Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 4
s
4
f,C€f ÍAM .r flUPAQUXIVCHM 'qigAJaVlUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR I MAÍ 1991
Gnndavík:
Fegurðardísir baða
sig í Bláa lóninu
ÞAÐ ER að verða árviss viðburð-
ur þegar nálgast val á fegurstu
stúlkunni á íslandi að keppendur
koma og lýóta þess að fara í
Evrópusöngva-
keppnin:
Nínu er spáð
slöku gengi
STÆRSTI veðbanki Breta, Lad-
broke, spáir ísienska laginu
Nínu, eftir Eyjólf Kristjánsson,
slöku gengi í Evrópusöngva-
keppninni á Italíu um næstu
helgi.
Flestir veðja á breska lagið en
næst í röðinni er framlag Þjóðveija
og þá Sviss. Níu sætum neðar er
íslenska lagið í hópi með Finnlandi,
Austurríki, Spáni og Grikkiandi.
Bláa lónið og slappa af rétt áður
en úrslitakeppnin fer fram.
Hermann Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri baðhússins við Bláa
lónið sá um að skipuleggja heim-
sókn fegurðardísanna í lónið að
þessu sinni. Auk þess styrkir Bláa
lónið keppnina með því að gefa sig-
urvegaranum armband og hálsmen
að launum. Þá fengu þær stúlkur
sem mættu í lónið frímiða á stórtón-
leika sem verða haldnir í Kaplakrika
16. júní næstkomandi.
„Við teljum fegurðarsamkeppn-
ina mikla landkynningu og teljum
okkur hag í því að styrkja hana,“
sagði Hermann við Morgunblaðið.
Eftir að hafa svamlað um í Bláa
lóninu var stúlkunum boðið í mat
á veitingastaðnum við Bláa lónið í
boði Víkurlóns hf. Þar dvöldu þær
í góðu yfírlæti fram eftir degi og
héldu síðan heim á leið og bíða eft-
ir stóra deginum sem verður næst-
komandi föstudag á Hótel íslandi.
Hluti fegurðardísanna í Bláa lóninu. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
VEÐURHORFUR í DAG, 1. MAÍ
YFIRLIT: Skammt suður af landinu er 1.034 mb hæð en um 1.200
km suður af Hvarfi er 1.000 mb lægð á hreyfingu norður.
SPÁ: Hæg vestlæg átt. Hiti 3-8 stig. Víðast þurrt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg vestan og suðvestan átt,
skýjað og dálítil súld um vestanvert landið en þurrt og víða léttskýj-
að á norð austurlandi og Austurlandi. Hiti 3-8 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAQ: Norðan og norðvestan átt og kólnandi
veður. Súld eða slydda um norðanvert landið en annars þurrt.
Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnír: 990600.
TAKN:
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
10 Hitastig:
stefnu og fjaðrirnar • Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V
er 2 vindstig. * V Él
Léttskýjað / / / / / / / Rigning zz Þoka
/ / r •— Þokumóða
Hálfskýjað * / # ? 5 ? Súld
Skýjað / * / * Slydda oo Mistur
/ * / * * * 4 Skafrenningur
Alskýjað * # * * Snjókoma R Þrumuveður
# # # 1 \
--—----
VBÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að fsl. tíma
Akureyri Reykjavik hlti 8 4 veður léttskýjað skýjað
Bergen 11 léttskýjað
Helsinkl 13 skýjað
Kaupmannahöfn 4 rigning
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk *í*3 hálfskýjað
Ósló 8 rigning
Stokkhólmur 7 þokumóða
Þórshöfn 10 léttskýjað
Algarve 23 iéttskýjað
Amsterdam 11 mistur
Barcelona 16 mistur
Berlin 7 rigning
Chlcago 10 skýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 8 rigning
Qiasgow 9 6kýjað
Hamborg 8 skýjað
LasPaimas vanlar
London 7 rigning
Los Angeles 14 þokumóða
Lúxemborg 10 rigning
Medrfd 24 hálfskýjaS
Malaga 21 iéttskýjað
Mallorca 18 skýjað
Montreal 11 skiir
NewYork 11 þokumóða
Orlando 24 skýjað
Par(s 18 skýjað
Rðm vantar
Vín 15 skilr
Washbtgton 17 þoka
Winnipeg 0 Iskorn
Flugmannadeilan:
Flugmenn fá 2% álag
fyrir aukna vinnu
SAMNINGAR tókust í flug-
mannadeilunni í gærmorgun eft-
ir tuttugu klukkustunda fund
deiluaðila með sáttasemjara.
Flugmenn fá 2% sérstakar álags-
greiðslur fram yfir þjóðarsátt,
en flestum breytingum varðandi
vinnutíma flugmanna var frestað
þar til í haust, en samningurinn
gildir til 1. október.
Geir Garðarsson, formaður Fé-
lags íslenskra atvinnuflugmanna,
sagðist ekki vilja tjá sig um smáat-
riði samningsins fyrr en hann hefði
verið lagður fyrir félagsfund.
Hann sagði þó að flugmenn hefðu
fallið frá flestum kröfum um breytt-
an vinnutíma, sem mest vinna hefði
farið í að undanfömu. „Við ætlum
að skoða þá hluti betur fyrir haust-
ið,“ sagði Geir.
„Við leysum ákveðin vandamál í
leigufluginu í sumar. Það hafa ver-
ið þrír í stjómklefa á ákveðnum
flugleiðum en verða tveir. Fyrir
þetta, og að fljúga tii Spánar og
aftur til baka, fáum við 2% álag
fram yfir þjóðarsátt," sagði Geir.
Fálkinn virðist
ætla að verpa seint
Fylgst með mannaferðum af ótta við eggjaþjófa
FÁLKINN virðist ætlað að seinka
því að verpa ef marka má hegðan
hans norður í Þingeyjarsýslu.
Lögreglan er við öllu búin og
hefur góðar gætur á mannaferð-
um kringum varp fuglsins af ótta
við eggjaþjófa.
Að sögn Þrastar Brynjólfssonar,
yfírlögregluþjóns á Húsavík, ætti
varp fálkans að vera í hámarki
núna en svo virðist sem því ætli
að seinka eitthvað. Þröstur sagði
menn þar nyðra telja skýringuna
þá að búið væri að drepa alla íjúpu,
en það er ein aðalfæða fálkans, og
því hefði hann lítið æti.
Þröstur sagði að lögreglan fylgd-
ist með mannaferðum við þá staði
sem vitað væri að fálkinn gerði sér
hreiður. „Við höfum vakandi auga
með þessu eins og venjulega en það
var óvenju rólegt um þessi mál í
fyrra. Þá fylgdumst við með tveim-
ur eða þremur mönnum en það kom
ekkert út úr því,“ sagði Þröstur.
Hann sagði að fálkinn hefði hing-
að til verpt um alla Þingeyjarsýslu,
en mest væri fuglalífið þó við Mý-
vatn. Um miðjan maí hæfist
varptími anda við Mývatn og það
þyrfti einnig að fylgjast með því
þar sem eggjaþjófar hefðu reynt
að koma slíkum eggjum úr landi,
ekki síður en fálkaeggjum.
Hjá útlendingaeftirlitinu fengust
þær upplýsingar að eftirlit væri
haft með fólki sem kæmi til lands-
ins. Margir þeirra sem leggðu það
í vana sinn að stela eggjum væru
þekktir víða um heim, en þó væri
það með þessa iðju, eins og svo
marga aðra, að alltaf kæmu fram
einhver ný andlit.
Landssöfn-
un til kaupa
á heilasírita
LANDSSAMTÖK áhugafólks
um flogaveiki, Rás 2 og Kiw-
anisklúbburinn Viðey efna til
landssöfnunar á Rás 2 föstu-
daginn 3. maí til kaupa á
heilasírita. Söfnunin stendur
yfir frá kl. 9 til 19.
Heilasíriti byggir á því að
skrá krampa á heilarit og
myndband samtímis. Þessari
rannsókn er einkum beitt við
erfíðari tegundir flogaveiki og
gerir meðferð markvissari.
Heilasíritun er einnig ein af
forsendum þess að hægt sé að
beita skurðaðgerðum við lækn-
ingu flogaveiki.
Heilasíritun hefur rutt sér til
rúms á Vesturlöndum á síðasta
áratug, en tækjabúnaður af
þessari gerð er ekki til hér á
landi enn sem komið er.
(Fréttatilkynning)