Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991
15
Starfsmaður: Ásta Gunnarsdóttir
Kosningastjóri: Jóhannes Óli Garðarsson
Kvenfélag Laugar-
nessóknar 50 ára
eftir JónD.
Hróbjartsson
i
6. apríl verður kvenfélag Laug-
arnessóknar 50 ára, en það var
stofnað vorið 1941.
Stofnun kvenfélags í Laugar-
neshverfi á sínum tíma var mikil
lyftistöng fyrir allt kirkjustarf,
enda var markmið félagsins að
hlúa að málefnum kirkjunnar.
Fyrsta verkefni kvenfélagsins var
að styðja við kirkjubygginguna,
sem nýstofnuð sóknarnefnd skipu-
lagði og stóð fyrir. Konur úr kven-
félaginu unnu ötullega að fjáröflun
fyrir sjálfa kirkjuna og síðar söfn-
uðu þær fyrir ýmsum kirkjumun-
um.
Það tók 8 ár að byggja Laugar-
neskirkju, en það var gert á mjög
erfiðum tímum stríðsára þegar
örðugt var að fá það sem til þurfti.
En vegna harðfylgi sóknarnefnd-
ar, sóknarprests og safnaðar tókst
þetta giftusamlega og kirkjan var
vígð 18. desember 1949.
Eitt verkefni tóku konur úr
kvenfélaginu að sér, sem lengi
verður í minnum haft frá þessum
tíma. Þær gengu með stóra bók
milli allra heimila í sókninni, þar
sem íbúamir, sem það gátu, rituðu
nöfn sín í og lögðu um leið sinn
skerf í byggingasjóðinn. Þessi
merka bók liggur frammi í kirkj-
unni og er merk heimild um íbúa
sóknarinnar, en ekki síst um dugn-
að kvennanna sem unnu verkið.
Kvenfélag Laugarnessóknar tók
sér margt fyrir hendur auk Ijáröfl-
unar. Oft buðu þær upp á nám-
skeið um ýmis efni, svo sem
saumanámskeið, námskeið í fram-
sögn. Þá tóku þær að sér reit í
Heiðmörk og hafa farið á hveiju
vori til að gróðursetja tré. Þessar
ferðir voru og eru skemmtilegar
og ómissandi liður í starfi félags-
ins.
Kvenfélagið hefur ávallt haldið
félagsfundi fyrsta mánudag hvers
mánaðar yfir vetrarmánuðina.
Lengi voru þessir fundir í fundar-
sal kirkjunnar, sem var bæði lítill
og þröngur, en þær létu það ekki
á sig fá og nutu samfundanna í
ríkum mæli. Sérstakar hátíðir
héldu konurnar og halda enn, þ.e.
jólafund og afmælisfund, en þessir
fundir hafa ávallt verið mjög vel
sóttir.
Árið 1978 tók sr. Garðar Svav-
arsson skóflustungu að nýju safn-
aðarheimili við kirkjuna. Þetta var
langþráður draumur, enda var
löngu orðin þörf á meira húsrými
fyrir félagsstarfið. Vorið 1983 var
Safnaðarheimilið tekið í notkun
og átti kvenfélagið sinn þátt í því
að safna peningum til byggingar-
innar. Margar hæfileikakonur
hafa verið í forystu kvenfélagsins
þessi 50 ár. Fyrsti formaður fé-
lagsins var frú Þuríður Pétursdótt-
ir, þá tók við frú Lilja Jónasdóttir.
Eftir hana tók við stjórnartaumun-
um frú Herþrúður Hermannsdóttir
eiginkona fyrsta formanns sóknar-
nefndarinnar. Hún starfaði sem
formaður í 12 ár, en næstu 12
árin stýrði frú Vivian Svavarsson
félaginu, en hún var eiginkona sr.
Garðars Svavarssonar. Eftir hana
hafa ýmsar konur gegnt for-
mennskunni, en núverandi form-
aður heitir Hjördís Georgsdóttir.
Ekki er svo hægt að fjalla um
starf kvenfélags Laugarnessókn-
ar, að ekki sé minnst hins merka
starfs sem sr. Garðar Svavarsson
innti af hendi sem brautryðjandi
kirkjulegs starfs í Laugarnes-
hverfi. Hann kom til starfa í Lau-
garnesi 1986 og var því búinn að
.isnlnfnmlivBpiyoir snnsm
„Þær gengu með stóra
bók milli allra heimila
í sókninni, þar sem íbú-
arnir, sem það gátu,
rituðu nöfn sín í og
lögðu um leið sinn skerf
í byggingasjóðinn.“
starfa þar í 40 ár þegar hann lét
af störfum fyrir aldurs sakir haus-
tið 1976. Kvenfélagskonurnar
báru alltaf mikla virðingu fyrir sr.
Garðari, enda starfaði hann mikið
með þeim og mat starf þeirra mik-
ils.
Á 50 ára afmæli kvenfélags
Laugarnessóknar vii ég blessa
minningu sr. Garðars Svavarsson-
ar um leið og ég þakka öllum þeim
mörgu sem komið hafa við sögu
í öflugu og þróttmiklu starfi
kvenfélagsins frá upphafi. Ég bið
Guð að blessa allar félagskonur
og árna félaginu heilla og blessun-
ar á merkum tímamótum.
Höfundur er sóknarprestur
Laugarnessóknar.
Nes- og Melahverfi:
Sími: 620185
Skrifstofa: Ingólfsstræti 5
Starfsmenn: Kolbrún Ólafsdóttir
Haraldur Johannessen
Kosningastjóri: Þórólfur Halldórsson
Vestur- og Miðbæjarhverfi:
Sími: 620187
Skrifstofa: Ingólfsstræti 5
Starfsmaður: Brynhildur Andersen
Kosningastjóri: Kristján Guðmundsson
Austurbær og Norðurmýri:
Sími: 620189
Skrifstofa: Ingólfsstræti 5
Starfsmaður: Jens Ólafsson
Kosningastjóri: Kristinn Gylfi Jónsson
Hlíða- og Holtahverfi:
Sími: 82608
Skrifstofa: Valhöll 2. hæð
Starfsmaður: Árni Jónsson
Kosningastjóri: Jóhann Gíslason
Háaleitishverfi:
Sími: 82679
Skrifstofa: Valhöll I. hæð
Starfsmaður: Trausti Þór Ósvaldsson
Kosningastjóri: Karl F. Garðarsson
Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi:
Sími: 82675
Skrifstofa: Valhöll I. hæð
Starfsmaður: Sóphus Guðmundsson
Kosningastjóri: Óðinn Geirsson
Laugarneshverfi:
Sími: 620181
Skrifstofa: Borgartúni 31
Starfsmaður: Ragnar Ragnarsson
Kosningastjóri: Axel Eiríksson
Langholtshverfi:
Sími: 678537
Skrifstofa: Fákafeni 11
Starfsmaður: Helga Jóhannsdóttir
Kosningastjóri: Óskar Finnsson
Árbæjar-, Seláshverfi og Ártúnsholt:
Sími: 674011
Skrifstofa: Hraunbæ 102 b
Bakka- og Stekkjahverfi
Sími: 670578
Skrifstofa: Gerðubergi I
Starfsmaður: Louise Biering
Kosningastjóri: Guðmundur Jónsson
Skóga- og Seljahverfi
Sími: 670413
Skrifstofa: Gerðubergi I
Starfsmaður: Guðlaug Wium
Kosningastjóri: Rúnar Sigmarsson
Fella- og Hólahverfi
Sími: 670352
Skrifstofa: Gerðubergi I
Starfsmaður: Bertha Biering
Kosningastjóri: Jón Sigurðsson
Grafarvogun
Sími: 676460
Skrifstofa: Hverafold 1-3
Starfsmaður: Sigurður Pálsson
Kosningastjóri: Hreiðar Þórhallsson
Utankjörstaðaskrifstofa:
Opið kl. 9.00-22.00 alla daga
Skrifstofa: Valhöll, 3. hæð
Starfsmenn: Katrín Gunnarsdóttir,
sími: 679903
Gísli Jensson,
sími: 679938
Kosningastjóri: Óskar V. Friðriksson,
sími: 679902
Kosningaskrifstofurnar eru opnar alla virka daga
milli kl. 17.00 og 22.00 og um helgar milli klukkan
13.00 og 17.00.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals
á kosningaskrifstofunum virka daga frá kl. 17.30 til
19.00 og um helgar frá kl. 14.00 til 15.30.
Nánari upplýsingar á kosningaskrifstofunum.