Morgunblaðið - 17.03.1991, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR mnT,M
SUNNUDAGUR 17. MARZ 1991
■ GANGSTERAMYNDIR
vaða uppi í Hollywood sem
kunnugt er. Þó nokkrar eru
í framleiðslu, þ.á.m. Bugsy
Siegel sem leikstýrt er af
þeim ágæta Barry Levin-
son. Með aðalhlutverkið fer
Warren Beatty (hann er
einnig einn af framleiðend-
unum) en með önnur hlut-
verk fara Annette Bening,
Harvey Keitel, Ben Kings-
ley, Elliott Gould, Joe Man-
tegna og James Toback,
sem líka gerir handritið.
MPeter Pan myndin hans
Steven Spielbergs er komin
á skrið. Hún heitir Krókur
(,,Hook“) og er með Dustin
Iloffman, Robin Williams,
Julia Roberts, Bob Hoskins
og Maggie Smith í aðalhlut-
verkunum. Heyrst hefur að
hún verði dýrasta mynd allra
tíma og að kostnaðurinn fari
jafnvel upp í 125 milljónir
dollara en það verður ekki
selt dýrara en það var keypt.
MFáir jafnast á við Kanada-
manninni David Cronen-
berg í gerð sálrænna hroll-
vekja en nú er hann tekinn
til við gerð myndarinnar
„Naked Lunch“, sem hann
byggir á samnefndri bók
William Burroughs. Með
aðalhluverkin fara Peter
Weller, Judy Davis, Julian
Sands, Roy Scheider og
Monique Michael.
HLítið hefur heyrst af fram-
kvæmdum Jim Jarmusch
eftir að hann gerði hina frá-
bæru gamanmyndin Lestina
leyndardómsfullu. Nú er
hann loksins kominn af stað
með nýja mynd sem heitir
því undarlega nafni
„L.A.NEWYORKPARIS-
ROMEHELSIN SKI“. Með
aðalhlutverkin fara Gena
Rowlands og Winona Ryd-
Úr myndinni Ég réði leigumorðingja eftir Aki
Kaurismaki.
Sjo myndir a
finnskri viku
Um þessa helgi hefst í Háskólabíói finnsk kvik-
myndavika þar sem bræðurnir Mika og Aki Kauri-
smaki eru ráðandi. AIls verða sýndar sjö myndir
á vikunni, þar af þrjár eftir Aki, ein eftir bróður
hans, Mika, og þrjár eftir aðra leikstjóra.
Myndir Akis heita Ég
réði leigumorð
ingja, Ariel og Leningrad-
kúrekar halda til Amer-
íku. Þeirri fyrstnefndu
hefur verið líkt við gam-
anmyndir breska Ealing-
versins í B-mynda stíl en
hún fjallar um mann, sem
vill deyja en hefur ekki
þor til að enda líf sitt,
konu og leigumorðingja.
Ariel er ástarsaga um
venjulegt fólk en snýst
upp í glæpa- og fangelsis-
sögu áður en hún verður
aftur ofurrómantískt me-
lódrama. Leningradkú-
rekarnir eru um versta
rokkband í sögunni sem
ferðast austan af túnd-
runni og til Ameríku þar
sem allt gengur í fólk.
Amazon eftir Mika,
sem er sá bróðirinn sem
færri myndir hefur gert,
kemur beint frá kvik-
myndahátíðinni í Berlín
og snertir á umhverfis-
málum en aðrar myndir á
vikunni verða Rapsy og
Dolly eftir Matti Ijas,
Flatlendi eftir Pekka Pa-
rikka um lífið í smábæ í
Finnlandl og loks Pessi
og Illusia eftir Heikki
Partanen.
Kaurismaki-bræðumir
eru með fremstu og
þekktustu kvikmynda-
gerðarmönnum Finnlands
og Norðurlanda en myndir
þeirra rata ekki hingað
nema á hátíðum og þá er
um að gera að góma þær.
Skipbrots-
menn Gaubs
Nyjasta mynd norska
leikstjórans Nils
Gaubs, sem gerði hina
ágætu mynd Leiðsögu-
manninn með Helga Skúla-
syni, heitir 'Skipbrotsmenn
og er ævintýramynd dreift
af Walt Disney-fyrirtækinu
í Bandaríkjunum.
Myndin er byggð á sög-
unni Hákon Hákonarson
eftir O.V. Falck-Ytter, sem
út kom árið 1873. Það er
átta árum á undan Gulleyju
Roberts Louis Stevensons
en þær eiga ýmislegt sam-
eiginlegt.
Stian Smestad
í Skipbrotsmönnunum.
Myndin er tekin á Fiji-eyj-
um og segir frá Hákoni,
ungum norskum dreng, sem
heldur á sjó að afla peninga
til að bjarga sveitabýli föður
síns. Þegar skipið hans ferst
nær hann landi á eyju í
Suðurhöfum þar sem hann
finnur fjársjóð. Bráðlega
rekur tvo aðra skipverja á
eyjuna en skammt undan
eru sjóræningjar og fer írski
leikarinn Gabriel Byrne fyrir
þeim. .
Fyrsta mynd Gaubs, Leið-
sögumaðurinn, var tilnefnd
til Oskarsins árið 1987 en
Skipbrotsmennirnir er mjög
annars eðlis, ævintýramynd
í gamla stílnum fyrir böm á
öllum aldri.
“KVIKMYNDIR™™
Góð lausn fyrir jaóarsvœöin ?
12 þús. a Pottorma
Þvjár myndÍY
í einni
ÞRJÁR sjálfstæðar sögur í sömu bíómynd er vel þekkt
fyrirbrigði í kvikmyndaheiminum, furðusögurnar
„ Amazing Stories" og „New York Stories" eftir Mart-
in Scorsese, Francis Coppola og Woody Allen eru
dæmi um slíkar myndir, en nú er framleiðsla að hefj-
ast á fyrstu íslensku myndinni þessarar tegundar.
Það er kvikmyndafyrir-
tækið Þumall í sam
vinnu við Magnafilm og
Umba sem standa að baki
hennar. Verður einn hlutinn
tekinn á
Íslandi,
annar
Færeyjum
og sá þriðji
á Grænl-
andi. Um
er að ræða
þijár sjálf-
stæðar
bamasögur sem fjalla um
svipað þema en eru skrifað-
ar hver í sínu landinu. ís-
lenska hlutann skrifar
Guðný Halldórsdóttir leik-
stjóri og þann færeyska
eftir Arnold
Indriðoson
Kristín Óttarsdóttir leik-
stjóri, sem gerði fyrstu fær-
eysku bíómyndina, Úthafs-
þulu („Atlantic Rapsody"),
og þann grænlenska skrifar
Jens Brönden.
Hugmyndina að þríleikn-
um fengu eigendur Þumals,
Karl Sigtryggsson og Sig-
urður Grímsson, fyrir
nokkmm árum en þeir hlutu
næststærsta styrkinn úr
Kvikmyndasjóði í ár, 7,2
milljónir, til myndarinnar.
Allar gerast sögurnar í nút-
ímanum og fjalla um ævin-
týri barna í hverju landi
fyrir sig að sögn Sigurðar.
Þannig er íslenski hlutinn,
Helgi og folaldið, sveitasaga
um dreng í sveit sem lendir
Væntanleg I
Stjörnubíó; „The
Doors“ eftir Oliver •
Stone.
Karl Sigtryggsson og Siguröur
Grímsson hjá Þumli; þijár barnasögur.
í svolitlu ævintýri í tengslum
við göngur. Sagði Sigurður
að allar sögurnar ættu það
sammerkt að tengjast á ein-
hvern hátt atvinnulífínu í
hveiju landi.
Grænlendingar hafa ekki
áður átt jafnmikinn hlut í
gerð bíómyndar að sögn
Sigurðar. Hver saga er 30
mínútur að lengd en kvik-
myndataka hefst á Grænl-
andi um miðjan apríl nk.,
færeyski hlutinn verður tek-
inn í ágúst og sá íslenski í
haust. Tekið verður á 35
mm filmu. Kristín Pálsdóttir
leikstýrir íslenska hlutan-
um, Mariu Olsen leikstýrir
grænlenska hlutanum og
Katrín Óttarsdóttir leikstýr-
ir þeim færeyska. Ef áætlun
stenst verður heildarmyndin
— vinnuheitið er Þijár norr-
ænar sögur — tilbúin til
sýninga að ári. Hún kemur
til með að kosta 35 til 40
milljónir og sagði Sigurður
að Norræni sjóðuriim kæmi
til með að kosta lTana að
einum þriðja hluta. Hug-
myndin að verkinu varð til
á undan Norræna sjóðnum
„en það kom í ljós að mynd-
in fellur mjög vel innan
ramma hans, er sannarlega
mjög norræn og teygir sig
til jaðarsvæðanna,” sagði
Sigurður.
Kvikmyndafyrirtækið
Þumall (nafnið er dregið af
fjallinu Þumli í Skaftafells-
öræfum) hefur ekki áður
framleitt bíómynd. Það er
helst þekkt fyrir heimildar-
myndir í sjónvarpi eins og
um Grænhöfðaeyjar og leið-
togafundinn 1987.
Alls sáu ríflega 12.000
manns bandarísku
gamanmyndina Pottorm-
arnir á fyrstu þremur sýn-
ingarvikunum í Stjömubíói
samkvæmt upplýsingum
frá bíóstjóranum, ' Karli
Ottó Schiöth.
Pottormamir er fram-
hald hinnar feikivinsælu
myndar Pottormur í pabba-
leit sem um 40.000 manns
sáu á síðasta ári én
Karl spáir því að
framhaldið fari upp
í 15.000 manns í
aðsókn.
Stjörnubíó hefur
bíóréttinn á mynd-
um frá Columbia og
Tri-Star og sagði
Karl að nú bættust við
myndir frá Carolco-fyrir-
tækinu eftir að Tri-Star
samdi um dreifingarréttinn
á Carolco-myndum í Evr-
ópu en á meðal væntan-
legra Carolco-mynda í
Stjörnubíó era „The Doors“
eftir Oliver Stone og
„Terminator 2:
Judgement Day“ með
Arnold Schwarzenegger.
Af þeim myndum sém
væntanlegar em í Stjömu-
bíó á næstunni má nefna
„Avalon“ eftir Barry Lev-
inson, „Awakenings" eftir
Penny Marshall með Robert
De Niro og Robin Williams
í aðalhlutverkum. „L.A.
Story“ með Steve Martin
en fljótlega eftir þessar
myndir kemur svo „The
Doors“ eftir Oliver Stone.
I BÍÓ
Bíóin í Reykjavík em
orð in vel stillt inná
Óskarsverðlaunaafhend-
inguna sem fram fer í
mars ár hvert í Los Ang-
eles. Lætur nærri að
þegar Óskarinn verður
afhentur eftir rúma viku
hafi allar helstu mynd-
irnar sem keppa um
styttuna komið hingað í
bíó eða em á leiðinni inn
úr dyrunum.
í flokknum bestu
myndimar em Draugar,
Góðir gæjar, Guðfaðir-
inn III og Dansar við
úlfa en þær hafa allar
verið fmmsýndar hér.
Sú fimmta er Uppvakn-
ingar („Awakenings")
en hún kemur bráðlega
í Stjömubíó.
Af þeim 15 myndum
sem hlutu flestar tílnefn-
ingar til Óskarsins hafa
tíu verið sýndar hér.
Hinar fímm era „The
Grifters“, Hamlet, Cyr-
ano de Bergerac, sem
bráðlega kemur í Regn-
bogann, „Awakenings“
og „Avalon", sem líka
er væntanleg fljótlega.
Það er einkennandi
fyrir bíólífið í Reykjavík
að engin af myndunum
í flokknum Besta er-
lenda myndin hefur enn
verið sýnd hér á landi.