Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 _l.-m.ai BARATTUDAGUR VERKALYÐSINS 1. maí ávarp Alþjóðasambands fijálsra verkalýðsfélaga Brauð - friður - frelsi Milljónir karla og kvenna halda 1. maí hátíðlegan til þess að, í sam- einingu, minna á hugsjónir verka- lýðshreyfíngarinnar. Alþjóðlegur baráttudagur launafólks er tákn fyrir baráttu gegn efnahagslegu og félagslegu ranglæti og sýna stað- fasta trú á lýðræði, frelsi og virð- ingu fyrir mannréttindum. Þessar óaðskiljanlegu hugsjónir um lýðræði, frelsi og mannréttindi öllum til handa voru kveikjan að stofnun Alþjóðasambands fijálsra verkalýðsfélaga árið 1949. Kjörorð þess — brauð, friður, frelsi — er jafn brýnt baráttumál verkalýðs- hreyfingarinnar 1991 eins og það var þá. Burt með ójöfnuð innan ríkja eða milli ríkja! Langvarandi og djúpstæður ójöfnuður ríkir enn innan ríkja og í samskiptum milli ríkja. Mannrétt- indi eru fótum troðin, réttur stéttar- félaga að engu hafður og íbúum þróunarríkjanna hefur verið sýnt fullkomið tómlæti. Á síðasta ári setti þetta mannréttindum óg fé- lagslegum réttindum þröngar skorður. Stríð, hungursneyð, fá- tækt og undirokun hafa enn einu sinni orðið örlög milljóna launa- fólks. Hvorki stéttarfélög né þær millj- ónir karla og kvenna um allan heim, sem eiga aðild að stéttarfélögum, munu sætta sig við þvílík örlög. Hvarvetna taka þau áskoruninni sem verkalýðurinn stendur frammi fyrir. Barátta fyrir lýðræði Barátta verkalýðshreyfingarinn- ar er fyrst og fremst barátta fyrir auknu lýðræði. Verkalýðshreyfing- in á í stríði þar sem hún talar máli launafólks. Hún berst fyrir því að framlag þess sé metið að verðleik- um með réttlátri skiptingu þjóðar- auðs. Þegar verkaiýðshreyfingin er hindruð í að gegna hlutverki sínu, þegar rétturinn til þess að bindast samtökum er hundsaður kemur það niður á lýðræði, framþróun, friði og öryggi í heiminum. Nútímasaga er vitnisburður þess að verkalýðshreyfingin er hvati að framþróun og vexti auk þess sem hún er máttarstólpi lýðræðis Félagsmenn fijálsra verkalýðsfé- laga lögðu sitt af mörkum til þess að steypa kommúnísku einræði í Mið- og Austur-Evrópu. Nú taka þeir virkan þátt í endurreisnarstarfi sem stefnir að því að tryggja mikii- væga félagslega sátt um efnahags- þróun. Félagsmenn fijálsra verka- lýðsfélaga blökkumanna eru í farar- broddi í baráttunni gegn aðskilnað- arstefnunni. Eftir margra ára harða viðureign og óteljandi fómir hafa þeir loksins séð árangur af baráttu sinni. Verkalýðshreyfingin í Suður- Afríku undirbýr þjóðfélag án að- skilnaðarstefnu og talar fyrir fé- lagslegu réttlæti í því. Verkalýðs- hreyfingin í Rómönsku-Ameríku sem barðist árangursríkri baráttu gegn hernaðarlegu einræði, gegnir nú mikilvægu hlutverki til þess að styrkja brothætta lýðræðislega starfsemi. Sjálfstæð verkalýðs- hreyfing ýtir á eftir breytingum og heldur á lofti voninni um betra líf milljónum Afríkumanna til handa þar sem valdafrekir pólitískir leið- togar hafa misst allt traust og eru hindrun í vegi þróunar og alþjóð- legrar samstöðu. Alþjóðleg samstaða Með hveijum degi sem líður verð- ur alþjóðleg samstaða verkalýðsfé- laga mikilvægara tæki til þess að minna á þá sæmd sem verkafólki ber, virðingu fyrir rétti þess og réttlátri þjóðfélagslegri stöðu þess. Alþjóðleg samstaða er með laun- afólki sem enn er haft að féþúfu af minnihlutahópum sem hafa kast- að eign sinni á allan auð heilla þjóða. Samstaðan er einnig með körlum og konum sem enn er íþyngt með lánum sem það ber enga ábyrgð á og hefur ekki haft hag af. Þessi virka samstaða er einnig með þeim körlum og konum sem á hveijum degi hætta lífi sínu og frelsi þegar það gætir réttar og hags- muna launafólks. Alþljóðleg samstaða táknar einn- ig að fylgst er með því að jafnvægi ríki í samskiptum iðnvæddra þjóða og þróunarríkja, sem alltof oft eru fórnarlömb ágirndar. Fylgjandi þróunaraðstoð en andvíg ölmusum Trú stefnumiðum sínum mun al- þjóðleg hreyfing verkalýðsfélaga vinna áfram með launafólki þróun- arríkjanna og stéttarfélögum þeirra með það að markmiði: —að eyða auðmýkjandi fátækt sem iðnvæddar þjóðir bera mikla ábyrgð á, — að auka þróunaraðstoð og fjár- festingu í félagslegum auði eins og menntun, þjálfun, húsnæði og almannatryggingum, — að laða fjölmennan hóp launa- manna sem enn standa utan stétt- arfélaga, til félaganna svo þeir KIRKJULEG sveifla var flutt sunnudaginn 14. apríl sl. í Bú- staðakirkju. Húsfyllir var á tón- leikunum og ríkti óvenjuleg stemmning í kirkjunni. Fjölda margir hafa óskað eftir því að þessir tónleikar verði endurtekn- ir. Það verður gert fimmtudag- inn 2. maí kl. 20.30. Þar flytur hópur tónlistarfólks undir forystu Guðna Þ. Guðmunds- sonar organista Bústaðakirkju kirkjulega sveiflu, jazz og blús. Þar verða fluttir negrasálmar svo og tvö lög trúarlegs eðlis eftir Magnús fái notið hagsbótanna sem felast í samstöðu hreyfingarinnar. Starfsemi alþjóðasam- takanna verði styrkt Starfsemi alþjóðahreyfingar fijálsra verkalýðsfélaga á að hald- ast í hendur við vaxandi styrk Sam- einuðu þjóðanna. Alþjóðahreyfingin verður að hafa þau tæki sem þarf til að koma í veg fyrir að þeir ógnar- atburðir sem áttu sér stað í byijun ársins 1981 endurtaki sig. Að mati fijálsrar verkalýðshreyfingar eru afskipti af innanríkismálum þjóða réttlætanleg þegar stjórnvöld virða grundvallar mannréttindi að vettugi og stofna lífi karla og kvenna í hættu. Milljónir verkafólks í heimsálfun- um fimm binda vonir sínar við lýð- ræðislega verkalýðshreyfingu. Al- þjóðasamband fijálsra verkalýðsfé- laga vill halda þessari von vakandi. í þessu skyni mun sambandið stór- efla allt starf sitt fyrir lýðræði, fé- lagslegu réttlæti, efnahagslegu réttlæti, virðingu fyrir mannréttind- um, friði og öryggi um allan heim. Kjartansson. Flytjendur verða Sigrún Hjálm- týsdóttir, Ingveldur Ólafsdóttir, Stefanía Valgeirsdóttir, Magnús Kjartansson og hljómsveit, Guðni Þ. Guðmundsson, barnakór og bjöllukór Bústaðakirkju. Þær raddir hafa oft heyrst að kirkjunnar menn mættu vera opn- ari fyrir því að hleypa nýrri tónlist inn í kirkjurnar. Um leið og flytj- endur gefa vinnu sína og styðja þar með orgelkaupin vill tónlistarfólkið sýna fram á möguleika léttrar tón- listar í kirkjulegu starfi. Kirkjuleg sveifla endur- tekin í Bústaðakirkju A44RKID
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.