Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 28

Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 28
«28 C loe t ha' Jia> í‘9'9t:/ Jy‘10M SlcÓvérslúh Þörödiir Se varan og verðið þér að skapi stendur íslenskur iðnaður föstum fótum. ér er dœmi þess. to$6 1 Samstarf Islands og EB á sviði menntamála AÐ TILLÖGU menntamálaráðherra yar samþykkt á ríkisstjórnar- fundi miðvikudaginn 13. febrúar að Island gangi til samninga við Evrópubandalagið um aðild að ERASMUS-áætlun bandalagsins en hún felur í sér samstarf um nemenda- og kennaraskipti og tengsla- net milli háskóla, segir í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneyt- inu. Um er að ræða tvlhliða milliríkja- samninga milli Evrópubandalags- ins annars vegar og hvers EFTA- ríkis fyrir sig hins vegar; samskon- ar samninga og gerðir voru um aðild að COMETT-áætlun EB um samstarf skóla og atvinnulífs um tækniþröun 1989. Evrópubandalagið ákveður Sendingin M erkomin STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN framlag til ERASMUS-áætlunar- innar í fjárlögum ár hvert og því hefur ekki verið endanlega ákveðið hve hátt framlag íslands myndi verða fyrsta ár fullrar þátttöku 1992. Ef miðað er við það að Evr- ópubandalagið hefur ákveðið að framlagið sé a.m.k. 192 milljónir ECU á þremur árum frá 1990- 1993, eða um 14,5 milljarðar ísl. kr. yrði framlag íslendinga árið 1992 líklega um 7 milljónir ísl. kr. Markmið ERASMUS er að stuðla að því að ungt fólk stundi hluta háskólanáms í öðru landi Evrópubandalagsins (og EFTA- löndunum, verði samið). Forsenda þess að styrkur fáist til námsdvalar erlendis er að skólinn í heimal- andinu viðurkenni það sem hluta námsins. Til þess að gera slíka við- urkenningu auðveldari, styrkir ERASMUS-áætlunin myndun tengslaneta milii háskóla. Nem- endaskiptin miðast við 6-12 mán- uði. Úr sameiginlegum ERASMUS- sjóðum er veitt lágmarksupphæð sem nemur 15 milljónum ísl. kr. á ári til hvers aðildarlands að áætlun- inni og þeirri fjárhæð er úthlutað af heimaaðilum. Styrkirnir eiga að nægja til að greiða þann umfram- kostnað sem af því hlýst að taka sig upp til námsdvalar í öðru landi, en gert er ráð fyrir að nemendur haldi þeirri námsaðstoð, sem þeif fá í heimalandinu til framfærslu (hér á landi námslánum). (Fréttatilkynning) Rauði kross íslands heldur námskeið til undirbúnings fyrir í Munaðarnesi 6.-12. apríl 1991. Þátttökuskilyrði eru: - 25 ára lágmarksaldur - góð tungumálakunnátta, a.m.k. enska - góo starfsmenntun (ýmis störf koma til greina) - góð almenn þekking og reynsla Námskeiðið fer fram á ensku og verða leiðbeinendur m.a. frá Alþjóðarauðakrossinum í Genf. Fjöldi þátttakenda er áætlaður um 20 og er þátttökugjald kr. 13.000 (innifalið er fæði, gisting, kennslugögn og ferðir Rvk - Munaðarnes - Rvk). Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu RKÍ, Rauðarárstíg 18, Rvk. Umsóknum ber að skila á skrifstofu RKÍ fyrir 23. febrúar nk. Þar veitir Sigríður Guðmundsdóttir nánari upplýsingar. Rauði kross Islands Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.