Morgunblaðið - 06.04.1991, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. APRIL 1991
49
Jón B. Sturlaugs-
son - Minning
Fæddur 10. mars 1967
Dáinn 31. mars 1991
A legstein á leiði lítils drengs í
Fossvogskirkjugarði er þessi litla
vísa letruð:
Ég get verið þíðan þín,
þegar allt er frosið,
því sólin hún er systir mín,
sagði lit]a brosið.
(RG)
Eitt fallegt vorkvöld fyrir mörg-
um árum, voru tveir litlir drengir í
boltaleik á breiðum grasgeira við
eina af tvöföldu akbrautum borgar-
innar. Þeir voru miklir vinir, enda
systrasynir. Nú gerist það að bolt-
inn hoppar út á götuna og yngri
drengurinn, sem á þessa litlu ofan-
skráðu vísu, hleypur á eftir boltan-
um. Eldri drengurinn, sem þá hafði
verið astmasjúklingur í nokkur ár,
varð þarna vitni að hræðilegu slysi.
Guð einn veit hve djúpt sár hann
hlaut þetta fallega vorkvöld þegar
örlög vinar hans og frænda voru
ráðin, aðeins fáeina metra frá aug-
liti. hans.
Dóttursonur minn, Jón Berg-
mann Sturlaugsson, fæddist í
Reykjavík 10. mars 1967 ásamt
tvíburabróður sínum, Jakob Inga.
Þegar hann var fjögurra ára gam-
ull fékk hann astma og var alla tíð
mikill sjúklingur eftir það. Það þarf
mikla pössun og reglusemi í sam-
bandi við lyfin gegn þessum sjúk-
dómi. Oft dáðist ég að því hvað
móðir hans passaði þetta vel þegar
hann var lítill, og svo hann sjálfur
eftir að hann stækkaði og gat sjálf-
ur séð um þau mál. Stundum þegar
hann var lítill dvöldust þeir tvíbura-
bræður á okkar heimili smátíma af
og til. Þær eru margar ljúfar og
fallegar endurminningarnar sem við
arpma hans eigum frá þeim ttmum.
Stundum þegar við skruppum eitt-
hvað saman í bíltúr eða gönguferð,
minnti hann okkur alltaf á að hann
mætti ekki gleyma lyfinu sínu. Einu
sinni vann hann á unglingsárum
sínum í nágrenni við heimili okkar.
Hann kom þá oft í hádegismat til
okkar. Amma hans fór þá oft út í
eldhúsglugga til þess að gá, hvort
hún sæi ekki Jonna sinn koma. Jú,
þarna kom hann og hann brosti svo
fallega til hennar og þau vinkuðu
hvort öðru. Seinna stundaði hann
bæði verslunarstörf og afgreiðslu-
störf á bensínstöðvum. Hann þurfti
oft að leggja hart að sér, því úthald-
ið var ekki alltaf eins og hjá full-
frískum manni. Núna, nokkur und-
anfarin ár, hefur hann verið á tog-
ara með fósturföður sínum, Erni
Berg, skipstjóra, sem hefur reynst
þeim bræðrum svo vel. Til sjós var
hann miklu betri af astmanum og
stundum sagðist hann ekkert hafa
þurft að nota lyfin sín allan túrinn.
Hann var mikill vinur bræðradætra
sinna. Sérstaklega var Iðunn litla,
dóttir Björgvins bróður hans, kát,
þegar Jonni frændi kom í heim-
sókn. Litla Ragnhildur Tinna, dóttir
Jakobs Inga, er ennþá svo lítil en
samt ljómaði hún öll þegar hún sá
Jonna frænda sinn. '
Nú er hann farinn en við eigum
eftir fallegar minningar um við-
kvæman góðan dreng, sem fyrir
löngu síðan hélt að hann hefði átt
að getað hlaupið á eftir boltanum.
Elsku Ransý mín og Assi. Megi
algóður Guð vera með ykkur, son-
um ykkar og þeirra fjölskyldum,
og gefa ykkur styrk í sorg ykkar.
Ragnar S. Gröndal
hjúkrunarkonu frá Vestmannaeyj-
um. Hjónaband þeirra var fallegt
og einstakt. Þau eignuðust ekki
börn en við systkinin áttum þar
okkar annað heimili svo og okkar
börn. Maggi hafði sérstakt lag á
börnum og umgekkst þau sem jafn-
ingja. Hann benti. hæglætislega á
matardiskana þeirra og þau kláruðu
allan matinn sinn.
Síðustu árin var Maggi orðinn
lúinn. Hann fór þó daglega í „skúr-
ina“ sína eins og hann kallaði það,
dundaði sér við smíðar og dyttaði
að bátnum sínum. Hann fékk að
fara úr þessum heimi eins og hann
hefði helst kosið sjálfur. Hann sofn-
aði útaf í fanginu á Eyju sinni. Ég
veit að nú líður honum vel — hann
hefur lagt á djúpið í síðasta sinn.
Hljómsveit Félags Harmónikuunnenda eins og hún var skipuð árið
1984.
Magnús Elías-
son - Minning
Fæddur 12. júní 1908
Dáinn 26. marz 1991
Þegar ég sest niður til að skrifa
nokkur orð í minningu Magnúsar
or mér efst í huga þakklæti fyrir
öli árin sem ég átti hjá honum og
frænku minni á ísafirði.
Margs er að minnast: Lítil stelpa
stendur í fjörunni og horfír á Magga
°g bræður hans Sigga og Jóa setja
á flot, þeir eru að fara - í róður.
Mikið var búið að rella um að fá
að fara með. Maggi stendur við
stefnið á bátnum og ýtir. Allt í einu
snýr hann við, veður í land, tekur
þá litlu í bóndabeygju og veður aft-
ur um borð. Það var hreykin stelpa
sem stóð í stafni og veifaði í land,
— þetta var toppurinn á tilverunni.
Magnús Elíasson fæddist að Nesi
> Grunnuvík 12. júní 1908. Foreldr-
ar hans voru hjónin Engilráð Jóns-
dóttir og Elías Halldórsson, harð-
duglegt fólk og vinnusamt. Systkini
hans voru Guðrún, Jónína, Jóhann-
es, Sigurður, Elísa, Pálína og Stein-
þór, uppeldisbróðir þeirra. Bræð-
urnir eru nú allir farnir, en eftir
lifa tvær af systrunum, þær Elísa
sem býr á ísafirði og Pálína í Dan-
niörku.
Magnús var mikill hagleiksmaður
°g eftir hann liggja margir smíðis-
gripir. Þeir bræður smíðuðu trillu,
Eljuna frá Nesi, sem þeir áttu sam-
an og réru á meðan þeim entist líf
°g heilsa. Á sjónum leið Magga
vel, hann var fijáls — sinn eigin
herra og naut þess að koma að landi
með góðan afla. Það var alltaf jafn
spennandi að hlaupa niður á Norð-
urtanga á kvöldin til að sjá Eljuna
s>gla inn. Við Eyja kepptum um það
hvor okkar væri fyrst til að þekkja
bátinn, það gat stundum verið er-
fítt þegar margir bátar voru að sigla
inn í einu.
Far þu í frioi,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(y. Briem.) oddn
Margar ferðir voru farnar að
Nesi. Þar átti Maggi sínar rætur
og þangað var gott að koma í frið-
jnn og óspillta náttúru. Á heimleið-
inni var oft rennt fyrir fisk undir
Grænuhlíð, — þá var oft erfitt að
hætta og fara heim — spegilslétt
djúpið og fiskur á hveijum öngli.
Magnús giftist móðursystur
minni Bjorneýjn .Bjqrpsdóttur
■ FÉLAG harmónikuunnenda í
Reykjavík heldur sjötta skemmti-
fund vetrarins í Templarahöllinni
sunnudaginn 7. apríl nk. kl. 15.00.
Sérstakir gestir koma í heimsókn,
félagar úr Félagi harmónikuunn-
enda á Suðurnesjum og nemend-
ur úr Tónskóla Sigursveins/ Rús-
ínan í pylsuendanum verður heim-
sókn þýska harmónikuleikarans
Christiane Lder. Christiane Lder
er hér á landi á vegum Þjóðleikhúss-
ins til að leika í dansatriðum í Pétri
Gaut. Hún er tuttugu og fjögurra
ára gömul frá Hannover og hefur
stundað harmónikuleik frá átta ára
aldri. Eins og alltaf sjá harmóniku-
konur um veitingar. I lok fundarins
er dansað.
Ragnar Vilhjálmsson,
Keflavík - Minning
Fæddur 26. júlí 1911
Dáinn 29. marz 1991
í dag verður til moldar borinn
frá Keflavíkurkirkju Ragnar Vil-
hjálmsson (Russel E. Woods), hann
var fæddur í Minnesota í Bandaríkj-
unum. Foreldrar hans voru Willam
E. Woods og Carrie M. Woods,
hann átti einn bróður og sex systur
og eru fjögur þeirra á lífi og búsett
í Bandaríkjunum. Árið 1948 kom
Ragnar til íslands á vegum Hamil-
ton-byggingaverktaka og vann við
ýmis verkefni á Keflavíkurflugvelli.
Fljótlega kynntist hann eiginkonu
sinni Sesselju Þórðardóttur og
gengu þau í hjónaband 1950. Árið
1951 fluttu þau til Bandaríkjanna
og bjuggu þar í tvö ár, að þeim tíma
loknum fluttust þau alfarið til ís-
lands og settust að í Keflavík. Þau
eignuðust þijú börn, Rúnar, Vil-
hjálm og Þórunni Woods og eru
barnabörnin átta og barnabarna-
börnin tvö. Jack eins og hann var
venjulega kallaður var góður heim-
ilisfaðir.
Árið 1968 gerðist hann íslenskur
ríkisborgari og tók upp nafnið
Ragnar. Ég sem þessar línur rita
átti Ragnari svo ótalmargt gott að
gjalda. Sesselja kona hans og Sig-
rún móðir mín eru systur. Það kom
því að sjálfu sér að kynnin urðu
náin og það sem meira var ákaflega
góð og einlæg. Börn þeirra hjóna
urðu mér sem systkin enda var ég
þar mörg sumur í barnæsku og
naut ástúðar og umhyggju hjón-
anna sem væri ég eitt af þeirra
börnum. Þegar ég var í barnaskóla
lærði ég þessa gullvægu setningu
meistarans: „Allt sem þér viljið að
aðrir menn gjöri yður skuluð þér
og þeim gjöra.“ Oft hefur mér
reynst erfitt að breyta eftir þessu
og hygg ég að svo sé um flesta.
Vinur minn Ragnar Vilhjálmsson,
sem ég leit oft á sem minn annan
föður, hefur í mínum huga kómist
einna næst því að lifa og breyta
eftir þessum orðum Jesú. Þess er
gott að minnast á þessum tímamót-
um þegar vegir skiljast um sinn.
Ég flyt aðstandendum hugheilar
samúðarkveðjur frá foreldrum mín-
um, mér sjálfum og fjölskyldu
minni. Ég færi Ragnari hugheilai'
þakkir fyrir allt hið góða er hann
gaf mér og bið algóðan Guð að láta
hann njóta þess er hann er að ganga
inn í dýrð hans. Ég bið hann farar-
heilla með þessari bæn sálma-
skáldsins frá Stóra-Núpi.
Stýr mínu fari heilu heim
í höfn á friðarlandi,
þar mig í þinni gæslu geym,
ó, Guð minn allsvaldandi.
(V. Briem.)
Ásmundur S. Jónsson
Stúdentaleikhúsið frum-
sýnir þrjá einþáttunga
ÞRÍR einþáttungar eftir jafn marga unga höfunda verða frumsýn-
' ir í Tjarnarbæ í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.00. Sýningin hefur
hlotið nafnið Menn, menn, menn ojg þættirnir eru Á meðan við
snertumst eftir Melkorku Teklu Olafsdóttur, Hungurdansarinn
eftir Sindra Freysson og Ein, tvær, þrjár, jafnvel fjórar eftir
Bergyótu Arnalds.
Sýning þessi er fyrsta verkefni
hins endurreista Stúdentaleikhúss,
en það starfaði helming síðasta
áratugar. Það lá í dvala fram að
síðastliðnu hausti, þegar hópur var
kallaður til leiks og námskeið hald-
ið.
Við uppsetningu Manna,
manna, manna var leitað eftir
samstarfi við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands og er búninga-
og leikmyndahönnun í höndum
nemenda við skólann. Tónlist
samdi Eyþór Arnalds og Jóhann
Pálmason og Egill Örn Árnason
sáu um hönnun lýsingar. Leik-
stjóri er Ásgeir Sigurvaldsson.
Einþáttungarnir þrír eru frum-
raun höfundanna, sem hafa áður
samið ljóð og smásögur. Sýninga-
íjöldi verður takmarkaður og sýnt
verður í Tjarnarbæ.
t xÁstkær móðir okkar, KARÓLÍNA SVEINSDÓTTIR, Dyngjuvegi 10, andaðist í Landspítalanum 4. apríl. Börnin.
t Ástkær eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi, ÓSKAR MAGNÚSSON, Skipholti 55, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum fimmtudaginn 4. apríl. Arndís Sigriður Halldórsdóttir, Guðmunda Óskarsdóttir, Smári Sveinsson, Guðmundur R. Óskarsson, Ragnheiður Sigurðardóttir, Kristján Óskarsson, Sigríður Á. Ingólfsdóttir, Guðlaug Pétursdóttir, Jón Pétursson, Magdalena Kristinsdóttir, Sigrnar Pétursson, Þrúður Kristjánsdóttir, Sigurbjörg Eiríksdóttir, Svavar Sigurjónsson og barnabörn.
——ragnr TiTTfrff Tt ■wn m mars- tsm VÆtmarmmmimxamlS