Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 29

Morgunblaðið - 06.04.1991, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRÍL 1991 29 Aukakosningar í Wales í Bretlandi: Osigur íhaldsmanna talinn draga úr líkum á kosningum í bráð 'London. Reuter. BRESKIR stjórnmálaskýrendur létu í ljós þá skoðun sína í gær, að ósigur Ihaldsflokksins í aukakosningum í kjördæminu Neath í Suður-Wales, hlyti að draga úr líkum á því að John Major forsætis- ráðherra rjúfi þing og boði til kosninga á næstu mánuðum. Neath hefur verið öruggt sæti Verkamannaflokksins í tæp 70 ár og af þeim sökum fullyrtu leiðtog- ar Ihaldsflokksins að úrslitin þar endurspegluðu með engu móti stöðu hans á landsvísu. Frambjóð- andi Verkamannaflokksins hlaut 18.000 atkvæði en flokkurinn hlaut 27.000 atkvæði 1987. Fram- bjóðandi íhaldsflokksins hafnaði í þriðja sæti og hlaut aðeins 2.995 atkvæði miðað við 7.034 1987. Útkoman þykir sýnu verri þar sem íhaldsmenn töpuðu fyrir flokki velskra þjóðernissinna, Plaid fylgi en Verkamannaflokkurinn. Hefur fylgi íhaldsmanna lækkað um tæpt prósent frá seinasta mán- uði. Könnunin sýnir einnig að báð- ir stóru flokkanna hafa tapað fylgi til Fijálslynda demókrataflokksins, en foringi hans, Paddy Ashdown, nýtur ört vaxandi persónuvin- sælda. í annarri könnun, sem gerð var fyrir BBC sögðust 40% styðja íhaldsflokkinn, sem er 4% minna en í könnun stöðvarinnar fyrir mánuði, en 39% Verkamanna- flokkinn. Reuter Hætta Bretar við flugvallargerð í Hong Kong? Douglas Hurd utanríkisráðherra Breta er staddur í Peking þar sem hann mun eiga viðræður við ráðamenn en myndin var tekin á fundi hans með leiðtoga kínverska kommúnistaflokksins, Jiang Zemin. Framtíð Hong Kong verður eitt megin umræðuefnið í viðræðum hans við kínverska ráðamenn. Hann gaf í skyn í gær að Bretar myndu ef til vill taka eftirgjöf í deilu við Kínveija um flugvallargerð í nýlendunni til greina. Fjöldagraf- ir finnast í Kólombíu Bogota. Reuter. HERMENN í Kólombíu hafa fundið nokkrar fjöldagrafir, með samtals um hundrað líkum, sem talið er að séu af fylgismönnum öflugustu skæruliðahreyfingar landsins er teknir hafi verið af lífi í innbyrðis hreinsunum í hreyfingunni. Skýrðu talsmenn Kólombíska hersins frá þessu í gær. Norberto Andrada, hershöfðingi, sagði hermenn hafa fundið fjölda- grafirnar skammt frá höfuðstöfðum Byltingarsinnuðu bardagasveitanna en sú hreyfing er ein sú síðasta sem enn heldur uppi baráttu gegn borg- aralegri stjórn landsins. Hafa sveitirnar stundað að taka óánægjumenn innan eigin raða af lífi eftir „byltingarréttarhöld". Árið 1986 fannst fjöldagröf með líkum tvö hundruð hundruð fylgis- manna andstöðuhóps innan hreyf- ingarinnar sem teknir höfðu verið af lífi. Cymru. Útkoma íhaldsflokksins í auka- kosningunum er sú slakasta í rúm tvö ár og þykir koma á óvart, eink- um þar sem sú ákvörðun bresku stjórnarinnar að afnema nefskatt- inn óvinsæla hafði fengið mikið rúm í fjölmiðlum að undanförnu. Samkvæmt könnun Gallup á fylgi bresku stjórnmálaflokka er birtist í _gær í Daily Telegraph nýtur íhaldsflokkurinn fylgis 39,5% kjósenda og hefur 5% meira Kvenprestar vígðir um alla Svíþjóð Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins. SÆNSKA ríkisstjórnin skipaði í gær Lars Eckerdahl, prófessor, sem biskup í Gautaborg. Þar með geta kvenprestar fengið vígslu í öllum sænskum biskups- dæmum. Forveri Eckerdahls í biskupsem- bættinu, Bertil Gartner, sem fer á ellilaun 1. ágúst nk., hafði öll þau tuttugu og eitt ár, sem hann gegndi embætti biskups á vesturströnd Svíþjóðar, neitað að vígja konur. Nýi biskupinn hefur fullyrt að hann hafi ekki neikvæða afstöðu gagnvart kvenprestum og einnig hefur hann lofað að hann muni ekki vígja karlpresta sem séu því andsnúnir að konur gerist prestar. Reuter Andreotti falin stjómarmyndun Francesco Cossiga, forseti ít- alíu, fól í gær Giulio Andreotti, sem nú er forsætisráðherra bráðabirgðaríkisstjórnar, myndun 50. ríkisstjórnar Italíu eftir síðari heimsstyijöld. Andreotti var í forsæti fyrir fimm flokka samsteypustjórn sem féll fyrir rúmri viku. Búist er við að hann hefji stjórnar- myndunarviðræður í næstu viku. Einkavæðingaráætl- un boðuð í Albaníu Tirana. Reuter. Kommúnistastjórnin í Albaníu hefur í hyggju að boða víðtæka einkavæðingaráætlun fyrir mánaðarlok. Einnig verður erlendum fyrirtækjum heimilað að stofna samstarfsfyrirtæki með albönsk- um. Kom þetta fram í dagblaðinu Zeri i Popullit í gær. Blaðið sagði að ríkisstjórn Alb- aníu hefði sett á stofn nefnd um endurskipulagningu efnahagslífs- ins sem myndi hafa umsjón með einkavæðingunni og öðrum þátt- um í viðreisn miðstýrða hagkerfis- ins í landinu. Hér er um að ræða fyrstu vísbendinguna um að hrint verði af stað umbótaáætlun þeirri í efnahagsmálum sem Ramiz Alia, forseti landsins, boðaði á síðasta ári. Genc Kondi, talsmaður ríkis- stjórnar Albaníu, sagði á frétta- mannafundi í gær að fyrirskipuð hefði verið opinber rannsókn á dauða fjögurra manna í borginni Shkoder á þriðjudag. Stjórnarand- stæðingar segja að lögregla hafi skotið mennina sem tóku þátt í mófmælum í kjölfar kosningasig- urs kommúnista í þingkosningun- um sl. sunnudag. ■ SOFÍU - Njósnanet Búlgara á Vesturlöndum hefur verið leyst upp til að gera lýðræðisumbætur í landinu trúverðugri, að sögn búlg- arsks embættismanns. Embættis- maðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ríkisstjórnin hefði fyrirskipað að öllum stjórn- mála-, efnahags- og vísindanjósnum yrði hætt. Heimildarmenn innan ut- anríkisráðuneytisins sögðu að allir hernaðarsérfræðingar hefðu verið kallaðir heim frá sendiráðum í öðrum löndum og virðist það benda til þess að hernaðarnjósnum verði einnig hætt. ■ BONN - Þýskir jafnaðarmenn (SPD) sögðu á miðvikudag að Evr- ópubandalagið (EB) gæti ekki mótað sameiginlega stefnu í varnarmálum fyrr en Bretar og Frakkar losuðu sig við kjarnorkuvopn sín. Tals- maður SPD, Heidemarie Wieczorek-Zeul, sem sæti á í fram- kvæmdaráði flokksins, sagði að flokkurinn styddi sameiginlega stjórnmála- og efnahagsstefnu EB sem á endanum hlyti að ná yfir her- styrk bandalagslandanna. Hann ætti eingöngu að hafa varnarhlutverki að gegna og ættu kjarnorkuvopn því að sjálfsögðu ekki heima innan bandalagsins. Wieczorek-Zeul lagði fram aðra tillögu sem líkleg er til að skaprauna Bretum og Frökkum en hún felst í því að föst sæti þess- ara þjóða í Oryggisráði Sameinuðu þjóðanna færist yfir til Evrópuband- alagsins þegar lönd bandalagsins hafa að fullu sameinað stjórnmála- stefnu sína. V PARÍS - Stjórnendur almenn- ingssamgangna í Parísarborg hafa ákveðið að afnema fyrsta farrými í neðanjarðarlestum borgarinnar. Talsmenn samgönguyfirvalda segja að ekki sé lengur hægt að réttlæta hærra farmiðaverð á fyrsta farrými þar sem enginn munur sé lengur á aðstöðu á fyrsta og öðru farrými. Áður voru sæti á fyrsta farrými bólstruð en óbólstruð viðarsæti á öðru farrými. Sýning í dag kl. 13-17 HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900 HondaAccord 1991 EX Margfaldur verðlaunabíll, fullbúinn öllum þægindum á ótrúlega hagstæðu verði Greiðsiuskilmálar við allra hæfi, t.d. 25% útborgun og mismunurinn lánaður í allt að 36 mánuði á bankakjörum. Við tökum góða, notaða bíla upp í nýja og lánum jafnvel mismuninn. Verð frá aðcins kr. 1.360.000,- stgr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.