Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 21

Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 21 Milliríkjasamningur Rússlands og Litháens: Ákvæði um lýðréttindi rússneska minnihlutans getur valdið erfiðleikum EINS og fram hefur komið undanfarna daga er eitt af þeim skilyrð- um sem ríkisstjórnin hefur sett fyrir því að taka upp stjórnmálasam- band við Litháen að Rússland og Litháen geri með sér milliríkja- samning. Morgunblaðið ræddi í gær við tvo blaðamenn óháðu so- vésku fréttastofunnar Interfax um möguleikana á því að sá samn- ingur verði að veruleika. Blaðamennirnir segja að samn- ingurinn sé nú nánast fullgerður og tilbúinn til undirritunar. Hins vegar hafi dagsetning fundar Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, og Vytautas Landsbergis, forseta Lit- háens, ekki verið ákveðin. Helst hafi verið um það rætt að Lands- bergis eigi í erfiðleikum með að koma til fundar við Jeltsín. Morg- unblaðið hefur rætt við aðila í Lit- háen og þeir segja að samninginn eigi að undirrita öðru hvoru megin við þessa helgi. Hugsanlegt sé að staðgengill Landsbergis fari til Moskvu til fundar við Jeltsín. Annar blaðamanna Interfax sem skrifar sérstaklega um þing rúss- neska lýðveldisins segist búast við hörðum átökum um samninginn. „Möguleikarnir eru margir. í fyrsta lagi að rússneska þingið hafni samningum í heild. I öðru lagi að þingið æski eftir viðbótum við samninginn um réttindi rússne- skumælandi fólks í Litháen. Þetta atriði gæti líka spilað inn í af- greiðslu þingsins á samningum þeim sem þegar hafa verið gerðir við Eistland og Lettland. í samn- ingi Eistlands og Rússlands er ákvæði um að stofnuð verði nefnd sem ræði þetta vandamál. Ólíklegt er að kommúnistar og svokallaðir hægri-miðjumenn sætti sig við svo veikt ákvæði.“ Blaðamenn Interfax segja að málefni Eystrasaltsríkjanna séu nú efst á baugi- í Moskvu og þess vegna hafi hlutur íslands í málinu vakið mikla athygli. Til dæmis- hafi fréttastofan tekið viðtal við Ólaf Egilsson sendiherra íslands í fyrradag í tilefni af mótmælum sovéskra stjórnvalda. Hann hafi m.a. verið beðinn að meta viðbrögð þau sem sovéska utanríkisráðu- neytið hafi sýnt við yfirlýsingu íslensku ríkisstjórnarinnar frá 23. janúar um að með heimsókn ut- anríkisráðherra íslands til Litháens hafi stjómmálasambandi verið komið á í raun. „Með tilliti til mikil- vægis málsins verður að líta svo á að einhver viðbrögð hafi verið eðli- leg,“ hefur f/iterfax-fréttastofan m.a. eftir Ólafi Egilssyni. Einnig hafði fréttastofan það eftir starfs- mönnum utanríkisráðuneytis Lit- háens á miðvikudag að ísland hefði í raun (de facto) tekið upp stjórn- málasamband við ríkið og þessi væri ekki langt að bíða að það yrði gert að lögum (de jure). ísland og Liecthenstein verða einu EFTA-ríkin eftir fá ár - segir EB-þingmaður er telur nýjar stofnanir og stjórn- kerfi vegna samstarfs bandalaganna óþörf Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Utanríkisnefnd Evrópuþingsins viil ekki að komið verði á fót neinum sameiginlegum nefndum eða formlegum fundum með þing- mönnum frá EFTA-ríkjunum vegna Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Tillaga nefndarinnar gerir ráð fyrir að sendinefndir frá báðum aðilum fjalli um samskipti EFTA við Evrópubandalagið (EB) innan EES. í máli þingmanna kom fram ótti við að EES gæti spillt mögu- leikum þingsins á að auka áhrif sín og völd á ráðstefnunum sem standa yfir um breytingar á stofn- sáttmálum EB. Þeirri hugmynd var varpað fram að setja ætti sól- arlagsákvæði, þ. e. ákvæði um takmarkaðan gildistíma, inn í samninginn um EES þar sem allt benti til þess að öll EFTA-ríkin yrðii innan fárra ára aðilar að EB að íslandi og Liechtenstein undan- teknum. Það virtist ástæðulaust að halda úti flóknu og mannfreku stjórnkerfi vegna samskipta við þau, að sögn eins þingmannanna. í ályktun utanríkismálanefnd- arinnar sem afgreidd var á fundi í Brussel í gær er því beint til fram- kvæmdastjórnarinnar að í samn- ingnum um EES verði gert ráð fyrir samstarfi sendinefnda frá Evrópuþinginu og þjóðþingum EFTA-ríkjanna. Nefndin felldi til- lögur um sameiginlega þingfundi tvisvar á ári sem hefðu raunveru- leg áhrif á stjórn EES og sömuleið- is tillögu um sameiginlega nefnd sem fundaði misserislega og hefði umboð til að gera tillögur um stjórn efnahagssvæðisins. í álykt- uninni sem verður rædd á Evrópu- þinginu 20. febrúar er lýst yfir stuðningi við samningaviðræðum- ar. Lögð er áhersla á að samning- urinn um EES megi ekki á neinn máta draga úr völdum og áhrifum Evrópuþingsins og enn síður minnka líkur-þess á enn frekari áhrifum. Bent er á að ef fram- kvæmdastjórnin standi ekki við gefin fyrirheit um náið samráð við þingið á lokastigum samningavið- ræðnanna auki það ekki líkurnar á greiðri afgreiðslu samningsins þegar hann kemur til umfjöllunar á þinginu. ítrekuð er sú afstaða þingmanna að ekkert það sam- komulag megi gera um sameigin- lega mótun og töku ákvarðana sem bindi hendur þingsins eða dragi úr áhrifum þess. Fulltrúi framkvæmdastjómar- innar á fundi nefndarinnar full- vissaði þingmenn um að samning- arnir væru engan veginn komnir á lokastig, enn væru ótal atriði óafgreidd. Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórnarinnar, myndi gera þingheimi grein fyrir stöðu samninganna þegar þeir væru komnir á lokastig eins og lofað hefði verið. Reuter Ossetíumenn veita viðnám Liðsmenn heimavarnarsveitar Ossetíumanna standa við götuvígi fyrir utan Tskhinvali, höfuðstað Ossetíu-héraðs í Georgíu, til að koma í veg fyrir að lögregla Georgíu komist inn í borgina. Um þijátíu manns hafa beðið bana í bardögum að undanförnu milli Georgíumanna og Ossetíumanna. Margir sovéskir fréttaskýrendur telja að Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta stafi enn meiri hætta af ástandinu í Georgíu en af því sem er að gerast í Eystrasaltslöndun- um. HAMBORGARI frönskum og sósu m/osti, frönskum og sósu m/bacon, frönskum og sósu 2.faidur ^Vfrönskum og sósu 199t 345-- 37§t 4251 Heill Griilkíuklíngur HVfrönskum 599jl \. Grittkjuhnugur allsber AÐEINS 299*- B’ONUS BORGARl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.