Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 33
<»33
—i.
Húsarústir á jardskjálftasvæðunum í sovétlýðveldinu Georgíu.
Rúmlega 100 látnir
á skjálftasvæðunum
Kútaísí. Reuter.
BJÖRGUNARMENN leituðu í gær í húsarústum að fólki sem talið
er að hrafi grafist undir er heilu þorpin hrundu til grunna í öflugum
jarðskjálftum í suðurhluta sovétlýðveldisins Georgíu á mánudag.
Fundist höfðu lík rúmlega eitthundrað manna en talið er að fjöldi
fólks kunni að leynast á lífi í rústunum.
„Fólk hefur grafist lifandi. Þetta
er hryllingur, martröð," sagði
Tengíz Sígúa, forsætisráðherra
Georgíu við blaðamenn í bænum
Kútaísí, sem er skammt frá þeim
stað sem talið er að skjálftinn hafi
átt upptok.
Fiestir hinna látnu biðu bana á
afskekktum Kákasussvæðum. Allt
vatn og rafmagn fór af stórum
svæðum í fjöllunum og fjarskipti
liggja meira og minna niðri. Af
þeim sökum er óvíst að allar upplýs-
ingar um tjón á fólki og mannvirkj-
um hafi borist þaðan. Víða jöfnuð-
ust heilu þorpin við jörðu og stend-
ur ekki eitt einasta hús uppi í sum-
um þeirra. „Á fjórum svæðum hefur
orðið gífurlegt tjón. Helmingur allra
mannvirkja eyðilagðist á fjórum
[stjórnsýslu]svæðum,“ sagði Sígúa.
Jarðskjálftinn mældist um sjö
stig á Richters-kvarða og var
öflugri en skjálftinn sem reið yfir
nágrannalýðveldið Armeníu 1988
með þeim afleiðingum að 25.000
manns biðu bana.
■ BERLÍN - Tímamót urðu í
gær í iðnaðarsögu Þýskalands
því þá var fram-
leiddur síðasti
Trabantbíllinn,
helsta farartæki
íbúa fyrrum Aust-
ur-Þýskalands í
áratugi. Verður
það eintak númer
3.096.099 og
verður bifreiðinni ekið rakleiðis á
minjasafn. Sömuleiðis hætti aust-
ur-þýska ríkisflugfélagið Inter-
flug formlega rekstri í gær og var
úreltum og ósamkeppnisfærum sov-
étsmíðuðum flugflota þess lagt.
■ LOWELL - Lítt þekktur
fyrrum bandarískur öldunga-
deildarmaður, Paul Tsongas, til-
kynnti í gær að hann ætlaði að
sækjast eftir útnefningu Demó-
krataflokksins sem frambjóðandi
flokksins við forsetakosningarnar
2. nóvember 1992. Hóf hann bar-
áttu sína með harðri gagnrýni á
stefnu George Bush Bandaríkja-
forseta. Tsongas er fimmtugur og
er frá iðnaðarborginni Lowell í
Massachusetts, 400 km norður af
New York. Hann var kjörinn til
setu i öldungadeildinni 1979 en dró
sig í hlé eftir eitt kjörtímabil þar
sem hann var haldinn illkynja
krabbameini sem hann telur sig nú
vera búinn að sigrast á.
■ KAUPMANNAHÖFN -
Samstarf milli íslenska kvik-
myndagerðarmannsins Magnús-
ar Guðmundssonar og Grænlend-
inga er nú á döfinni. Kemur þetta
fram í viðtali, sem danska blaðið
Politiken átti við Jonathan Motz-
feldt, fyrrum formanns grænlensku
heimastjórnarinnar. Vakir það fyrir
Grænlendingum að fá Magnús í lið
með sér í baráttunni við umhverfis-
verndarmenn, sem hafa lagt sel-
veiðarnar í rúst. Politiken hefur það
eftir Motzfeldt, að Magnús sé nú í
Alaska þar sem hann er að gera
mynd um 600 manna byggð en þar
hafa meira en 100 íbúanna reynt
að fyrirfara sér. Hafa umhverfis-
verndarmenn lagt fólkið á þessum
stað í þvílíkt einelti, að það getur
ekki lengur veitt sér sel til matar
hvað þá meir.
■ LIMA - Kólera breiðist út
með vaxandi hraða í Perú og er
tíðni andláta orðin það há að þar í
landi deyja nú 100 manns í viku
hverri af völdum veikinnar.
M BERLÍN - Opinber rann-
sóknarnefnd í Þýskalandi hefur
skipað austur-þýska kommúni-
staflokknum að gefa upp eignir
sínar í útlöndum Flokkurinn, sem
nú heitir Lýðræðislegi sósíalista-
flokkurinn, safnaði gífurlegum
eignum en leiðtogar hans hafa til
þessa ekki svarað spurningum
nefndar, sem rannsakar starfsemi
flokksins. Hefur hún sett Gregor
Gysi flokksleiðtoga úrslitakosti og
hótað honum lögsókn hafi hann
ekki svarað fyrir 10. maí.
■ JÓHANNESARBORG -
Meira en 70 manns hafa fallið
frá því á föstudag er hörð átök
brutust út að nýju milli stríðandi
fylkinga blökkumanna í Suður-Afr-
íku. F.W. de Klerk forseti sagði í
gær að hætta væri á borgarastyij-
öld í landinu en leiðtogar fylking-
anna, Nelson Mandela, varaforseti
Afríska þjóðarráðsins (ANC) og
Mangosuthu Buthelezi, leiðtogi
Inkatha-frelsisflokksins, höfnuðu
tilboði hans um viðræður til að
binda enda á blóðsúthellingarnar.
Rúmlega 5.500 manns hafa beðið
bana í átökum fylkinganna á und-
anförnum fjórum árum.
■ KAUPMANNAHÖFN -
Færeyska landsstjórnin ætlar að
beijast fyrir því, að landsmenn fái
að éta grindhvalakjöt jafnt utan
landsteinanna sem innan. Er tilef-
nið það, að nú er fyrir rétti í Dan-
mörku mál gegn tveimur færeysk-
um skipstjórum, sem sakaðir eru
um að hafa flutt ólöglega til lands-
ins 450 kíló af grindhvalakjöti.
Atli Dam, lögmaður Færeyja, seg-
ir, að málinu verði fylgt eftir upp
í hæstarétt ef þörf krefur.
kl. 15 -18.
FLUGLEIDIR
Reykjavíkurflugvelli, sfmi 22322.
<3
Vorið er komið og sumarið nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM og
Tjónaskoðunarstöðinni skiptum við yfir í
sumarafgreiðslutíma, sem er frá
klukkan átta til fjögur. Sumartíminn gildir
frá 1. maí til 15. september.
SJOVAQBALMENNAR
Kringlunni 5
lishoðunorslin
Draghálsi 14—16
Sumartíminn
hjá okkur er frá
átta til fjögur