Morgunblaðið - 24.05.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞROTTIR FÖSTUDAGÚR
24. MAI 1991
41
SMAÞJOÐALEIKARNIR I ANDORRA
Júdómennimir
eru bjartsýnir
Dregið var um það í gær hveijir voru mótheijar íslensku jódómann-
anna í fyrstu glímu. Halldór Hafsteinsson situr yfir í fyrstu um-
ferð, en mætir manni frá San Marínó eða Mónakó í 2. umferð í 86
kg flokki.
Sigurður Bergmann mætir Igoir Muller frá Lúxemborg í +86 kg
flokki. Gunnar Jóhannesson mætir Skouroumounis frá Kýpur í 60 kg
flokki og mótheijar hinna þriggja, Gauta Freys Sigmundssonar (78
kg), Inga Eiríks Kristinssonar (71 kg) og Baldurs Stefánssonar (65
kg) verða menn frá San Marino.
Júdómennirnir eru allrr bjartsýnir og vonast eftir að komast áfram.
Martha Ernstsdóttir.
Martha örugg með
gullverðlaunin
í3.000 m hlaupi
Martha Emstsdóttir var öraggur sigurvegari í 3.000 m hlaupi,
þar sem hún hafði mikla yfirburði. Hún kom í mark á 9:41,93
mín. og var hún 150 metrum á undan þeirri stúlku sem kom önnur
í mark. „Þetta var ekki góður tími hjá mér,“ sagði Martha eftir hlaup-
ið. Það er þreytandi að hlaupa í þunna fjallaloftinu hér í Andorra,"
sagði Martha, sem á best 9:24 mín. á vegalengdinni.
Sigurborg
settimet
Sigurborg Gunnarsdóttir, 29
ára blakstúlka úr Breiða-
bliki, setti landsleikjamet þegar
ísland vann Andorra, 3:1, í
gær. íslenska liðið mætir Kýpur
í undanúrslitum. Sigurborg lék
sinn 35 landsleik.
„Þetta var lélegur leikur hjá
okkur. Við verðum að leika
miklu betur gegn Kýpur, ef við
eigum að vinna,“ sagði Sigurður
Hafsteinsson, þjálfari blaklands-
liðsins.
Carl Eiríksson er
elsti keppandinn
Carl J. Eiríksson, sem keppir í skotfimi, er elsti keppandinn a'
Smáþjóðaleikunum í Ándorra. Hann er 61 árs, fæddur 28. desemb-
er 1929. Sá yngsti er hins vegar Audrey Forzym, sundmaður frá
Mónakó, sem er fæddur 9. apríl 1979 og er því 12 ára.
Ragnheiður Run-
ólfsdóttir með met
í 100 m baksundi
íslandsmetféllu einnig í 4 x 200 m skriðsundi
RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir setti nýtt Íslandsmet í 100 m bak-
sundi á Smáþjóðaleikunum í Andorra í gær. Hún synti á 1:07,94
mín., sem er bæting um tvö sekúndubrot. Metið var einnig
Smáþjóðamet, en hún átti sjálf gamla metið —1:08,7 mín. Ragn-
heiður hefur tryggt sér tvenn gullverðlaun í Andorra, en hún
vann til sex gullverðlauna á Kýpur fyrir tveimur árum.
Ragnheiður varð því fyrst til að
setja íslandsmet hér. Tvö önn-
ur met féllu — bæði í 4 x200 m
skriðsundi. Karlasveitin (Magnús
Már __ Olafsson,
Gunnar Ársælsson,
Amar Freyr Olafs-
son og Eðvarð Þór-
Eðvarðsson) synti á
og hafnaði í þriðja
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
fráAndorra
8:13,34 mín.
sæti.
Kvennasveitin
(Bryndís Ólafs-
dóttir, Ingibjörg Arnardóttir, Helga
Sigurðardóttir og Arna Þ. Svein-
björnsdóttir) syntu á 8:58,34 mín.,
sem er einnig Smáþjóðamet, en
sveitin varð í. fyrsta sæti. Gamla
metið átti ísland einnig; 9:04,26
mín., sem var sett 1989.
Þijú íslandsmet hafa nú verið
sett, en sundmennirnir settu sjö
met á Smáþjóðaleikunum á Kýpur
fyrir tveimur árum.
M ALLIR starfsmennirnir, sem
vinna við fijálsar íþróttir koma frá
Spáni. Það eru starfsmenn sem
koma til með að vinna við Ólympíu-
leikana í Barcelona 1992. Spánveij-
ar eru að þjálfa það upp og þá
komu þeir með öll þau tæki sem
unnið er með hér.
MJÓN Oddsson meiddist á baki í
langstökkskeppninni og Ólafur
Guðmundsson meiddist á hné. Ólaf-
ur varð fimmti með 6,76 m stökk
og Jón varð áttundi með 6,59 m
stökk.
MEgill Eiðsson og Gunnar Guð-
mundsson komust í úrslitakeppnina
í 200 m hlaupi, en þeir náðu ekki
að vinna tii verðlauna. Egill hljóp
á 21,72 sek., en Gunnar á 21,74
■ KARLALIÐIÐ í blaki tapaði í
gær, 0:3, fyrir Andorra.
MLINDA Stefánsdóttir er yngsta
leikkonan í landsliði kvenna í körfu-
knattleik, 18 ára. Hún er yngsti
keppandi íslenska íþróttahópsins,
sem er í Andorra.
MGEIRLAUG Geirla ugsdó ttir,
sem meiddist á hné í 100 m hlaupi
kvenna á fýrsta keppnisdegi, vonast
eftir að geta keppt í 4 xlOO m boð-
hlaupinu á laugardaginn. „Ég hef
fengið sprautur og er öll að skána,“
sagði Geirlaug, sem haltrar.
MANNA María Sveinsdóttir lék
sinn tuttugasta landsleik í körfu-
knattleik gegn Lúxemborg í gær.
Hún er leikjahæst stúlknanna í lið-
inu og hefur skorað mest.
■ Pétur Hrafn Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri KKÍ var óvænt út-
nefndur í tækninefnd vegna körfu-
knattleikskeppninnar í Andorra.
Nefndin er skipuð þremur mönnum.
Fyrsta málið sem þeir tóku fyrii
voru ólögleg vegabréf tveggja leik-
manna, frá Möltu og Kýpur. Reglur
segja að menn þurfi að vera búsett-
ir í þrjú ár seamfellt í því landi sem
þeir keppa fyrir.
^^OORRA
Eggert fékk gull
og Pétur bronsið
„ÞAÐ er óþolandi að keppa í
þessum kasthring. Maður er
eins og skautahlaupari út um
allan hring,“ sagði Eggert
Bogason, sem varð sigurveg-
ari í kringlukasti á Smáþjóða-
leikunum. Eggert kastaði
lengst 54,16 m.
„Þetta var lélegt og ekkert til
að hrósa sér yfir,“ sagði Eggert,
sem hefur kastað lengst yfir 63 m.
Eggert átti íjögur lengstu köst
keppninnar — 53,68 m, 52,56 m,
54,16 m og 52,68 m. Pétur Guð-
mundsson tók einnig þátt í
kringlukastskeppninni og vai-ð
þriðji með 48,92 m, sem hann
kastaði í sínu fyrsta kasti. „Ég
keppi yfirleitt ekki í kringlukasti,
en það var gaman að fá verð-
launapening," sagði Pétur Guð-
mundsson, sem hélt til Barcelona
í morgun ásamt bróður sínum
Andrési, en þaðan flugu þeir til
Malaga, en þeir keppa á móti á
Grenada um helgina.
Hlæ ei!
Þegar íslenska liðið lék gegn
Kýpur, fékk Torfi Magnús-
son dæmt á sig tæknivíti fyrir
að hlæja. „Við vorum búnir að
láta nokkrum sinnum í okkur
heyra, þegar Kýpurmenn tóku
of mörg skref að okkar mati og
vorum ósáttir með það. Þegar
Glenn Thomas, aðstoðarmaður
minn, sagði við mig: „Ef hann
tekur annað skref, er hann kom-
inn til Spánar," gat ég ekki ann-
að en fara að skellihlæja," sagði
Torfí.
Torfi
Körfustúlk-
ur töpuðu
Kvennalandsliðið í körfuknattleik hafnaði í þriðja
sæti í kvennakeppninni. Liðið tapaði, 38:63, fyr-
ir Lúxemborg í gær. Anna María Sveinsdóttir skoraði
flest stig, 15. Björg Hafsteinsdóttir skoraði 8, Linda
Stefánsdóttir 6, Guðbjörg Norðfjörð 5 og Hafdís
Helgadóttir 4.