Morgunblaðið - 24.05.1991, Side 21
EB- OG EFTA-FRETTIR
MOPGUNBLAÐIÐ FÖSTUOAGUR 2.4. MAÍ 1991
21
Jón Baldvin Hannibalsson:
Krafan um veiðiheimildir er
frágangssök fyrir Islendinga
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra sagði í Vínar-
borg í gær að héldi Evrópu-
bandalagið (EB) kröfunni um
veiðiheimildir í íslenskri lögsögu
til streitu í samningaviðræðun-
um um Evrópska efnahagssvæð-
ið (EES) yrði það frágangssök
af hálfu íslendinga. Útilokað
væri að íslendingar gætu fallist
á slíkar kröfur. Jón Baldvin
sagði jafnframt að ráðherrar
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) hefðu ítrekað á fundi
sinum sameiginlega andstöðu við
þessar kröfur samningamanna
EB.
Utanríkisráðherra sagði að ekki
væri ljóst við hvað Islendingar
myndu sætta sig í tollaívilnunum
en kvað óformlegar tillögur EB frá
í febrúar ganga allt of skammt.
Samkvæmt þeim lækkuðu toll-
greiðslur af íslenskum sjávarafurð-
um til EB um 10%, við það væri
ekki hægt að sætta sig. Jón Bald-
vin sagði hins vegar ljóst að ekki
væri verið að tala um allan tollnúm-
eralista GATT í þessu sambandi.
Nú væri beðið eftir tilboði frá EB
og forseti EFTA ráðsins hefði á
fundinum gefið til kynna að slíkt
tilboð væri væntanlegt innan
skamms. Jón Baldvin sagði að ís-
lendingar vildu leggja áherslu á að
nota fyrirhugaðan þróunarsjóð
EFTA fyrir fátækari ríkin í EB til
að byggja upp atvinnulíf á þeim
svæðum innan EB sem nú treysta
á fiskveiðar án þess að hafa að-
gang að fiskimiðum.
Fyrirvarar íslendinga vegna
fjárfestinga í sjávarútvegi og
fiskiðnaði samþykktir
í viðauka við yfirlýsingu sameig-
inlegs ráðherrafundar EFTA og
EB í Brussel 13. maí er birtur fyrir-
vari íslendinga við fjárfestingar
útlendinga í sjávarútvegi og fisk-
iðnaði á íslandi. Jón Baldvin
Hannibalsson sagði að þáð væri
sameiginlegur skilningur forseta
EFTA ráðsins og ráðherraráðs EB
að sá fyrirvari stæði athugasemda-
laust. Bent hafí verið á að Jón
Baldvin hafí lesið fyriivarann upp
á fundinum í Brussel og engar at-
hugasemdir verið gerðar við hann.
íslendingar byggja fyrirvarann á
þeirri röksemd að ekki sé verið að
semja um sjávarútveg í viðræðun-
um um EES, þess vegna sé eðlilegt
að fjárfestingum í þessari grein
verði haldið utan við samninginn.
Jón Baldvin Hannibalsson
ísiendingar hafa sömuleiðis bent á
að óhugsandi væri að hleypa aðiium
sem njóti umtalsverðra styrkja inn
á þennan fjárfestingamarkað. Evr-
ópubandalagið hefur fyrir sitt leyti
lýst því yfir að það sé tilbúið til
að lúta íslenskri löggjöf um þessi
efni ef til kæmi.
Mikil vinna bíður
samningamanna á
lokasprettinum
Wolfgang Schussel, viðskipta-
ráðherra Austurríkis, sem nú situr
í forsæti í EFTA-ráðinu, sagði í
Vínarborg í gær að mikil vinna
biði samningahópanna á lokaspretti
samninganna um EES. Schussel
sagði að viðræðurnar hefðu verið
gífurlega umfangsmiklar og nefndi
sem dæmi að rúmlega eitt þúsund
embættis- og stjórnmálamenn frá
báðum samningaaðilum hefði kom-
ið við sögu. Hann kvaðst bjartsýnn
■ ÓSLÓ - Líkur eru á að út-
sendingar bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar CNN um kapalkerfí í
Noregi verði ekki stöðvaðar. Út-
varpsmálanefnd tók ákvörðun um
bann við útsendingunum nýlega á
þeirri forsendu að áfengisauglýs-
ingar á stöðinni brytu gegn norsk-
um lögum. Talsmaður stjórnar-
flokks jafnaðarmanna í menningar-
málum á þingi, Grete Knudsen,
hefur beðið menningarmálaráða-
á að éinhv.er niðurstaða lægi fyrir
í Salzburg eftir íjórar vikur, lögð
yrði áhersla á að ganga frá sem
flestum lausum endum á þeim tíma.
Schussel kvaðst telja að það væri
raunsætt að reikna með því að
samningurinn verði samþykktur til
bráðabirgða á þeim fundi. Hann
sagði að þrátt fyrir mismunandi
hagsmuni hafí EFTA-löndunum
tekist að halda órofa samstöðu í
gegnum samningaviðræðurnar og
á því yrði framhald. Sameiginlegur
ráðherrafundur EFTA og EB 13.
maí hefði leyst samningaviðræð-
urnar undan oki smárra og stórra
atriða sem hefðu þvælt viðræðurn-
ar. Schussel sagði að endanlega
hlyti sérhvert aðildarríki EFTA að
gera upp við sig hvort það teldi
aðild að EES þjóna hagsmunum
sínum eða ekki, samningurinn yrði
formlega gerður sem tvíhliða samn-
ingur á milli einstakra EFTA-landa
annars vegar og Evrópubandalags-
ins hins vegar. Utanríkisráðherr-
arnir voru allir spurðir að því á
blaðamannafundi hvort til álita
kæmi að gera samninginn þó svo
að eitthvert aðildarríkja EFTA
hafnaði honum. Það var samdóma
álit ráðherranna að best væri að
EFTA stæði saman að samningum
en að öðru leyti svöruðu þeir ekki
spurningunni. Schussel sagði ljóst
að útiloka mætti þann möguleika
að eitthvert EFTA-land stæði utan
við samþykktir EES í framtíðinni
þannig að viðbót við samninginn
gilti einungis fyrir hluta af EFTA-
ríkjunum. Hins vegar kvað. hann
möguleika á að beita bæði fyrirvör-
um og ákvæðum um aðlögunartíma
ef um yfirgnæfandi hagsmuni væri
að ræða.
Seinni hluta dagsins í gær ræddu
ráðherrarnir samskipti EFTA við
ríkin í Mið- og Austur-Evrópu. í
dag verður fundur leiðtoga EFTA-
ríkjanna með'Jacques Santer for-
sætisráðherra Lúxemborgar og
Henning Christophersen úr fram-
kvæmdastjórn EB.
neytið að kanna málið betur og
sagðist í síðustu viku hafa fengið
jákvæð svör. „Gildandi lög duga
ekki gagnvart raunveruleika fjöl-
miðlaheimsins," sagði Knudsen. í
lögunum segir að banna megi aug-
lýsingar en ekki tekið fram að það
skuli gert. Gríðarleg óánægja var
með ákvörðun útvarpsmálanefndar-
innar og stanslausar símhringingar
hafa verið til stjórnmálamanna
vegna málsins.
MANNUÐ & MENNING
Sumarnámskeið fyrir börn
í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði,
Eskifirði, Seyðisfirði og Akureyri.
LEIKUR - NÁM - STARF
Dagskrá námskeiðanna byggist á blöndu af gamni
og alvöru. Grundvallarmarkmið Rauða krossins eru
túlkuð í leik og starfi. Kennd skyndihjálp fyrir börn
og fyrirbygging slysa, fjallað um samskipti fólks, vin-
áttu, ólíka menningarheima, umhverfismál, farið í
gróðursetningarferð og vettvangsferðir.
Námskeiðin standa yfir í eina og tvær vikur frá kl.
9.00-16.00.
Upplýsingar og skráning ísíma 91-3 67 22 á skrifstof-
utíma.
Ungmennahreyfing Rauða kross íslands.
Rauði kross íslands
NÝKOMNIR
Quesence dömuskór
Stærðir 31/2 til 71/2. Verð kr. 4.060,-
adidas
Quasar herraskór
Stærðir 6 til 12. Verð kr. 3.890,-
útilíFt fflS]
Glæsibæ - Sími 82922
FLUCLEIDIR
Upplýsingar í síma 690300 (alla 7 daga vikunnar) á söluskrifstofum okkar, hjá umboðsmönnum um land allt og ferðaskrifstofum.
*Stgr. á manninn m.v. 4 í bíl í b-flokki (2 fullorðna og 2 börn, 2-1 lára).