Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 53
leer íam .i HuoAauHivaiM aiaAuaviuoaoM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1991 Mk VI 53 þá munu örlög hans þegar hafa verið ráðin. Benedikt var fæddur í Reykjavík 11. janúar 1935. Að honum stóðu styrkir stofnar. Foreldrar hans voru Lárus H. Blöndal, alþingisskjala- vörður, og fyrri kona hans, Krist- jana Benediktsdóttir. Lárus var sonur Haralds ljós- myndara Lárussonar Blöndal sýslu- manns og konu hans, Margrétar Auðunsdóttur. Kristjana móðir Benedikts var dóttir Benedikts alþingisforseta Sveinssonar Víkings gestgjafa á Húsavík og Guðrúnar Pétursdóttur Kristinssonar, útvegsbónda í Eng- ey- Móður sína missti Benedikt 1955 en Lárus má nú í hárri elli sjá á bak syni sínum. Benedikt lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1954 og embaettisprófi í lögfræði frá Háskóla íslands lauk hann í janúar 1960. Hann lagði stund á sjórétt í London 1960-1961. Bene- dikt tók virkan þátt í félagslífi stúd- enta, var m.a. ritstjóri Ulfljóts og formaður Stúdentafélags Háskól- ans. Réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi öðlaðist Benedikt 1961 og fyrir hæstarétti 1966. Stundaði hann. málflutningsstörf frá 1961, um t'íma í félagi við frænda sinn, Benedikt Sveinsson hrl., en lengst af í félagi við Ágúst Fjeldsted hrl. og síðar einnig í félagi við Hákon Árnason hrl. Auk þess að reka málflutnings- skrifstofu starfaði Benedikt sem lögfræðingur Bæjarútgerðar Reykjavíkur 1960-1965. Benedikt voru falin margvísleg trúnaðarstörf. Hann átti sæti í Kjaradómi 1971-1988, þar af sem formaður frá 1977. Ennfremur átti hann sæti í Kjaranefnd 1976-1988 og þar af formaður frá 1978. For- maður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar var hann 1964- 1966, í stjórn Lögmannafélags ís- lands um nokkurra ára skeið og formaður þess 1971-1973. í stjórn Lífeyrissjóðs lögmanna var hann um skeið og um tíma í stjórn Stúd- entafélags Reykjavíkur og formað- ur þess 1970-1971. Hann átti sæti í stjórn Rauða kross íslands 1973- 1986 og þar af sem formaður frá 1982. Safnaðarfulltrúi í Dómkirkj- unni var hann 1975-1981. Auk þess átti Benedikt sæti í stjórnum nok- kurra hlutafélaga. Hann var í Landskjörstjórn frá 1983 og formaður hennar frá 1986. Benedikt var skipaður hæstaréttar- dómari í febrúar 1988 og gegndi hann því starfí til dauðadags. Benedikt var glæsilegur fulltrúi stéttar sinnar í Hæstarétti og mun margháttuð reynsla hans á löngum lögmannsferli ásamt yfirburða þekkingu og vitsmunum hafa verið honum gott veganesti í starfi hæstaréttardómara. Hygg ég, að dómsstörf hafi fallið honum einkar vel. Hann átti afar auðvelt með að greina kjarna hvers máls og var gæddur næmri réttlætistilfinningu. Benedikt var höfðinglegur í sjón og raun, hár vexti og karlmannleg- ur, framkoman prúðmannleg og viðmótið hlýtt. Ráðhollur var hann og sagði óhikað skoðanir sínar. Vin- fastur var hann og frændrækinn. Eg sá Benedikt síðast nokkrum vikum áður en hann lést, er ég heimsótti hann á Landspítalann. Þótt mjög hafi þá af honum verið dregið gerði hann að gamni sínu og gerði sem minnst úr veikindum sínum. Þannig brást hann við af karlmennsku og æðruleysi. Ekki renndi mig þá í grun, að þetta yrði síðasta skiptið sem við hittumst. Benedikt kvæntist 6. febrúar 1960 Guðrúnu Karlsdóttur, for- stjóra í Björnsbakaríi í Reykjavík, Kristinssonar og konu hans, Önnu Margrétar Jónsdóttur. Þau eignuð- ust þrjú börn, sem nú eru öll við nám, en þau eru Karl, giftur Stef- aníu Þorgeirsdóttur, Lárus, sambýl- iskona hans er Anna Kristín Jóns- dóttir, og Anna, og er sambýlismað- ur hennar Einar Þorvaldsson. Guðrún bjó manni sínum gott og fallegt heimili og voru þau hjónin góðir félagar og samhent í því að gæða heimilið hlýju og gleði. Þyngstur er harmur kveðinn að Guðrúnu, börnum þeirra og öldnum föður. Andspænis dauðanum mega orð sín lítils, en þó er huggun harmi gegn, að minningin um góðan dreng mun lifa. Þannig mun Benedikt Blöndal lifa í minningu ástvina sinna, þótt hann hverfi nú sjónum okkar. Blessuð sé minning hans. Jón Ingvarsson Benedikt Blöndal, lögmaður og hæstaréttardómari, er látinn. Ég starfaði sem fulltrúi hans í 12 ár og þekki því vel störf hans. Er það mér mikil ánægja að vitna um störf hans innan skrifstofu, en ég efast ekki um að aðrir munu verða til þess, að bera um hans víðtæku störf og áhugamál utan skrifstofu. Er ég réðst til starfa sem fulltrúi á lögmannsstofu föður míns og félaga hans, árið 1976, var Benedikt Blöndal rétt liðlega fertugur. Varð ég þess fljótt var, að margir starfs- bræður töldu Benedikt verðandi stórmeistara lögmannastéttarinnar. Ég kom í fyrstu ekki auga á að það væri svo. Var það vegna þess að Beneddikt, sem á þessum tíma, sem og ætíð síðar, hafði mikinn fjölda mála undir, vann ekki nógu skipu- lega að þeim. Varð það til þess að tímaþáttur málanna gekk stundum úr skorðum. Þá var mér ekki ljóst, að svona háttaði hjá flestum lög- mönnum landsins. En Benedikt Biöndal var að mörgu leyti á undan sinni samtíð og sá að þessi háttur á störfunum gæti ekki gengið til lengdar. Hann fór því á námskeið um skipulagningu í starfí. Á þessum árum, og reyndar alltaf síðar, vann Benedikt langan vinnudag. Oft var hann mættur til vinnu kl. 7 á morgnana, jafnvel kl. 6, og fór ekki frá vinnu fyrr en um kyöldmatarley- tið. Hef ég grun um að hann hafi einnig oft notað kvöldið til starfa, ýmist heima eða á fundum. Þessi mikla vinna og skipulagning starf- anna skilaði því, að innan við 45 ára aldur var Benedikt Blöndal orð- inn sá stórmeistari á lögfræðisvið- inu, sem búist hafði verið við. Jafn- framt var hann afkastamaður með ólíkindum. Oft varð ég vitni að því að Benedikt skrifaði og gekk frá greinargerðum í flóknum dómsmál- um eða flóknum lögfræðilegum álitsgerðum á klukkustundu, verk, sem tekið hefði margan manninn fleiri daga að vinna úr. Aldrei var þó slegið af kröfum um málfar, sem Benedikt lajgði mikið upp úr, og var meistari í. A tímabili annaðist Bene- dikt sjálfur uppgjör skrifstofunnar. Þegar hann settist niður til þeirra verka voru afgreidd hundruð mála á dag, en Benedikt var einnig af- burða reiknimeistari og bókhalds- maður. Eftir að Benedikt skipulagði störf sín missti hann aldrei mál úr böndum, þó málin væru mörg og stór, sem hann hafði undir, og á þessum árum voru honum falin mörg af stærstu og vandamestu málunum, sem upp hafa komið í þessu landi. Þó Benedikt væri mað- ur stóru málanna, áttu samt þeir, sem minna máttu sín, ætíð aðgang að honum og brást hann ekki trausti þeirra, frekar en hinna stærri aðila. Benedikt hafði töluvert þann hátt- inn á sínum lögmannsstörfum, að vinna þau á starfstöð skjólstæðing- anna. Hin síðari ár var hann mikið á fundum utanbæjar eða utanlands. Var hann því mikið utan skrifstof- unnar, og kom það óhjákvæmilega nokkuð niður á rekstri hennar, en það vó hann upp með sínum mikla dugnaði og aflahæfi. Benedikt hafði þó ákveðnar hugmyndir um hvernig reka mætti lögmannsskrifstofu með hámarksárangri, en hann hafði gott auga fyrir rekstri og skipulagningu, eins og flestu öðru. Vegna tímas- korts komust margar þeirra þó ekki í framkvæmd. Eitt af skipulags- verkum Benedikts á skrifstofunni, er hann kom að henni, var skipu- lagning spjaldskráa, málaskráa og skjalavörslu, og þjónar það kerfi fullkomlega í dag, 25 árum síðar. Þá skipulagði Benedikt tölvukerfi skrifstofunnar, sem enn dugir vel, og tileinkaði sér sjálfur notkun tölva, með fyrst mönnum. Skipu- lags- og rekstrarhugmyndir Bene- dikts eru ekki gleymdar og má búast við að ýmsar þeirra verði framkvæmdar. Mun þá áfram gæta áhrifa Benedikts Blöndal á rekstur þeirrar skrifstofu, sem hann helgaði mestan hluta sinnar allt of stuttu starfsævi. Benedikt Blöndal var ekki einungis afburða fagmaður og margra manna maki til verka, hann var drengur góður og mikill maður, víðsýnn og réttsýnn. Tel ég það mér mikinn heiður að hafa starfað með og mátt læra af slíkum manni. Guðrúnu, Karli, Lárusi, Önnu og allri fjölskyldu Benedikts Blöndal sendi ég samúðarkveðjur. Skúli Th. Fjeldsted Kveðja frá Sögufélagi Sögufélag var stofnað árið 1902 og að því stóðu fræðimenn í íslensk- um fræðum, lögfræðingar og aðrir áhugamenn um iðkun sagnfræði. Æ síðan hafa lögfræðingar tekið mikinn þátt í störfum Sögufélags, setið í stjórn og lagt þar margt gott til. Meðal þeirra var Benedikt Blöndal hæstaréttardómari. Hann hafði lengi haft þá venju að koma reglulega á afgreiðslu félagsins, skoða þar nýjar bækur og fylgjast að öðru leyti með störfum þess af miklum áhuga. Á árinu 1988 átti hann svo drjúgan þátt í því, að samstarf tókst milli Sögufélags og ritnefndar um útgáfu á afmælisriti fyrir Ármann Snævarr, en Benedikt var í þeirri nefnd. Er mér ljúft að votta að þetta samstarf tókst með ágætum. Var Benedikt jafnan tilbú- inn að gefa góð ráð um útgáfuna, líta á prófarkir eða taka annan þátt í undirbúningi afmælisritsins. Sjálf- ur skrifaði hann í það merka grein, sem nefnist: Eftir orðanna hljóð- an ... og fjallar um þann þátt í stjórnarskrá íslands, hvernig forseti „lætur ráðherra framkvæma vald sitt“. í framhaldi af samstarfínu um útgáfu afmælisritsins varð að ráði að Benedikt tæki að sér fundar- stjórn á aðalfundi Sögufélags vorið 1990, íyrir réttu ári. Auk venju- legra aðalfundarstarfa var rætt um tímaritið Sögu, sem átti þá 40 ára afmæli. Er bæði mér og fleiri fund- armönnum í minni hversu snjöll fundarstjóm Benedikts var og hversu honum var lagið að fá menn til umræðna um það sígilda áhuga- efni Sögufélagsfólks að fá fólk til þess að kynna sér tímaritið Sögu. Fyrir hönd Sögufélags færi ég aðstandendum Benedikts Blöndals innilegar samúðarkveðjur. Heimir Þorleifsson Prófessor Ólafur Lárusson gat þess í kennslustund í lagadeild, að lögfræðin væri stundum nefnd list hins góða og sanngjarna. Þessi orð, sem sögð voru á löngu liðnum dögum, komu í hug mér er ég heyrði lát Benedikts Blöndal, vegna þess hveijum mannkostum hann var búinn, enda naut hann mikillar virðingar. Lærdómur hans var mikill. Hann var glæsilegur maður í sjón og í raun. Ég átti því láni að fagna að eiga samvinnu við B'enedikt Blöndal í málafærslu- og dómarastörfum og raunar njóta samvista við hann á öðrum góðum stundum. Það var afar gott að vera í ná- vist Benedikts. Varfærni og háttvísi voru honum eiginleg í samskiptum við aðra menn. Honum var í blóð borið að hafa gát í nærveru sálar. Hvort sem um alvarleg viðfangsefni eða gamanmál var að tefla, kom í ljós mikill fróðleikur hans og einnig tilfinning fyrir hinu broslega. Öll hans tök á störfum þóttu mér sýna að þar væri að verki í senn gáfaður lærdómsmaður og listrænn smekk- maður. Það var því óvenjulega mik- ill fengur og raunar unun að því að starfa með og ræða við Benedikt um_ lagamál sem og önnur efni. Ég átti því láni að fagna að vinna með honum að verkefnum sem tengdust sérstaklega landi okkar, náttúru þess og sögu. Frá þeim dögum á ég ómetanlegar minning- ar. Þegar Benedikt var málafærslu- maður, var hann allra manna traustastur í starfí og mjög valinn til vandasamra mála. Þjóðin hefir misst góðan son. Það er sárt að sjá á eftir Benedikt Blönd- al í blóma lífsins. Sárast er það hans fólki, eiginkonu, börnum, öldn- um föður, systkinum og vanda- fólki. Megi minningin um hann verða þeim styrkur í sorginni. Ég minnist og sakna hæstarétt- ardómarans unga Benedikts Blönd- al og vil tileinka lífi hans áðurnefnd orð, „list hins góða og sanngjarna“. Vilhjálmur Árnason Fleiri greinar um Benedikt Blöndal bíða birtingar ogmunu birtastnæstu daga. [
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.