Morgunblaðið - 24.05.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
Í13
stjórn Leiklistarráðs hafði lagt fram
aðrar tvær tillögur til fjárveitinga,
ef fjármagn sem veitt væri til starf-
semi leikhópanna, væri nær fjár-
þörf þeirra og áætlunum. Hljóðaði
önnur þeirra upp á 9,5 milljónir,
og nú voru fleiri kallaðir. EGG-leik-
húsið var ekki í þeim hópi. Hin til-
lagan og sú róttækasta hljóðaði upp
á 44 milljónir. í þeirri tillögu var
gert ráð fyrir að sjö leikhópar
fengju styrki til einstakra sýninga
og tveir leikhópar starfsstyrki til
eins árs. EGG-leikhúsið var ekki í
þessum hópi. Hér þótti þeim er rit-
ar þetta bréf fyrir hönd EGG-leik-
hússins taka steininn úr. Lítum
aðeins nánar á málin: Ef fjárveiting
til atvinnuleikhópa myndi hækka
um rúm 700% væru þó ekki til fjár-
magn til að styrkja það leikhús sem
lengst hefur hangið á horriminni
og getur sér orð víðar en nokkur
annar leikhópur íslenskur. Óhætt
er að áætla að fáir leikhúsáhuga-
menn geti talið upp níu íslenska
atvinnuleikhópa án þess að EGG-
leikhúsið komi í hugann, svo tæp-
lega er þetta af ókunnugleika þeirra
er hér stóðu að málum, Skoðum
málin aðeins nánar: Ef ofangreint
er stefnulýsing framkvæmdastjórn-
arinnar, sem full ástæða er til að
ætla, má þá gera ráð fyrir ef fjár-
veiting næstu árin verður að raun-
gildi, sem svarar 6 milljónum í dag
og henni jafnan skipt milli þriggja
leikhópa, að röðin komi fyrst að
EGG-leikhúsinu eftir 3 ár? Her er
gert ráð fyrir að EGG-leikhúsið
komi næst á eftir þeim 9 leikhópum
sem tilgreindir voru. Alls sóttu 14
leikhópar um fjárveitingu svo EGG-
leikhúsið getur alls eins verið það
sem ræki lestina, Ef svo er, má þá
EGG-leikhúsið fyrst vænta stuðn-
ings árið 1995?
í framhaldi af þessu leitum við
eftir að háttvirt framkvæmdavald
svari eftirfarandi spurningum sem
brenna á okkur:
Hver er ástæða þess að ekki er
rúm fyrir EGG-leikhúsið í björtustu
framtíðardraumum um aukna fjár-
veitingu til atvinnuleikhópa?
Er ætlunin að útiloka EGG-leik-
húsið frá fjárstuðningi næstu árin?
EF svo er, hversu lengi?
Höfundur er stofnandi
EGG-Ieikhússins, leikari og
leikstjóri.
Lionsklúbbur Selfoss:
♦
Vík:
Gaf eina millj-
ón til pípu-
orgels í
Víkurkirkju
vík.
SÖNGLÍF hefur verið mikið í
vetur í Mýrdalnum. Auk kirkju-
kórs hafa starfað hér í vetur
kvennakór og tvöfaldur kvartett.
Söng- og tónlistarskemmtun var
haldin í vor í Vík tii söfnunar vegna
kaupa á pípuorgeli í Vikurkirkju og
söfnuðust 250.000 kr.
Ketill Sigurjónsson orgelsmiður í
Forsæti er að smíða orgelið og mun
það verða sett í kirkjuna á næsta
sumri.
Orgelið mun kosta um 5,5 millj.
kr. en að auki eru fyrirhugaðar í
sumar lagfæringar á Víkurkirkju
og verður þá meðal annars skipt
um gólf • í kirkjunni. Timburgólf
kirkjunnar verður rifið og kemur
steinsteypt flísalagt gólf í staðinn.
Vel hefur gengið að safna til
þessara framkvæmda þó að ennþá
vanti nokkuð á að endar nái saman.
Sérstaklega skal nefna gjöf frá
Ólafi Jónssyni heiðursborgara Vík-
ur en hann gaf eina milljón króna
í orgelsjóðinn til minningar um Sig-
ríði dóttur sína sem var organisti í
Víkurkirkju um þijátíu ára skeið
en hún lést 9. apríl 1990.
Sjálfur var Ólafur hringjari kirkj-
unnár í fimmtíu ár, allt frá vígslu
hennar, en hann er 96 ára og vel
ern. Ólafur hefur ætíð sýnt kirkju
sinni einstaka alúð eins og þessi
gjöf ber vott um.
- R.R.
Stórmöf til Sjúkra-
hússSuðurlands
Selfossi.
LIONSKLÚBBUR Selfoss af-
henti Sjúkrahúsi Suðurlands veg-
lega gjöf, blóðrannsóknartæki
Coulter T-850, til nota á rann-
sóknarstofu sjúkrahússins. Verð-
mæti tækisins eru rúmar 1,6
milljónir króna.
Lionsmenn hafa áður gefið
sjúkrahúsinu veglegar gjafir. Þær
eni íjármagnaðar með framlagi úr
líknarsjóði klúbbsins sem aflar fjár
meðal annars með útgáfu auglýs-
ingablaðs fyrir jólin. Ólafur Sig-
urðsson formaður klúbbsins og
Gunnar B. Gunnarsson formaður
líknamefndar sögðu það keppikefli
klúbbsins að það fé sem safnað
væri rynni til uppbyggingar á sjúkr-
astofnunum og kæmi þannig íbúum
héraðsins til góða.
Hafsteinn Þorvaldson fram-
kvæmdastjóri lýsti því við móttöku
gjafarinnar hversu gjafir klúbbsins
og annarra hefðu komið sér vel
fyrir stofnunina en til samanburðar
má nefna að fjárveiting sjúkrahúss-
ins til tækjakaupa er ein milljón á
þessu ári.
— Sig. Jóns.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Meinatæknar, framkvæmdastjóri og yfirlæknir ásamt fulltrúum gef-
enda.