Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 13
m. „Lena Rós“. Dansstúdíó Sóleyjar. Frá „Free-style“ um jass til foxtrott Dans Ólafur Ólafsson Menntamálaráðuneytið og Reykjavíkurborg stóðu fyrir Listahátíð æskunnar dagana 20.-28. apríl. Þetta var gert til að vekja athygli á listsköpun barna og unglinga, hvetja þau til dáða og gefa þeim markmið til að vinna að. Þetta er lofsvert framtak og verður vonandi ekki í eina skiptið, sem slík listahátíð verður haldin. Á listahátíðinni hefur verið komið víða við og í tveimur greinum mun sá sem þetta ritar fjalla um helstu atrið- in, þar sem ballett og dans hvers konar var á dagskrá. Hér er fjall- að um free-style“-dans, jassballett og samkvæmisdans. í annarri grein verður svo vikið að ballett. Börn og unglingar, sérstaklega í kröfuhörðu listnámi, þurfa að fá að reyna sig við sömu aðstæður og fullorðnir. Atriðin fóru fram á ýmsum stöðum, m.a. í Borgarleik- húsinu, Listasafni íslands, Gerðu- bergi, Hótel Borg, Hótel íslandi og víðar. Skipulag hátíðarinnar virðist á prenti vera ljómandi, en á sumum stöðunum var fram- kvæmdinni mjög áfátt af hendi skipuleggjenda og enginn fulltrúi listahátíðarinnar sjáanlegur. í því sambandi vil ég sérstaklega nefna Hótel Borg, þar sem níu sinnum var boðið upp á dagskráratriði og a.m.k. í sjö skipti var boðið upp á ónothæft hljómburðarkerfi, enga eða lélega lýsingu og hálf- tíma seinkun. Enginn „fullorðinn" listamaður hefði látið bjóða sér slíkt, en það virtist vera æskunni boðlegt. Skipulag í Borgarleikhúsi var aftur á móti gott og til fyrir- myndar á Listasafni íslands. Hér er ekki ætlunin að tíunda hvert atriði fyrir sig, heldur skal reynt að draga upp einhveija heildarmynd af því, sem fram fór. „Free-style“-dans er líklega nýj- asta brumið í dansi, sem eitthvað virðist ætla að dafna. Alla vega var dans Unnar Pálmarsdóttur á Hótel Borg góður og eins funk jass-atriði frá Hafdísi í World Class í Borgarleikhúsinu hressi- legt, einkum sólódans Guðfinnu Björnsdóttur. Hvort þessi dans- grein þróast og dafnar (eða hverf- ur eins og break-dansinn og fjöl- margir tískudansar) verður tíminn að leiða í ljós. Jassballettskóli Báru hafði látið útsetja Maístjörnu Jóns Ásgeirs- sonar, svo úr varð stuttur jassbal- lett. Hann var svo fluttur í Borg- „Mary Poppins". Dansstúdíó Sóleyjar. arleikhúsinu við góðar undirtektir. Kóreógrafían var að vísu ekki eins rismikil og fjölbreytt og tilefni hefði verið til, en óþreytandi virð- ist Bára Magnúsdóttir við að setja á svið frásagnarballetta. Kannski fylgir meira í kjölfarið seinna, hver veit, því viðleitnin er lofs- verð. Þetta framlag Jassballett- skóla Báru var mun athyglisverð- ara en það sem sýnt var á Hótel Borg, en þar stendur lítið eftir nema ungur senuþjófur í „Hanky- Panky“-atriðinu. Ónnur jassbal- lettsýning vakti einnig mikla at- hygli, en það var nemendasýning Dansstúdíós Sóleyjar. Á fjöl- mennri nemendasýningu eru at- riðin misjöfn að gæðum, en þau bestu voru oft mjög góð. Þar er vert að geta dansa úr söngleikn- um um Mary Poppins. Þar komu við sögu börn, fullorðnir og ýmis furðudýr og framvinda sögunnar komst vel til skila. Bryndís Einars- dóttir, Jón Egill Bragason og Sól- ey Jóhannsdóttir sömdu dansana. Þau Bryndís og Jón Egill dönsuðu svo ásamt fjölda barna. Þó oft hafi látbragðið ráðið mestu er ég ekki í nokkrum vafa um að sam- tenging á dansi, látbragði og tón- list hefur mikið uppeldislegt gildi fyrir ungmennin. Gott uppátæki. Frá sýningu Dansstúdíós Sóleyjar er einnig vert að nefna atriðið „Lena Rós og Company". Þar var tekið á ýmsum dægurmálum, svo sem einelti, stríðni, öfund og sátt- um. í stuttum dansi var tekið á þessu og úr varð ballett, sem flutti boðskap, en var ekki bara röð af sporum í ákveðnum takti. Þar vakti átakalaus og þokkafullur dans Lenu Rósar Ámundadóttur athygli. Þó kóreógrafía Shirlene Alicia Blake fari hægt af stað var hún þó betri en maður á oft að venjast. Samkvæmisdansar voru einnig réttilega með á þessari fyrstu listahátíð æskunnar, enda liggur langt og strangt nám að baki ár- angri bestu dansaranna. Sum börnin stóðu vart út úr hnefa. Þau elstu voru um 16 ára. í samein- ingu sýndu þau þó svo ekki er um að villast að mikil framför hefur orðið hér á landi í sam- kvæmisdönsum á síðari árum og er það vel. Dansararnir voru þó misjafnir. Það var gaman að sjá unglinga úr Dansskóla Heiðars spreyta sig á standarddönsum í mynsturdansi. Hér vil ég geta góðrar framgöngu yngstu barn- anna í Dansskóla Hermanns Ragnars (í Listasafni íslands), dansara frá Dansskóla Jóns Pét- urs og Köru og ekki síst ungling- anna frá Dansskóla Sigurðar Há- konarsonar (í Borgarleikhúsinu). Það er vonandi að ekki líði lang- ur tími þar til Listahátíð æskunn- ar verði haldin á ný. Æskuna þarf að hvetja til að gera eitthvað jákvætt og uppbyggjandi. Við, þessi eldri, verðum líka að gefa okkur tíma til að staldra við og fylgjast með og þakka þeð sem vel er gert. Ungu listamenn: Haf- ið mína þökk. SIEMENS-dæð/ STORGLÆSILEG NÝ ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS! \ r s — — — © " Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun og hönnun heimilistækja. í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið- endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur þekkst. Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding í áföngum og þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og þann hámarkshita sem hann þolir. Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina í samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er f gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa því sem þvegið er. Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns- hripum heldur vatninu á stöðugri hreyfingu og tryggir þannig jafnt gegnumstreymi á vatni um þvottinn. Þessi nýjung sér til þess að þvotturinn fær bestu hugsanlegu meðhöndlun. SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst stjórnborð. ítarlegur leiðarvísir á íslensku og greinargóð tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með. Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa endingu. Gæði á gæði ofan frá SIEMENS SMITH & NORLAND Nóatúni 4, 105 Reykjavik. Ég vil gjarnan fá sendan baekling með nánari upplýsingum um þessa athyglisverðu vél. Naln Heimilisfang SMITH& NORLAND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.