Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 23 Pálmi Jónsson „Skattar til ríkisins hafa á þessum árum hækkað um 16% á með- an rekstrarútgj öld heimilanna hafa dregist saman um 12%. Á þessu sama árabili hafa ráð- stöfunartekjur launa- fólks lækkað um meira en 15%“ 116 • ríkissjóðs ;strarútgjöld heimilanna -88 989 1990 1991 mkr. í fjárlögum ’91. Með slíkum breytingum á uppsetningu fjárlaga er verið að rugla samanburð við fyrri ár, væntanlega til þess að villa um fyrir þeim sem lesa niðurstöðu- tölur ijárlaganna. Hækkun skatta á milli ára 1987-’91 er því meiri en sýnt er hér að framan. í fjárlög- um þessa árs er gert ráð fyrir að „sértekjur" verði yfir 4,6. milljarðar kr._ Á meðfylgjandi yfirliti, mynd II., sést hlutfallsleg þróun á skatt- heimtu ríkissjóðs annars vegar og rekstrarútgjalda heimilanna hins vegar 1987-’91, miðað við fast verðlag 1987. Skattar til ríkisins hafa á þessum árum hækkað um 16% .á meðan rekstrarútgjöld heimilanna hafa dregist saman um 12%. Á þessu sama árabili hafa ráðstöfunartekjur launafólks lækkað um meira en 15%. Samanburðurinn kemurvænt- anlega engum á óvart. Eftir því sem rikissjóður heimtar til sín stærri hluta af ráðstöfunarfé þjóðarinnar er minna eftir fyrir aðra. Þeim mun méira er þrengt að heimilunum, atvinnufyrirtækjunum og öðrum þeim sem ekki eru á ríkisjötunni. Þetta verður vitaskuld ennþá sárara á þeim tímum þegar samdráttur og kyrrstaða er í efnahagslífinu. Á þessum árum hafa beinir skatt- ar á einstaklinga og fyrirtæki hækkað um hvorki meira né minna en 85%. Svo virðist sem þar komi fram sérstakt eftirlæti ríkisstjórn- arinnar í skattheimtunni, enda eru þeir nú vandfundnir sem treysta sér til að leggja fé í nýtt atvinnufyrir- tæki. Á hinn bóginn hafa óbeinir skattar hækkað um 5% Sú stefna ríkisstjórnarinnar sem að framan er lýst og fram kemur í því að hækka skatta til ríkisins ár frá ári langt umfram tekjumynd- uní þjóðfélaginu, er þjóðinni hættu- leg. Hún heftir framtakssemi og verðmætasköpun og leiðir til viðvar- andi stöðvunar í lífskjörum fólksins. Með slíku framhaldi verðum við Islendingar dæmdir til að sitja eftir í kapphlaupi flestra þjóða um fram- farir og aukna hagsæld. Ríkisstjórn sem þannig starfar og lýsir því yfir a hún hyggist halda áfram á sömu braut þarf sannarlega að fá hvíldina. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Norðurlandskjördæmi vestra ogn sæti í fjárveitinganefnd Alþingis. Björn Bjarnason „Hviki íslenska stjórnin núna hefur Litháum verið unnið ógagn en ekki gagn með afskipt- um Jóns Baldvins Hannibalssonar.“ sig af því, oftar en einu sinni, að hafa staðið uppi í hárinu á breskum og bandarískum valdamönnum í umræðum innan NATO um afvopn- un á höfunum. Innan Atlantshafs- bandalagsins telja menn slíka af- vopnun einkum þjóna sovéskum hagsmunum enda hafa sovéskir erindrekar rætt hana af mestum þunga. Ef svo ólíklega færi, að Sovét- stjórnin sliti stjórnmálasambandi við íslensku ríkisstjórnina, eftir að við hefðum tekið upp stjórnmála- samband við Litháen, kæmi enn betur í ljós, hve mikla hjálparhönd við værum að rétta Litháum. Ein- mitt um það snýst þetta mál: hvað við getum gert áhrifamest til að stuðla að fullu sjálfstæði Litháa, Letta og Eistlendinga. Við höfum aldrei sætt okkur við ólögmáita inn- limun þessara ríkja í Sovétríkin. Við höfum viljað sýna þjóðunum sem í þeim búa mesta stuðning sem við megnum. Nú gerum við það best með því að taka upp stjórn- málasamband við Litháen. íslensk stjórnvöld geta því miður ekki beitt neinum ráðum til að koma á friði við Persaflóa. Þar erum við ekki í stöðu til að hafa áhrif. Við höfum hins vegar tækifæri til al- þjóðlegra áhrifa í þágu Litháa, Letta og Eistlendinga. Miðað við framvindu samskipta okkar við Lit- háa yrði fráhvarf ríkisstjórnar ís- lands nú frá stjórnmálasambandi við Litháen eins og högg á útrétta hönd manns í nauð. Eftir mótmæli Sovétstjórnarinnar við sendiherra íslands teldu ráðamenn í Moskvu sig hafa brotið íslensk stjórnvöld á bak aftur: það yrði fögnuður í Kreml um leið og skuggi félli yfir andlit þeirra sem berjast fyrir frelsi og sjálfstæði þjóðar sinnar í þing- húsinu í Vilnius. Höfundur er aðstoðarritstjóri Morgunblnðsins. AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES- BRAGADÓTTIR Sambandið: Stjómin geti ákveðið að stjórnarformaður gegni starfi forstjóra SÍÐAR í þessum mánuði kemur sljórn Sambands íslenskra samvinnufélaga saman og fjallar um tillögur nefndar á vegum stjórnarinnar um framtíðarskipulag SIS sem eignarhaldsfyr- irtækis. Það sem mesta athygli vekur er svohljóðandi tillaga: „Sljórn Sambandsins getur ákveðið að formaður gegni starfi forstjóra." Hér er, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, farið bil beggja, því uppi voru hugmyndir um að forstjóra- starfið yrði einfaldlega lagt niður. I tillögum nefndarinnar er jafnframt lagt til að fækkað verði í stjórninni úr níu í fimm og að aðalfundarfulltrúum Sambandsins verði fækkað úr 120 í um 60. Gert er ráð fyrir að þessar nýju tillögur taki gildi 1992, hljóti þær á annað borð samþykki, bæði stjórn- ar og aðalfundar Sambandsins. Svona breytingar hafa raunar legið í loftinu, allt frá því að aðalfundur Sambandsins sam- þykkti í júní í fyrra þær skipu- lagsbreytingar sem gerðar hafa verið á Sambandinu og hafa smám saman verið að koma til framkvæmda frá ■ síðastliðnu hausti til síðustu áramóta. Guð- jón B. Ólafsson forstjóri hefur frá þeim tíma ekki viljað tjá sig um framtíð sína hjá Sambandinu og vill ekki enn. Sigurður Markús- son hefur frá sama tíma verið starfandi stjórnarformaður og nú segja Sambandsmenn að þar sem skipulagsbreytingamar séu nán- ast afgreiddar undir hans for- ystu, sé einfaldlega ekki verksvið fyrir þá báða lengur. Sigurður er óumdeildur — ótrúlega óum- deildur — og því talið að Guðjón verði að víkja. Raunar mun samstarf þeirra Guðjóns og Sigurðar hafa verið með miklum ágætum, frá því að skipulagsbreytingamar voru samþykktar í júní í fyrra, allt þar til fyrir skömmu. Innan Sam- bandsins er talið, að Guðjón hafi haldið velli eins lengi og raun ber vitni, vegna þess að Sigurður hafi stutt hann með ráðum og dáð. Guðjón eigi stjórnarsetu sína í hlutafélögum Sambandsins Sig- urði meira og minna að þakka, en Sigurður hafi einfaldlega ekki haft bolmagn til þess að tryggja Guðjóni stjómarfonnennskuna í íslenskum sjávarafurðum hf. sem Guðjón sóttist eftir, en það hafi verið fyrir stuðning Sigurðar sem Guðjón varð varaformaður stjómarinnar. Allt of kostnaðarsöm yfirbygging í nefndarstarfinu kom fram að hlutverk Sambandsins sem eignarhaldsfélags yrði ekki yfir- gripsmeira en svo að félagið kæmist af með sjö starfsmenn eða svo. Því væri tilefnislaust með öllu að hafa þar stjórnar- formann á fullum launum og for- stjóra á fullum launum. Nefndin taldi, að slíkt fyrirkomulag gæti ekki verið eigendum Sambands- ins, kaupfélögunum, þóknanlegt til frambúðar. Slík yfirbygging á ekki umfangsmeiri starfsemi sé allt of kostnaðarsöm og erfitt að réttlæta hana. Búist við því að breytingarnar verði samþykktar Tillögur nefndarinnar eru nú þegar í höndum níu manna stjórnar Sambandsins, þriggja manna varastjórnar og tveggja fulitrúa starfsmanna í stjórn og er ljóst af samtölum mínum við stjórnarmenn, að. fastlega er búist við, að tillögurnar verði samþykktar i stjórninni. Þær verða í kjölfar þess sendar út til kaupfélaganna, þar sem aðal- fundarfulltrúar Sambandsins þurfa að kynna sér þær, gera athugasemdir og taka afstöðu til þeirra fyrir aðalfundinn í vor. Nálægt þijátíu manns starfa nú á aðalskrifstofu Sambandsins, og eru þeir margir hveijir orðnir uggandi um framtíð sína, enda margir verkefnalitlir orðnir. Til dæmis starfrækir Sambandið heila auglýsingadeild, sem hluta- félög Sambandsins skipta ekki einu sinni við, og starfsmanna- stjóri er enn starfandi, en þorri starfsmannanna er nú í störfum hjá hlutafélögunum sex og þar með ekki lengur undir hans stjórn. Ljóst er, að þegar það skipulag er endanlega komið á, sem tók gildi á síðasta hluta ársins 1990, þarf verulega að fækka starfs- mönnum eignarhaldsfélagsins. Rætt er um að í framtíðinni muni ekki fleiri en sjö til tíu starfa á aðalskrifstofu Sam- bandsins. Ekki er þar með sagt • að atvinnuleysi blasi við þeim starfsmönnum sem munu hverfá frá aðalskrifstofunni, því hjá hlutafélögunum sem stofnuð hafa verið upp úr deildum Sam- bandsins að undanförnu starfar talsvert á annað þúsund manns og forsvarsmenn Sambandsins horfa til þess, samkvæmt mínum upplýsingum, að fækki eitthvað verulega enn á aðalskrifstofunni, þá sé möguleiki að finna þeim starfsmönnum störf hjá hlutafé- lögunum, enda hafa slíkar til- færslur þegar átt ,sér stað í nokkrum mæli. Framkvæmdastjórn lögð niður Það stjórnunarlega fyrirkomu- lag, sem var í gildi hjá Samband- inu, áður en fyrirtækið var brotið upp í sex hlutafélög, var þannig að framkvæmdastjóm var skipuð öllum framkvæmdastjórum mis- munandi deilda Sambandsins og forstjóra, sem var í forsæti, en eftir skipulagsbreytingarnar er engri framkvæmdastjórn fyrir að fara lengur. Nú gerir skipulags- nefndin tillögu sem hljóðar svo: „Stjórn Sambandsins getur ákveðið að formaður gegni starfi forstjóra. Skal formaður þá hafa samráð við varaformann stjórn- ar, þar sem í samþykktum þess- um er kveðið á um samráð for- stjóra við stjórnarformann.“ Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað sér var talsvert tekist á um þessa tillögu í nefndinni, áður en endanlegt | < orðalag var samþykkt. Þeir sem í nefndinni sátu voru: Gunnar Sveinsson, Jón Sigurðsson, Jó- hannes Geir Sigutjónsson,_ Sig- urður Kristjánsson og Ásgeir Jóhannesson. Með nefndinni störfuðu þeir Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins, Sigurður Markússon stjórnarformaður Sambandsins og Jón Þór Ólafs- son fulltrúi forstjóra. Sigurður Markússon mun hafa beitt sér mjög til þess að samkomulag | «: næðist um orðalag tillögunnar, en ákveðnir nefndarmenn vildu ganga mun lengra en hafa þetta einungis í formi heimildarákvæð- is og ákveða að forstjóraembætt- ið yrði lagt niður, eða að ákveðið yrði í eitt skipti fyrir öll að form- aður skyldi gegna embætti for- stjóra, og formennska og for- stjórastarf yrðu sameinuð í eitt starf. Ekki náðist í Guðjón vegna þessa máls í gær og Sigurður Markússon varðist allra fregna. Spurningin núna er ekki talin hvort, heldur hvernig brottför Guðjóns frá Sambandinu verður. Það hefur stundum flogið fyrir að Guðjón taki við forstjórastóli Vilhjálms Jónssonar í Olíufélag- inu, en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er af og frá að svo geti orðið. í fyrsta lagi hefur Vilhjálmur ekkert látið uppi um það hvenær hann hyggst láta af störfum. í öðru lagi lítur hann ekki á Guðjón sem arftaka sinn, heldur miklu fremur Geir Magn- ússon, fyrrverandi bankastjóra Samvinnubankans, sem fór hall- oka fyrir Halldóri Guðbjarnasyni í slagnum um bankastjórastöðu í Landsbankanum. Fer Guðjón utan á nýjan leik? Líklegast mun Sambandið bjóða Guðjóni eitthvert starf er- lendis, en ekki liggur fyrir hvað það muni verða, né hvort Guðjón muni þekkjast boðið. Kappkostað verður, eftir því sem næst verður komist, að þessi stjórnunarlega breyting gerist í friði og spekt, en ekki eru allir bjartsýnir á að það takist. Raunar er málið talið svo brýnt, að ekki megi draga fram til aðalfundar að ná niður- stöðu í því. Raunar telja þeir, sem unnið hafa í málinu að undanf- örnu, að umfjöllun aðalfundar um málið í heild geti orðið stórskað- leg og því sé vænlegast að fá botn í það fyrir aðalfund — vel fyrir aðalfund.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.