Morgunblaðið - 24.05.1991, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1991
Undirskriftasöfnun Grænfnðunga:
100.000 Svisslending-
ar vilja hvalveiðibann
Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
GRÆNFRIÐUNGAR í Sviss hafa
safnað hundrað þúsund undir-
skriftum gegn hvalveiðum og af-
hent þær Thomasi Althaus, full-
trúa landsins á fundi Alþjóðahval-
veiðiráðsins, sem verður haldinn
Bretland:
Launahækk-
un gagnrýnd
Lundúnum. Reuter.
BRESKI seðlabankastjórinn Rob-
in Leigh-Pemberton sætti gagn-
rýni hægri- og vinstrimanna á
breska þinginu í gær er kunngert
var að laun hans hafa hækkað um
17%. Aðeins viku áður hafði hann
ráðlagt launþegum að stilla laun-
akröfum sínum í hóf til að verð-
bólgan færi ekki upp úr öllu valdi.
Arsskýrsla bankans var gefin út
í gær og leiddi í ljós að árslaun
bankastjórans hækkuðu um 22.400
(2,3 milljónir ÍSK) pund í 155.000
pund (16,2 milljónir ÍSK). „Þetta er
hneyksli og hræsni!“, sagði einn af
þingmönnum Verkamannaflokksins,
Doug Hoyle. Anthony Beaumont-
Dark, þingmaður íhaldsflokksins,
sagði að sú staðreynd að Leigh Pem-
berton gæti fengið tvöfalt hærri laun
ef hann ynni hjá einkafyrirtæki
skipti ekki máli.
í Reylgavík 27. til 31. maí. Græn-
friðungar skora á sendinefnd
Sviss að mótmæla hugmyndum um
nýja hvalveiðikvóta skörulega og
hvetja hana til að beita sér fyrir
langvarandi hvalveiðibanni.
Svissneska nefndin hefur sagt að
hún muni ekki standa í vegi fyrir
takmörkuðum hrefnuveiðum ef rann-
sóknir sýni að stofninn þoli þær og
rétt verði að þeim staðið. Althaus
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær að undirskriftasöfnun Grænfrið-
unga breytti engu þar um: „Við
munum ekki mótmæla hrefnuveiðum
ef viss skilyrði eru uppfyllt en málið
James Baker
hefur enn ekki verið brotið til mergj-
ar.“
Svissnesku Grænfriðungarnir
söfnuðu undirskriftunum á sex vik-
um. Þeir sendu félagsmönnum sínum
undirskriftalista, auglýstu í tímarit-
um og ferðuðust um landið með
uppákomu frá 5. til 18. maí.
Hjálmar Hannesson, sendiherra
íslands í Sviss með aðsetur í Bonn,
sagði í gær að 100.000 væri ekki
hátt hlutfall af svissnesku þjóðinni
og það væri auðvelt að safna svo
mörgum undirskriftum. „En þetta
er mikill fjöldi samt,“ sagði hann.
„Svissnesk yfirvöld hafa tekið
ábyrga afstöðu í þessu máli og ég á
ekki von á að þessi söfnun hafí áhrif
hana.“
Grænfriðungar í Þýskalandihéldu-
„hvaladag“ fyrr í þessum mán-
uði. Fjöldi mótmælabréfa sem berst
í sendiráðið í Bonn jókst í framhaldi
af því. „Það berst alltaf slangur af
bréfum þar sem hvalveiðum er mót-
mælt en nú berast um 10 bréf á
dag,“ sagði Hjálmar. „Orðaiagið í
nýjustu bréfunum er jákvætt. íslend-
ingum er þakkað fyrir að hafa hætt
hvalveiðum og vonast er til að íslensk
stjórnvöld haldi þeirri stefnu áfrarn."
Hjálmar sagði að bréfritarar hefðu
ekki í hótunum og starfsmenn Græn-
friðunga í Hamborg hefðu ekki haft
samband við sig. Þjóðveijar hafa enn
ekki tekið opinbera afstöðu til
hrefnuveiða en Hjálmar átti frekar
von á að þeir myndu styðja þær ef
óyggjandi rök mæla með þeim.
Reuter
*
Astareldur í ellinni
Minnie Munroe, sem er 102 ára gömul, tekur við blómvendi úr hendi
Dudleys Reids, er verið hefur ástvinur hennar í fjögur ár. Reid bað
um hönd hennar og játaði Minnie bónorðinu. Reid er 84 ára gamall
en bæði eiga þau heima á elliheimili norðan við Sydney í Ástralíu.
Minnie óttast ekki að aldursmunurinn verði þeim nokkur fjötur um
fót. Börn, bamaböm og bamabarnaböm brúðhjónanna verða við-
stödd hjónavígsluna.
Eþíópía:
V opnahlésbeiðni
stjómvalda hafnað
Addis Ababa. Reuter.
STARFANDI forséti Eþíópíu, Tesfaye Gabre Kidan, bað uppreisn-
armenn í landinu að leggja niður vopn og lýsti sig viljugan til að
eftirláta þeim einhver völd í útvarps- og sjónvarpsávarpi sem sent
var út seint á miðvikudag en uppreisnarmenn, sem taldir eru vera
í aðeins 30 km fjarlægð frá höfuðborginni, Addis Ababa, höfnuðu
beiðni hans.
Baker gagnrýnir Israela
Jerúsalem, Washington. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fór í fyrrakvöld
hörðum orðum um landnám Gyðinga á hemumdum svæðum ísraela
og sagði það helsta þröskuldinn fyrir varanlegum friði í Mið-Austurl-
öndum. Talsmaður Yitzhaks Shamirs, forsætisráðherra Israels, sagði
í gær að gagnrýni Bakers hefði engin áhrif á landnámið.
Baker lét þessi orð falla á fundi og tryggt þeim húsnæði.
með þingmönnum fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, sem ákveður að
öllum líkindum á næstunni hvort
ísraelum verði veitt frekari efna-
hagsaðstoð vegna flutnings sov-
éskra Gyðinga til ísraels: Israelar
þurfa að taka tíu milljarða dala lán
til að geta tekið á móti Gyðingunum
Yossi Ben-Aharon, ráðuneytis-
stjóri ísraelska_ forsætisráðuneytis-
ins, sagði að ísraelsstjórn gæti á
engan hátt komið í veg fyrir að
Gyðingar næmu land á Vestur-
bakka Jórdanar. Hann vísaði því á
bug að landnámið hindraði friðar-
samkomulag og sagði að Sýrlend-
ingar og önnur arabaríki ættu sök-
ina á því að friðarumleitanir Bakers
hafa ekki borið árangur, þar eð
arabar hefðu neitað að undirrita
friðarsamning við Israela og aflétta
viðskiptabanni á þá.
George Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að Bandaríkjastjórn
væri ekki að reyna að beita ísraela
þrýstingi í þessu máli. Hann tók
ekki jafnt djúpt í árinni og Baker
og sagði aðeins að landnámið auð-
veldaði ekki friðarumleitanir
Bandaríkjamanna.
„Ég ætla að vinna að þvi að koma
á friði og binda endi á þjáningar
eþíópsku þjóðarinnar,“ sagði Tesfa-
ye í .ávarpi sínu. Hann lét heldur
ekki standa við orðin tóm því hann
lét 187 pólitíska fanga úr haldi í
gær. Hundruð óttasleginna íbúa
Addis Ababa urðu við beiðni Te-
sinni til að biðja fyrir friði.
Talsmaður Eþíópsku byltingar-
hreyfíngarinnar, EPRDF, Asefa
Mamo, sagði í viðtali við Reuter-
fréttastofuna að hreyfíngin myndi
tryggja að mannfall í höfuðborginni
yrði í lágmarki. Þetta þýddi þó ekki
að sveitir hennar myndu halda sig
utan við borgina.
Vestræn sendiráð hafa beint því
STEINAR WAAGE
Fætur okkar eru grunnur að vellíðan okkar,
ara| Fítness heilsuskórnir stuðla að því.
Loftbólstraður sóli
fró hæl að tóbergi
Laut fyrir hæl sem
veitir stuSning.
Ekta korkblanda
(einangrar).
Tógrip sem
örvar
blóðrósina.
Ilstuðningur
sem hvílir.
Stamur innsóli.
FJOLBREYTT URVAL TEGUNDA
Microcellu sóli, sem dregur úr þreytu,
virkar dempandi.
VerndiS fæturna
andið skóvaliÖ
til þegna sinna að þeir yfirgefí
landið en brottflutningur hefur enn
ekki verið fyrirskipaður.
Enda þótt uppreisnarmenn viður-
kenni ekki núverandi stjómvöld og
segi þau vera handbendi Mengistus,
ætla þeir engu að síður að halda
til samningaviðræðna við þau í Lon-
don, sem haldnar eru fyrir milli-
göngu Bandaríkjamanna og heljast
á mánudag.
í gær var unnið að því í Eþíópíu
að fjarlægja ýmislegt sem minnti á
14 ára valdatíð Mengistus. Myndir
af honum voru teknar niður og í
Addis Ababa var byijað var að
bijóta niður stóra styttu af Vladímír
Lenín, sem var gjöf frá Sovétmönn-
um til Mengistus á 10 ára valdaaf-
mæli hans.
EB:
Kohl vill að-
ild Austur-
Evrópuríkja
Edinborg. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, hvatti til þess í gær að
fyrrum kommúnistaríkjum í
Austur-Evrópu yrði í framt-
íðinni veitt aðild að Evrópu-
bandalaginu.
Kohl var í heim-
sókn í Edinborg og
lét svo um mælt
að leiðtogar Evr-
ópubandalagsins
ættu ekki að leggj-
ast gegn aðild
ríkja eins og Ung-
veijalands, Tékkó-
slóvakíu og Pól-
lands þegar þau uppfylltu skilyrði
þau sem bandalagið setur fyrir inn-
göngu. Hann ræddi einnig samein-
ingu Þýskalands, sagði að hana
töluverðan ávinning fyrir önnur
Evrópuríki, og hvatti til aukinna
ijárfestinga frá aðildarríkjum
bandalagsins í austurhluta landsins.
Þá fór hann lofsamlegum orðum
um John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og sagði stefnu hans
varðandi pólitískan og efnahagsleg-
an samruna Evrópuríkja „opna og
~uppbyggilega“.