Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Á leið til betri kjara Tvennt mótar lífskjör öðru fremur: verðmætasköpun- in í þjóðarbúskapnum og við- skiptakjörin við umheiminn [söluverð útflutningsframleiðslu og kaupmáttur gjaldeyristekna]. Skiptahluturinn á þjóðarskút- unni, sem ræðst af þessu tvennu, stendur kostnaðarlega undir lífskjörum okkar, þar á meðal félagslegri þjónustu. Það er fyrst og fremst á þessum vett- vangi sem kjarabaráttan er háð í nútíma samfélagi. Af sjálfu leiðir að samtök launþega hafa flýtt fyrir ýmiss konar jöfnuði og réttarbótum, þar sem þau hafa fengið að starfa við eðlilegar aðstæður. Það hefur gerzt um gjörvöll Vesturlönd. Það er engu að síður þjóðfélagsgerðin/hagkerfið, eða með öðrum orðum starfsaðstaða atvinnuveganna, með og ásamt menntun og þekkingu þjóðar- innar, sem mestu ræður um það, hvort samfélagið skilar nauðsynlegum verðmætum til að standa undir velferðinni. Þess vegna ber að fagna þvi að ný ríkisstjórn hefur heitið því að rjúfa kyrrstöðuna í íslenzku atvinnulífi; að auka verðmæta- sköpun í atvinnulífinu og skila Fyrstu verkefni að skiptir miklu máli, að hinni nýju ríkisstjóm Davíðs Oddsson- ar takist að slá réttan tón í upp- hafi. Þar varðar mestu, að ríkisfjármálin verði tekin föstum tökum nánast þegar í stað. Við- skilnaður vinstri stjórnarinnar og Ólafs Ragnars Grímssonar í fjármálaráðuneytinu er hrika- legur og rækileg úttekt þarf að liggja fyrir á þeim viðskilnaði. En jafnframt þarf hin nýja ríkisstjórn strax á næstu dögum og vikum að taka ákvarðanir til þess að draga úr útgjöldum ríkissjóðs o g lánsfjárþörf á þessu ári. Það er ekki hægt að bíða með slíkar ákvarðanir fram á næsta haust, þegar Friðrík Sophusson, fjármálaráðherra, leggur fram fyrsta fjárlaga- frumvarp sitt. Þessar ákvarðanir þarf að taka nú á næstunni og með þeim hætti, að eftir verði tekið. Hins nýja fjármálaráðherra bíður erfitt verkefni. Það er ekki einfalt mál að skera niður út- gjöld hins opinbera eða draga úr, að því er virðist, óseðjandi fjárþörf opinbera kerfisins. En það verður að takast á við þetta verk af mikilli hörku og láta hvorki þrýstihópa né alþingis- menn komast upp með að stöðva henni í betri lífskjörum, ekki sízt til hinna tekjulægstu. Mark- miðið er að „örva efnahagslegar framfarir, án verðbólgu og án ofnýtingar náttúruauðlinda" og stuðla að friði á vinnumarkaði með „sáttargjörð um sanngjöm kjör“. Hin fyrsta þjóðarsátt, sem gerð var á dögum fyrri viðreisn- ar, júnísamkomulagið 1964, undirstrikar mikilvægi sam- átaks þjóðarinnar: til að við- halda stöðugleika í efnahagslíf- inu, til að bæta samkeppnisstöðu atvinnuveganna, til að stækka skiptahlutinn á þjóðarskútunni [m.a. með nýju álveri] og til að halda skattheimtu hins opinbera innan hóflegra marka. Nú, eins og þá, er slík samstaða, slíkar aðgerðir, mikilvægar í kjarabar- áttu þjóðarinnar. Þær eru og nauðsynlegur undanfari þess að rétta hlut okkar í hópi velferð- arríkja heims. í þeirri von að öll ábyrg þjóð- félagsöfl sameinist um viðreisn íslenzks efnahags- og atvinnu- lífs, og þar með lífskjara í landinu, árnar Morgunblaðið launafólki og landsmönnum öll- um velferðar á þessum hátíðis- degi. það. Ráðherrar í helztu útgjalda- ráðuneytum þurfa að standa fast með fjármálaráðherra í þessu verkefni. Þeirra skylda er að draga saman seglin, ekki síður en fjármálaráðherrans. Þeir hafa ekki leyfi til þess að líta á sjálfa sig, sem eins konar þrýstihóp fyrir þá hagsmuni, sem ráðuneyti þeirra vinna að. Það mun ráða miklu um örlög þessarar ríkisstjórnar hvernig henni tekst til í þessum efnum á næstu mánuðum. Stundum gera ráðherrar og embættismenn litið úr því að draga beri úr eyðslu hins opin- bera til ferðalaga, risnu og ann- ars þess háttar og telja, að þetta séu svo litlar fjárhæðir, að þær skipti engu máli í heildardæm- inu. En útgjöld af þessu tagi skipta almenning máli. Skatt- greiðendur taka eftir því, hvern- ig farið er með fé þeirra að þessu leyti. Þess vegna segir það tölu- verða sögu um ríkisstjórn og ráðherra, hvernig þeir halda á þessum útgjaldaliðum. Ákveðin tök á ríkisfjármálum þegar í upphafi starfsferils þess- arar ríkisstjórnar eru forsenda fyrir því, að takast megi að end- urnýja þjóðarsáttarsamninga næsta haust. Ríkisstjómin á að leggja grundvöll að því með ákveðnum aðgerðum í ríkisfjár- málum. Síðan er það aðila vinnu- markaðar að semja sín í milli án afskipta ríkisvaldsins. STJORNARSKIPTIN Býst við að vextir hæk næstunni en fari svo læ Steingrímur Hermannsson, fráfarandi forsætisráðherra, afhenti Davíð Oddssyni, núverandi forsætisráðherra, lykla að i í Stjómarráðshúsinu kl. 16,30 í gær. Við það tækifæri óskuðu þeir hvor öðrum velfarnaðar á nýjum vettvangi og Daví í þágu þjóðarinnar. Steingrímur heldur í dag af landi brott til Bandaríkjanna þar sem hann tekur við heiðursdoktorsnafnbó Davíð Oddsson forsætisráðherra: Davíð fær lyklavöldin DAVÍÐ Oddsson nýskipaður forsætisráðherra segir að staða ríkisfjár- mála verði væntanlega meginviðfangsefni á fyrsta fundi ríkisstjórnar hans sem verður á fimmtudag. Hann býst við að vextir hækki á næstunni, en muni síðan lækka þegar ríkisstjórninni takist að lækka ríkisútgjöld. Davíð Oddsson sagði, eftir ríkis- ráðsfund á Bessastöðum þar sem ríkisstjórn hans tók við, að búast mætti við að yextir fari hækkandi á næstunni. „í raun tel ég að vext- ir hafí þegar hækkað, þótt það hafí verið falið. Það felst í því að ríkis- skuldabréf hafa legið óseld og menn hafai ekki viljað hækka vextina í það sem þeir í rauninni eru. Ég býst við því að vextirnir muni fara í það sem þeir eru, nú þegar stjórn- in fer frá, en síðan, eftir að ríkisút- gjöldum verður mætt, þá ættu vext- ir að ganga niður á nýjan leik,“ sagði Davíð. Um skattalækkanir í framtíðinni, eftir að tekist hefði að ná niður ríkisútgjöldum, sagði Davíð, að væntanlega yrði haft samráð við samtök launþega um það hvaða atbeini ríkisvaldsins í þeim efnum kæmi launþegum best. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru valdir á þingflokksfundi í gærmorgun. Þar lagði Davíð Odds- son fram tillögu um að ráðherrar yrðu, auk hans, Friðrik Sophusson, Haildór Blöndal, Ólafur G. Einars- son og Þorsteinn Pálsson. Þessi til- laga var samþykkt í skriflegri at- kvæðagreiðslu með 22 atkvæðum gegn 1 en tveir sátu hjá. Davíð sagði að erfitt hefði verið að fínna endanlega lausn á því máli, þar sem margir góðir menn hefðu verið í boði. „Niðurstaðan varð þessi eftir að ég hafði átt ýtar- leg samtök við alla þingmenn flokksins, og ég vona að menn vona að menn sætti sig hana,“ sagði Davíð. Davið mun gegna embætti borg- arstjóra þar til eftirmaður hans í því starfi verður valinn. Hann segir að stefnt sé að því að það verði frágengið á borgarstjórnarfundi eftir hálfan mánuð. Davíð sagði að áður en hann gerði tillögu um eftir- mann sinn, myndi hann ræða við alla borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins í trúnaði og fara yfir stöð- una þar. Davíð sagði að hann hefði hug á að gegna áfram embætti borgarfulltrúa þótt hann hætti sem borgarstjóri. Stjómarmyndun Davíðs Odds- sonar stóð aðeins yfir í rúma þrjá sólarhringa, en þeir urðu nokkuð langir hjá formönnum Sjájfstæði- flokks og Alþýðuflokks. „Ég verð að viðurkenna það, að mig langar óskaplega mikið til að sofa út í fyrramálið," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra við Morgunblaðið í gær. Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal, Ölafur G. Einarsson, Þorsteir fjármálaróðherra. landbúnaðar- og menntamálaráðherra. sjávarúh samgönguráðherra. og kirkjurr 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.