Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 17

Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 Fyrirlestur um Genfarsáttmálana Genfarsattmálarmr og mannuðalög eru viðfangsefni fyrirlestra sem haldinn verður á vegum Rauða kross íslands í Lögbergi, stofu 101, föstudaginn 8. febrúar kl. 14.00. Fyrirlesturinn er í tengslum við „Sól úr sorta“, alheimsátak Rauða krossins til hjálpar stríðshrjáð- um. Fyrirlesari er Dr. Hans-Peter Gasser, aðalráðgjafi stjórnarnefnd- ar Alþjóðaráðs Rauða krossins um lögfræðileg málefni. Dr. Gasser hefur meira en tuttugu ára reynslu af störfum fyrir Rauða krossinn jafnt í höfuðstöðvunum í Genf sem á átakasvæðum um allan heim. í fyrirlestrinum verður sérstak- lega fjallað um málefni barna og ( óbreyttra borgara, sem sífellt verða ver úti í stríði, málefni stríðsfanga og helstu hindranir sem verða á vegi Alþjóðaráðs Rauða krossins þar sem styijaldir geysa. I lok fyrirlestrarins mun Dr. Gasser svara spumingum fundar- manna og fjöimiðla. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Morgunblaðið/KGA Frá vinstri: Hannes Koik, framkvæmdasljóri KFUM í Eistlandi, Göran Stenfelt, formaður nefndar nor- rænu KFUM og KFUK-félaganna um samskipti við Eystrasaltsríkin, Gunta Kelle, formaður KFUM og KFUK í Lettlandi, Gunnar Angeltveit frá KFUM og KFUK í Noregi og Ivar Muravskis frá Lettlandi. Fulltrúar KFUM og KFUK frá Eistlandi og Lettlandi: Starfsemi kristilegra félaga endnrvakin eftir áratuga bann KRISTILEGT félag ungra manna og kvenna er nú byrjað að festa rætur í Sovétríkjunum líkt og fleiri fijáls æskulýðssamtök. Deildir hafa verið stofnaðar í Eistlandi og Lettlandi, Leníngrad, Armeníu og Georgíu. Um síðustu helgi var haldinn hér á landi norrænn sam- ráðsfundur KFUM og KFUK-félaga. Gestir fundarins komu frá Eist- landi og Lettlandi. Þar er nú verið að endurvekja starfsemi kristi- legra æskulýðsfélaga eftir að hún hefur verið bönnuð áratugum saman. í Litháen hefur slíkt starf hins vegar ekki hafist þótt slíkt sé í undirbúningi, meðal annars vegna þess að engin hefð er fyrir starf- semi KFUM og KFUK þar í landi. Morgunblaðið ræddi við nokkra fulltrúa á samráðsfundinum af þessu tilefni. Morgunblaðið/Emilía Bragi Kristjónsson með frumút- gáfur Þjóðsagna Jóns Arnasonar. Bókavarðan: Kápueintak af frumútgáfu Jjjóðsagna Jóns Arnasonar Á bókauppboði Bókavörðunnar, Hafnarstræti 4, á laugardaginn verður m.a. boðið upp kápuein- tak af frumútgáfu á Þjóðsögum Jóns Árnasonar, sem út komu í heftum í Leipzig í Þýskalandi árin 1862-1865. í fréttatilkynningu frá Bókavörð- unni segir, að m.a. verði seld á uppboðinu hundruð bóka, tímarita, handrita og gamalla stjómmála- plakata. Af handritum eru nefnd handrit eftir Jóhann Siguijónsson skáld og brúðkaupskvæði frá Selt- jarnarnesi frá árinu 1898. Meðal bóka k uppboðinu verða „Fjárlög- in“, íslenskt söngvasafn, gamlar landshagsskýrslur, Kvæðið um fangann eftir Oscar Wilde, tölusett útg., Vídalínspostilla, Hólum 1798, Almanökiri frá hendi Jóns forseta Sigurðssonar, 1845-1872. Einnig frumútgáfur eftir Þórberg Þórðar- son, Halldór Laxness og Bólu- Hjálmar og fræðibækur um íslensk og norræn fræði. Þá verður boðin upp bókaskrá Þorsteins sýslumanns um bókasafn hans, se'm nú er í Skálholtskirkjuturni. Bækurnar verða til sýnis í Hafn- arstræti 4 föstudag kl. 14-18 og laugardag frá kl. 10-12. Göran Stenfelt, formaður nefnd- ar norrænu KFUM og KFUK-félag- anna um samskipti við Eystrasalts- ríkin, segir að það hafi ekki reynst erfitt að hleypa af stokkunum KFUM-starfi í Lettlandi og Eist- landi. „Hefðin er fyrir hendi og menningarlega séð stendur það fbú- um landanna nærri að skipuleggja æskulýðsstarf með þessum hætti.“ Ivar Muravskis segir að um miðj- an september 1990 hafi KFUM og KFUK verið endurreist formlega í Lettlandi. Hann getur þess sérstak- lega að Svíar hafi verið hjálplegir við uppbyggingarstarfið, einkum hvað varðar þjálfun æskulýðsleið- toga. Muravskis segir að gildi nor- ræna samstarfsins fyrir sig og landa sína felist í því að leiða unga fólkinu fyrir sjónir að það sé Evr- ópubúar. „Við hugsum eins og Evr- ópubúar, við viljum lýðræði og við völdum ekki einræðið." Hann segir að einnig vilji menn afla sér reynslu og þekkingar og víkka sjóndeildar- hringinn. Hannes Koik, framkvæmdastjóri KFUM í Eistlandi, segir að form- lega hafi verið stofnað KFUM-félag í Eistlandi í mars á síðasta ári. Sjálf- ur fór hann til Bandaríkjanna haustið 1989 til að kynna sér starf- semi hreyfingarinnar. Nú eru 800 félagar i eistnesku samtökunum. Þar á meðal er ein deild sérstaklega fyrir Rússa. „Vandamálin eru mörg. Við höfðum KFUM í Eistlandi fyrir stríð. En fæstir muna svo langt aftur í tírnann." Koik tekur undir það sem áður hefur komið fram að Eistlendingar telji sig eiga meira sameiginlegt með Norðurlandabú- um en Rússum, t.d. séu 80% Eist- lendinga lúterskrar trúar. Gunta Kelle, forsetl KFUM og KFUK í Lettlandi, segir að félag- arnir í Lettlandi séu um 700 talsins en það sé erfitt að gefa nákvæma tölu því ijöldinn vaxi svo ört. Hvað starfið varði þá verði sumarbúðir skipulagðar í fyrsta skipti nú í sum- ar. Nú í vetur séu haldin tónlist- arnámskeið og balletskóli er rekinn að ógleymdum biblíustundunum. Hús KFUM og KFUK var reist f Rigu árið 1922 fyrir bandarískt fé. Byggingin var gerð upptækt við hernám Sovétmanna og starfsemin bönnuð. En nú hafa samtökin feng- ið leyfi til að hafa skrifstofu sína á ný í þessu húsi. Á hveijum stað reyna menn svo að finna leiðir til að hýsa starfsemina. Sums staðar fer starfið fram í kirkjuhúsnæði og annars staðar er efnt til samkoma á vinnustöðum eftir að hefðbundn- um vinnutíma lýkur. Kelle er spurð hvort KFUM keppi við ungliðahreyfingu kommúnista um hylli barna og unglinga. „Mun- urinn er_ náttúrlega mikill á þessu tvennu. I upphafi Ungliðahreyfing- ar kommúnista var ungur drengur gerður að hetju. Hann njósnaði um foreldra sína og sagði frá því að faðir sinn væri óvinur ríkisins. Fað- irinn var tekinn af lífi en drengnum hampað. Önnur börn voru hvött til að feta í fótspor hans og fylgjast með foreldrum sínum og nágrönn- um. Þetta var grimmdarlegt en satt engu að síður. En ég er barn þessa tíma og stærstur hluti sovésks þjóð- félags. Við vorum alin upp í þeirri trú að óvinurinn væri ekki langt undan. En þú þegar kommúnista- flokkurinn er að hruni kominn yfir- gefur ungt fólk eðlilega ungliða- hreyfinguna og er hugmyndafræði- lega ráðvillt. KFUM býður upp á kristilegan valkost fyrir ungt fólk sem svo er ástatt um.“ HEILSUDAGAR 10-70% AFSLÁTTUR af þrek- og 2. Magobekkur æfingatækjum EXCLUSIVE Veró kr. 6.400, nú kr. 5.760. J 1. Æfingastöó PRISMA, bekkpressa, hnébeygja, „butterfly", fótaæfingar, armbeygjur og fleira. Verðkr. 45.100, nú kr. 33.250. Varahluta- og viógeróarþjónusta. 5. Skóbekkut. Verðkr. 8.756, „ . ..... ... núkr.5.900. 3. Þrekhjol, v-þysk. v „5f«w Veró fró kr. 13.956. ^ Sendum í póstkröfu. Greiðslukort-Greiðslukorta- samningar. JE |jP®m ÁRMÚLA 40-SÍMl 35320 MWWWJUWKI kferslunin Hágæöa ritvinnsluprentari Hljóölaus Gæöaletur Mikiö rekstraröryggi Mjög nettur Tilbúinn fyrir Windows 3 Hewlett Packard hágseðaprentarar EINSTAKT TILBOÐ Hewlett Packard DeskJet 500 - kr. 63.000, með VSK Góð greiðslukjör 58.590 stgr. m/VSK eða t.d. munXlán 25% útborgun og 4.427,- á mánuði í 12 mánuði. Gerðu verðsamanburð. M ÖRTÖLVUTÆKNI H TÖLVUKAUP HF ■ SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI: 68 72 20 HÉRÍ.NÚ AUGLÝSINGASTOFA [VIS PRENTARAR SEM AÐRIR LIKJA EFTIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.