Morgunblaðið - 06.04.1991, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991
19
Um „meðaltal“ ríkisendurskoðunar og
óvandaðan fréttaflutning fjölmiðla
Allii' þeir aðilar sem ganga til
samvinnu um enduruppbyggingu
iðn- og verkmenntunar þurfa að
gera sér glögga grein fyrir mikil-
vægi þess sem þar er um fjallað.
Ábyrgðin sem hvílir á samvinnu
þessari er of þung til að uppbygging
eða viðhald áhrifa einstaklinga,
stofnana, samtaka eða hópa megi
standa í vegi fyrir markvissri sókn
að því stefnumiði að byggja upp
sterka og virka iðnmenntun, sem í
framtíðinni getur þjónað hlutverki
sínu í íslensku samfélagi.
Breyttur tími
Sérstaklega verða allir aðilar að
gera sér grein fyrir því að ekkert
er óumbreytanlegt í þessum heimi.
Iðn- og verkmenntun þarf sífeljt
að laga sig að nýrri tækni, nýjum
vinnubrögðum og nýjum viðhorfum.
Gamlar iðngreinar ljúka hlutverki
sínu og nýjar verða til. Þessum
breytingum og öðrum þarf iðn- og
verkmenntakerfið að geta mætt á
hveijum tíma. Til þess að svo megi
verða þurfa allir aðilar að sýna
sveigjanleika, vilja til að laga sín
störf að þeim raunveruleik sem blas-
ir við hveiju sinni.
Frumkvæði nauðsynlegt,
Samtök iðnaðarins verða ekki ein-
ungis að vera fús til samvinnu um
enduruppbyggingu iðnmenntunar-
innar, þau verða að hafa þar frum-
kvæði. Hvort sem á ferð eru samtök
atvinnurekenda, launamanna eða
annarra þurfa aðilar vinnumarkað-
arins að skerpa á hugmyndum
sínum, móta þær og koma þeim á
framfæri. Þessir aðilar hafa of lengi
takmarkað afskipti sín við umsagnir
um áætlanir og ákvarðanir sem orð-
ið hafa til í skólakerfinu og mennta-
málaráðuneytinu. Ekki svo að skilja
að þar á bæjum sé allt illt gert. Það
er einungis mál að fleiri leggi þar
skapandi hönd á píóg. Iðnmenntun
framtíðarinnar verður að vera opn-
ari og víðtækari en svo að þar geti
einn aðili haft fulla yfirsýn.
Mikilvægi iðnskóladags
Mikilvægi iðnskóladagsins teng-
ist þessuin málum öllum. Dagurinn
er mikilvægur vettvangur fyrir ungt
fólk, sem ennþá hefur ekki valið sér
námsleið að grunnskóla loknum, til
að kynnast ofurlítið áþreifanlegar
en elía þeim möguleíkum sem bjóð-
ást í iðn- og verkmenntun. Jafn-
framt gefst þeim sem hyggja á aðr-
ar námsleiðir tækifæri til að skoða
iðnnám sem mögulegan undirbún-
ing, eða hagstæða leið að settum
markmiðum. Þeir sem þegar starfa
á öðrum sviðum atvinnulífsins geta
líka sótt mikilvægar upplýsingar á
iðnskóladegi. Upplýsingar um það
hvernig iðnaður getur þjónað og
starfað meðjieirra fyrirtækjum og
stofnunum. I raun er þessi dagur
þó ekki síður mikilvægur sem tæki-
færi til kynningar á mikilvægi og
möguleikum iðn- og verkmenntunar
almennt. Hlutverk iðnaðar í framt-
íðarsamfélagi okkar íslendinga þarf
að kynna öllum almenningi. Aðeins
með slíkri kynningu getur iðn- og
verkmenntun skipað þann sess sem
hún á og þarf að skipa.
eftir Magnús Karl
Pétursson
Miðvikudaginn 20. mars sl. var
lögð fram skýrsla Ríkisendurskoðun:
ar um starfsemi Ríkisspítalanna. í
skýrslu þessari sem að mörgu leyti
er vel unnin kemur fram að í heild
hafi Ríkisspítulunum vel tekist að'
halda utan um takmarkaða fjármuni
sína. Aðhald hafi verið á útgjöldum,
kostnaður við vandasamar aðgerðir
sé minni hérlendis en erlendis, að
meðal legutími hefur styst meira en
víða annars staðar og að vinnuálag
á lækna og hjúkrunarfólk sé meira
en á sambærileguni háskólasjúkra-
húsum erlendis.
í sérstökum kafla sem spannar
þó aðeins hálfa blaðsíðu af 34 grein-
ir Ríkisendurskoðun frá könnun sinni
á „heildarlaunum nokkurra (letur-
breyting mín) tekjuhæstu sérfræð-
inga“, og í beinu framhaldi af því
að „verktakagreiðslur" til þeirra hafi
að meðaltali verið 4,4 milljónir á
ári. Hér er ekki hirt um að segja
hVersu margir sérfræðingar eru að
baki þessu „meðaltali", hvort þeir
eru 2, 10, 100 eða fleiri. Aðeins
meðaltal „nokkurra hæstu“. Það er
heldur ekki hirt um að greina frá
því hvað í svokölluðum „verktaka-
greiðslum" felst, hve mikill hluti af
þeim eru laun aðstoðarfólks og
rekstrarkostnaður og hve mikill hluti
Magnús Karl Pétursson
„Ríkisendurskoðun er
stofnun sem landsmenn
allir þurfa að geta
treyst. Það er ekki sam-
boðið slíkri stofnun að
senda frá sér svo vill-
andi og órökstuddar
niðurstöður.“
eru laun sérfræðingsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Ríkisendurskoðun birtir slíka „með-
altals“útreikninga á greiðsium til
lækna og er vandséð hver tilgangur-
inn er. Hitt er víst að fréttamenn
og fjölmiðlar stukku á agnið og sama
kvöldið skýrði áhrifamesti fjölmiðill
landsins, ríkissjónvarpið, frá því að
meðalgreiðslur Tryggingastofnunar
ríkisins til sérfræðinga í 100% starfi
væru 4,4 milljónir á ári fyrir störf
unnin utan spítalans, og stærsta
fréttablað landsins, Morgunblaðið,
endurtók „fréttina" næsta dag.
Ríkisendurskoðun er stofnun sem
landsmenn allir þurfa að geta treyst.
Það er ekki samborið slíkri stofnun
að senda frá sér svo villandi og órök-
studdar niðurstöður. Niðurstöður
sem verða síðan tilefni til ótrúlegra
rangfærslna og æsifrétta dag eftir
dag í fjölmiðlum og ná hámarki sínu
þegar einn af ráðamönnum þessa
lands ákærði lækna frammi fyrir al-
þjóð fyrir fjárkúgun af verstu sort.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
starfsemi Ríkisspítalanna er ekki
skýrsla um laun lækna þótt fjölmiðl-
ar hafi túlkað hana þannig. Um laun
lækna er allt hægt að finna í árlegri
skýrslu sem greinir frá launum þeirra
sem borga skatt á íslandi í dag.
Höfundur er sérfræðingur á
Landspítala.
Það ekur enginn út í
óvissuna á nýrri Toyotu
frá Flugleiðum Hertz
bílaleigu. Áður en þú
„Hjá okkur
fá þeir ekki
bæjarleyfi
fyrr en eftir
nákvæma
skoðun“
færð bílinn í hendur þarf
hann að gangast undir
strangt Hertz öryggis- og
gæðapróf. Eftirtalin atriði
eru meðal fjölmargra sem
alltaf eru yfirfarin: Vél,
rafgeymir, olía, tjakkur,
bremsur, hjólbarðar,
ljósabúnaður, farangurs-
rými, hurðir og hurða-
læsingar, stýrisbúnaður,
sæti, gírkassi, ofl. ofl.
Já, þú getur verið viss um
að Hertz bíll er í lagi.
Síminn er 690 500 og fax
690 458, -og það er opið
allar helgar.
Bílaleiga