Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 24
reei íam .i HUOAausiyetiM giqajsuuojiom MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 fiS 24 BARATTUDAGUR VERKALYÐSINS Bæta þarf kjör lág- launafólks „1- MAÍ hefur kannski ekki sama gildi í dag og áður sem baráttu- dagur verkalýðsins, þar sem bar- áttan fer nú meira fram á toppn- um en áður var. Það er nauðsyn- legt að bæta kjör Iáglaunafólks- ins, en það er hroðalegt að það skuli líðast að fólk hafi 50 þúsund krónur í laun á mánuði," sagði Snorri Júliusson, starfsmaður á verkstæði Skipaútgerðar ríkis- ins, en þar hefur hann starfað frá 1951. Snorri sagði að hækkun skattleys- ismarka hefði ekk- ert að segja fyrir þá sem lægst hefðu launin, og þeir fengju engar kjarabætur þó þau væru hækkuð. Það kæmi eingöngu til góða fyrir þá sem hefðu hærri laun- Snorri Júliusson „Mér fínnst brýnast að fá það í gegn að þetta fólk fái bætur. Nú er að koma ný stjóm og það er spuming hvemig henni semst við verkalýðshreyfinguna. Þessi stjóm er hins vegar á hennar nótum en sjálfur er ég ekki ánægður með hana. Þjóðarsáttinn hefur tekist ágætlega hingað til, en það sem vantað hefur upp á er það að lág- launafólkið hefur ekki fengið það sem það átti að fá. Það færi betur að nýrri stjóm tækist að leiðrétta þetta, en það hefur ekki tekist hjá Sjálfstæðisflokknum hingað til að bæta kjör þeirra lægst launuðu. En kannski bjargar Jón Baldvin því,“ sagði hann. Hækka þarf laun og skattleysis- mörk „ÞJÓÐARSÁTTIN svokallaða hefur skilað sér svona að nokkru leyti fyrir launafólk, og þá aðal- lega með lækkaðri verðbólgu, en það þyrfti nauðsynlega að hækka Iaunin aðeins líka og einnig að hækka skattleysismörkin," sagði Arnar Þór Hilmarsson, starfs- maður á Smur-, bón- og dekkja- þjónustunni við Tryggvagötu. „Það svona rétt bjargast að lifa á laununum eins og þau eru í dag, en þau mættu vera mikið betri eins og alltaf. Mér líst alls ekki á að sú ríkis- stjóm sem er að taka við vöidum verði hagstæð launafólki. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur alltaf verið fyrir atvinnurekendur og þeirra stefnu, en ekki launafólkið, og það vita allir þó þeir viðurkenni það ekki. Þeir fara þó létt með að taka þátt í þjóðarsáttinni þar sem þeir styðja atvinnurekendur, en ég á von á-því að þeir haldi laununum áfram niðri,“ sagði Amar Þór. Arnar Þór Hilmarsson Grindavík: Langur vinnudagur og lítil laun Grindavík. LÁG LAUN verslunarfólks voru efst í huga Guðnýjar Elíasdóttur sem sér um kjötborðið í Staðar- kjöri. „Launin í þessu starfi em mjög lág. Ég er búin að vinna við þetta í 10 ár og launin ekki nema 52.000 krónur á mánuði sem þykir ekki mikið. Vinnudag- urinn er langur og Guðný vont að komast Elíasdóttir. frá. Maður kemur ekki heim fyrr en undir kvöldmat og þá er oft eftir að hugsa um heimilið. Síðan er opið á laugardög- um og talað um að hafa opið á kvöldin. Þá gleymist stundum að tala um þá sem vinna við verslun- ina. Þó maður vinni langan vinnu- dag og fái einhveija eftirvinnu, fer þess meira í skattinn. Það verður að laga þessa hluti fyrir okkur versl- unarfólk," sagði Guðný. Hún sagði einnig að atvinnulíf væri mjög einhæft í Grindavík og ekki um margt að velja fyrir konur sem hafa áhuga að vinna utan heimilisins. FÓ Grindavík: Lagfæra skattamál Grindavik. SIGURLAUG Sigurðardóttir og Sæbjörg Vilmundardóttir voru í óðaönn að snyrta ufsaflök í Fiskanesi þegar þær voru spurð- ar um hvað væri þeim efst í huga á frídegi verkalýðsins, 1. maí. „Frí, hvað annað,“ sögðu þær báðar, „það verður gott að fá frídag eftir mikla töm að undanfömu." Þær voru sammála um að helstu baráttumál sem fiskvinnslufólk þyrfti að hugsa um væru skatta- mál, að hækka skattleysismörk. „Það er ansi hart að vinna þessa erfiðisvinnu sem fískvinnsla er og sjá síðan á eftir nærri helmingi launa sinna í skattinn þegar ein- hver eftirvinna er, sem er alltaf þegar vertíð er í fullum gangi. Nú, að öðru leyti bíðum við bara eftir því að stjómmálamennimir efni þau fögm fyrirheit sem þeir gáfu á vinnustaðafundunum fyrir kosning- ar,“ sögðu þær að lokum og sneru sér aftur að vinnu sinni. FÓ Grindavík: Vinnubrögð Vlð SJO- mennsku svipuð Grindavík. HAFLIÐI GK 140 var nýlagstur að bryggju í Grindavík með 6 tonn af góðum þorski þegar rætt var við Sigurjón P. Magnússon háseta. „Þetta er besti túrinn okkar í vetur, og að honum lokn- um verður gott að fá smáfrí 1. maí og vonandi verður gott veður svo maður komist í sólbað,“ sagði hann. „Helstu bar- áttumál okkar í dag sem endranær eru kaup og kjör. Er það ekki alltaf sama sagan? Ann- ars er mikið bar- áttumál okkar sjó- manna í dag að koma öllum físki á markað og þannig siguijón P. fá jöfnuð á fís- Magnússon. kverð en nú er verð á físki mjög mismunandi eftir því hvar er landað og hvort hann fer á markað eða beint í vinnslu hjá útgerðinni. Að setja físk á markað er ekkert annað en launahækkun því verðið er mun betra þar heldur en útgerðin greið- ir fyrir hann,“ sagði Siguijón. Hann sagðist hafa verið tæp 20 ár til sjós og vinnan væri alltaf svipuð frá ári til árs en aðbúnaður allur hefur tekið stakkaskiptum. FÓ V estmannaeyjar: Sæmilega sáttur við launin Vestmannaeyjum. „VIÐ VINNUM þetta allt í akk- orðsvinnu og það er ekki hægt að segja annað en að launin séu ágæt en þetta er líka helvítis puð,“ segir Sigurður Friðriksson, sem vinnur í löndunargenginu í Eyjum. Strákamir í löndunargenginu sjá um að landa aflanum úr Eyja- togurunum. Sig- urður segir að það sé misjafnlega mikið að gera hjá þeim við landanir. „Víð vinnum þetta Sigurður upp í íl'óra daga í Friðriksson viku við löndun úr togumnum. Öll vinnan er í dag- vinnu og þar sem þetta er stíf akk- orðsvinna gefur þetta ágætar tekj- ur,“ segir hann. „Ég er sæmilega sáttur við launin en skattamir mættu vera lægri. Mér sýnist nú að Ólafur Skattmann sé að fara frá ----------------------------------------------------Morgunblaðið/Frímann-Olafssorr - Sigurlaug Sigurðardóttir og Sæbjörg Vilmundardóttir. og maður verður bara að vona að það taki eitthvað betra við með nýrri ríkisstjóm," sagði Sigurður Friðriksson að lokum. - Grímur V estmannaeyjar: Má þakka fyrir að hafa vinnu Vestmannaeyjum. GUÐLAUGUR Kristófersson vinnur við viðgerðir á fiskikörum í Vinnslustöðinni í Vestmanna- eyjum. Hann segist hafa nóg að gera og er ánægður að geta ver- ið í vinnu kominn hátt á sjötugs- aldur. Guðlaugur segir að sér líki ágæt- lega í vinnu sinni. „Ég hef meira en nóg að gera og miðað við þann aldur sem ég er kominn á þá má maður þakka fyrir að hafa einhveija vinnu,“ segir Guð- laugur. Hann seg- ist ekki taka þátt í hátíðarhöldum 1. maí en noti daginn eins og aðra frídaga til þess að hvíla sig. Þó svo hann taki ekki þátt í há- tíðarhöldum dagsins þá hefur hann þó sínar skoðanir á kjaramálunum. „Vissulega þyrftu launin að vera hærri og mér fínnst verkafóik vera búið að skila sínu í þeirri þjóðarsátt sem verið hefur. Það mætti því hygla því fólki eitthvað og þá dett- ur mér til dæmis í hug minni skatt- lagning á yfírvinnuna. Fólk er í dag orðið ragt við að vinna yfirvinnu því þá fer svo stór hluti launa þess í skatta. Þarna er leið til að hygla þessu fólki, sem ég held að vert væri að skoða," segir Guðlaugur Kristófersson. Grímur V estmannaeyjar: Skattarnir eru allt of háir Vestmannaeyjum. „MAÐUR er náttúrlega aldrei ánægður með launin og svo finnst manni skattarnir líka vera allt of háir,“ scgir Hafliði Al- bertsson, verkstjóri í Fiskimjöls- verksmiðju Einars Sigurðssonar, FES. „Okkar aðal- vinna er yfír loðnuvertíðina og þá vinnum við hér á vöktum allan sól- arhringinn. Þess á milli er hér minna um að vera, færri menn við störf, og þá erum við í þrif- um og viðhaldi," segir Hafliði. „Yfír vertíðina er þetta heilmikil töm og vinnuvikan er löng enda eru launin ágæt þá en það er verst að það fer allt of mikið af þeim í skatta. Ég er harður á að það á að ívilna físk- vinnslufólki með því að fella niður skatta á yfírvinnu alls fískverka- fólks. Alla vega mætti fella skatt- ana niður af hluta hennar." Hafliði segir að hann hafí trú á að halda megi þjóðarsáttinni áfram, en til þess þurfi að koma til ákveðn- ar aðgerðir frá ríkinu. „Ef ný ríkis- stjórn hefur kjark til að lækka virð- isaukaskattinn af matvælum niður í 15% eða svo þá getum við haldið ótrauð áfram með þjóðarsáttina, því lækkun virðisaukaskatts af mat- vælum er besta kjarabót sem fjöl- skyldurnar f þessu landi geta feng- ið.“ llafliði Albertsson Guðlaugur Kristófersson Hafliði segist bjartsýnn á fram- tíðina. „Ég held að íslenskt þjóðfé- lag fari nú að rétta úr kútnum og við komumst út úr þeirri skuldasúpu sem við höfum setið í síðastliðin ár. Við höfum alla burði til að gera það gott og hér býr dugmikið fólk og hvað getur maður annað en verið bjartsýnn á framtíðina þegar þessar staðreyndir liggja á borðinu," segir Hafliði Albertsson. - Grímur Isafjörður: Það verður að banna kvótasölu fsafirði. „ EG HELD að stjórnmálamenn- imir geti ekkert gert vegna sér- hagsmunanna innan flokkana. Eg óttast að kvótinn verði orð- inn að hefð áður en 1. grein kvótalaganna verður virk. Það á að halda þjóðarsáttinni áfram, en það þarf að koma böndum á þá sem hafa fengið að hækka,“ sagði Héðinn Valdimarsson, starfsmaður Norðurtangans á ísafirði, en hann var staddur um borð Hálfdáni í Búð, þar sem starfsmenn Norðurtangans vom að setja upp vinnslulínu fyrir gráðlúðufrystingu um borð. „Það á að reyna að viðhalda þjóð- arsáttinni, en eg óttast að Ás- mundur verði ekki jafn hliðhollur að- gerðunum og hann var ef Við- eyjarsfjómin kemst að. Það er þó ljóst að það verður að hækka kaupið eitthvað hjá þeim lægst- launuðu, en koma samt böndum á þá sem hafa verið að hækka sig hingað til þar sem viðkvæðið hefur verið að þetta rúmaðist innan sátt- arinnar. Það gengur ekki,“ sagði Héðinn. „Svo er það þessi vitleysa með námslánin. Heldurðu að það sé ekki heimsmet að fólk geti ekki hugsað sér að fara úr námi í vinnu vegna kjararýmunar. Það var héma kona í fyrra sem vann við fískmat. Nú er hún komin í skóla og gerir sér að leik að fara reglu- lega á skrifstofumar hjá Sölumið- stöðinni í Reykjavík til að sýna hvað hún er mikið betur sett í laun- um en á meðan hún vann hörðum höndum. Svo heldur unga fólkið áfram jafnvel árum saman þótt það hafi engan áhuga á náminu," sagði hann. Héðinn sagðist óttast það mest að svo væri búið „að festa kvótavit- leysuna í sessi“, að 1. grein kvóta- laganna um að fískimiðin séu sam- eign þjóðarinnar yrði marklaus. „Eitt af því sem menn óttast er að þegar erfðamál fara að bland- ast inní kvótaeignina þá geti marg- ar byggðimar farið illa,“ sagði hann og rauk af stað á hjólinu sínu, en hann sagði að komið væri kaffí og hann ætlaði ekki að kjafta af sér allan kaffitímann. - Úlfar ísafjörður: Aldrei hugsað út í 1. maí ísaflrði. „MÉR finnst þetta enginn bar- áttudagur lengur og ég hef aldr- ei tekið þátt í kröfugöngu eða neinu slíku á þessum degi, en það Héðinn Valdiinarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.