Morgunblaðið - 06.04.1991, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991
21
Oskiljanleg út-
hlutun á hafnarfé
eftir Halldór Blöndal
Síðustu dagar þingsins voru
ekki til sóma og má raunar segja,
að salir og gangar hafi breyst í
markaðstorg, þar sem ráðherrarnir
voru aðalkaupahéðnarnir. Mestu
hrossakauþjn voru í kringum láns-
fjárlögin. Óskiljanleg úthlutun á
hafnarfé er hluti af þeim, en heim-
ildin er sótt í ræðu Páls Pétursson-
ar og mun vera á þá leið, að fjár-
málaráðherra sé heimilt að taka
lán til opinberra framkvæmda og
aðgerða í atvinnumálum í byggðar-
lögum sem hart hafa orðið úti
vegna loðnubrests eða örðugs at-
vinnuástands.
Af ástæðum mér ókunnum hefur
fjái-veitinganefnd skipt þessu fé,
100 millj. kr., þannig, en inni í
svigum eru tillögur vita- og hafnar-
málastjóra: Ólafsvík 3 millj. kr.
(ekkert), Patreksfjörður 5 millj. kr.
(ekkert), Bolungarvík 15 millj. kr.
(15), Blönduós 16 millj. kr. (ekk-
ert), Siglufjörður 12 millj. kr. (18),
Raufarhöfn 2 millj. kr. (7), Þórs-
höfn 6 millj. kr. (8), Vopnafjörður
6 millj. kr. (6), Seyðisfjörður 3
millj. kr. (5), Neskaupstaður ekk-
ert (2), Eskifjörður 4 millj. kr. (4),
Reyðarfjörður 14 millj. kr. (20),
Grindavík 14 millj. kr. (15).
Það vekur athygli, að sumum
loðnuhöfnum er sleppt með öllu,
þótt þar sé brýn þörf á hafnarfram-
kvæmdum og hafi verið lengi. Ég
nefni Ólafsfjörð i mínu kjördæmi.
Svo sem ekkert kemur í hlut Rauf-
arhafnar, þótt nauðsynlegt sé að
dýpka innsiglinguna, eftir að loðn-
uskipin hafa stækkað, en það er
að sjálfsögðu dæmigerð loðnuhöfn.
Á hinn bóginn hefur fjárveitinga-
nefnd ráðstafað fé til hafna, þar
sem aldrei hefur farið sögum af
loðnu. Mér eru ekki ljósar forsend-
urnar fyrir þeirri úthlutun, en þó
virðist ljóst, að ekki hefur verið
lagt upp úr því, að mikil umferð
sé um þær hafnir, sem hrepptu
hnossið.
Úthlutun á 100 millj. kr. lánsfé
til einstakra hafna er á ábyfgð rík-
isstjórnarinnar en ámælisvert, að
ekki skyldi frá henni gengið, með-
an Alþingi sat, eins og komið hef-
Halldór Blöndal
„Á hinn bóginn hefur
fjárveitinganefnd ráð-
stafað fé til hafna, þar
sem aldrei hefur farið
sögum af loðnu. Mér
eru ekki ljósar forsend-
urnar fyrir þeirri út-
hlutun, en þó virðist
ljóst, að ekki hefur ver-
ið lagt upp úr því, að
mikil umferð sé um þær
hafnir, sem hrepptu
hnossið.“
ur í ljós. Hlutur Norðurlands eystra
liggur eftir. Á undanförnum árum
hefur 20-25% hafnarfjár farið í það
kjördæmi og hvergi nærri dugað
til. í þessari úthlutun fara litlar 8
millj. kr. þangað eða 8%, en loðnu-
hafnirnar eru fjórar. Tvær þeirra
fá ekki neitt.
Hrossakaupin í kringum lánsr
Ijárlögin láta sannarlega ekki að
sér hæða.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfst-æðisflokksins fyrir
Norðurlandskördæmi eystra.
T I L B 0 B A R S I N S
VEGNA HAGSTÆÐRAINNKAUPA
GETUM VIÐ BOÐIÐ
UM 47.000,- KR. VERÐLÆKKUN
Rubin ljós eik, 160 x 200 cm, með náttborðum og dýnum
(spring- eða latexdýnur).
Verð kr. 102.457,- stgr. og lánaverð kr. 109.457,-
Áður kr. 146.355,- stgr. og lánaverð kr. 156.529,-
Dæmi um greiðslumáta:
l)Visa/Euro raðgreiðslur í , 2) Munalán í 30 mánuði.
11 mánuði, ca. 10.888,- Utborgun 27.364,-, afborgun
hvern mánuð. á mánuði ca. 3.500,-
Umboðsmenn: Austurland: Hólmar hf., Reyðarfirði.
Norðurland: Vörubær, Akureyri. Vestfirðir: Húsgagnaloftið, ísafirði.
1 Kt tfpíOT 1 >1 b
Metsölublað á hverjum degi!