Morgunblaðið - 06.04.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991
Aðalfundur Olíufélagsins h.f.
veröur haldinn þriöjudaginn 16. apríl 1991
á Hótel Sögu, Súlnasal
og hefst fundurinn kl. 14.00.
DAGSKRÁ
1 ■ Venjuieg aöalfundarstörf skv. 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um utgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillögur um breytingar á 4., 5. og 16 gr.
samþykkta félagsins.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja frammi á
aöalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aöalfund.
Aögöngumiöar og fundargögn veröa
afhent á aöalskrifstofu félagsins
Suöurlandsbraut 18, 4. hæö,
frá og meö 11. apríl, fram aö
hádegi fundardag.
Stjórn Olíufélagsins h.f.
Olíufélagið hf
Iðnskóladagurinn:
og ráðgjafar kvaddir til. Orð eru ti!
alls fyrst og vonandi fylgja athafnir
í kjölfarið. Það sæmir okkur þó ekki
og allra síst iðnaðarmönnum, að
bíða þess aðgerðarlaust að til
ákvarðana og framkvæmda dragi
af opinberri hálfu. Við verðum nú
að leggja okkar af mörkum. Sú þró-
un sem þarf að verða á næstu árum
verður að vera sameiginlegt átak.
Yfirstjórn menntamála, skólakerfið,
samtök iðnaðarins — jafnt vinnu-
veitenda sem launþega — verða að
leggjast á éitt í þessum efnum, ef
barnið á að komast til vits og þroska.
Örlar á samvinnu
I dag örlar á slíkri samvinnu.
Menntamálayfirvöld hafa lýst yfir
vilja til samstai'fs. Samtök iðnmeist-
ara og iðnsveina eru meðvituð um
þá skyldu sína að tryggja að námið
sé í samræmi vð þarfir atvinnulífs-
ins, þótt kennslan fari meira fram
í skólum en áður. Þessi samtök eru
einnig smám saman að uppgötva
að markmiðin eru í flestu tilliti sam-
eiginleg. Og skólakerfið hefur þegar
lýst stuðningi viðomargar af þeim
hugmyndum sem hafa verið á kreiki
í atvinnulífinu;
Á komandi mánuðum reynir á
hvort þessi samvinna kemst á. Und-
anfarna mánuði hefur margt verið
skrafað um þau efni. Nú kemur hins
vegar í ljós hvort raunverulegur
samstarfsvilji er meðai allra þeirra
aðila sem málin varða.
Opinber atvinnustefna?
hefur að sÍQppa einna mestu af
áhrifum og framkvæmdamætti
sínum til að hlúa að háskólamennt-
uninni. Þótt ekki megi horfa tii
þeirra fórna með neinni eftirsjá —
þær voru nauðsynlegar — verðum
við samt að gera okkur fulla grein
fyrir áhrifum þeirra á atvinnulíf
okkar. Staðreyndin er sú að staða
iðnmenntunar hefur þróast á þann
veg að verði ekki lögð veruleg
áhersla á enduruppbyggingu hennar
á næstu árum verður hún ekki fær
um að skila þeim starfskröftum út
í atvinnulífið sem það þarfnast á
komandi tímum. Hvemig sem við
reiknum og róum er ljóst að í fram-
tíðinni verður vaxtarbroddur
íslensks atvinnulífs í iðnaðinum. Án
iðnaðar, án hæfra iðn- og verk-
menntaðra starfskrafta, geta aðrir
verðmætaskapandi atvinnuvegir
ekki þrifist hér á landi fremur en
annars staðar. í ijósi þessa fram-
tíðarhlutverks iðnaðarins verðum
við að skoða iðn- og verkmenntun-
ina og haga aðgerðum okkar í sam-
ræmi við það.
Það er athyglisvert í þessu sam-
hengi að skoða þann þunga sem
ríki Evrópubandalagsins leggja nú
á að koma iðn- og verknámi í þann
farveg að þróun og dreifing verk-
þekkingar verði sem mest og virk-
ust. Okkur er nauðsyn að fylgjast
náið með þeim hugmyndum sem eru
uppi á borðum hjá þessum þjóðum,
sem eru og verða helstu samskipta-
þjóðir okkar.
Verk fylgi orðum
Sem betur fer hafa íslenskir ráða-
menn þegar viðurkennt nauðsyn
þess að byggja þennan þátt mennta-
mála upp að nýju. Forystumenn
hafa haft um slíkt góð orð í ræðu
og riti, nefndir hafa verið skipaðar
Yfirborð o g innviðir atvinnulífsins
eftir Pál Kr. Pálsson
Þegar litið er á yfirborð íslensks
atvinnullfs virðast hlutirnir í þokka-
legu lagi. Séu innviðirnir skoðaðir
kemur hins vegar annað í ljós.
í stjórnartíð núverandi ríkis-
stjórnar hafa fleiri fyrirtæki og ein-
staklingar orðið gjaldþrota en
nokkru sinni áður. Skattar hafa
hækkað meira en áður og ríkisút-
gjöld hafa aukist langt umfram
tekjur, svo gríðarlegur halli er nú
á ríkisbúskapnum.
Fyrirtækin hafa átt fullt í fangi
með að halda sér á floti og því lítill
tími og fjármagn aflögu til að huga
að þróun þeirrar vöru og þjónustu
sem bera á uppi lífskjörin á næstu
árum.
Nú er að koma í ljós að sú opin-
bera afskiptastefna sem ríkisvaldið
hefur fylgt varðandi nýsköpun í
atvinnulífinu hefur beðið skipbrot.
Núverandi ríkisstjórn lætur líta
svo út, sem aðgerðir hennar að
undanförnu hafi snúist um að
bjarga atvinnulífinu. Vandinn sem
atvinnulífið á við að etja er að
mestu leytu skapaður vandi sem
orðið hefur til fyrir opinbera stefnu
og stefnuleysi.
Vlutcuzcv
Heílsuvörur
nútímafólks
eftirHarald
Sumarliðason
Iðnskóladagurinn er á sunnudag.
Nemendur og starfsfólk Iðnskólans
í Reykjavík hafa síðustu vikur lagt
á sig mikia vinnu við undirbúning
kynningar á starfi skólans og þeim
námsbrautum sem bjóðast innan
hans. Á morgun fer svo kynningin
fram og er full ástæða til að hvetja
alla sem því geta við komið, til að
líta við á Skólavörðuholtinu.
Þessi árlegi viðburður Iðnskólans
í Reykjavík er mikilvægur og verður
hér drepið á fáein atriði því til stað-
festingar. Iðnskóladagurinn er ekki
aðeins kynning á Iðnskólanum í
Reykjavík. Hann er kynning á iðn-
og verkmenntun í landinu öllu og
um leið kynning á iðnaði og mikil-
vægi hans í íslensku þjóðfélagi.
Uppbygging
háskólamenntunar
Iðn- og verkmenntun hefur á
síðustu áratugum dregist nokkuð
aftur úr öðrum þáttum menntamála
hér á landi. Að liðnum fyrstu
átakaárum efnahagsbyltingarinnar
sem íslendingar upplifðu um miðbik
þessarar aldar stóðum við frammi
fyrir alvarlegum skorti á háskóla-
menntuðum sérfræðingum. íslenskt
samfélag lagðist þá á eitt við að
leita lausna og árangurinn er sá að
nú getum við ágætlega sinnt brýn-
ustu þörfum okkar á flestum sviðum
„í stjórnartíð núver-
andi ríkisstjórnar hafa
fleiri fyrirtæki og ein-
staklingar orðið gjald-
þrota en nokkru sinni
áður. Skattar hafa
hækkað meira en áður
og ríkisútgjöld hafa
aukist langt umfram
tekjur, svo gríðarlegur
halli er nú á ríkisbú-
skapnum.“
Afskipti opinberra aðila af at-
vinnulífinu hafa að undanförnu snú-
ist um að leysa heimatilbúin vanda-
mál fortíðarinnar og skapa vanda-
mál framtíðarinnar.
Alls staðar í hinum vestræna
heimi hafa menn áttað sig á að því
meiri sem opinber afskipti af ný-
sköpun eru því takmarkaðri er
árangurinn. Það sem fyrst og
fremst ræður árangrinum eru
stjórnunarhæfileikar, þekking og
færni þeirra einstaklinga sem fást
við slík verkefni.
Hlutverk opinberra aðila á að
felast í jöfnun starfsskilyrða milli
atvinnugreina og í að skapa at-
vinnulífinu sambærileg starfsskil-
yrði og ríkja meðal samkeppnis-
þjóða okkar.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins nú fyrir sköinmu kom skýrt
fram í ályktunum sém'snertá’át-
Páll Kr. Pálsson
vinnumál að Sjálfstæðisflokkurinn
vill draga úr afskiptum ríkisins af
atvinnulífinu. Hæfileikar einstakl-
inganna verða að fá að njóta sín
betur, sóun fjármagns í gegnum
opinbera atvinnustefnu er engum
til góðs.
Það þarf að leggja niður milli-
færslusjóði ríkisstjórnarinnar og
lækka tekjuskatt fyrirtækja til að
örva nýja sókn í atvinnumálum.
Tækifærin til nýsköpunar eru
allt í kringum okkur. Kjarni málsins
er að gefa þeim sem kunna að nýta
tækifærin möguleika til þess, því
það mun skila okkur mestum þjóð-
hagslegum ávinningi.
Höfundur situr í Iðnaðarnefnd
Sjálfstivðisflokksins.
svonefndrar „æðri menntunar". í
sumum greinum hefur þar meir að
segja orðið offjölgun.
Ekki svo að skilja að við getum
í dag hætt að senda fólk í háskóla.
Það verður aldrei. Við getúm hins
vegar beint kröfum okkar að end-
urnýjun og þróun þekkingar í stað
magnuppbyggingar og fjöldafram-
leiðslu á háskólafólki. Um leið get-
um við beint sjónum okkar aftur
að öðrum þáttum menntakerfisins.
Staða iðnmenntunar
Iðn- og verkmenntun er ef til vill
sá armur menntamála sem þurft
AÐALFUNDUR
Mikilvæg kynning
á gildi iðnaðar