Morgunblaðið - 18.05.1991, Page 16

Morgunblaðið - 18.05.1991, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1991 Ráðgátan um stöðu ríkissjóðs I eftir Má Guðmundsson í framhaldi af stjórnannyndun hefur átt sér stað mikii umræða um stöðu ríkissjóðs, enda eðlilegt að hún sé metin við slíkar aðstæður. Um- ræðan hefur hins vegar verið lítt upplýsandi fyrir almenning og á margan hátt vanstilltari til að byija með en búast hefði mátt við. Það er auðvitað skiljanlegt að nýir stjórnarherrar reyni að mála dökka mynd af stöðu ríkisfjármála í upphafi ferils síns til að geta sýnt fram á meiri árangur af störfum sínum. Það kann hins vegar ekki góðri lukku að stýra ef menn eru svo áfjáðir í að sverta myndina að þeir hræði sjálfa sig meir en efni standa til og viðurkenni útgjaldatil- efni sem ekki liggur fyrir full könn- un á hvort hægt sé að komast hjá, að minnsta kosti í.einhveijum mæli. Það eykur heldur ekki skilning á viðfangsefninu að grauta öllu sam- an, hvort sem það er vandi ríkissjóðs í ár og framtíðarskuldbindingar eða Iánsfjárþörf ríkissjóðs, húsnæði- skerfisins og Landsvirkjunar, og búa síðan til úr þessu einhveijar stórar heildartölur sem enginn veit hvað merkja því samanburðinn vantar. Vandi ríkisfjármála Við mikinn vanda er að stríða í ríkisfjármálum og hefur verið um árabil, hvað sem líður mismunandi mati á því hver halli ríkissjóðs muni hugsanlega verða í ár að óbreyttu. Frá árinu 1983 hefur verið um meira eða minna samfelldan hallarekstur að ræða, einnig í góðærinu 1986 og 1987. Þessi vandi er fyrst og fremst pólitískur, þar sem ekki hafa verið teknar nauðsynlegar pólitískar ákvarðanir varðandi tekjur og gjöld ríkissjóðs sem tryggja jöfnuð í ríkis- íjármálum að meðaltali yfir hag- sveifluna, þannig að haili á ríkissjóði á samdráttarárum sé bættur upp með afgangi í góðæri. Allir vilja lægri skatta að öðru óbreyttu og allir tala almennt um lækkun út- gjalda en eru svo oft á móti einstök- um aðgerðum á því sviði. Það er hlutverk stjórnmálamanna að leysa þá mótsögn sem í þessu felst, en á það hefur skort. Vandi ríkisfjármálanna náði hám- arki árið 1988 þegar hallinn varð 2,8% af landsframleiðslu og var að mestu leyti fjármagnaður með er- lendum lánum eða yfirdrætti í Seðia- banka. Þrátt fýrir samdrátt í þjóðar- búskapnum tókst að draga verulega úr halla ríkissjóðs á næstu árum á eftir og varð hann 1,3% af lands- framleiðslu í fyrra og var að fullu fjarmagnaður innanlands. A sama tíma lækkaði hrein lánsfjárþörf rík- issjóðs úr 3,3% af landsframleiðslu í 2,1% af Iandsframleiðslu. Þetta eru ekki háar hallatölur á alþjóðlegan mælikvarða. Þannig nam fjárlagahallinn í iðnríkjunum 5,7% af landsframleiðslu 1983 og 2,6% af landsframleiðslu 1989, skv. upplýsingum Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins. Munurinn er hins vegar sá að íslenski fjármagnsmarkaðurinn er enn ekki eins þróaður og í mörgum öðrum iðnríkjum og ræður því verr við að fjármagna halla ríkissjóðs af þessari stærðargráðu án verulegs þrýstings á vexti. Það tókst að vísu á síðasta ári að íjármagna hallann að fullu innanlands, en þá er þess að gæta að lánsfjárþörfin var þó ekki meiri en 2,1% af landsfram- leiðslu, sparnaður jókst og lánsfjá- reftirspurn fyrirtækja var mjög lítil. Ekki var hægt að búast við að þetta endurtæki sig í ár og því var lögð áhersla á það við gerð fjárlaga að hallinn yrði minni í ár en í fyrra. Það er einnig nauðsynlegur liður í að varðveita efnahagslegan stöðug- leika að hallinn minnki samfara því sem hagvöxtur glæðist. Vandinn í ár Vandinn í ríkisfjármálum hér og nú er fyrst og fremst þríþættur. í fyrsta lagi er útlit fyrir að halli ríkissjóðs vérði meiri en gert var ráð fyrir við samþykkt fjárlaga, verði ekki gripið til aðgerða í tekju- og útgjaldahlið ríkisfjármálanna. I öðru lagi hefur innlend lánsfjár- öflun gengið veiT það sem af er ár- inu en á sama tíma í fyrra og stafar það af minni sparnaði almennings og fyrirtækja en í fyrra og því að vextir á ríkisvíxlum og spariskírtein- um hafa dregist aftur úr öðrum vöxt- um, einkum á húsbréfum, þrátt fyr- ir hækkun vaxta á ríkisvíxlum og spariskírteinum í upphafi ársins. í þriðja lagi eru svo horfur um innlenda fjáröflun ríkissjóðs taldar verri á árinu í heild vegna minni sparnaðar og aukinnar lánsfjáreft- irspurnar fyrirtækja og einstaklinga. Þær horfur eru þó langt í frá að vera vissar. Spár um peningalegan sparnað eru enn fremur ótraustar. Peningatölur fyrir aprílmánuð eru einnig fremur hagstæðar, þar sem aukning innlána og útgáfa verðbréfa á vegum bankanna var mun meiri en á sama tíma í fyrra og aukning almennra útlána minni. Það er ljóst, að hvaða ríkisstjórn sem tekið hefði við eftir kosningar hefði gripið til aðgerða af þessum sökum. Það er ekkert nýtt að grípa til aðgerða innan ársins til að sjá til þess að halli ríkissjóðs fari ekki úr böndum og að innjend fjáröflun ná- ist. Má í því sambandi nefna aðgerð- ir til að draga úr halla ríkissjóðs og auka innlenda lánsíjáröflun sem til- kynntar voru um mitt ár 1989, niður- skurð útgjalda vegna aukins haila í tengslum við kjarasamninga í febrú- ar 1990 og aðgerðir til að örva inn- lenda lánsfjáröflun um mitt ár 1990. Hver ríkisstjórnin er skiptir auðvitað máli varðandi það hvernig dregið er úr halla ríkissjóðs. Hver ríkisstjórnin er hefur einnig áhrif á hvort meiri áhersla er lögð á að draga úr haila fremur en að hækka vexti til að tryggja fjáröflun, hver áherslan er á tekjuöflun miðað við útgjaldanið- urskurð eða hvað það er sem skorið er niður. En frá hreinu hagstjórnar- sjónarmiði er niðurstaðan hin sama, þ.e. minni halli ríkissjóðs en ella hefði orðið og/eða meiri innlend lánsfjáröflun en ella hefði orðið. Mæling — áætlun — spá Það hefur komið mörgum spánskt fyrir sjónir að sama daginn geti birst þijár mismunandi tölur um halla rík- issjóðs. Blaðamenn spyija hvort hall- inn sé ekki bara einn. Auðvitað er hallinn bara einn þegar um er að ræða uppgjör liðinnar tíðar. Þá er verið að mæla það sem gerst hefur. En málið snýst ekki um það. Það er t.d. enginn ágreiningur um það á milli þeirra sem fjalla um ríkisfjár- mál að hallinn fyrstu þijá mánuði ársins var 6,6 milljarðar króna. Þær þijár hallatölur sem komu fram daginn fyrir stjórnarskiptin frá fjármálaráðherra, embættismönnum fjármálaráðuneytisins og Ríkisend- urskoðun fela hins vegar í sér áætl- anir um það sem kunni hugsanlega að gerast á árinu í heild að óbreyttu miðað við gefnar forsendur. Þá er því ekki einungis verið að mæla það sem gerst hefur í liðinni tíð heldur einnig að áætla hvað muni að óbreyttu gerast frá byijun maí til loka ársins. Siíkar áætlanir er auð- vitað hægt að byggja á mismunandi forsendum og ekkert óeðlilegt við það. Munurinn á niðurstöðunum þremur er að fullu skýranlegur, eins og nánar verðut' fjallað um hér á eftir. Engin af áætlunum þremur felur í sér hreinræktaða spá, þar sem lagt er mat á hvað líklegast sé að hallinn verði þegar árinu er lokið. Slík spá byggist ekki aðeins á spá um tekjur miðað við óbreytt skattalög og áætl- un útgjalda byggðri á þekktum og viðurkenndum útgjaldatilefnum heldur felur einnig í sér spá um það hvað stjórnvöld kunna að gera til að breyta þessum atriðum á þeim mánuðum sem eftir eru fram til ára- móta. Hvorki fjármálaráðuneytið né Ríkisendurskoðun geta leyft sér að birta slíkar spár. Þessar stofnanir verða eðli málsins samkvæmt að byggja á þeim ákvörðunum sem þegar hafa verið teknar' varðandi tekjur og gjöld. Útkoman fyrstu þrjá mánuði Þegar staða ríkissjóðs er metin er mikilvægt að gera greinarmun á því sem orðið er og því sem kann að verða í óvissri framtíð. Því er eðlilegt að byija á því að skoða út- komu ríkissjóðs fyrstu þtjá mánuði ársins. Tekjuhalli ríkissjóðs fyrstu þrjá mánuði ársins nam 6,6 milljörðum króna samanborðið við 3,7 milljarða króna í fyrra og er munurinn 2,9 milljarðar króna. Rúmlega helming af þessum mun má skýra með því að allt framlag ríkisins til Lánasjóðs íslenskra námsmanna var greitt í febrúar vegna tafa á afgreiðslu láns- fjárlaga. Hér er um tilfærslu á út- gjöldum innan ársins að ræða. Aðrir stórir liðir sem skýra mismuninn eru mikil fasteignaviðskipti og auknar Már Guðmundsson „Vandamálin sem birt- ast í útkomu fyrstu þriggja mánaða ársins eru annars vegar vand- amál húsnæðiskerfisins og hins vegar erfiðleik- ar við innlenda lánsfj- áröflun og tilheyrandi yfirdráttur í Seðla- banka, sem að sönnu er mikið vandamál. Vand- amál aukins rekstrar- halla og lánsfjárþarfar liggja því fyrst og fremst í horfum næstu mánaða eins og þær eru taldar vera að óbreyttu en ekki í því sem orðið er.“ útfiutningsbætur, en upphæð þeirra er ekki háð ákvörðunum í flármála- ráðuneytinu hveiju sinni heldur byggjast þær á samningi ríkisins við bændur sem gerður var vorið 1987 á grundvelli búvörulaganna frá 1985. Vegna þessara sérstöku þátta er raunhæfara að bera saman hreina lánsfjárþörf á milli ára. Hún var 7,9 milljarðar króna í ár samanborið við 6,2 milljarða í fyrra, þ.e. munurinn er 1,7 milljarðar króna. Þessi munur skýrist að langmestu leyti af því að ríkissjóður þurfti í jafnúar og febrú- Keisarakróna - Frittillaria imperialis Blóm vikunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 204. þáttur Á 16. öld var mikill garðyrkju- áhugi ríkjandi við austurrísku keisarahirðina og árið 1573 réð Maximilian keisari annar flæmska grasafræðinginn Charles del’Cl- use (Clusius) til starfa við hina keisaralegu garða í Vínarborg. Hann viðaði að sér plöntum víðs- vegar að og þrem árum síðar, árið 1576, fékk hann keisarakrón- una ásamt fleiri laukjurtum senda frá Konstantínópel og nefndi hana á latínu Corona Imperialis sem beinlínis þýðir keisarakróna en nafninu var síðar breytt. Heim- kynni jurtarinnar er í háfjöllum Indlands og Kasmír þar sem hún vex í um 3.000 m hæð. Hún hef- ur snemma borist til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs, einkum Persíu (íran) og var um skeið nefnd Lilium persicum (Persaiilja) því talið er að til hennar sé höfð- að á vissum stöðum í biblíunni og mynd hennar má sjá á gam- alli mynt frá þeim tíma að „Ágúst- us var keisari í Rómaborg og Heródes konungur í Gyðingal- andi“. Hún hefur líka breiðst furðu fljótt um Evrópu því aðeins 30 árum eftir komu hennar til Austurríkis nefnir Shakespeare hana í leikriti sínu „A Winthers Tale“. Sú skýring hefur verið fram sett á hinni öru útbreiðslu jurtar- innar að gullgerðarmönnum mið- alda hafi þótt gullbúnir laukar hennar líklegir til þess að vera í ætt við þann eðla málm svo sem vænta mátti af jafn tiginni jurt sem Corona Imperialis. Keisarakrónan er vissulega myndarleg og hátignarleg jurt. Stöngullinn er stinnur, um það bil metri á hæð, þéttblaðaður neðst með kransi af drúpandi klukkublómum í toppi, venjulega rauðgulum en til eru líka afbrigði með rauðum eða Ijósgulum blóm- um. Ofaná blómkransinum er svo brúskur af graskenndum grænum blöðum. Þetta einkennilega vaxt- arlag jurtarinnar ásamt hennar hátignarlega uppruna hefur orðið fyrri tíma skáldum að yrkisefni. Laukar keisarakrónunnar geta orðið afar stórir eða allt að því eins og barnshöfuð og Iykta þeir mjög illa. Líklega hverfur þó lykt- in við suðu því að í Austurlöndum voru laukarnir etnir með bestu lyst og eru kannski enn. Annars eru þeir sagðir eitraðir séu þeir etnir hráir. Varia er þó hætta á að nokkur fari, að leggja þá sér til munns hér á landi því nokkuð yrðu það dýr matarkaup. Keisarakrónan hefur nokkuð verið ræktuð hér (hefur stundum verið á haustlaukalista GI) og þrífst bærilega á hlýjum og skjól- góðum stað í garðinum sem ekki liggur undir vatni að vetrinum og vel nýtur sólar. Það sem mestum erfiðleikum veldur við ræktun hennar hér á landi er það hversu fljót hún er til á vorin og þarf því oftast að skýla henni fyrir vor- frostum. Hún blómstrar venjulega um mánaðamót maí/júní, stendur lengi í blóma og kemur síðan með volduga fræbauka sem prýða hana það sem eftir er sumars. Sá leiði misskilningur hefur ein- hvernveginn orðið landlægur hér að kalla Eldliljuna (Lilium bulbi- ferum) Keisarakrónu og eru þær frænkur þó ærið ólíkar í útliti og allri framgöngu. En þótt Eldliljan sé alls góðs verð skal þó „keisar- anur það sem keisarans er“. Ó.B.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.