Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.02.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 Þingsályktunartillaga: Gerð verði áætl- un um reiðvegi ALÞINGI samþykkti í gær þingsályktun um „að fela samgönguráð- herra að skipa nefnd með þátttöku samtaka hestamanna og sveitar- félaga til að kanna ástand reiðvega og gera reiðvegaáætlun". Þingsályktunartillagan um gerð reiðvegaáætlunar var flutt í sam- einuðu þingi af Guðmundi G. Þór- arinssyni (F-Rv) og sjö öðrum á um framsóknarmönnum. Tillagan var nokkuð ítarleg og kvað m.a. framkvæmdaatriði og setti tíma- mörk. Samhliða þing'sályktunartil- lögunni voru lögð fram í neðri deild tvö frumvörp, um breytingu á vegalögum og um breytingu á lögum um fjáröflun til vegagerð- Morgunblaðið/Sverrir Ríkið á ekki að selja tóbak JSegir Ingi Björn Albertsson INGI Björn Albertsson (S-Vl) segir óviðeigandi að ríkið annist sölu á svo skaðlegri vöru sem tóbak sé ótvírætt talið. Þingmað- urinn hafði í gær í sameinuðu þingi framsögu fyrir tillögu til þingsályktunar um afnám einka- sölu ríkisins á tóbaksvörum. Friðrik Sophusson (S-Rv) er með- flutningsmaður með Inga Birni. tóbaksneyslu. Hann taldi slíkan ugg ástæðulausan. Tóbaksneysla myndi ekki aukast en hins vegar myndu neytendur hafa úr fleiri tegundum að velja. Einkasala ríkisins á tóbaki mun hafa hafist á þriðja áratugnum en miðað við núverandi aðstæður væri eðlilegra og einfaldara fyrir ríkið að ná þessum tekjum af tóbakssölu með beinni skattlagningu á inn- flutning þess og framleiðslu (nokk- uð magn af neftóbaki mun vera unnið hér á landi). Auk þess væri það óviðeigandi í ljósi þess hve skað- semi tóbaksneyslu væri talið ótví- rætt, að ríkið væri að stunda versl- un með þennan varning sem væri seldur í verslunum og söluturnum á ótal götuhornum. í ræðu flutningsmanns kom fram að fyrir sjö árum hefði lagafrum- varp svipaðs eðlis og þessi þings- ályktunartillaga verið nærri því að komast í gegnum þingið; var sam- þykkt í fyrri deild en hefði strandað í þeirri seinni. Ingi Björn vonaði að sú saga endirtæki sig ekki; hann fyndi fyrir stuðningi manna við þetta málefni. Framsögumaður lagði að éndingu til að málinu yrði vísað til allsheijarnefndar. At- kvæðagreiðslu var frestað. ar, nánar tiltekið um sérstakt hóf- ijaðragjald. Þingsályktunartillögunni var vísað til allsheijarnefndar. Alls- heijarnefnd taldi ekki ástæðu til að tengja þingsályktunartillöguna við lagafrumvörpin tvö sem eru í umijöllun samgöngunefndar og ijárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar. En allsheijarnefnd taldi vert að kanna ástand reið- vega hérlendis og að gerð verði áætlun um uppbyggingu reiðvega. Það verði síðan samgönguráðherra eða þingmanna að meta hvort rétt sé að flytja lagafrumvörp sem kvæðu á um framkvæmd slíkrar áætlunar. Allsheijarnefnd felldi því úr þingsályktunartillögunni nokkur atriði. Svo breytt var til- lagan samþykkt sem ályktun Al- þingis með 32 samhljóða atkvæð- um. MMIMSI Kynferðisafbrotamenn verði undir eftirliti Þingsályktunartillagan gerir ráð •fyrir að Alþingi álykti að „fela fjár- málaráðherra að undirbúa og leggja fyrir næsta þing frumvarp til laga um afnám einkasölu ríkisins á tób- aksvörum og aðrar nauðsynlegar lagabreytingar í því sambandi. Frumvarpið heimili fijálsan inn- flutning og dreifingu á tóbaksvör- um án þess að dregið sé úr þeim tekjum sem ríkissjóður hefur nú af sölu tóbaksvara." Ingi Björn Albertsson sagði að lagt væri til að innflutningur og heildsala á tóbaki yrði gefinn fijáls. Jafnframt yrði gjaldtaka ríkisins einfölduð, lagt yrði á eitt gjald, tób- aksgjald, í stað þeirra gjalda og skatta sem nú legðust á þessa vöru. Nettótekjur af tóbakssölu árið 1989 námu 1,840 milljörðum króna. Framsögumaður vísaði þeim úr- tölum á bug að ríkið myndi tapa tekjum ef það léti af þessari sölu- mennsku. Þvert á móti; ríkið myndi spara sér umstang og kostnað við geymslu, dreifíngu, starfsmanna- hald og fleira. Eðlilegt væri að þeir tveir umboðsaðilar sem flyttu inn yfir 90% af þessum varningi sæju um þessa hlið málanna. Ræðumaður greindi frá því að sumir óttuðust að afnám þessarar einkasölu myndi leiða til aukinnar Fyrirspum Málfríð- ar Signröardóttur Málmfríður Sigurðardóttir (SK-Ne) vill að haft sé eftirlit með kynferðisafbrotamönnum. — En „þeir fangar sem afplánað hafa refsingu sína að fullu eru aldrei undir eftirliti eftir að af- plánun lýkur, enda engin heimild til slíks,“ sagði dómsmálaráð- herra í fyrirspurnartíma samein- aðs þings í gær. Málmfríður hafði lagi fyrir dóms- málaráðherra eftirfarandi fyrir- spurn: „1) Eru síbrotaménn og þeir sem gerst hafa sekir um sérlega alvarleg afbrot undir sérstöku eftir- liti stjórnvalda þegar þeir hafa af- plánað dóm? 2) Ef svo er, hvernig er slíku eftirliti háttað og er þörfin á eftirliti byggð á mati sérfræðinga á því hveijar líkur séu til þess að afbrotamaður bijóti ekki af sér á Málmfríður Sigurðardóttir ný? 3) Ef svo er ekki, eru þá ein- hver áform um að taka upp slíkt eftirlit byggt á sérfræðilegu mati? Það kom skýrt fram í ræðu fyrir- Óli Þ. Guðbjartsson spyijanda að þeir síbrotamenn sem hún hafði áhyggjur af væru þeir sem fremja ofbeldis- og kynferðis- afbrot: „Ein grófasta tegund of- beldis. Þetta ofbeldi er þeim mun svívirðilegra sem það bitnar ein- göngu á þeim minna mega sín, konum og börnum." Fyrirspyijandi sagði einnig að það hlyti að vekja ugg og kvíða foreldra og reyndar allra að þeim mönnum sem hefðu framið hvað hroðalegust brot gegn börnum skuli hleypt óhindrað út í þjóðfélagið þegar þeir hefðu afplán- að dóm „sem oftast væri undárlega stuttur". Ráðleysi þjóðfélagsins gagnvart þessum mönnum virtist algjört. Væru þeir geðveikir væri enginn staður til að vista þá, væru þeir sakhæfir afplánuðu þeir dóm og síðan sleppt út í samfélagið. Málmfríður benti á að nú væri þess skammt að bíða að látnir yrðu laus- ir úr fangelsi tveir menn sem fram- ið hefðu alvarieg ofbeldis- og kyn- ferðisafbrot. Málmfríði var spurn hvort fangelsisvistin hefði bætt þá og Jeitt af villu þeirra vega. - Óli Þ. Guðbjartsson dómsmála- ráðherra greindi frá því að þegar fanga væri veitt reynslulausn eða dómþola veitt náðun af refsingu, væri það almennt gert með þeim skilyrðum að viðkomandi fremdi ekki refsivert brot á skilorðstíma, og sæti umsjón og eftirliti Fangels- ismálastofnunar. Þeim sem sættu eftirliti væri skylt að hafa samband við Fangelsismálastofnun a.m.k. einu sinni í mánuði og oftar ef ástæða þætti til. Fangelsismála- stofnun gengi eftir þvf að þessu væri sinnt. Stofnunin fylgdist með skjólstæðingum sínum í samstarfi við félagsmálastofnanir og reyndi með fyrirbyggjandi aðgerðum að koma í veg fyrir að_ þeir fremdu refsiverðan verknað. I svörum ráð- herra kom fram að undanfarin ár hefðu 67% þeirra sem veitt hefði verið reynslulausn, staðist skilorð hennar. Hins vegar kom fram í svörum ráðherra að þeir fangar sem afplán- uðu refsingu sína að fullu væru aldrei undir eftirliti eftir afplánun lyki enda engin heimild til slíks. Einnig kom síðar fram í svari ráð- herra að eftirlit væri hluti af refsi- vörslu hins opinbera og ef því væri beitt gagnvart dómþola sem hefði afplánað refsingu sína, væri í reynd verið að beita viðkomandi strangari viðurlögum en refsidómur kvæði á um. Vegamál: Þingsályktunartillaga um breikkun Suðurlandsvegar FJÓRIR þingmenn Suðurlandskjördæmis leggja til að Alþingi álykti að fela samgönguráðherra að hefja undirbúning að breikkun á Suður- landsvegi í tvær akreinar hvora leið frá Selfossi til Reykjavíkur. Kannað verði hvort hægt sé að vinna verkið í áföngum með það að markmiði að tvöfalda akbrautina fyrst þar sem slysahætta sé mest. "Enn fremur verði mörkuð sérstök fjármögnunarleið til að vinna þetta verkefni. Flutningsmenn, Guðni Ágústsson (F-Sl), Jón Helgason (F-Sl), Árni Johnsen (S-SI) og Eggert Haukdal (S-Sl) segja í greinargerð að á ákveðnum leiðum sé umferðarþung- inn slíkur að ekki sé hægt að tala 'um hraðbrautir. Brýnustu verkefnin sem blasi við á þessu sviði séu tvö- földun Reykjanesbrautar og svo Suðurlandsvegar frá Reykjavík austur á Selfoss. Tvöföldun þessara akbrauta er slíkt stórverkefni að leita verður leiða til að fjármagna þau sérstaklega, annaðhvort úr stórverkasjóði eða með sérstakri fjáröflun. í greinargerðinni kemur 'einnig fram að þessi þingsályktunartillaga er ekki síst flutt -til að minna á Suðurlandsveg og að um hann verði ijallað í þeirri langtfmaáætlun í vegagerð sem, nú sé unnið að. í greinargerðinni kemur m.a. fram að dagleg meðalumferð á veginum hafi nær tvöfaldast 1975-89, úr 1.643 bílum í 2.870. Þessi þingsályktunartilllaga var á dagskrá 52. fundar sameinaðs þings í gær en kom ekki til umræðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.