Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 50
£0 8IHHMI MONGOOSE hefur unnið fleiri torfærukeppnir i Bandarikjunum en nokkurt annað hjól. Regluleg skoSun og stilling ón endurgjalds. EKKI BARA TIL FJALLA OPIÐ LAUGARDAGA )0°° - 1600 GAP G.Á. Pétursson hf Nútlðinni Faxafeni 14, simi 68 55 80 M0RGUNBLAÐ1Ð MIÐVIKUDAGUR 1. MAI 1991 Minning: Olafur Sigfússon fv. sveitarsijóri Fæddur 29. september 1923 Dáinn 18. apríl 1991 Á morgun, 2. maí, verður jarð- sunginn frá Háteigskirkju Ólafur Sigfússon, fyrrverandi sveitarstjóri á Hvolsvelli. Ólafur var fæddur í Reykjavík 29. september 1923. Foreldrar hans voru Sigfús Jónsson, bóndi í Norðurkoti á Kjalarnesi, og María Þórunn Ámadóttir í Reykjavík. Ungur að árum missti Ólafur móður sína og ólst eftir það upp hjá móðursystur sinni, Margréti Árnadóttur, og manni hennar, Helga Pálssyni í Ey í Vestur-Lan- deyjum. Hann fór í Bændaskólann á Hólum og lauk þaðan búfræðin- ámi 1945. Eftir það fór hann ti Danmerkur og vann þar á búgarði í 1 ár. Árið 1948 hóf hann nám í málaraiðn í Reykjavík og lauk sveinsprófi í þeirri iðngrein 1952. Ólafur kvæntist eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Olgu Stefánsdóttur hjúkrunarfræðingi, 4. nóvember 1950. Eiga þau 3 syni: Guðna Þór sem kvæntur er Herbjörtu Péturs- dóttur; Stefán, sambýliskona hans er Ólafía Þórdís Gunnarsdóttir; og Sigurð, sem kvæntur er Mjöll Gunn- arsdóttur. Ungu hjónin Ölafur og Olga tóku sig upp frá Reykjavík FULLTRÚARÁÐ vcrkalýðsfélag- anna í Reykjavík, Bandalag starfs- manna ríkis og bæja og Iðnnema- samband Islands standa saman að hátíðarhöldum í tilefni 1. maí, al- þjóðlegs baráttudags launafólks. í ár verða hátíðarhöld vegna 1. maí með hefðbundnu sniði sem og undanfarin ár. Safnast verður saman við Hlemm kl. 13.30. Gangan leggur af stað kl. 14.00. Gengið verður nið- ur Laugaveginn að Lækjartorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðra- sveitin Svanur leika fyrir göngunni. 1952 og hófu búskap á nýbýli sem þau byggðu að Hjarðartúni í Hvol- hreppi og þar bjuggu þau allt til þess er Olafur veiktist fyrir tæpum 2 árum. Sveitin átti alltaf sterk ítök í Ólafi. Það var mikil gæfa fyrir Ólaf að eignast Olgu sem lífsförunaut. Hún stóð ávallt fast við hlið Ólafs í blíðu og stríðu og reyndist honum ómet- anleg stoð í veikindum hans. Um- hyggja hennar fyrir manni sínum og dugnaður í hans erfíðu veikind- um eru aðdáunarverð. Ég minnist margra góðra stunda á þeirra fallega heimili í Hjarðar- túni þar sem listsköpun og snyrti- mennska var óvenjulega mikil. Heimilið og garðurinn vakti hrifn- ingu þeirra er nutu þess að koma þar. Kynni mín af Ólafí urðu náin þegar hann réðst 1970 sem aðal- gjaldkeri til Kaupfélags Rangæinga en því starfí gegndi hann til 1974 ásamt oddvitastarfi Hvolhrepps. Hann var kosinn í hreppsnefnd Hvolhrepps 1962 og var oddviti í Hvolhreppi 1966-1974, oddviti og sveitarstjóri 1974-1982 og upp frá því sveitarstjóri allt til þess er hann veiktist skyndilega við skyldustörf haustið 1989. Á Ólaf hlóðust mörg trúnaðarstörf fyrir sveitarfélögin í héraðinu. Hann var um tíma í stjórn Útifundur verður haldin á Lækj- artorgi að göngu lokinni. Ræðumenn dagsins verða Ögmundur.Jónasson formaður BSRB og Sigurður Rúnar Magnússon hafnarverkamaður. Milli ræðumanna syngja nemendur frá Söngskóla Reykjavíkur, þau Ragnar Davíðsson og Auður Gunnarsdóttir, nokkur lög við undirleik Jóns Stef- ánssonar píanóleikara. Einnig kemur Bubbi Morthens fram og syngur nokkur lög. Fundarstjóri verður Elín Sigurðardóttir formaður Iðnnema- sambands íslands. Sambands sunnlenskra sveitarfé- laga, í Héraðsnefnd Rangæinga, stjórn Hitaveitu Rangæinga á fyrstu árum hennar og í fjöldamörg- um öðrum trúnaðarstörfum sem of langt mál yrði upp að telja. I öllum sínum störfum naut Ólaf- ur trausts og virðingar. Eins og gengur í svona starfí er ekki alltaf logn. Ólafí tókst ævinlega að ná sátt um þau mál sem honum voru hugleikin. Hann gætti hagsmuna síns sveitarfélags af mikilii alúð og stóð fastur á sinni skoðun þó á móti blési. Samstarf okkar Ölafs var alla tíð með miklum ágætum og sakna ég þeirra stunda þegar hlé var tekið frá önn dagsins og við tókum upp léttara hjal. Við Hvolhreppingar eigum honum mik- ið að þakka og að leiðarlokum vil ég koma á framfæri sérstöku þakk- læti frá þeim er störfuðu náið með honum að hreppsmálum nú hin síðari ár. Ég vil þakka Ólafi hjartanlega fyrir samfylgdina og votta ég og fjölskylda mín Olgu, sonum þeirra og ættingjum öllum okkar dýpstu samúð. Ágúst Ingi Ólafsson í dag er kvaddur hinstu kveðju vinur okkar, Ólafur Sigfússon frá Hjarðartúni í Hvolhreppi, en nú síðast til heimilis á Suðurgötu 76 í Hafnarfirði. Kynni okkar hófust sem skóla- og herbergisfélagar að Hólum í Hjaltadal 1943-1945. Þangað kom Óli frá Ey í Vestur- Landeyjum, en fæddur var hann í Reykjavík 29. september 1923, son- ur Sigfúsar Jónssonar og Maríu Þ. Árnadóttur. Óii hafði verið á Laugarvatni í héraðsskólanum þar. Á Hólum gekk Óla frábærlega vel, enda bæði fjöl- lesinn og fluggreindur. Að prófi loknu hélt Óli til Danmerkur en heimkominn hóf hann nám í mál- araiðn, lauk þar prófí og gerðist meistari, en þar, eins og í öðru, naut hann sín vel, bæði liðtækur og listfengur. 1950 staðfesti Óli ráð sitt. Hinn 4. nóvember giftust þau Óli og Guðrún Olga Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur, og það var mikið gæfuspor beggja, sem þann dag var stigið, og framúrskarandi ástúð og stuðning hefur Olga veitt manni sínum í langvarandi veikind- um hans. Þau hjón eignuðust fjóra syni, misstu þann elsta en hinir eru sr. Guðni Þór, prófastur að Melstað, Stefán, búsettur í Grundarfirði, og Sigurður, búsettur í Reykjavík, allir fjölskyldumenn. Barnabörnin eru orðin 10. Eftir skamma búsetu í Reykjavík reistu þau sér nýbýlið Hjarðartún í Hvolhreppi. Þar sköpuðu þau sér glæsilegt heimili og þar er einn stærsti og glæsilegasti skrúðgarður á landinu. Þar dvaldi Olga löngum við að breyta og bæta og ef ég man rétt vann hún, eða þau, a.m.k. 5 sinnum til verðlauna. Fljótlega hlóðust alls konar félagsstörf á Óla, sem eðlilegt var, þar sem maðurinn var óvenju fær á flestum sviðum. Hann var kosinn oddviti og síðan sveitarstjóri frá upphafi þess emb- ættis þar til í september 1989 að hann hneig niður á fundi og átti ekki afturkvæmt til starfa. Þó um nokkurt skeið væri vitað hvert stefndi, var það áfall að frétta látið hans og hugurinn reikar til baka, til fjölmargra samverustunda — þó alltof fárra, með þeim hjónum hér og þar en sérstaklega að Hjarðar- túni. Óli var skemmtilegur, hlýr og kíminn vel, hjálpsamur og greiðug- ur svo af bar. Með honum er geng- inn einn sá besti drengur sem ég hef kynnst, enda voru vinsældir Óla með fágætum. Hann hélt sambandi og vináttu við fjölda skólabræðra um 45-50 ára skeið og ég þekki dæmi þess að menn, sem hann þekkti löngu fyrir okkar kynni, hafa haldið uppi heimsóknum og sambandi til dagsins í dag. Blessuð sé minning Ólafs Sigfús- sonar. Guð blessi hann. Innilegustu samúðarkveðjur sendum við þér, Olga, og aðstandendum öllum. Bergur Ó. Haraldsson, Kristín L. Valdemarsdóttir. Hátíðarhöld á bar- áttudegi launafólks Sveit Gylfa Pálssonar sigraði I Halldórsmóti Bridsfélags Akureyrar. Talið frá vinstri: Gunnar Berg, Kristján Guðjónsson, Gylfi Pálsson og Helgi Steinsson. ___________Brids_____________ Arnór Ragnarsson Bridsfélag Kópavogs Sl. fímmtudag lauk þriggja kvölda Butler-tvímenningi. Hæstu kvöldskor náðu: A-riðiIl. ÓlínaKjartansd.-RagnheiðurTómasd. 42 B-riðill: Ragnar Bjömsson - Ármann J. Lárusson 44 C-riðill: Bjami Pétursson - Sævin Bjamason 43 Lokastaðan: RagnarJónsson —BemódusKristinss. 129 RagnarBjömsson-ÁrmannJ.Lárusson 129 Ólína Kjartansdóttir - Ragnheiður Tómasd. 122 ÓskarSigurðsson-ÞorsteinnBerg 118 GrimurThorarensen-VilhjálmurSigurðss. 115 Helgi Viborg—OddurJakobsson 109 JónAndrésson-GarðarÞórðarson 104 Sigriður Möller - Freyja Sveinsdóttir Síðasta keppni vetrarins verður þriggja kvölda vortvímenningur sem hefst næsta fimmtudag. Happdrætti Bridssambandsins Dregið hefir verið í happdrætti Bridssambandsins og komu eftirtal- in númer upp: 2310 - 346 - 3842 - 3235 - 2537 - 2177 - 1891 - 1392 - 3177 - 3914 - 4915 - 1942 - 3456 - 4503 - 35 - 1443 - 4132 - 2520. Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu BSI. Bridsfélag Suðurnesja Meistaramóti félagsins lauk sl. mánudag með sigri sveitar Loga Þor- móðssonar eftir hörkukeppni. Með Loga spiluðu Gísli Torfason, Hjálmtýr Baldursson, Arnór Ragnarsson, Einar Jónsson og Jóhannes Sigurðsson. Sveit Loga fékk samtals 181 stig. Sveit Fasteignaþjónustu Suðumesja hlaut 177 stig og sveit Eyjólfs Ey- steinssonar varð í þriðja sæti með 169 stig. Næsta mánudag hefst tveggja kvölda vortvímenningur og verður spilað í Flughóteli. Spilamennska hefst kl. 20 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bridsfélag kvenna Nú er hraðsveitakeppninni lokið, geysileg spenna var á toppnum en eitt stig skildi fyrstu og þriðju sveit en sigurvegarar urðu sv. Sigrúnar Pétursdóttur, ásamt henni spiluðu Sveinn Sigurgeirsson, Hrafnhildur Skúladóttir, Jörundur Þórðarson og Hallgrímur Hallgrímsson. Lokastaða: 1. Sv. Sigrúnar Pétursdóttur 2186 2. -3. Sv. Kristrínar Þórðardóttur 2185 2.-3. Sv. Ólínu Kjartansdóttur 2185 4. Sv. Hildar Helgadóttur 2068 stig. 5. Sv. Bjargar Pétursdóttur 2055 6. Sv. Rósu Þorsteinsdóttur 2049 Nk. mánudag koma Húnvetningar í heimsókn og spila sveitakeppni. Nán- ari uppl. veitir Ólína í síma 32968. Bridsfélag Akureyrar Sveit Gylfa Pálssonar sigraði í svo- kölluðu Halldórsmóti sem lauk fyrir nokkru. Auk Gylfa spiluðu í sveitinni: Helgi Steinsson, Gunnar Berg og Kristján Guðjónsson. Röð efstu sveita varð annars þessi: Gylfí Pálsson 206 Jakob Kristinsson 193 Stefán Vilhjálmsson 192 Grettir Frímannsson 183 Hermann Tómasson 175 Landsbankinn gaf verðlaunin í Hall- dórsmótið sem verið hefur fastur lið- ura í starfi BA í nokkur ár, en Hall- dór starfaði einmitt í Landsbankanum í áratugi. Keppnisstjóri var Albert Sigurðs- son. Frá Skagfirðingum, Reylyavík Þriðjudaginn 23. apríl mættu 16 pör til leiks. Spilað var í einum riðli og urðu úrslit (efstu pör): Guðlaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 264 Ólafur Lárusson - Þorleifur Þórarinsson 250 Ásthildur Sigurgísladóttir - Lárus Arnórsson 228 Anna Þóra Jónsdóttir - Rapar Hermannsson 226 Esther Jakobsdóttir—Aron Þorfinnsson 225 ÓliBjömGunnarsson-BjömKjartansson 221 Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35 og hefst spilamennska kl. 19.30. Allir velkomnir. Parakeppnin Þeim, sem ætla sér að vera með í parakeppninni, er bent á að skráningu lýkur á morgun, fimmtudag. Spilaður verður barometer í húsi Bridssam- bandsins 4.-5. maí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.