Morgunblaðið - 06.04.1991, Qupperneq 34
st
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991
ATVINNII
Kælitækni
Vélvirki - nemi
Óskum eftir vélvirkja, sem er góður suðu-
maður, eða nema, sem vildi læra kælitækni.
Upplýsingar í síma 689077 eða 674814.
Hjúkrunarfræðingar
- sumarafleysingar
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur auglýsir eftir
hjúkrunarfræðingum í heimahjúkrun.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri eða
hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma 22400.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á af-
greiðslu Heilsuverndarstöðvarinnar, gengið
inn frá Barónsstíg.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur fyrir kl.
16.00 miðvikudaginn 18. apríl nk.
il
Frá
Fræðsluskrifstofu
Reykjavikurumdæmis
Nokkrar kennarastöður eru lausar við grunn-
skóla Reykjavíkur:
Meðal kennslugreina eru:
Tónmennt, heimilisfræði, myndmennt, eðl-
isfræði, byrjendakennsla og sérkennsla.
Ennfremur eru lausar stöður við sérskóla
ríkisins í Reykjavíkurumdæmi. Óskað er eftir
kennurum með sérkennslgréttindi (2ja ára
nám a.m.k.).
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
Baader-maður
Óskum nú þegar eftir vönum Baader-manni
á frystitogarann Ými frá Hafnarfirði.
Þarf að geta byrjað strax.
Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 53512 eftir
kl. 20.00.
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURLANDS'
Kennararóskast
Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi lýsir
eftir kennurum til starfa á komandi haustönn
í þessum greinum:
íslensku, dönsku (hlutastarf), þýsku, stærð-
fræði, efnafræði (hlutastarf), félagsfræði,
sálfræði, viðskiptagreinum (hlutastarf),
tréiðnagreinum (hlutastarf), sérkennslu.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari
(sími 98-22111).
Umsóknir berist honum fyrir 30. apríl nk.
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar óskast nú þegar og til
sumarafleysinga. Sjúkraliðar óskast nú þeg-
ar og til sumarafleysinga. Hjúkrunarnemar
óskast til sumarafleysinga. Starfsfólk óskast
til sumarafleysinga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjói í síma
688500.
Vélstjórar
1. vélstjóra vantar á Höfrung AK-91.
Upplýsingar í síma 93-11800.
Haraldur Böðvarsson & Co,
sími 93-11800.
Blómamiðstöðin hf.
óskar eftir starfsmanni vönum bókhaldi og
öðrum skrifstofustörfum.
Eiginhandarumsóknir óskast sendar Blóma-
miðstöðinni hf., Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.
Þjónar óskast
Veitingahúsið Naust óskar að ráða yfirþjón
og þjóna.
Upplýsingar á staðnum í dag milli kl. 16 og 18.
Naustið.
Fiskvinna
Vant fiskvinnslufólk óskast til starfa.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 98-11084.
Fiskiðjan hf.,
Vestmannaeyjum.
Atvinna óskast
28 ára gömul kona óskar eftir vinnu. Hef
góða reynslu af verslunarrekstri, forsölu-
mennsku og vörukynningaumsjón. Hlutastarf
eða tímabundið starf kemur til greina.
Upplýsingar í síma 71195.
TIL SÖLU
Til sölu
í samráði við veðhafa eru eftirtaldar eignir
Þrotabús Árvíkur hf., Borgarbraut 18, Grund-
arfirði til sölu:
Fasteignir: Iðnaðarhúsnæði 237 fm, á Borgar-
braut 16, Grundarfirði og skrifstofuhúsnæði,
60 fm, á Borgarbraut 18, Grundarfirði.
Lausafé: Plötusax Victor Berg, rafsuðuvélar,
skrúfstykki, smergel, affelgunarútbúnaður,
bútsög, logsuðutæki, bandsög, slípirokkar,
slöngupressa og skurðhnífur, snittvél, há-
þrýstidæla, dekkjavél, loftpressa, lagerar,
skrifborð, hillyr, peningakassi, ritvél, stimpil-
klukka o.fl. skrifstofuáhöld ásamt fleiri hlut-
um sem varða rekstur vélsmiðju.
Eignirnar verða til sýnis sunnudaginn 7. apríl
1991 frá kl. 14.00-16.00.
Tilboð sendist undirrituðum, sem veitir nán-
ari upplýsingar fyrir 30. þ.m.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Logi Egilsson, hdi, bústjóri,
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ,
sími 91-656688.
KVOTI
Kvótaskipti
Óskum eftir þorskkvóta í skiptum fyrir rækju-
og grálúðukvóta.
Upplýsingar í símum 94-2110 og 94-2128.
Útgerðarfélag Bílddælinga.
Kvóti
Viljum skipta á rækjukvóta í staðinn fyrir
þorsk, ýsu eða karfa.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlega leggi til-
boð inn til auglýsingadeildar Mbl. merkt:
Kvóti - 127“ fyrir 11. apríl.
KENNSLA
Enska - sumarnám
- England
Sumarnámskeið í Bournemouth fyrir alla,
sem eru 15 ára og eldri. Eitt slíkt námskeið
hefst 22. júní nk. Flugferðir, uppihald, kynnis-
ferðir, Jeiðsögn, bækur o.fl. innifalið í einu
verði. Áratugareynsla.
Allar upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson,
Kvisthaga 3, Reykjavík, sími 14029.
FUNDLR - MANNFAGNAÐUR
Aöalfundur
Aðalfundur Orlofsdvalar hf. verður haldinn í
Nesvík, Kjalarnesi, laugardaginn 20. apríl
1991 og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. samþykktum félags-
ins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar félagsins
til útgáfu jöfnunarhiutabréfa á árinu 1991.
Ársreikningar félagsins liggja frammi hjá
stjórninni frá og með 13. apríl.
Stjórnin.
Áframhald þjóðarsáttar
Guðmundur J. Guðmunds-
son, formaður Dagsbrúnar
mætir á léttspjallsfund í dag,
laugardag, kl. 10.30 árdegis,
í kosningamiðstöðina, Borg-
artúni 22.
Frambjóðendur B-listans í Reykjavík.
SPARISJODUR
VÉLSTJÓRA
Aðalfundur
Aðalfundur Sparisjóðs vélstjóra verður hald-
inn í dag, laugardag, kl. 14.30 á Hótel Sögu,
2. hæð.
Dagskrá samkvæmt grein 5.6 í samþykktum
sparisjóðsins.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
sparisjóðsaðilum, eða umboðsmönnum
þeirra á fundarstað.
Stjórnin.
Framhaldsaðalfundur
Gigtarfélags íslands
verður haldinn í Gigtlækningastöðinni,
Ármúla 5, laugardaginn 13. apríl kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Lagabreytingar.
2. Nafnbreyting á sjúkrasjóði gigtsjúkra.
Stjórnin.