Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 35
ffclk í
fréttum
SJOBERG 1900
COSPER
Taktu þessu rólega, þú vinnur hana kannski á ný þegar
við spilum póker aftur.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRUAR 1991
SAMSTAÐA
Andstæðir pól-
ar sameinast
Morgunblaðið/Árni Helgason
Vaskur gönguhópur sem tók þátt í gönguferð Lionshreyfingarinnar í Hólminum.
STYKKISHOLMUR:
Vinsælar gönguferðir Lions
Stykkishólmi.
Frá því í haust hefur Lions-
klúbbur Stykkishólms boðið
fólki í gönguferðir um Þórsnesið.
Hefur alltaf verið farið á laugar-
dögum. Viss svæði hafa verið
skoðuð í hvert sinn með leiðsögu-
mann í fararbroddi sem hefur
kynnt sér sögu þess svæðis sem
farið er um. Þá hafa þeir staðir
sem nöfn bera verið merktir með
fallegum merkjum. Þessar ferðir
eru vinsælar og aðsókn að þeim
vaxandi. Veður hafa ekki verið
látin hamla ferðum en þrátt fyrir
þetta umhleypingasama tíðarfar
hefur oftast verið ágætt veður í
þessum ferðum. Elsti ferðagarp-
urinn er um áttrætt og yngsti 5
mánaða. í seinustu ferð voru yfir
40 þátttakendur.
- Árni
MARKAÐSHUSIÐ OPNAÐIDAG
★ Krumpugallar3.900 kr. ★ Gallabuxur 2.700. ★ Sloppar 1.990 kr.
★ Sængur2.400 kr.
mummsmsm Snorrabraut 56 (2. hæð), 16131
Þeir berjast hlið við hlið.
Nemendaleikhús á samlestri, í Borgarleikhúsi, í síðastliðinni viku.
Hefilbekkir
— 2*321 — 24322
Meðfylgjandi myndir undirstrika
að samsetning fjölþjóðahers
ins sem etur kappi við sveitir Sadd-
ams Husseins þessa daganna er
býsna athyglisverð. Því hefur iðu-
lega verið fleygt í seinni tíð að í
þessum heimshluta sé í vændum
uppgjör milli kristinna manna og
gyðinga annars vegar og múha-
meðstrúarmanna hins vegar. Gegn
Saddam betjast hins vegar sveitir
kristinna við hlið múslima og þótt
gyðingar séu ekki beinir þátttak-
endur í stríðinu þá standa þeir fastir
við hlið andstæðinga Iraka. Á
myndunum eru trúarathafnir her-
manna. Á annarri myndinni hefur
verið slegið upp messu úti í eyði-
mörkinni, altarið er samansett úr
pappakössum. Á hinni myndinni eru-%.
hermenn úr röðum múslima í trúar-
stellingum sínum, höfuðin vísa til
Mekka.
NEMEND ALEIKHU S:
ES Island í Borgarleikhúsi
IBorgarleikhúsinu eru hafnar æf-
ingar fjórða árs nema Leiklistar
skóla íslands, Nemendaleikhúss, á
útskriftarverkefni þeirra. Það er
Kjartan Ragnarsson, sem að þessu
sinni hefur verið fenginn til að
skrifa verkið, en hefð hefur mynd-
ast um það hjá Leiklistarskólanum
að fá íslenskan höfund til að skrifa
útskriftarverkið. Kjartan Ragnars-
son er einnig leikstjóri sýningarinn-
ar, en þetta mun vera í fyrsta sinn
sem uppfærsla á verkefni Nemend-
aleikhúss er sett upp á aðalsviði
Leikfélags Reykjavíkur eða Þjóð-
leikhússins. Leikrit Kjartans heitir
ES ísland, Grétar Reynisson hannar
leikmynd og búninga og tónlist er
í höndum Egils Ólafssonar. Egill
er einnig gestaleikari í sýningunni,
ásamt þeim Önnu S. Einarsdóttur
og Guðnýjar Helgadóttur.
Um þessar mundir er hópurinn
að sýna „Leiksoppa", eftir banda-
ríska leikskáldið Craig Lucas, í leik-
stjóm Halldórs E. Laxness, í Nem-
endaleikhúsinu, Lindarbæ. Að sögn
Gunnars Helgasonar, talsmanns
hópsins, ganga sýningar vonum
framar; aðsókn er mjög góð og
áhorfendur taka Leiksoppum með
miklum ágætum.
I