Morgunblaðið - 17.02.1991, Blaðsíða 11
MORGUNBlAftft) ’átMlvltj'ÖrGW í 7.‘ Méftt/Áfl* !í)5l
C 11
HVER ER HERNÁN LUGANO?
Argentínujass
á Islandi
Hernán Lugano
Guðjón Guðmundsson.
HANN er fæddur í Buenos
Aires 1963, hóf ungur nám
í klassískum píanóleik, lagði
síðar stund á kontrapunkt,
jasspíanóleik, tónsmíðar og
hljómsveitarstjórn og bar-
okk-tónlist fyrir orgel hjá
argentínskum kennurum og
er kominn til landsins með
fimm manna hljómsveit.
Lugano er þrátt fyrir ungan ald-
ur frábær píanisti sem margir
vilja líkja við Keith Jarrett, en
ekki er örgrannt um að hann hafi
numið eitthvað af Thelonius Monk
hvað ásláttinn áhrærir. Tækni hans
og spuni er hreint með ólíkindum
og þegar það fer saman við arg-
entínskan rytma og djúpa jasstil-
fínningu er hér um meiriháttar
gjörning að ræða. Ekki kann ég
deili á meðleikurum hans en það
sem ég hef heyrt af lélegri kasettu-
upptöku lofar góðu,«vægt til orða
tekið. ísland er fyrsti áfangastaður
sextettsins í tónleikaför hans til
Evrópu. Sveitin hefur leikið áður í
fjölmörgum Evrópulöndum og flest-
um stærri jasshátíðum álfunnar.
Lugano er athyglisvert tónskáld
og hefur gert fjölda htjómplatna
þótt engin þeirra hafi rekið á fjörur
Islandsstranda. Sú nýjasta heitir
Snow on the Sea (NDU 1002) og
var gefin út nýlega í Buenos Aires.
Þrautin þyngri er.að skilgreina tón-
list hans og heyra má áhrif víða
að en auðheyrilegast er að rætur
hans liggja í suður-amerískri þjóð-
lagahefð, fornri og nýrri, sem
blandast öðrum tónlistarstefnum,
einkum nútímajassi. Sérkenni hans
sem píanista er notkun vinstri hand-
arinnar, hinn harði ásláttur, en um
leið fijálst flug hinnar hægri um
víðáttur og litbrigði tónrófsins.
Bandaríski tenórsaxafónleikar-
inn Stan Getz var manna fyrstur
til að raka saman peningum á því
að blanda saman suður-amerískri
tónlist og jassi á sjöunda áratugnum
en síðan er mikið vatn runnið til
sjávar. Bandarískir jassistar hafa
sóst eftir slíkum samruna, eins og
t.a.m. George Duke, Chick Corea,
og tónlist Tönju Maríu, Flora Purim
og Antonio Carlos Jobim hefur al-
deilis fallið í kramið. Astor Piazolla
nikkuleikari hefur vermt efstu sæti
í sinni sveit í Down Beat fyrir arg-
entínskan dauðatangó. Lugano er
ef til vill sjálfstætt framhald þessar-
ar þróunar, í senn þjóðlegur og al-
þjóðlegur listamaður.
Veitingastaðurinn Argentína og
Púlsinn standa að komu Luganos
og hljómsveitar í tengslum við arg-
entínska daga í næstu viku. Púlsinn
er reyndar að verða nokkurs konar
Village Vanguard norðurhjarans. í
síðustu viku lék þar ein almagnað-
asta stórsveit sem hingað hefur
komið, flnnska UMO-sveitin, stutt
er síðan bíbopparinn Ulf Adaker
blés eins og vitlaus með íslenskum
kollegum, auk þess sem húsið er
athvarf og ræktunarstöð íslenskra
jassista.
VEITA AUKNA ANÆGJU VIÐ RÆKTUN
GUTMAN gróðurhúsin eru þekkt fyrir góðan frágang.
Þau eru byggð úr sverum prófílum, glerið er 4 mm eða
allt að 10 mm plast, engin samskeyti, þannig að þau
þola vel mikið veðurálag. Hægterað fá ýmsa fylgihluti
svo sem hitastýrða gluggaopnara, vökvunarbúnað,
borð, hillur o.þ.h. GUTMAN gróðurhúsin er hægt að fá
í ýmsum stærðum, allt frá 5 - 38m2 og býður það upp á
marga möguleika Komið og kynnið ykkur GUTMAN
gróðurhúsin og pantið tímalega.
SMIÐJUVEGt 5,200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211
öguimaF aá Laki kvikmyiiicliiijriTiim
l i<*l 4 I
SlMI 113«4 - SNORRABRAUT 37
NfCHOLAS PILEGGi I
kl
LRe
TOðéI
„EIN AF
0RFÁUM
RAUN5ÖNNUM 'ÍMM
FRÁSÖGNUM Af HEJMIGIÆPANNA
- HEIllANDI B0K." ....
HwltiPvi* .TL,
UTSOLUVERÐ KR. 590,-
Á síðastliðnum árum hafa Regnbogabækur sent frá sér fjölda vandaðra þýddra metsölubóka.
Bækurnareiga það allar sameiginlegt að vera þær sem hæst ber hveiju sinni á erlendum bókamörkuðum _ _ _ MnAr1 \ T> TD
og bjóðast íslenskum lesendum á lægra verði 'en sömu bækur á frummálinu. IvllCrN LjOCt ALjÆívU K.
Regnbogabækur fást í öllum helstu blaða- og bóksölustöðum landsins og einnig í áskríft. BÓKAFORLAGIÐ BIRTINGUR - BOLHOLTI6 - SÍMI689268
Sýnd kl
o Kl. »i ■ * -
-..Mnnan