Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 55
MORGCNBLAÐIÐ MIÐVIKCÐAGUR' í: iMAÍ 1991 Hjónaminning: Rannveig Helgadóttir Valdimar Runólfsson Nokkur fátækleg orð í minningu þeirra heiðurshjóna Rannveigar Helgadóttur ljósmóður og Valdimars Runólfssonar húsasmíðameistara, sem lengi bjuggu að Hólmi í Land- broti. Rannveig lést 22. þessa mán- aðar á Ljósheimum, Selfossi, en þar hafði hún verið síðustu árin ásamt valdimar sem lést 24. janúar síðast- liðinn. Rannveig var fædd 5. október 1897 að Þykkvabæ í Landbroti, dótt- ir hjónanna Höllu Einarsdóttur og Helga Þórarinssonar. Valdimar var fæddur 14. maí 1899 að Hólmi í Landbroti, sonur hjónanna Runólfs Bjarnasonar hómópata og Rannveig- ar Bjarnadóttur. Þau bjuggu lengi í Hólmi og stundaði Runólfur meðala- lækningar og rak smáverslun ásamt búskap. Eftir að leiðir Rannveigar og Valdimars lágu saman á árinu 1922, fluttu þau til Reykjavíkur þar sem Valdimar stundaði iðn sína af at- orku. Vann hann meðal annars við byggingar sem bera handverki hans mjög vitni, t.d. Hótel Borg, Gamla bíó og Þjóðleikhúsið o.fl., auk þess Mímisveg 2 sem hann byggði og var teikningin að mestu hans verk. Einn- ig var hann virkur í Trésmiðafélagi Reykjavíkur og í Iðnráði. Hann var í stjóm Trésmiðafélsgins um árabil og formaður þess í allmörg ár. Valdi- mar var listasmiður og liggja eftir hann mörg sérstæð smíðaverk. Auk þessa var Valdimar mikill ræktunar- og búsýslumaður og frumkvöðull um öflun verkfæra til þeirra hluta. T.d. var traktor sem hann keypti frá Korpúlfsstöðum fyrsta vélknúna hey- vinnuvélin í héraðinu. Auk þess hafði hann staðgóða þekkingu á nýtingu lands og áburðar. Búskapur þeirra Rannveigar og Valdimars í Holmi hófst árið 1942 þegar Valdimar tókst á hendur skóla- stjórn Smíðasþólans í Holmi fyrir Búnaðarfélag íslands, sem mun hafa verið fyrsti verkmenntaskóli lands- ins. En Valgerður ekkja Bjarna Run- ólfssonar, sem var bróðir Valdimars, hafði gefið Búnaðarfélaginu Hólm til þessara nota. Nærri má geta að þáttur Rannveigar var mikill í upp- byggingu og rekstri skólans. Dugn- aði hennar og atorku mun best lýst að einsdæmi er að nokkur húsfreyja sjái alveg um sitt heimili til níutíu ára aldurs. Skóli þessi var starfrækt- ur að Hólmi um árabil þar til Búnað- arfélagið gafst upp á skólahaldinu. í framhaldi af því keyptu þau Rann- veig og Valdimar Holm og bjuggu þau þar síðan ásamt yngsta syni sín- um Sverri. Þau Rannveig og Valdimar eign- uðust þijá syni, Helga bygginga- meistara, giftan Þóru Gísladóttur; Runólf rafvirkja og þúsundþjalasmið hjá Raunvísindastofnun, en hann var giftur Láru Þorðardóttur sem er lát- in, og Sverri bónda, sem er ókvænt- ur. Bamaböm em fjögur og barna- barnabörn átta. Ekki get ég lokið þessu án þess að neíria hve gott var ætíð að koma að Holmi og njóta þeirra góðu gest- risni. Það sumar sem ekki heppnað- ist að heimsækja þau var mjög verra en önnur. Seinni árin þegar heilsan var farin að bila hjá þeim báðum dáðist ég alltaf að Rannveigu hvað hún hélt sér andlega. Þannig var hún alltaf glöð og létt, fylgdist með öllu betur en flestir yngri gera. Aðstandendum votta ég samúð mína. Megi þau hafa góða heimkomu til æðri heima. Guð blessi minningu þeirra. Haukur Þorsteinsson hann með okkur systrunum heim á Ölfusvatn, rifjaði upp með okkur nöfn, atburði, leyndardóma, helga staði, vonda staði, álagabletti og næstum því kynnti okkur fyrir vættum og huldufólki. Þessi afa- bróðir minn var nær daglegur gest- ur á heimili foreldra minna um ára- bil. Sæmundur var meðalmaður á hæð og þéttur á velli. Hann var hægur í framgöngu, orðvar og hlýrra handtak held ég að sjald- gæft sé að finna. Sæmundur var mjög vel lesinn og var fróður um sögu bæði innlenda og erlenda. Kristindómur og kirkjan átti stóran sess í lífi Sæmundar. Hann var í sóknarnefnd í Grafningi og var áskrifandi að kirkjuritum og geymdi þau. 1952 hóf Sæmundur sambúð með Aðalheiði Ólafsdóttur, fæddri 29. apríl 1903, frá Björgum, Austur-Hún. Aðalheiður lifir sam- býlismann sinn. Á heimili þeirra var mikið lesið. Þau tóku virkan þátt í félagsstörfum, í kristilegum félög- um og eins voru þau í Kvæðamann- afélagi Hafnarfjarðar. Með Sæmundi fer hluti af gamla tímanum. Það er ekki lengur neinn sem þæfir plögg barnanna eða tvinnar saman í sokka. Það er viss söknuður sem sest að. En minning- in um hvað hann var hlýr lifir. Eg sendi Aðalheiði mínar innilegustu samúðarkveðjur. Jónína Björg Gísladóttir af öllum vörum í 3 daga fimmtudag — föstudag — laugardag Grensásvegi 3 8, sími 82444. Dreglar ♦ Verkfæri »«■* ► Teppi ◄
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.