljót að ná sér á strik aftur. Þar kom ákveðni henn- ar, létt lund og jákvætt viðhorf sér vel. Þeir voru ófáir kílómetrarnir sem hún lagði að baki við að endur- heimta þrótt sinn og heilsu. Dilla var ung heimasæta þegar gjörvulegur vestfirskur piltur gerð- ist málaranemi hjá föður hennar. Það átti síðan fyrir þeim að liggja að ganga saman æviveginn. Þau Þorbergur bytjuðu smátt eins og flestir á þeim tíma, en hjónin voru samhent og heimili þeirra við Sunnubrautina er sérstaklega fal- legt og menningarlegt. Bæði voru þau miklir fagurkerar og nutu þess að hafa fallega listmuni í kring um sig og lesa góðar bækur. Þau ferð- uðust líka mikið, innanlands og utan og oft til fjariægra, framandi staða. Dilla var mikil fjölskyldumann- eskja og rækti vel sína ijölskyldu. Börnin hennar og barnabörnin áttu stórt rúm í huga hennar og hjarta. Heimili hennar og Þorbergs stóð þeim ávallt opið — í þess orðs fyllstu merkingu. Samband hennar og Þor- bjargar, einkasystur hennar, var líka einstaklega náið. Svo samfynd- ar voru þær að í huga okkar kom varla nafn annarrar án þess að nafn hinnar fylgdi með. Við eigum allar eftir að sakna Dillu úr klúbbnum okkar, sæti hennar verður vandfyllt. Um leið og við þökkum mikilhæfri konu samfylgdina viljum við votta Þor- bergi, börnunum, bamabörnunum, Tobbu og öllum öðrum ástvinum hennar okkar dýpstu samúð. Lát huggast, þú ástvinur hryggur! Nú hætti þinn grátur að streyma! Því dauðinn er leið sú er liggur til lífsins og ódáinsheima. (Þýð. Jón Helgason) Lionessuklúbbur Keflavíkur Hún Dilla mágkona er dáin. Það kom eins og reiðarslag. Okkur fannst hún alltaf svo kát og hress, þrátt fyrir hjartasjúkdóm, sem hún gekk með og hafði gengist undir aðgerð við, fyrir fjórum árum. Hún mun hafa verið meira veik en okkur grunaði, því hún kvartaði aldrei og gekk að sínu eins og vanalega. Hún hét Sigurbjörg Pálsdóttir, dóttir hjónanna Ingileifar Ingi- mundardóttur og Jóns Páls Frið- mundssonar, málarameistara hér í Keflavík, og ólst upp á Suðurgötu 5, ásamt yngri systur sinni, Þor- björgu, og voru þær alltaf mjög samrýndar. Hún lauk prófi frá Verslunar- skóla íslands, en giftist yngsta bróður okkar, Þorbergi Friðriks- syni, 16. maí 1948. Þau eignuðust 3 böm, Jón Pál, Friðrik og Þór- unni. Þau stofnuðu fyrst heimili á Túngötu 17 og voru foreldrar okkar í sama húsi og fluttust með þeim, er þau byggðu hús sitt á Sunnu- braut 18 og voru þau í þeirra skjóli á neðri hæðinni á meðan þau lifðu. Síðustu árin voru þau orðin las- burða og við höldum að á engan sé hallað þó sagt sé að Dilla var vakin og sofin í að reynast þeim sem best. Enda sögðu þau að hún væri þeim sem besta dóttir. Hér skulu henni færðar þakkir fyrir það. Dilla var mikil félagsvera. Hún var í stjórn Kvenfélags Keflavíkur um árabil. Einnig í Systrafélagi Keflavíkurkirkju, Lionessuklúbbi Keflavíkur, Málfreyjum og síðast en ekki síst Skátafélaginu Heið- arbúum og starfaði þar mikið. Eftir að Þorbergur varð framkvæmda- stjóri Málaraverktaka Suðumesja og þau fóm að ferðast mikið innan- lands og utan var oft erilsamt og gestkvæmt á. heimili þeirra, en allt- af stóð Dilla fyrir sínu. Það geta margir gestir þeirra borið vitni um. Bamabömin, sem eru 5, áttu alltaf athvarf hjá þeim og sonarson sinn, Þorberg, ólu þau upp frá því hann var á fyrsta ári og hefur hann mikils að sakna, eins og öll fjöl- skyldan. Jóhann bróðir okkar og Guðríður kona hans fóru oft með þeim í utanlandsferðir og vilja nú þakka henni fyrir allar ánægju- stundirnar frá þeim ferðum. Oft var farið í Aðalvík, þar sem við systkin- in ólumst upp, því þar eigum við sumarbústað og tengdist Ðilla þeim átthögum okkar mjög sterkum böndum og eins öllum ættingjum Þorbergs, sem þótti öllum mjög vænt um hana eins og hún væri ein af okkur. Við systkinin og makar okkar þökkum henni allar ánægjustund- irnar fyrr og síðar og sendum okk- ar innilegustu samúðarkveðjur til Þorbergs bróður okkar, barna þeirra og fjölskyldna og til systur hennar, Þorbjargar, og fjölskyldu. Að síðustu biðjum við henni bless- unar á Guðs vegum. F.h. tengdasystkina og maka, Dóra og Mumma Hún Dilla er dáin. Hún sem var svo hress í afmæl- inu hennar mömmu í nóvember. En maður veit aldrei hvenær kallið kemur. Dilla var ein sú yndislegasta og besta manneskja sem ég hef kynnst um ævina. Við systúrnar eigum svo margar góðar minningar frá sam- verustundum foreldra okkar og Dillu og Þobba. Við vorum alltaf velkomnar og fengum oft að vera hjá þeim. Dilla var einstök að því leyti að hún skildi svo vel þarfir og langanir barna og fórum við ekki varhluta af því. Við fengum að fara með þeim. á skíði og þó við ættum ekki skíðaútbúnað þá var það ekk- ert vandamál. Það voru bara fundin handa okkur skíði. Stundum var Dilla búin að fylla bílinn af krökkum áður en Þobbi vissi af og smyija nesti handa öllum mannskapnum. Okkur fannst líka æðislegt að fá að koma með út á Hafurbjarnastaði, sveifla okkur í köðlunum og láta okkur síðan detta Sjá nánar bls. 30. ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA ...Rauttnef erstyrkur Sala rauöa nefsins er fyrir lokaátak: húsbyggingar Samtaka endurhæföra mænuskaddaöra. • SEM-hópurinn. Alh. Mikligarður vestur íbæ h'í-top Gæ8i,be.r.ver6 sunn^um.^l Garðabæ. JXL KAUPSTADUR / MJÓDD AIIKUG4RDUR ALLAR BÚÐIR ---------------------I-----------------------------------

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.