Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 36

Morgunblaðið - 08.02.1991, Side 36
36 i'-’-'l A i i .[>i :i i y. A Uí íaj.i 'í l ’rO'l <4u|/ :)>](.]/: MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1991 spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS SKATTAMAL MORGUNBLAÐIÐ aðstoðar að venju lesendur sína við gerð skatt- framtala með þeim hætti að leita svara við spurningum þeirra um það efni. Lesendur geta hringt í síma Morgunblaðsins, 691100, milli klukkan 11 og 12 á morgnana og spurt um umsjónarmann þáttar- ins „Spurt og svarað um skattamál". Hann tekur spurningarnar niður og kemur þeim til embættis ríkisskattstjóra. Spurningarnar sem borist hafa og svör við þeim birtast hér á síðunni. Aukatekjur ellilífeyrisþega Árni Jónsson spyr: 1) Ég seldi sumarbústað í árs- lok, sem ég keypti árið 1981, kemur nokkur söluhagnaður á það? 2) Fæst ekki einhver skatt- afrádráttur þegar maður kaupir hlutabréf? 3) Ef ellilífeyrisþegi hefur aukatekjur af ýmsum matsstörf- um, húsamati og jarðamati meðal annars, eru þær þá skattskyldar og hvar á að setja þær á skýrsl- una ef svo er? Svar: 1) Upplýsingar vantar um stofnverð og söluverð til að hægt sé að svara hvort um sé að ræða söluhagnað. En ef söluhagnaður reiknast telst hann til tekna á söluári. í þessu tilviki getur selj- andi valið um tvær aðferðir við ákvörðun söluhagnaðar, en þær eru eftirfarandi: a. Söluhagnaðurinn telst mis- munur söluverðs (að frádregnum beinum söiukostnaði) og fram- reiknaðs stofnverðs. b. Seljandi getur talið til tekna helming söluverðs þegar frá heild- arsöluverði hefur verið dreginn beinn söiukostnaður. 2) Einstaklingar, sem kaupa hlutabréf í hlutafélögum sem ríkisskattstjóri hefur veitt stað- festingu á að uppfylli ákveðin skilyrði, geta dregið kaupverð hlutabréfanna frá skattskyldum tekjum sínum að svo miklu leyti sem um er að ræða aukningu á fjárfestingu í atvinnurekstri. Hámarksfrádráttur samkv. fram- tali 1991 er kr. 125.925 hjá ein- staklingi og kr. 251.850 hjá hjón- um. Útfylla þarf eyðublað RSK 3.10 „Greínargerð um frádrátt vegna fjárfestingar manna í at- vinnurekstri" og láta fylgja fram- tali. Frádráttur færist í reit 83 í lið 8.2 á framtali. 3) Um er að ræða skattskyldar tekjur, en hvar þær færast á skattskýrslu fer eftir því hvort viðkomandi er launþegi eða verk- taki. Launatekjur færast í 7.1 á framtali en ef um verktakagreiðsl- ur er að ræða þarf að gera grein fyrir þeim á rekstraryfirliti og færa reiknuð laun á framtali í reit 7.5. Eru leigutekjur áætlaðar? V.B. spyr: Ég á húsnæði sem nákominn ættingi býr í án þess að greiða leigu. Eru einhveijar leigutekjur áætlaðar á mig og er leigan, sem ekki er greidd, talin til hlunninda Fæst skattalækkun vegna menntunarkostnaðar unglinga eldri en 16 ára? hjá þeim sem býr í íbúðinni? Þarf leigjandinn þá að greiða hærri skatt fyrir bragðið? Svar: Láti eigandi íbúðarhúsnæðis öðrum í té endurgjaldslaus afnot íbúðar eða nái heildartekjur ekki fjárhæð sem svarar til 2,7% af fasteignamati íbúðarinnar ber að reikna honum sem lágmarksleigu- tekjur 2,7% af fasteignamati mið- að við eitt ár. Frá þannig reiknuð- um tekjum má síðan draga beinan kostnað eins og t.d. fasteignagjöld og viðhaldskostnað. í tilvikum eins og því sem fram kemur hjá fyrirspyijanda er leigan ekki færð sem tekjur hjá þeim sem afnotin hefur af íbúðinni. Réttur til vaxtabóta af eigin húsnæði Jón V. Guðjónsson spyr: Er það óhjákvæmilegt skilyrði að væntanlegur vaxtabótaþegi, skv. ákvæði 69. gr. laga nr. 75/1981, sbr. 1. gr. laga nr. 79/1989, hafi skráð lögheimili á þeirri eign sem um ræðir? Með hveijum hætti þurfa afnotin að vera svo ákvæðinu sé fullnægt, sbr. orðalag í 1. og 5. mgr. og hvernig má færa sönnur á þau? Svar: í 1. tl. D-liðar 69. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignar- skatt eru eigin not íbúðarhús- næðis skilgreind á þann veg að húsnæðið sé nýtt til íbúðar af eig- anda þess sjálfum. Um eigin not af íbúðarhúsnæði getur verið að ræða þó íbúðareigandi hafi af ein- hveijum ástæðum lögheimili ekki skráð á viðkomandi eign. Það at- riði eitt kemur ekki í veg fyrir rétt til vaxtabóta vegna lána sem til var stofnað vegna kaupa eða byggingar á umræddu íbúðarhús- næði. Frádráttur vegna námskostnaðar barna J.K.S. spyr: Geta allir notið frádráttar vegna námskostnaðar bama eldri en lfrára ef tekjur þeira eru und- ir 360 þúsundum? Hvað getur sá frádráttur verið mikill og fer frá- drátturinn eftir tekjum foreldra? Svar: Skattalækkun vegna menntun- arkostnaðar barna eldri en 16 ára er ekki háð tekjum foreldra. Lækkun við álagningu 1991 kem- ur ekki til álita hafi ráðstöfunarfé nemandans náð kr. 360.000 á árinu 1990. Með ráðstöfunarfé er átt við allar tekjur, lántökur, bæt- ur og styrki. Lækkun vegna barna sem eiga rétt á láni hjá Lánasjóði ísl. námsmanna kemur ekki til greina. Lækkun á stofni til út- reiknings tekjuskatts og útsvars getur mest orðið kr. 120.000 hjá foreldrum miðað við að nemand- inn hafi ekkert ráðstöfunarfé haft. Hámarkslækkun skerðist um 1 kr. á móti hveijum 3 kr. sem telj- ast ráðstöfunarfé nemandans sjálfs. Dæmi: Nemandinn hefur ráð- stöfunarfé kr. 210.000 á árinu 1990. Frá hámarkslækkun kr. 120.000 dragast kr. 70.000. Lækkun á stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars hjá foreld- rum er kr. 50.000 eða kr. 25.000 hjá hvoru foreldri ef um hjón er að ræða. Umsókn þarf að fylgja skatt- framtali á eyðublaði merkt RSK 3.06 „Umsókn B, skv. 4. til 66. gr.“. FJÖRÐURINN Hljómsveitin Gildran frá Vestmannaeyjum skemmtir í kvöld Frábærtstuð. Frítt inn tilkl. 2100, Snyrtilegur klæðnaður NILLABAR Óli blaðasali halda uppi stuði. Opið frá kl. 18.00—03.00. Gömlii og nýju daesamír í Ártúni í kvöld frá kl. 21.30 - 03.00. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar skemmtir ásamt söngkonunni Hjördísi Geirs. Gestur kvöldsins: Jón Kr. Ólafsson frá Bíldudal. Vegna fjölda áskorana verður opið þorrablót endurtekið á morgun laugard. 9. febrúar. Gestur kvöldsins: Hinn vinsæli Þorvaldur Halldórsson. Miðaverð aðeins kr. 2.300,- Danssíuðið er íArtúni V*rÍ7tsSnö VEITINGAHÚS Vagnhö/öa 11, Reykjavík, sími 685090. ■■■■ mýtt BIAÐAAFGRE'ÐS^ GAQÐTO GARÐATORG11, GARÐABÆ • S. 657676 H ILMAR GÖMLU DANSARNIR kl.10.30 ★ Hljóms vei tin Tíglar *Miðasala opnar kl. 8.30. * Góð kvöldverðlaun. * *Stuð og stemnlng á Gúttógleði. * _____________ S.G.T. Templarahöllin Eiriksgötu 5 - Simi 20010 Staður allra sem vilja skemmta sér an áfengis. I OjJ ASI.AKi KIÖIi leika o<ií svngja fj rir dansi i kvold MANNAK0RN ásamt Ellen Kristjánsdóttur Aukaleikari Rúnar Georgsson í 6völct. Aldrei betri Snyrtilegur klæðnaður. Miðaverð kr. 700. DANSBARINN Grensásvegi 7, símar 688311 og 33311 Ath.: Matargestir á Mongolian Barbecue fá frítt inn. Veislur, árshátíðir og aðrir hópar. Hafið samband tímanlega. DANSBARINN Grensásvegi 7, símar 688311 og 33311 Opið frá kl. 18.00 ■ 03.00

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.