Morgunblaðið - 06.04.1991, Blaðsíða 9
9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991
Utankjörstadaskrifstofa
Sjálfstæöisflokksins,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar: 679902 - 679903 - 679904
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá
__jborgarfógetanum I Reykjavík, Skógarhlíð 6, jarðhæð, alla
daga kl. 10-12,14-18 og 20-22 nema sunnudaga kl. 14-18.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt
sem lýtur að kosningunum. Aðstoð við kjörskrárkærur.
Sjálfstæðisfólk! Hafið samband við skrifstofuna efþið
verðið ekki heima á kjördag, 20. apríl nk.
HENTU EKKILIFI ÞESSA BARNS
Margt smátt gerir eitt STÓRT
Á laugardögum söfnum við einnota
umbúðum á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Hringið í síma 621390 eða 23190 á milli
kl. 11.00 og 15.00 og við sækjum.
ÞJÓÐÞRIF
UN0SSAMBAND
hjAiparsveita
skáta
Dósakúlur um allan bæ.
Grensásvegi 50
Flóabardaginn í Reykja-
neskjördæmi
Meginefnið í máli Ólafs Ragnars
Grímssonar, formanns Alþýðubanda-
lagsins, á kosningafundi í Kópavogi í
fyrrakvöld var harðorð gagnrýni á ráð-
herra Alþýðuflokksins. A kosningafundi
Alþýðuflokksins í Stapa í sama kjördæmi
stóðu formaður Alþýðuflokksins og iðn-
aðarráðherra sama flokks nánast á önd-
inni yfir vinnubrögðum samráðherra
sinna úr Alþýðubandalaginu. Ráðherrar
A-flokkanna virðast sammála um það
eitt að biðja kjósendur um áframhaldandi
húsaskjól fyrir A-flokka-sundurlyndið í
Stjórnarráðinu næsta kjörtímabilið.
Afrekaskrár
og fegrunar-
bæklingar
Gísli Gunnarsson,
sagnfræðingur, skrifar
opnugrein í Helgarblað
Þjóðviljans, „Klofningur
krata og komma í timans
rás“, þar sem hann rekur
sextíu ára átök „komma
og krata" á „Mannskaða-
hóli“ íslenzkrar vinstri
lireyfingar.
Tíminn, sem Þjóðvilj-
inn velur til birtingar
klofningssögunnar, er
kórréttur. Einmitt þessa
dagana fara forystu-
menn A-flokkamia um
héruð, í tilefni komandi
kosninga, og vanda hver
öðrum ekki kveðjumar.
Máski er atgangur
stjómarflokkamia hvað
harðastur í Reykjanes-
kjördæmi, þar sem þrír
ráðherrar [og tveir
flokksformenn] hnakk-
rífast þessa dagana
framan í kjósendur: for-
sætisráðherrami, fjár-
málaráðherraim [„skatt-
mami“] og iðnaðarráð-
herrann.
Vinnubrögð
Alþýðubanda-
lagsráð-
herranna
Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Al-
þýðuflokksins, hefur
gagnrýnt við Steingrím
Hermaimsson, forsætis-
ráðherra og fonnaim
Framsóknarflokksins,
„notkun ráðherra Al-
þýðubandalagsins á opin-
bem fé til gerðar kyim-
ingarbæklinga og aug-
lýsinga. UtaniTkisráð-
herra staðliæfir að hér
sé flokkspólitískur áróð-
ur á ferðinni og að Ríkis-
endurskoðun þurfi að
fara ofan í sauma á þessu
vinnulagi.
í frásögn Morgun-
blaðsins af fundi Alþýðu-
flokksins í Stapa segir
m.a.:
„Jón Baldvin sagði að
samráðhemun sinum í
Alþýðubandalaginu hefði
nú elnað svo kosninga-
sóttin að þeir liefðu
breytt þeim ráðuneytum,
sem þeim væri falið að
stjórna, i kosningamið-
stöðvar fyrir flokk sinn
og nefndi til skrautrit
með meintum afreka-
skrám ráðherra, fegr-
unarbækling mennta-
málaráðherra um lána-
sjóð, sem dreift væri til
námsmaima, afrekaskrá
Olafs Ragnars í fjármála-
ráðuneytinu, sem sér
hefði verið tjáð að væri
dreit í meira en 80.000
cintökum, heilsíðuaug-
lýsingar menntamálaráð-
herra, meira segja um
frumvörp sem verið
hefðu ósamþykkt, og
bókaútgáfu samgöngu-
ráðherra um lífæðar
samgöngukerfisins ..."
*
Alversárás
fjármálaráð-
herrans
Olafur Ragnai-
Grímsson, fjármálaráð-
herra og formaður Al-
þýðubandalagsins, hélt
ræðu á kosningafundi í
Kópavogi í fyn-akvöld.
Hami kom víða við. Það
duldist hins vegar eng-
um, sem á mál hans
hlýddu, að honum var
mest í mun að koma
höggi á Alþýðuflokkinn,
einkum og sér í lagi Jón
Sigurðsson, iðnaðarráð-
lierra, en báðir eru ráð-
herrarnir í framboði í
Reykjaneskjördæmi.
Það var ekki sizt meint
slök frammistaða iðnað-
arráðherra í sanmingum
um byggingu álvers á
Keilisnesi, sem varð fjár-
málaráðherra efniviður í
barefli á samráðherra
sinn úr Alþýðuflokknum.
Staðhæfði Olafur Ragnar
að iðnaðarráðherra hefði
verið með fyrirslátt þeg-
ar hann kenndi Persa-
flóastriðinu um ójafn-
vægi á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum, sem taf-
ið hcfðu samninga um
byggingu álversins. Vitn-
aði hann til skýrslu al-
þjóðafyrirtækisins Gold-
man Sachs rnáli sínu til
stuðnings. Ólafur Ragn-
ar kallaði álversmálið
dýrustu kosningaauglýs-
ingn allra tíma, þar sem
þegar hafi verið veittar
600 m.kr. til virkjunar-
undirbúnings og skýrslu-
gerðar, en enn væri langt
í land með að samningur
kæmist í höfn.
Gagnrýni formannns
Alþýðubandalagsins
kemur að vísu úr hörð-
ustu átt, þar sem engir
hafa verið meiri dragbit-
ar á það að breyta óbeizl-
uðum fallvötnum lands-
ins í störf, verðmæti og
lifskjör, með orkufrekum
iðnaði, en alþýðubanda-
lagsmenn með Iljörleif
Guttormsson að leiðsögu-
manni.
Árás Ólafs Ragnars á
Jón Sigurðsson er hins
vegar dæmigerð fyrir
A-flokka-sundurlyndið
og þami glundroða sem
einkennt hefur allar
vinstri stjórnir í landinu,
bæði fyrr og síðar. Það
er ekki sízt þessi glund-
roði sem staðið hefur í
vegi álmálsins. Átök og
gagnkvæm stóryrði for-
ystumanna A-flokkaima,
hvers i annars garð,
þessa dagana, eru „rök-
rétt“ framhald þeirrar
sextíu ára klofningssögu
komma og krata, sem
Gísli Guimarsson, sagn-
fræðmgur, rekur i
siðasta Helgarblaði Þjóð-
viljans. Og máske fyrst
og fremst sú orrahríð,
sem nú ríður húsum í
Reykjaneslgördæmi.
DANSSKÓLI HERMANNS RAGNARS
Faxafeni 14, Nútíð, 108 Reykjavík 687480 Og 687580
Vegna mikillar eftirspurnar
um vornámskeið fyrir
fullorðna, pör og einstaklinga
hefur verið myndaður hópur
á þriðjudagskvöldum og
hefst kennslan 9. apríl
í Faxafeni 14.
Getum bætt við nokkrum
byrjendum.
Innritun og nánari upplýsing-
ar í skólanum og í símum
687480 og 687580 fram á
mánudag.
Vordansnámskeið -
Nýir danshópar
Apríl - maí 8 vikur
ÞAÐ GETA ALUR LÆRT AÐ DANSA - DANSINN LENGIR LÍFIÐ
DANSSKÓLI HERMANNS RAGNARS