Morgunblaðið - 06.04.1991, Page 1
80 SIÐUR B/LESBOK
77. tbl. 79. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Suður-Afríka:
ANC setur stjórn-
inni úrslitakosti
Jóhannesarborg. Reuter.
NELSON Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins (ANC) í Suður-Afr-
íku, hótaði í gær að hætta samingaviðræðum við stjórn F.W. de
Klerks forseta nema tveir af helstu ráðherrum landsins létu al'
embætti.
Mandela sagði að 8.000 pianns
hefðu beðið bana af völdum morð-
Staða Norð-
ur-J'íoregs
og Islands
sambærileg
- segir Gro Harlem
Brundtland
Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttarit-
ara Morgvnblaðsins.
„Sjávarútvegur er alveg
jafnmikilvægur fyrir íbúa
Norður-Noregs og Islendinga
og það stoðar því ekki að segja
að Island sé lítið land úti í
hafi og verði að fá sérstaka
úrlausn sinna mála,“ sagði
Gro Harlem Brundtland, for-
sætisráðherra Noregs, á
fimmtudag, þegar hún var á
ferð í Finnmörku í Norður-
Noregi með Frans Andries-
sen, sem fer með utanríkismál
á vegum framkvæmdastjórn-
ar Evrópubíindalagsins (EB).
Forsætisráðherrann sagði að
það hefði ævinlega verið höfuð-
krafa norskra stjórnvalda að
Noregur og ísland fengju sams
konar samninga við EB. Á þann
eina hátt væri mögulegt að
tFyggja atvinnuöryggi og búsetu
í strandhéruðum Norður-Nor-
egs. Ekki kæmi til greina að
EB-löndin fengju í staðinn að
veiða innan norskrar efnahags-
lögsögu.
Framkvæmdastjórn EB hefur
gefið í skyn að hún gæti hugsað
sér að finna sérlausn á vanda-
málum íslendinga þar sem þeir
ættu allt sitt undir útfiutningi
sjávarafurða.
sveita, bardaga milli stríðandi fylk-
inga blökkumanna og aðgerða ör-
yggissveita frá því átök og óeirðir
brutust út í blökkumannabyggðum
landsins í september 1984. Ráðu-
neyti varnar- og lögreglumála væru
ábyrg fyrir öllum þessum drápum
og því bæri að víkja Adriaan Vlok,
ráðherra lögreglumála, og Magnus
Malan, varnarmálaráðherra, úr
stjórninni.
Fréttaskýrendur í Suður-Afríku
töldu afar ólíklegt að de Klerk gengi
að skilyi'ðum Mandela. „Það myndi
jafngilda viðurkenningu á því að
Afríska þjóðarráðið stjórnaði í raun
landinu en ekki ríkissQórnin," sagði
einn þeirra og bætti við að de Klerk
ætti í vök að verjast vegna
gagnrýni hægrimanna.
Reuter
Á stærri myndinni eru kúrdískar konur ásamt börnum sinum við
landamæri Tyrklands að Irak. Tvær milljónir Kúrda hafa lagt á
flótta undan íraska stjórnarhernum til Tyrklands og Irans. Kúrdar
niótmæltu ofsóknum gegn kúrdíska minnihlutanum í írak við sendi-
ráð landsins víða um heim í gær. Hleypt var af byssum út um glugga
á írösku ræðismannsskrifstofunni í Istanbui og beið einn maður
bana, auk þess sem tveir særðust alvarlega. Ennfremur var skotið
á hóp mótmælenda úr iraska sendiráðinu í Prag en enginn varð
fyrir skoti. Innfellda myndin er frá mótmælum Kúrda í Sofíu.
Irakar sakaðir um tortím-
ingarherferð gegn Kúrdum
Bandaríski flugherinn sendir hjáipargögn til flóttamanna í norðurhluta íraks
Nikosíu, Damaskus, Sameinuðu þjóðunum, Brussel, Newport Beach. Reuter, The Daily
SENDIHERRAR aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) komu
saman í Brussel í gær og sökuðu írösku stjórnina um alvarleg mann-
réttindabrot gegn Kúrdum eftir uppreisn þeirra gegn Saddam Huss-
ein Iraksforseta. I öryggisráði Sameinuðu þjóðanna var rædd álykt-
unartillaga um að fordæma „ofsóknir gegn íröskum borgurum". Hans-
Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Þýskalands, sagði að írakar
væru að heyja „tortímingarstríð" gegn kúrdiska minnihlutanum.
George Bush Bandaríkjaforseti sagði i gærkvöldi að bandaríski flug-
herinn myndi hefja Hutninga á hjálpargögnum til kúrdiskra flótta-
manna í norðurhluta Iraks á sunnudag.
Byltingai'i’áð íraks, undir for-
sæti Saddams Husseins, kom saman
í Bagdad og samþykkti að veita
kúrdískum uppreisnarmönnum sak-
aruppgjöf. Kúrdar, sem hafa flúið
landið, fengu tveggja vikna frest til
Telegraph.
að fallast á tilboðið og snúa heim.
Sendiherra íraks í Bi'ussel sagði í
gærkvöldi að írösk stjórnvöld hefðu
óskað eftir því að alþjóðleg nefnd
yrði send til landsins tii að kanna
hvernig farið væri með Kúrda.
Talsmaður Lýðræðisflokks Kúrda
í Damaskus sagði að tilboð Saddams
væri „viðbjóðslegur brandai'i“ og
græddi ekki sár kúrdísku þjóðarinn-
ar eftir grimmdai'verk íraska stjórn-
arhersins. „Kúrdísku flóttamennirn-
ir hafa orðið vitni að íjöldamorðum
á Kúrdum í Kirkuk og fleiri íröskum
Sovétríkin:
Verfcfall námamanna breiðist út
Aukin völd Jeltsíns staðfest á rússneska þinginu
Moskvu. Reuter.
OHÁÐ samtök námamanna í Sovétríkjunum halda fast við kröfur
sínar um afsögn Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og Sovét-
stjórnarinnar allrar og vísa á bug tilboði um tvöfalt hærri laun.
Hundruð þúsunda kolanámamanna hafa nú verið i verkfalli í sex
vikur og virðist það sífellt breiðast út. Talið er að vaxandi ókyrrð
og efnahagsóreiða hafi valdið því að fulltrúaþing Rússlands sam-
þykkti endanlega í gær tillögur um stóraukin völd Borís Jeltsíns
forseta og tillögu hans um að forseti verði þjóðkjörinn.
í gær var skýrt frá því að
starfsmenn í mikilvægum kal-
íumáburðarnámum hefðu lagt
niður störf og til skyndiverkfalla
kom í Minsk vegna verðhækkana
á lífsnauðsynjum. Þar var einnig
krafist afsagnar Gorbatsjovs. Það
hefur styrkt mjög stöðu Jeltsíns
að verkfallsmenn leggja æ meiri
þunga í kröfuna um afsögn Gor-
batsjovs en rússneski forsetinn
setti fram sömu kröfu í sjónvarps-
viðtali fyrir skömmu. Hann vill
að ráð forseta lýðveldanna 15
taki við völdum í Sovétríkjunum.
Sovéski forsætisráðherrann, Val-
entín Pavlov, gaf í skyn í gær
að iaun allra verkamanna í
landinu yrðu senn hækkuð.
Aukaþing rússneska þingsins
var á sínum tíma kallað saman
gagngert til þess að harðlínu-
menn gætu borið fram vantraust
á Jeltsín, er sagði sig úr komm-
únistaflokknum sl. sumar, en
vopnin virðast hafa snúist í hönd-
um þeirra. Samtök miðjumanna
er nefna sig Lýðræðissinnaða
kommúnista snerust á sveif með
forsetanum og fengu tillögur um
tilskipanavald hans og beint
forsetakjör 12. júní nk. 607 at-
kvæði í lokaatkvæðagreiðslu gær.
Aðeins 228 voru á móti og 100
sátu hjá. Jeltsín er talinn öi'uggur
um sigur í forsetakjöri. Ljóst er
að staða hans í valdabaráttunni
við Gorbatsjov myndi styrkjast
mjög við slík úrslit en Sovétleið-
toginn hefur aldrei boðið sig fram
í raunverulegum lýðræðiskosn-
ingum.
Einn af fulltrúum miðjumanna
á rússneska þinginu, Anatólíj
Búgrímov undirofui'sti, fagnaði
úrslitunum en sagðist ekki viss
um að aukin völd Jeltsíns og ríkis-
stjórnarinnar dygðu í baráttunni
gegn harðlínukömmúnistum. „Öfl
sem halda í reynd um valdataum-
ana munu gera allt til að bregða
fyrir hann fæti,“ sagði Búgrímov.
Míkhaíl Gorbatsjov fékk völd til
að stjórna Sovétríkjunum með til-
skipunum fyrir ári en stjórnir ein-
stakra lýðvelda hafa margar
hundsað fyrirmæli hans.
borgum,“ bætti hann við.
í yfirlýsingu frá sendiherrum
NATO sagði að aðildarríki banda-
lagsins fordæmdu harðlega
„grimmdarlega kúgun“ og „víðtæk
mannréttindabrot" íraka og hvöttu
stjórnvöld í Bagdad til að stöðva
ofsóknii'nar gegn Kúrdum.
Frakkar, Bandaríkjamenn og
Bretar beittu sér fyrir því að örygg-
isráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi
stjói-nvöld í írak og krefðist þess að
alþjóðastofmmum yrði heimilað að
koma flóttanmnnum innan landa-
mæra landsins tii hjálpar. Sovét-
menn og Kmw'ijar, sem geta bcilt
neitunai-valdi i ráðinu, voru tregir
til að samþykkj i ályktun þessa ol'nis
þar sem þeir lila svo á að hcr sé
um innanríkismál að ræða og af-
skipti ráðsins geti haft
fordæmisgildi.
Hans-Dietrich Genscher sagði að
ekki kæmi til greina að aflétta við-
skiptabanninu, sem sett var á íraka
eftir innrásina í Kúveit í fyrra, fyrr
en írösk stjórnvöld stöðvuðu ofsókn-
irnar gegn Kúrdum. Þjóðarmorð
getur aldrei talist innanríkismál
því slíkt snertir alla heimsbyggðina.
Þetta þjóðarmorð stefnir friðnum í
hættu eins og fjöldaflótti Kúrdanna
sýnir,“ sagði hann.
George Busli skýrði frá því að
bandaríski flugherinn myndi senda
matvæli, teppi, fatnað og hjúkrun-
argögn til kúrdískra flóttamanna í
norðurhluta íraks. James Baker,
utanrikisráðhei'ra Bandaríkjanna,
færi til landamæra Tyrklands að
Irak til að kanna flóttamannavand-
ann. Baker fer á sunnudag í aðra
ferð sína til Mið-Austurlanda eftir
stríðið fyrit' botni Persaflóa.
Sjá fréttir á bls. 28.