Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 14
MORGÍJNB WVÐIÐ / HIÐJ'IKUlIAqiiR/, Jj ■ M4Í )/l 99 1 14 Hvað borða Islendingar Niðurstöður könnunar á mataræði Islendinga eftir Laufeyju Steingrímsdóttur Nýlega Jauk mikilli könnun á mataræði íslendinga á vegum heil- brigðisráðuneytisins og Manneldis- ráðs. Niðurstöður könnunarinnar sýna matarvenjur nútíma íslend- inga í allri sinni margbreytni, allt eftir aldri, búsetu og aðstæðum fólks, auk þess sem þær varpa ljósi á helstu kosti og annmarka íslensks mataræðis. Tilgangurinn með öflun slíkra upplýsinga er ekki síst sá að geta veitt betri og markvissari fræðslu um mataræði og hollustu, en vænt- anlega munu niðurstöðurnar koma víðar að gagni, bæði við stjórnun heilbrigðismála og rannsóknir á heilsufari í landinu. Þegar litið er á niðurstöður könn- unarinnar blasir sú gamalkunna staðreynd við að fæði íslendinga er að jafnaði of feitt en yfirleitt nokkuð nærringarríkt. Fituríkt fæði er engin nýlunda á íslandi, sjálfsagt hefur fæði okkar alla tíð verið held- ur feitara en gengur og gerist með- al flestra annarra þjóða. Þeir sem eru komnir yfir miðjan aldur þekkja vel hversu gaumgæfilega hver ein- asta hvít arða var nýtt til matar fyrir fáum áratugum og hvílík sóun þá hefði þótt að skera burtu hveija ljósleita tæju af kjöti eins og nú er gert. Fitan var verðmæti, hún var mikilvægur orkugjafi þjóðar sem bjó við kröpp kjör í harðbýlu landi. í ljósi þessarar fortíðar kemur ef til vill nokkuð á óvart, að fæði Islendinga er greinilega feitara nú en á árunum fyrir stríð. Heimildir um fæði Islendinga frá þessum tíma eru óvenju traustar því árið 1939 var gerð ítarleg og vönduð könnun á mataræði íslendinga þar sem öll fæða til heimilisins var tíunduð, þar með talin hver fítuögn. Það var prófessor Júlíus Siguijónsson sem stjórnaði þeirri könnun en Manneld- „Sú hversdagslega at- höfn að smyrja brauðið sitt virðist afdrifaríkust hvað þetta varðar. Þeir sem smyrja þykku lagi af smjöri eða smjörlíki á brauð o g kex borða feitasta fæðið og fá hvorki meira né minna en 48% orkunnar úr fitu að jafnaði." isráð íslands var einmitt stofnað í tengslum við þessar framkvæmdir. Þegar niðurstöður þessara tveggja kannana eru bornar saman kemur að sjálfsögðu í ljós, að fæði íslendinga hefur um margt gjör- breyst, nánast umturnast á hálfri öld. Neysla grænmetis og ávaxta hefur margfaldast og sömu sögu er að segja um ótal fæðutegundir, svo sem kökur, kex, sælgæti og sæta drykki. Hins vegar er mun minna borðað af kjötfítu en áður, meira að segja svo að fíta úr kjöti vegur tiltölulega lítið í heildarneyslu mörlandans. Samt sem áður er fítu- neyslan í heild meiri nú en árið 1939 og eins og sjá má hefur aukn- ingin orðið mest í sveitum og þétt- býli við sjávarsíðuna en minni á höfuðborgarsvæðinu og öðrum verslunarstöðum. Eru þetta ekki einfaldlega mistök í útreikningum kann einhver að spyija. Hvaðan kemur eiginlega þessi fíta sem á að hafa bæst við matinn? Niðurstöður nýju könnun- arinnar veita einmitt svör við þess- um spumingum. Þar kemur glöggt í ljós að nánast helmingur þeirrar fítu sem nútíma íslendingar borða kemur úr smjöri, smjörlíki og olíum, það er að segja alls konar feiti sem notuð er við matargerð og sælgæt- isgerð, í bakstur, sósur, á brauð, Laufey Steingrímsdóttir kex og með mat. Fita úr ostum og mjólkurvömm er einnig töluverð og meiri en fyrir stríð en kjötfitan ein hefur minnkað. Það vekur athygli, að fáein sára- einföld atriði ráða að miklu leyti fituneyslu íslendinga samkvæmt könnuninni. Sú hversdagslega at- höfn að smyija brauðið sitt virðist afdrifaríkust hvað þetta varðar. Þeir sem smyija þykku lagi af smjöri eða smjörlíki á brauð og kéx borða feitasta fæðið og fá hvorki meira né minna en 48% orkunnar úr fítu að jafnaði. Hinir sem smyija þunnt fá aðeins 35% orku úr fítu að jafnaði. Smurningin vegur þetta þungt, einfaldlega vegna þess að flestir borða brauð og kex ekki aðeins daglega heldur oft á dag. Þegar allt kemur til alls er það grár hversdagsleikinn sem skiptir mestu máli fyrir hollustuna, jafnvel meira máli en fituríkar krásir, sem eru tiltölulega sjaldan á borðum. Á sama hátt hafa feiti og sósur Hlutföll orkuefna íslenskt fæöi Manneldismarkmiö Fituhlutfall fyrr og nú Kannanir árin 1939, 1979 og 1990 með hversdagsmat meiri áhrif á daglega fituneyslu en sælkerasósur á stórhátíðum. Sérstaklega er áber- andi að margir virðast nota feiti eða kokteilsósu í þvílíku magni með algengum hversdagsmat, að annars hollur matur nánast drukknar í fitu. Könnun heilbrigðisráðuneytisins sýnir glögt að íslenskt mataræði býr yfír mörgum góðum kostum. Fæði flestra landsmanna er bæti- efnaríkt og með afbrigðum prótein- ríkt enda borða íslendinga meiri fisk en nokkur önnur Evrópuþjóð nema ef vera skyldi Færeyingar. Einnig kemur skýrt í ljós, að þótt fitan sé mikil að öllum jafnaði borða margir landsmenn tiltölulega fitulít- ið fæði. Það vekur sérstaka athygli að fólk sem stundar einhveija líkams- rækt borðar heilsusamlegri og fitu- minni fæðu en aðrir, en á hinn bóg- inn borða reykingamenn á miðjum aldri feitasta matinn. Hollt matar- æði er þannig hluti af heilbrigðum lífsstíl, lífsmáta sem viö öll ættum að geta tileinkað okkur að ein- hveiju leyti, ekki aðeins til að forð- ast sjúkdóma, heldur fremur til að hafa þrek og heilsu til að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða. Höfundur er næringarfræðingur. MEÐAL ANNARRA ORÐA Þjóð án málsvara eftir Njörð P. Njarðvík í franska blaðinu Le Monde birt- ist í liðnum mánuði eins konar skopteikning af tveimur mönnum í þyrlum yfir írak. Ég segi eins konar, því að skopið frýs í huganum við nánari umhugsun, eins og stundum gerist í góðum teikning- um af þessu tagi. Fyrri þyrlunni flýgur Saddam Hussein illilegur á svip með geltandi vélbyssur og kastar sprengjum yfír Kúrda. Á eftir flýgur Bush Bandaríkjaforseti brosandi og varpar matvælum í fallhlífum yfír þetta sama fólk. David Hearst, blaðamaður við breska blaðið Guardian, var við- staddur svipaðan atburð og myndin lýsir. Matvælum var að vísu ekki varpað úr þyrlum, því miður, held- ur Hercules-flutningavélum. Fall- hlífamar drógu lítið úr fallhraða 50 kílóa kassa sem skullu á tjald- búðum Kúrda utan í fjallshlíð. Þennan morgun krömdust tveir drengir til dauða undir kössunum og síðar um daginn sex manns til viðbótar, þrír fullorðnir karlmenn og þijár konur, þar af ein bamshaf- andi. Hjá blaðamanninum stóð tyrkneskur liðsforingi og sagði án þess að bregða svip: „Þið vestur- landamenn emð svo rómantískir. Fyrst átti að bjarga hvölum, svo skjaldbökum og nú á að bjarga Kúrdum.“ ... heldur deyja þegjandi Kúrdar eru ámóta fjölmenn þjóð og allir Norðurlandabúar. Land þeirra er talið eign íraka, írana, Tyrkja, en einnig Sovétmanna og Sýrlendinga að litlum hluta, rétt eins og land Sama er talið eign Norðmanna, Svfa, Finna og Sovét- manna. Kúrdar hafa ekki gefið land sitt fremur en Samar. Því hefur verið ráðstafað samkvæmt reglu- stiku og hagsmunum stórvelda. Kúrdar hafa ekki verið spurðir. Þeir hafa ekki verið taldir eigendur eins eða neins. „Sáttmáli" allsheij- arþings Sameinuðu þjóðanna um sjálfsákvörðunarrétt þjóða frá 1976 virðist ekki eiga við um þá. Örsmá ríki á borð við Kitts og Nevis með rétt um 50 þúsund íbúa hafa fengið aðild að Sameinuðu þjóðunum. Ekki Kúrdar. Gagnstætt hvölum eiga þeir sér nefnilega eng- an málsvara. Franskur prófessor að nafni Pierre Lellouche spyr að því í grein í Newsweek 22. apríl hvernig standi á því að allir séu sammála um að þijár milljónir Palestínu- manna eigi rétt á ríki en ekki 25 milljónir Kúrda: „Er það vegna þess að Kúrdar sprengja ekki flug- vélar né ástunda önnur hryðjuverk, heldur deyja þegjandi? Er það vegna þess að enginn vill sjá Kúrd- istan, og allra síst Tyrkland og ír- an?“ Annar Frakki, blaðamaðurinn André Fontaine, skrifar af tals- verðri kaldhæðni um málefni Kúrda í Le Monde 6. apríl. Hann segir þar að öfugt við álit manna sé George Bush ekki tilfínningalaus maður. Hann hafi meira að segja gert hlé á golfleik til að lýsa yfir að hann hafi áhyggjur af þjáning- um fólks í írak. Hann hafí verið fús að leyfa fjölþjóðahernum að slátra þegnum Saddams Husseins tugþúsundum saman til þess að koma emírnum í Kúveit aftur á valdastól, manni sem síðan hafi heldur betur sýnt lýðræðisást sína og stjómsemi. Hann hafi sömuleið- is verið fús þann 15. febrúar að hvetja íbúa íraks til þess opinber- lega, bæði hermenn og óbreytta borgara, að rísa upp og velta ein- ræðisherra sínum úr sessi. Talið hefði verið að hann myndi skipa svo fyrir að bandarískar herflugvél- ar kæmu í veg fyrir að Saddam Hussein beitti herþyrlum gegn upp- reisnarmönnum. Þær hefðu hins vegar haft frítt spil að stráfella fyrst Shi’ita í suðri og síðan Kúrda í norðri. Fontaine heldur því fram með tilvitnun í International Herald Tribune, að stefna bandaríkja- stjómar hafi verið sú að vonast eftir nýrri stjórn Súnníta í Bagdad í kjölfar átaka hersins við uppreisn- armenn ,— enda myndu þau átök veikja Saddam Hussein, hreyfíngu Shi’ita (hliðholla íran) og Kúrda. ... og heimurinn horfir á Kúrdar eru indó-evrópsk þjóð sem sögð er hafa lifað á sama land- svæði í þúsundir ára og tala tungu af grein vestur-íranskra mála. Þeir eru m.ö.o. ekki arabar, en snerust til Islam á 7. öld. Þegar Ottoman- veldið var leyst upp eftir lok heims- styijaldarinnar fyrri, var gert ráð fyrir sjálfstæðu Kúrdistan í sátt- mála kenndum við Sevres (1920). En sá sáttmáli komst aldrei í fram- kvæmd. Kemal Ataturk náði völd- um í Tyrklandi og tókst að fá Kúrda í lið með sér gegn Grikkjum. Svo var gerður nýr sáttmáli í Lausanne 1923 milli Tyrkja og vesturvelda, og þá voru staðfest þau ríki araba sem tilgreind vom í fyrri sáttmála, en hvergi minnst á sjálfstæði Kúrd- istans. Hins vegar var hluti þess svæðis (Mosul) afhentur írak. Nú snerist Ataturk umsvifalaust gegn Kúrdum, en viðurkenndi ekki einu sinni tilvist þeirra sem þjóðar, held- ur kallaði þá „Fjalla-Tyrki“, slátr- aði menntamönnum þeirra og bannaði öll þjóðareinkenni, tungu og klæðaburð. Síðan hafa Kúrdar gert ýmsar uppreisnartilraunir, en þær hafa verið bældar niður, og þeir hafa sætt stöðugri kúgun (að vísu mismikilli eftir aðstæðum og ríkjum). Er mörgum enn í fersku minni er Saddam Hussein réðst á bæinn Halabja skammt frá landa- mærum írans 17. mars 1988, þeg- ar 5.000 manns, aðallega óbreyttir borgarar, létust af völdum eitur- gass. Aðeins eitt dæmi af ótal mörgum. Og nú héldu Kúrdar að þeirra tími væri loks kominn. Nú var tal- að um „nýja skipan heimsmála". Einn helsti kúgari þeirra hafði beð- ið afhroð í styijöld, og þeir voru hvattir til uppreisnar. Þeir heyrðu samviskuraddir heimsins krefjast skilnings á sjálfsákvörðunarrétti Palestínumanna og Eystrasaltsríkj- anna. Og þeir risu upp. Síðan hefur heimurinn horft á þá flýja og deyja, karlmenn, konur og börn. Og nú er talað um að skapa þeim „vemd- arsvæði" á eigin landi. Eins og gert var við indjána. Svona eins konar mannlegan dýragarð, sem allir vita að táknar endalok þjóða. Og heimurinn horfir á í sjónvarpinu sínu. Með samvisku sem nær til hvals og skjaldböku. En ekki til Kúrda. Höfundur er rithöfundur og dóscnt í íslenskum bókmenntum við Háskóla íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.