Morgunblaðið - 24.05.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
17
Guðfinna Guðmunds-
dóttír frá Finnboga-
stöðum - Minning
Fædd 18. október 1895
Dáin 8. maí 1991
Enn vorar á norðurhveli jarðar,
— staðfesting þess að Guð gleymir
ekki sköpun sinni. Hugurinn reikar
heim til æskustöðva okkar á Akur-
eyri, þar sem morgunsólin gyllir
Hlíðarfjall og Súlur.
Þessi mynd blasir við út um
gluggann á hjúkrunarheimilinu
Seli, þar sem hún Gyða amma okk-
ar liggur í rúminu sínu, komin á
síðasta áfangastað. Á þilinu gegnt
rúminu hennar er önnur mynd, þar
sem kvöldsólin gyllir Finnbogastað-
afjall, og við látum hugann reika
heim í Víkina hennar, Trékyllisvík
á Ströndum.
Það vorar — vorið kemur úr sjón-
um, æðarfuglinn, krían, eggin,
dúnninn, — öll þessi bláhvíta birta.
í byijun aldarinnar vex úr grasi
systkinahópurinn á Finnbogastöð-
um, börn Guðmundar Guðmunds-
sonar bónda, oddvita og hákarla-
formanns og konu hans Þuríðar
Eiríksdóttur, konunnar sem alltaf
átti húsrými, mat og opinn faðm,
ekki bara fyrir sín eigin börn, held-
ur líka hin börnin sem þau heiðurs-
hjón tóku í fóstur.
Og þannig vaxa þau úr grasi
systkinin, við leik að legg og skel
á bæjarhólnum og í fjörunni. Að
alast upp við harða náttúru, á heim-
ili ástríkra foreldra hefur gefið hið
dýrmætasta veganesti, nægjusem-
ina og gleðina.
Á Ströndum þótti tilhlýðilegt að
ungir menn og konur hleyptu heim-
draganum, hyrfu jafnvel til fjar-
lægra landa til að víkka sjóndeildar-
hringinn. Böm Guðmundar og Þu-
ríðar áttu því láni að fagna að njóta
tilsagnar föðursystur sinnar Elísa-
betar, sem lært hafði ijómabústjórn
í Noregi, og kenndi börnunum ekki
bara að draga til stafs heldur allt
til „átjánkaflakversins" og döns-
kunnar.
Öll hleyptu þau líka heimdragan-
um systkinin sem upp komust. Elsti
bróðirinn, GuðmundUr, fór í Kenn-
araskólann, afi okkar, Þórarinn, fór
í Bændaskólann á Hólum, Þorsteinn
í Héraðsskólann að Laugarvatni,
amma dvaldi veturlangt í Reykjavík
og kynnti sér hannyrðir, matargerð-
arlist og sótti kvöldskóla, Karítas
fór í Kvennaskólann í Reykjavík og
Guðrún dvaldi einn vetur í Kaup-
mannahöfn.
Já, víst er það að gleðin hefur
ríkt á heimilinu á Finnbogastöðum.
Öll lærðu þau systkinin að þekkja
nótur fyrir tilstilli Guðmundar, elsta
bróðurins, sem lært hafði sönglist-
ina í Kennaraskólanum, og oft var
safnast saman í kringum orgelið til
að taka lagið. Sungið var í fjórum
röddum upp úr „Fjárlögunum" eða
sálmasöngbókinni, og svo lögin
hans Guðmundar.
Þessi ijársjóður einstaklinganna
átti eftir að verða fjársjóður samfé-
lagsins, því amma var um margra
ára skeið organisti i Ámeskirkju.
Það hefur eflaust verið mesta
gæfa ömmu okkar að mega ganga
bróðurdóttur sinni, Huldu Þórarins-
dóttur, móður okkar, í móðurstað,
— gæfa mömmu, — gæfa okkar
allra.
„Amma“, það var hún Gyða
amma á Finnbogastöðum, sem við
heimsóttum þegar svo ung að við
munum vart fyrstu kynnin, —
amma, sem var strax komin til
okkar með brúnu ferðatöskuna
sína, þegar veikindi vom í ijölskyld-
unni, — farin að búsýsla og ala
okkur upp, því hún var siðvönd
kona og jafnframt bam síns tíma,
„rómantískra" aldamóta.
Allt sitt ævistarf átti amma á
Finnbogastöðum. Þorsteinn bróðir
hennar og Pálína kona hans tóku
við búi, bjuggu myndarbúi og frá
heimili þeirra andaði hlýju, sem
bauð alla velkomna. Hjá þeim Pöllu
og Steina vorum við systkinin í
sumardvöl og þar var gott að vera,
enda er hann orðinn stór hópur
þeirra sem áttu sumardvöl í bernsku
á Finnbogastöðum.
Heimili þeirra Pöllu og Steina var
skjólið, öryggið og athvarfið hennar
ömmu, hún vann heimilinu, hennar
staður var við símann, en á Finn-
bogastöðum var símstöð í áratugi,
alit þar til sjálfvirkt símasamband
komst á.
Og árin líða, amma er orðin há-
öldruð, eins og hún á kyn til, en
heilsan er tekin að bila. Þá er hlut-
verkum gjarnan snúið við. Dóttir,
sem í fyrstu bernsku hefur þegið
skjól hjá móður, veitir móður sinni
skjól í ellinni. Og þarna er hún
amma í „horninu" hjá þeim foreldr-
um okkar, við hliðina á afa okkar,
bróður sínum.
Á hjúkrunarheimilinu Seli skín
kvöldsólin inn um gluggann, en á
myndinni á þilinu gegnt rúminu
hennar ömmu er sólin gengin til
viðar — og aðeins fyrir höndum
hinsta förin heim í Trékyllisvík, —
heim í vorið.
Að leiðarlokum kveðjum við elsku
ömmu, með þakklæti fyrir allt.
Ari og Gyða Þuríður
GULLMOLAR
Nýtt á íslandi! „Gala44 kvöldverður,
skemmtun og ball til fjáröflunar vegna
Olympíuleika þroskaheftra á Hótel Islandi á
sunnudagskvöldið 26. maí.
Glæsiviðburður samkvæmislífsins!
Landslið matreiðslumeistara, listamanna og
skemmtikrafta mæta á staðinn. Hvar ætlar þú að vera?
Veislustjórar: Edda Andrésdóttir og Stefán Jón Hafstein.
Hótel ísland opnar kl. 18:00
Boðið verður uppá fordrykkinn "Gulldropa" og borðhald hefst kl: 19:00. stundvíslega.
Einstakur ólympíumatseðill:
Klúbbur matreiðslumeistara frá bestu veitingastöðum landsins kemur saman og töfrar fram
fjórréttaðan kvöldverð, sem á engan sinn líkan hér á landi:
Kofareyki laxarós meö kavíar og fylllu eggi*
Jurtakrydd-grafinn lambavöðvi meö hcitri vinagrett sósu.
Ólympíuhumur að hmtti Kanadamannu með sjúvardýralríói.
Eldristaðir Gntlmolar með ferskum óvöxtum, vaniUuís og Snbnyonsósu.
Maraþon skemmtidagskrá:
Helstu listamenn og gleðigjafar þjóðarinnar leggja sitt að mörkum án endurgjalds
til að gera kvöldið ógleymanlegt og bjóða upp á ótrúlega dagskrá:
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir, Björgvin Halldórsson, Jónas
Dagbjartsson og Jónas Þórir, Pálmi Gunnarsson, Veáslutríóið: Anna Guðný Guðmundsdóttir
og Sigurður Ingvi Snorrason, Egill Olafsson, Asa Hlín Svavarsdóttir og Jóhann G.
Jóhannsson, Tríó Reykjavíkur: Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór
Haraldsson, Reynir Jónasson, Savanna tríóið; Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og
Þórir Baldursson, Monika Abendroth og Gunnar Kvaran, Þorsteinn Gauti Sigurðsson,
Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigríður Beinteinsdóttir og Stjórnin, Ríó tríó; Agúst Atlason,
Helgi Pétursson, Olafur Þórðarson og félagar, Helena Jónsdóttir og Hrafn Friðbjörnsson
frumflytja dans við "Nocturne" Gunnars Þórðarsonar, Anna og Ragnar Islandsméistarar
í Suðuramerískuin dönsuin, Óinar Ragnarsson, fulltrúar Spaugstofunnar og hver
veit nema fleiri bætist í hópinn.
Sérstakir gestir:
Paul Anderson framkvæmdastjóri Evrópusamtaka Special Olympics, ráðherrar og fleiri
velunnarar þroskaheftra verða sérstakir gestir kvöldsins.
Dansleikur:
Að lokinni dagskrá verður stiginn dans við valda Vínartónlist til kl. 01:00.
Verð aðgöngumiða kr. 10.000
Miðinn er um leið viðurkenning fyrir veittan stuðning. Fordrykkur, kvöldverður og
skemmtidagskrá innifalið í miðaverði. Engin önnur fjársöfnun fer fram á hátíðinni.
Miðasala:
Miðasala og borðapantanir á skrifstofu Iþróttasambands Fatlaðra í síma 686301 og á Hótel
Islandi í síma 687111. Niðurröðun borða ræðst af röð pantana.
Einstœður viðburður í íslensku samkvæmislífi!
Láttu þig ekki vanta!
• Grænmetismarkaður - allt grænmetl ó tilboðsverði.
• Og margt, margtfleira.
Laugardag opið 9:00 -16:00
Sunnudag opið 10:00-16:00
ÖRKIN 2030 - 45