Morgunblaðið - 06.04.1991, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ:iLAUGARDAQUR 6, APRÍL.1991
Bæjarráð:
Engar kosningaaug-
lýsingar á opin-
berum farartækjum
Sungið fyrir Áskel áttræðan
Áskell Jónsson tónskáld varð áttræður í gær og af
því tilefni komu félagar úr Kór Glerárkirkju að heim-
ili hans í býtið í gærmorgun og tóku lagið. Áskell
var organisti og kórstjóri við Lögmannshlíðarkirkju
og síðar Glerárkirkju eftir að hún var byggð í 42
ár. Hann hefur samið allmikið af sönglögum, en
árið 1987 gaf kórinn út bókina Við syngjum með
helstu lögum hans. Ágóði af sölu bókarinnar rennur
í Orgelsjóð Glerárkirkju, sem Áskell og kona hans
Sigurbjörg Hlöðversdóttir stofnuðu á 75 ára afmæli
Áskels. Þegar frágangi á kirkjuskipi Glerárkirkju
er lokið, sem áætlað er að verði haustið 1992, verð-
ur farið að leita tilboða í pípuorgel fyrir kirkjuna,
en nú á þessum tímamótum er stefnt að því að efla
sjóðinn verulega.
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi á þriðjudag bókun þar sem
fram kemur að pólitískar auglýsingar á strætisvögnum bæjarins verði
ekki leyfðar né heldur í húsakynnum þar sem auglýsingar hafa verið
seldar í fjáröflunarskyni, eins og til að mynda í íþróttahúsum. Þetta
var samþykkt í kjölfar þess að Framsóknarflokkurinn hugðist auglýsa
á vögnum Strætisvagna Akureyrar.
Sigríður Stefánsdóttir forseti bæj-
arstjórnar sagði að forstöðumaður
Strætisvagna Akureyrar hefði vakið
athygli bæjarráðsmanna á málinu
og það var síðan tekið fyrir í bæjar-
ráði.
Ákveðið var á síðasta ári að heim-
ila auglýsingar á strætisvögnum
bæjarins og kvaðst Sigríður nú er
þessi staða væri komin upp viður-
kenna að rangt hefði verið að setja
ekki þá þegar ákveðnar reglur varð-
andi þessar auglýsingar. „Sennilega
hefur ekki hvarflað að neinum,
hvorki framsóknarmönnum né öðr-
um, að þessi staða kæmi upp og ég
tók afstöðu til þessa máls án þess
að vita um hvaða stjórnmálaflokk
væri að ræða. Mér finnst einfaldlega
ekki við hæfi og í raun ekki hægt
að bjóða bæjarbúum upp á að opin-
ber farartæki beri auglýsingar ein-
stakra stjórnmálaflokka," sagði Sig-
ríður.
Sigurður P. Sigmundsson kosn-
ingastjóri Framsóknarflokksins á
Norðurlandi eystra sagði að mönn-
um fyndist sem komið væri aftan
að þeim í þessu máli þar sem engar
reglur hefðu bannað slíkar auglýs-
ingar á vögnunum þegar flokkurinn
Sameigin-
legir fram-
boðsfundir
ákvað að leigja á þeim pláss út apríl-
mánuð. „Það eru ekki fagleg sjónar-
mið sem ráðið hafa þessari niður-
stöðu bæjarráðs, ég er klár á því
að þetta er pólitísk niðurstaða,”
sagði Sigurður. Auglýsingar flokks-
ins voru tilbúnar og einungis átti
eftir að líma þær á vagnana er þær
voru stöðvaðar af forstöðumanni
SVA og sagði Sigurður að hann
hefði ekki getað vitnað í neinar regl-
ur, einungis sagt að þær myndu
skapa óróa. Sigurður sagði að Fram-
sóknarflokkurinn hefði lagt út í
nokkurn kostnað við gerð auglýs-
inganna svo næmi tugum þúsunda.
Hann sagði að ákvörðun hefði ekki
verið tekin um hvort bærinn yrði
krafinn um greiðslu kostnaðar vegna
þess á hvern hátt mál hefðu þróast.
Deildarfundur KEA í Grímsey:
Fiskverkun rekin með tapi
en hagnaður af versluninni
Grímsey.
HAGNÁÐUR varð af rekstri matvöruverslunar KEA í Grímsey á síð-
asta ári. Sljórn félagsins hefur heimilað lágmarksendurbætur á versl-
unarhúsnæðinu og vonast útibússtjórinn til að þeim verði lokið fyrir
1. júní. Á síðasta ári var 12.000 krónur varið til viðhalds á húsnæðinu.
Á deildarfundi í Grímseyjardeild KEA sem haldinn var fyrir skömmu
kom fram að fiskverkunin var rekin með tapi á síðasta ári.
úr því hann á annað borð er fluttur myndi það ekki lækka kostnaðinn
úr eynni. Forráðamenn KEA svör- þó hærra verð fengist fyrir fiskinn
uðu því til að stefnan væri að vinna á Dalvík.
fiskinn innan félagsins og eins - HSH
Þjóðarflokkur — Flokkur mannsins:
Framboðslisti lagður fram
SAMEIGINLEGIR fundir fram-
bjóðenda í Norðurlandskjördæmi
eystra verða haldnir fyrir kosn-
ingar á sex stöðum í kjördæminu.
Fyrsti fundurinn verður haldinn
í Tjarnarborg, Ólafsfirði, á mánu-
dagskvöld, 8. apríl kl. 20. Á þriðju-
dagskvöld kl. 20 verður fundur á
skemmtistaðnum 1929 á Akureyri
og á miðvikudag í Víkurröst, á
Dalvík á miðvikudagskvöld.
Á sunnudag, 14 apríl kl. 15 verð-
ur framboðsfundur í Þórsveri á
Þórshöfn og um kvöldið kl. 20 í
Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Síðasti
fundurinn verður á Hótel Húsavík,
mánudagskvöldið 15. apríl kl. 20.
Á deildarfundinum í Grímsey fór
Magnús Gauti Gautason kaupfé-
lagsstjóri yfir starfsemi félagsins
og útkomu síðasta árs. Hann sagði
afkomu matvörudeildar í eynni mun
betri en á árinu næst á undan, laun
og kostnaður hafi lækkað í hlut-
falli við veltu og fjármagnskostnað-
ur hafi Iækkað mikið, þannig að
hagnaður hefði orðið af rekstrinum.
Þakkaði hann fyrst og fremst
þjóðarsáttinni og háu fiskverði að
svo varð.
Velta verslunar og olíusölu varð
41 milljón króna á síðasta ári, en
fiskverkunin velti 85 milljónum,
sem er 3,39% aukning. Jóhann Þór
Halldórsson framkvæmdastjóri í
Hrísey gerði grein fyrir útkomunni
og sagði hann hafa búist við henni
jákvæðri, en hugsanlega væri erfitt
að reka fiskverkun hér í eynni.
Þorlákur Sigurðsson oddviti mót-
mælti því og tók dæmi af Sigur-
birni hf. sem gengið hefur vel. Sjó-
mönnum sem voru á fundinum þótti
að sumu leyti óeðlilega staðið að
útreikningum og nefndu m.a. að
línubátar fengju fría beitu sem fisk-
verkunin í Grímsey borgaði, en
frystihúsið í Hrísey nyti hráefnisins.
Fram kom fyrirspurn á fundinum
um hvort ekki mætti flytja fisk
Grímseyjarbáta á markað á Dalvík
FRAMBOÐSLISTI Þjóðarflokks-
ins og Flokks mannsins hefur
verið lagður fram.
Árni Steinar Jóhannsson um-
hverfisstjóri, Akureyri er í 1. sæti,
Anna Helgadóttir, kennari á Kópa-
skeri í 2. og Björgvin Leifsson líf-
fræðingur í 3. sæti. Ragnheiður
Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur,
Akureyri er í 4. sæti, Gunnlaugur
Sigvaldason bóndi Svarfaðardal í
5. og Karl Steingrímsson, sjómaður
Akureyri í 6. Anna Kristveig Arnar-
dóttir, rafeindavirki, Akureyri er í
7. sæti, Helga Björnsdóttir, hús-
móðir á Húsavík er í 8. og Sigur-
páll Jonsson, bóndi Halshreppi í 9.
sæti.
Kolbeinn Arason flugmaður, Dal-
vík er í 10. sæti, Guðný Björnsdótt-
ir, húsmóðir Akureyri í 11. Albert
Gunnlaugsson stýrimaður, Dalvík
er í 12. sæti, Snjólaug Ásta Sigurf-
innsdóttir, framleiðslustjóri í Olafs-
firði í 13. og Valdimar Pétursson
skrifstofumaður Akureyri í 14.
sæti.
♦ ♦ ♦
Grímseyingar vilja
Þrúðvang burtu
Grímsey.
HREPPSNEFND Grímseyjar hefur samþykkt að fara fram á það
við stjórn Kaupfélags Eyfirðinga að eitthvað verði gert við gam-
alt hús í eigu þess, Þrúðvang, er stendur niðri við bryggju. Þykir
lítill sómi að húsi þessu, en það er það fyrsta sem ferðamenn sjá
er þeir stíga frá borði ferjunnar.
Grímseyingar eru afar óánægðir
með þetta „andlit” eyjarinnar og
vilja að eitthvað verði gert fyrir
húsið, sem ekki hefur notið viðhalds
um langan tíma, eða það fjarlægt
að öðrúm kosti.
Þorlákur Sigurðsson oddviti í
Grímsey vakti máls á þessu á fundi
Grímseyjardeildar KEA sem hald-
inn var fyrir skömmu. Hann sagði
húsið afskaplega lélegt og til fjölda
ára hefði það ekki notið neins við-
halds. Það væri eigendum og staðn-
um til háborinnar skammar. Þorlák-
ur spurði hvort möguleiki væri á
að fjarlægja húsið eða gera við það
að öðrum kosti.
Forráðamenn KEA tóku því fá-
lega, sögðu fjármagn skorta til
framkvæmda. Þá væri húsið nauð-
synleg geymsla á meðan önnur
Morgunblaðið/Óli Bjarni
Grímseyingum þykir Iítill sómi að Þrúðvangi, sem fiskverkun KEA
í eynni nýtir sem geymslu og vilja það jafnað við jörðu eða að öðr-
um kosti lagfært.
væri ekki fyrir hendi. Einn fundar- heppilegur geymslustaður, þar sem
manna benti á að vart væri húsið það stæði hálffullt af sjó. - HSH
Deildarstjóri RUV:
Fimm sóttu
um stöðuna
FIMM umsóknir bárust um
stöðu deildarstjóra Ríkisút-
varpsins á Akureyri, en um-
sóknarfrestur rann út fyrir
skömmu.
Útvarpsráð mun fjalla um um-
sóknirnar á fundi sínum næsta
föstudag og vildi Dóra Ingvadóttir
starfsmannastjóri því ekki gefa
upp nöfn umsækjenda. Útvarps-
stjóri ræður í stöðuna, en útvarps-
ráð er umsagnaraðili.
Erna Indriðadóttir sem gegnt
hefur stöðunni síðustu fimm ár
lætur af störfum 1. júní næstkom-
andi.