Morgunblaðið - 06.04.1991, Page 11
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
Hilmir Jóhannesson og Agústa Ingólfsdóttir gera tilraunir vegna
uppfærslu Gullna hliðsins.
Sæluvika Skagfirðinga:
Leikfélagið sýnir
,, Tí mamótaverk4 6
Sauðárkróki.
LEIKFELAG Sauðárkróks æfir
nú af kappi Sæluvikuverkefni
félagsins sem frumsýnt verður
sunnudaginn 7. apríl.
Hér er á ferðinni nýtt íslenskt
leikverk samið í tilefni af 50 ára
afmæli félagsins, af Hilmi Jóhann-
essyni mjólkurfræðingi á Sauðár-
króki. Er Hilmir leikhúsgestum að
góðu kunnur, en hann hefur samið
allmörg leikrit og revíur og mun
Leiðrétting
í SAMTALI við Friðrik Sophus-
son, varaformann Sjálfstæðis-
flokksins, um bækling fjármála-
ráðuneytisins, sem birtist á
miðopnu Morgunblaðsins í gær,
var ekki farið rétt með ummæli
Friðriks í upphafi greinarinnar
þar sem haft er eftir honum að
fjármálaráðherra hafi tekið fjög-
urra milljarða króna erlent lán
í lok siðasta árs.
Vegna misskilnings var haft eftir
Friðriki: „Á síðustu dögum ársins
1990 tók hann ijögurra milljarða
króna erlent lán, ...“ Friðrik Soph-
usson sagði hins vegar: „... tók
hann milljarða króna ...“ Hitt er
rétt eftir honum haft síðar í grein-
inni, að heildarlántökur fjármála-
ráðherra erlendis á árinu 1990 hafi
numið tæpum fjórum milljörðum
króna.
þekktasta verk verk hans vera
„Sláturhúsið Hraðar hendur“ sem
sýnt var víða um land á árum áður.
Þetta nýja verk Hiimis sem nefn-
ist „Tímamótaverk" fjallar um
raunir félaga í ónefndu leikfélagi í
dreifbýlinu við að finna viðeigandi
verkefni til sýningar á merkum
tímamótum í félaginu.
Þá þótti tilvalið þar sem verkið
er heimasmíðað að leita ekki langt
yfir skammt með leikstjóra og því
var einn af reyndari leikurum stað-
arins, Elsa Jónsdóttir, sem um ára-
bil hefur verið einn af máttarstólp-
um Leikfélags Sauðárkróks, fengin
til þess að stjórna sýningunni, en
þetta er í annað sinn sem Elsa tekst
á við slíkt verkefni.
Eins og í fyrri verkum Hilmis,
gengur á ýmsu á sviðinu, og inn í
bráðfjöruga texta er fléttað söng
og hljóðfæraleik.
Óhætt er að fullyrða að Sæluvik-
ugestum mun ekki leiðast á þessari
sýningu Leikfélag Sauðárkróks á
Tímamótaverkinu en fyrirhugaðar
eru sýningar flesta daga Sæluvik-
unnar og einnig eru áform um sýn-
ingar utan Skagafjarðar.
Tónlistina í Tímamótaverkinu
samdi Friðrik Halldórsson en flutn-
ing annast þeir Sigurgeir Angan-
týsson og Páll Friðriksson. Leikarar
sem fram koma í sýningunni eru
11. Formaður Leikfélags Sauðár-
króks er Sólveig Jónasdóttir.
- BB.
911 91 97fl LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
■ I I wv £10 /V KRISTINTVISIGURJÓNSSON,HRL.löggilturfasteignasali
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Góð eign á góðu verði
Endaraðhús i Fellahverfi, ein hæð, 152 fm með sólstofu. 4 svefnherb.
Nýlegt parket o.fl. Góður bílsk. 23,1 x 2 fm. Eignaskipti möguleg.
Stór og góð við Hraunbæ
3ja herb. suðuríbúð á 2. hæð 96,1 fm. Ný máluð og ný teppalögð.
Sólsvalir. Kjallaraherb. með snyrtingu. Nýleg teppi á stigum. Útsýni.
Verð aðeins kr. 5,9 millj.
Glæsileg suðuríbúð
3ja herb. við Dalsel á 2. hæð 89,9 fm. Rúmgóðar sólsvalir. Sameign
mjög góð. Nýtt og vandað bílhýsi. Laus 1. júní.
Neðri hæð í þríbýlishúsi
Við Stigahlíð 5 herb. 121 fm nettó. Góð geymsla í kj. Allt sér (inng.,
hiti og þvhús). Góður bílsk. með upphitun. Eignask. mögulög.
Engihjalii - Vallargerði
Stórar og góðar 2ja herb. íbúðir. Ennfremur nýlegar 2ja herb. íbúðir
með bílskúrum við Stelkshóla og Nýbýlaveg.
í smíðum - helst í Hafnarfirði
Einbýli eða sérhæð um 110-120 fm auk bílskúrs óskast fyrir traustan
kaupanda.
Húseign með tveimur íbúðum
óskast til kaups. Ýmsar stærðir koma til greina.
• • •
Opiðídag frá kl. 10-16.
Gott skrifrstofuhúsnæði
óskast miðsvæðis í borginni.
AIMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Fólkið fyrst,
svo ríkissjóður
eftir EyjólfKonráð
Jónsson
„Skattbyrði heimilanna er nú með
þeim hætti að ekki verður við unað.
Svo mikil er skattbyrðin orðin að
alþýðufjölskyldan hefur vart fyrir
brýnustu nauðsynjum. Það er skylda
Sjálfstæðisflokksins að beita sér
fyrir því að skattlagningu verði hag-
að þannig að afkoma lágtekjufólks
batni þegar í stað svo um muni.“
Þessa tillögu fluttu nokkrir tugir
ungra manna á Landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins. Fundarmenn fögn-
uðu henni og hún var einróma sam-
þykkt.
Um aðra þætti skattamála var
fjallað á nefndarfundum og er stefn-
an frjálslynd og skýr þó að viðauki
ungu mannanna hafi verið nauðsyn-
legur til þess að ekkert færi á milli
mála hver væri stefna flokksins í
skattamálum almennings og þar
með auðvitað kjaramálum.
Þegar þessi ánægjulegu tíðindi
gerast rísa kerfiskarlar og vinstri
pólitíkusar uppá afturlappirnar og
spyija með þjósti: Hvar ætlið þið
að taka peningana?
Því er auðsvarað, við ætlum
hvergi að taka peningana. Við ætl-
um að láta fólkið halda peningum
í sem ríkustum mæli í eigin vörzlu
og til ávöxtunar og til að bæta eig-
in hag og annarra, því að varla
verður velmegun og famfarir ef
kjörin eru skert svo að fólk geti
ekki lifað mannsæmandi lífi.
Framkvæmd þessarar stefnu get-
ur verið með nokkuð mismunandi
hætti, t.d. að skattfijálsar tekjur
verði mun hærri en nú er, t.d 75-
100.000 þús. kr.. á mánuði í ein-
hveijum áföngum, en samhli^a verði
með öllu afnumdir skattar §f brýn-
ustu nauðsynjavörum sem lendir á
öllum, hversu léleg sem kjör hans
eru.
En þá verður voðalegur halli á
ríkissjóðnum, segja spekingamir,
hann þarf að lifa, þetta „kostar svo
mikið“. En hvern kostar þetta svo
mikið spyr ég? Svarið er: Það kostar
fólkið of mikið. Það kostar fólkið
of mikið að kaupa vöruna sem skatt-
lögð er eins og menn væru óðir orðn-
ir og það kostar fólkið of mikið að
borga skattana sem verða til þess
að það glatar heilsu sinni, eignum
sínum og lífshamingju, fjölskyldum
sínum og vinum.
Því miður eru alltof mörg dæmi
þess sem nú var nefnt, það vitum
við öll. Og við vitum líka, þau sem
fullorðin voru íyrir svo sem 20-30
árum, að launamisrétti og eignamis-
rétti á íslandi hefur aldrei verið jafn
mikið og nú á tímum vinstri stjórnar.
Þetta eru líka staðreyndir sem
unga fólkið sér, þótt við hin eldri
látum okkur hafa það að fólk sem
af hörkudugnaði er að reyna að
bijótast áfram sé arðrænt af ríkinu
og þetta gerist í mesta góðæri ís-
landssögunnar, og það sem meira
er þetta gerist þegar fiskverð er það
hæsta í veraldarsögunni miðað við
önnur matvæli.
Þá spyija spekingarnir aftur: En
hvað um ríkið, hvað á það að fá?
Áuðvitað fær ríkið meira en ekki
minna, þegar fram í sækir og þjóð-
arlíkaminn er læknaður, en ekki
helsjúkur. Þá verður framleiðslan
meiri og velta meiri. Rauntekjur rík-
isins hækka eins og tekjur fólksins
því yfirleitt eru nú skattarnir allir
í hundraðstölum af tekjum, neyslu
eða eignum. Þetta leggst svo allt
hvað ofan á annað, margfaldast og
tekur á sig kynjamyndir. Þannig á
fólkið aðeins smáaura eftir.
En auðvitað láta kerfiskarlarnir
ekki segjast. Nú eru síðustu skila-
boðin þau að það sé „hætta á
þenslu“, á mannamáli að það sé of
mikil atvinna í vændum og kannski
Eyjólfur Konráð Jónsson
„Það kostar fólkið of
mikið að kaupa vöruna
sem skattlögð er eins
og menn væru óðir
orðnir og það kostar
fólkið of mikið að borga
skattana sem verða til
þess að það glatar
heilsu sinni, eignum
sínum og lífshamingju,
fjölskyldum sínum og
vinum.“
hækkandi tekjur. Þá er bætt við:
Það eru ýmis veikleikamerki fram-
undan. Veikleikamerkin, hvað er nú
það sem getur verið veiklulegra en
stjórnvöldin núverandi?
Ofstjórnin og sköttunin er heima-
tilbúin kreppa. Fólkið veit þetta, og
þegar það fær jafn ótvíræð skilaboð
frá Landsfundi Sjálfstæðismanna
og ungu mennirnir flytja veit það
að loforðið verður efnt.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Sjálfstæðisfiokkinn íReykjavík.
Vilt þú vera sólarmegin?
Nýr valkostur á Spáni: Hús við golfvöll.
Kynning á húsum á Spáni í Golfskálanum, Grafar-
holti, í dag, laugardag, frá kl. 10.00-18.00.
Við kynnum hágæða íbúðabyggð á Costa Blanca strönd Spánar. Um er að
ræða íbúðir, raðhús og einbýlishús í ýmsum verðflokkum. Öll húsin eru einangr-
uð og byggð með loftrými undir gólfi. Öll þjónusta er á svæðinu. Húseignir í
þessari þyggð hafa hækkað í verði um 8-10% á ári á síðustu árum.
Komið og kynnið ykkur freistandi valkost fyrir þá, sem vilja vera sólarmegin.
Kynningarferð verður farin fljótlega.
Fasteignasalan Framtíðin, Quesada Norden.
sími 622424.