Morgunblaðið - 08.02.1991, Page 27
MöktíÚNBLAÐI© !
í 8. FEBRÚAR 1991 ------ 2T-5-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Foreldrar leika við börnin ífrímínútum
Það er mikið fjör í frímínútunum á fimmtudögum hjá
krökkunum í 1.-4. bekk í Glerárskóla, en foreldrafé-
lagið í skólanum ákvað í haust að heimsækja börnin
í skólann á þessum tíma og leika við þau í margs
konar leikjum. Tilefni þessa voru m.a. miklar umræð-
ur um hreyfingarleysi skólabarna og einnig þótti tilva-
lið að kenna börnunum þá leiki sem vinsælir voru
fyrir tuttugu, þtjátíu árum þegar foreldrarnir voru
börn. Hafa heimsóknir foreldranna í sTcólann mælst
vel fyrir hjá börnunum og er þeim tekið fagnandi.
Vínartónleikar Kanuner-
hljómsveitar Akureyrar
Vínartónleikar Kammer-
hljómsveitar Akureyrar sem
féllu niður vegna óveðurs um
síðustu helgi verða haldnir í
íþróttaskemmunni á morgun,
laugardag, og hefjast kl. 17.
Páll Pampichler Pálsson stjórnar
hljómsveitinni, sem skipuð er 50
hljóðfæraleikurum. Páll er lands-
þekktur sem stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitaj- íslands og Karlakórs
Reykjavíkur auk þess að hafa verið
afkastamikið og eftirsótt tónskáld,
segir í frétt frá Kammerhljómsveit-
inni.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða þau Signý Sæmundsdótir,
sópran, og Óskar Pétursson, tenór.
Signý stundaði söngnám í
Reykjavík og síðar í Vínarborg um
nokkurra ára skeið. Hún hefur
sungið í fjölmörgum óperum og á
tónleikum bæði hér heima og er-
lendis. Óskar er búsettur á Akur-
eyri og hefur hann sungið einsöng
með kórum bæði á Norðurlandi og
í Reykjavík, m.a. hefur hann sung-
ið inn á hljómplötu með Skagfírsku
söngsveitinni.
Signý Sæmunds- Óskar Pétursson
dóttir
Á tónleikunum verða fluttir fjör-
ugir vínardansar auk léttra og
sígildra laga úr óperettum þeirra
Lehár, Strauss og Stolz.
Hljómsveitin hélt sína fyrstu
vínartónleika á síðasta ári og hlutu
þeir góðar undirtektir áheyrenda
sem leiddi til þess að gera á slíka
tónleika að árvissum viðburði í tón-
listarlífinu á Akureyri.
Sjallinn:
Söngvakeppn-
Tregur afli frá áramótum;
Míui ekki eftír annarri eins ótíð
in á breiðtjaldi
SJALLINN sýnir á laugardags-
kvöld dagskrá frá því þegar
framlag Islendinga í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva verður valið.
- segir Gunnar Aðalbjörnsson frystihússtjóri á Dalvík
„ÞAÐ liggur við að maður óski eftir norðanáttinni,“ sagði Gunnar
Aðalbjörnsson frystihússtjóri í Frystihúsi KEA á Dalvík, en afar
treg veiði hefur verið síðustu mánuði og telja sumir að langvar-
andi sunnanátt og hlýindum sé um að kenna. Tekið hefur verið á
móti mun minni afla í frystihúsum á Akureyri, Dalvík og Olafsfirði
í janúar á þessu ári miðað við sama mánuð á síðasta ári, en á
Grenivík er annað upp á teningnum, þar hefur verið tekið á móti
meiri afla, og er skýringin sú að vinnsla hófst ekki af krafti í
húsinu fyrr en undir lok febrúar í fyrra.
Einar Óskarsson hjá Útgerðar-
félagi Akureyringa sagði að 860
tonn af fiski hefðu verið unnin í
frystihúsinu í síðasta mánuði, en
þar væru taldar með þijár landan-
ir ísfisktogara frá 2. janúar, en
aflinn var veiddur á milli jóla og
nýárs. Sé hann ekki meðtalinn er
heildaraflinn 730 tonn, en í janúar
í fyrra var aflinn 960 tonn, eða
230 tonnum meiri.
Einar sagði að þrátt fyrir tregan
afla hefðu ekki fallið niður margir
dagar í vinnslunni, en engin vinna
var í frystihúsinu vikuna 6-12 jan-
úar þar sem allir togarar voru úti
og fyrsta löndun ekki fyrr en 14
janúar. Að öðru leyti hefði vinna
haldist í húsinu en vissulega væri
rólegra yfir. í þessari viku hafa
280 tonn borist að landi, Hrímbak-
ur landaði í gær 83 tonnum, en
Sólbakur gamli og Svalbakur lön-
duðu í vikunni, 80 og 118 tonnum.
Þegar afli er sæmilega góður er
verið að vinna upp undir 400 tonn
á viku hjá ÚA.
Gunnar Aðalbjörnsson frysti-
hússtjóri í Frystihúsi KEA á Dalvík
sagðist ekki muna eftir annarri
eins ótíð og verið hefur síðustu
mánuði, en allt frá því í september
á síðasta ári hefðu aflabrögð verið
léleg. Frystihúsið hefur fengið til
vinnslunnar rétt tæp 300 tonn sem
er um 60 tonnum minna en á
síðasta ári. Vinna hófst 15. janúar
bæði árin. Björgvin landaði í gær
105 tonnum og sagði Gunnar það
vera mesta afla sem fengið hefði
í einni veiðiferð í langan tíma.
Björgúlfur landaði á mánudag um
40 tonnum eftir 8 daga. „Ég man
ekki eftir svo langvarandi ótíð,
maður fer að óska sér norðanáttar
ef þetta breytist ekki,“ sagði Gunn-
ar.
Jóhann Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar sagði að vinnsla hefði
farið seint af stað hjá fyrirtækinu,
eða 29. janúar, en það hefði m.a.
verið vegna þess að verið var að
gera skipin klár og einnig hefðu
aflabrögð ekki gefíð tilefni til að
byija fyrr. Hins vegar sagði Jó-
hann að á þessu ári væri von á
tryggari afla en var á síðasta ári,
en eftir að Sæberg hf. tók við
rekstri félagsins munu tveir togar-
ar leggja upp afla hjá HÓ_, þ.e.
Múlaberg, sem áður var Olafur
Bekkur, og Sólberg. Engin rækju-
vinnsla hefur verið hjá HÓ síðan
í nóvember og sagði Jóhann að
vinnslan yrði ekki gangsett fyrr
en ástandið lagaðist á rækjumörk-
uðum og þá eru öðru hvoru brædd
bein í loðnubræðslunni. „Það er
allt í hægagangi eins og er, en
maður vonar að þetta lagist," sagði
Jóhann.
Þorsteinn Pétursson fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks á Grenivík
kvað árið hafa byijað mun betur
hjá félaginu en hið fyrra, en tekið
hefur wjrið á móti um 150 tonnum
af fiski hjá fyrirtækinu í janúar á
móti 15 tonnum á síðasta ári.
Vinnsla í frystihúsi Kaldbaks hófst
ekki af krafti fyrr en í lok febrúar
í fyrra, en nú var byijað að vinna
þar 14. janúar. „Við höfum haft
nóg fyrir okkur, trillurnar hafa
ekki fengið mikið, en bæði Frosti
og Sjöfn hafa fengið þokkalegan
afla,“ sagði Þorsteinn.
Þá mun kokkur hússins bregða
á leik og bera fram þjóðarrétt
Spánveija, „paellu“. Útsendingin
hefst kl. 20.40 og verður hún sýnd
á breiðtjaldi auk þess að hljóma í
einhveiju besta hljóðkerfi sem völ
er á. Að dagskránni lokinni leika
þau Berglind Björk og Níels Ragn-
arsson þar til dansleikur með
Rokkbandinu hefst.
Verð á sýningu með mat og
dansleik á eftir er 1.700 krónur.
Fóshvr - Fóstrur
Fóstra óskast til starfa strax við kristilegan
leikskóla, Hlíðaból, ó Akureyri.
Allar upplýsingar gefa Anna eða Ásdís í
síma 96-27411 fró kl. 9.00-15.00
alla virka daga.
Akureyrarbær
Málþing um menningu
í safnaðarheimili Akureyrarkirkju laugardaginn
9. febrúar kl. 14.00.
Flutt verða inngangserindi um stöðu myndlistar, leiklistar,
tónlistar, safna o.fl., og síðan verða fyrirspurnir og umræður.
í fundarhléi verða kaffiveitingar og tónlistarflutningur.
Kynntar verða teikningar af fyrirhugaðri nýbyggingu við
Amtsbókasafn og nýgerð úttekt á húsnæði í Grófargili. Einn-
ig verður kynnt úttekt Byggðastofnunar á dreifingu á fjár-
magni úr ríkissjóði til menningarmála eftir landsvæðum.
Málþingið er öllum opið og bæjarbúar hvattirtil að mæta
og kynna sér málin og koma skoðunum sínum á framfæri.
Menningarmálanefnd Akureyrarbæjar.
Gert við stólalyftuna
Viðgerð hófst í gær á þeim skemmdum sem urðu í Hlíðarfjalli í kjölfar
óveðursins á sunnudaginn. ívar Sigmundsson forstöðumaður Skíðastaða
sagði að tjónið næmi um 1,5 milljónum króna, en bæði urðu skemmdir
á húsinu þegar rúður brotnuðu og einnig varð stólalyftan illa úti. Um
20 stólar skemindust þegar þeir féllu niður á jörðina. ívar taldi að allt
yrði komið í samt lag um miðja næstu viku og sagði menn eftir atvik-
um hressa þar efra eftir það sem á undan er gengið, snjóleysi og tjón
af völdum óveðurs. Á myndinni eru þeir Hlynur, lvar og Kristinn þar
sem þeir unnu að viðgerðum í Hlíðarfjalli í gær.