Morgunblaðið - 09.06.1991, Page 12

Morgunblaðið - 09.06.1991, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 1991 standa undir afskriftum og fjár- magnsgjöldum.' Þrátt fyrir að öll tilgreind markmið næðu fram að ganga yrði Álafoss eftir sem áður fjárhagslega veikt fyrirtæki og vanmegnugt til að taka á sig skakkaföll sem kynnu að verða í rekstrinum. Telur stjórn fyrirtæk- isins helstu áhættuþætti vera efna- hagsþróun innanlands og hið háa hlutfall á sölu fatnaðar til Sovét- ríkjanna en það nemur yfír 40% af heildarsölu fyrirtækisins. Stofnun nýs fyrirtækis um rekstur Álafoss, án undangengins gjaldþrots, er þrautalending en hefur þann kost að sú starfsemi sem fyrirtækið stendur fyrir leggst ekki niður og hægt væri að halda kaupendum að vörum fyrirtækisins áfram og þeir þyrftu ekki að leita annað með kaup sín svo framar- lega sem hægt væri að sýna fram á að hið nýja fyrirtæki væri trú- verðugt. Þar að auki mætti ætla að nýtt fyrirtæki hefði aðeins áhuga á að nýta sér styrkleika í rekstri Álafoss eins og þeir blasa við hugsanlegum ijárfestingaraðil- um og sneiða_ hjá veikleikum. Gjaldþrot Álafoss hefði víðtæk áhrif í tveimur bæjarfélögum, Ak- ureyri og Mosfellsbæ, svo og á uliariðnaðinn í Iandinu í heild. Verði fyrirtækið gjaldþrota munu opinberir sjóðir tapa gífurlegum ijármunum og einhveijar líkur eru á að sú starfsemi sem fyrirtækið stendur fyrir leggist niður og verði ekki endurvakin. Þá er ótalið at- vinnuleysi starfsfólks fyrirtækisins og afleiðingar gjaldþrotsins á fjár- hag fyrrgreindra bæjarfélaga. Erfiðleikar frá upphafi Allt frá því að Álafoss hf. var stofnað 1987 með samruna gamla Álafoss og ullariðnaðardeildar Sambandsins hefur fyrirtækið átt í miklum erfiðleikum. Við samrun- ann var stuðst við úttekt sem hið virta ráðgjafarfyrirtæki Boston Consulting Group framkvæmdi en niðurstöður BCG voru í stórum dráttum þær að hið nýja fyrirtæki væri lífvænlegt og ætti framtíð fyrir sér. Eftir á að hyggja voru þetta fullbjartsýnar framtíðarspár. Mistök BCG láu einkum í því að þeir miðuðu við raungengi ársins 1986 og sáu ekki fýrir þær miklu breytingar sem urðu á raungeng- inu til hins verra fyrir fyrirtækið 1987 og 1988 (sjá línurit). Sam- hliða þessu varð mikili samdráttur á mörkuðum fyrirtækisins ytra og var það raunar þróun sem hófst 1984, Bandaríkjamarkaðurinn nánast hrundi og erfíðleikar komu upp á markaði í Sovétríkjunum. Þar að auki sat Álafoss hf. uppi með miklar eignir við stofnun, eignir sem illmögulegt reyndist að selja og það var augljóst mál að við óbreyttar aðstæður myndi fyrirtækið aldrei standa undir þeim skuldum sem hvíldu á því. Árin 1988 nam tap á rekstrinum rúm- lega milljarði króna og árið 1989 nam tapið rúmiega 800 milljónum króna. Tapið í fyrra er síðan um 300 milljónir króna þannig að tap- reksturinn þessi þijú síðustu ár nemur ríflega tveimur milljörðum króna. Þess ber að geta hvað tapið 1988 og 1989 varðar að þar er um mikla niðurfærslu á eignum að ræða. Þegar litið er á þróun útflutn- ings hjá Álafossi á árunum 1987 til 1990 kemur í ljós að hann hef- ur hrapað úr tæpum 15 milljónum SDR, eða 1,2 milljörðum kr., árið 1987 og í tæplega 9 milljónir SDR eða um 730 milljónir í fyrra. Og ef skoðuð er þróunin á Bandaríkja- markaði á ullarfatnaði tímabilið 1985 til 1989 kemur í Ijós að markaðurinn hefur dregist saman úr 8 milljónum SDR í 2 milljónir SDR. Sökum þessarar þróunar hafa allar markaðsáætlanir Ála- foss brugðist og er það stór hluti af undirrót þess vanda sem fyrir- tækið hefur átt við að glíma. Tvær „björgunartilraunir“ Frá því Álafoss hf. var stofnað hafa tvær „björgunartilraunir“ verið gerðar til að koma rekstrin- Páll Kr. Pálsson forstjóri lóntæknistofnunar: „Ef horft er á veltu og skuldir er ljóst að veltan stóð aldrei undir skuldun- um.“ um í viðunandi horf en báðar hafa mistekist. Sú fyrri var gerð á árinu 1989 og fólst m.a. í fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins ásamt auknum fjárframlögum frá eigendum þess í formi hlutafjár og kaupa á eignum. Sambandið lagði til um 200 milljónir í formi yfírtöku á viðskiptakröfum, inn- lausnar hlutaíjár og aukningar hlutafjár. Framkvæmdasjóður lagði til sömu upphæð og Sam- bandið í sama formi auk þess að kaupa fasteign í Mosfellsbæ að upphæð 264 milljónir króna. Ríkis- stjómin aftur á móti lagði til tæp- ar 190 milljónir með ýmsum ráð- stöfunum og stuðlaði að því að Atvinnutryggingarsjóður lánaði 200 milljónir en Hlutabréfasjóður keypti 100 milljónir af hlutafé. Þessar ráðstafanir dugðu ekki til og í lok janúar 1990 barst iðn- aðarráðherra hjálparbeiðni frá Ála- foss ásamt sameiginlegum tillög- um fyrirtækisins, banka og hlutað- eigandi sjóða um úrlausnir. Ólafur Ólafsson forstjóri segir að þær ráðstafanir sem gerðar voru í fyrra til hjálpar fyrirtækinu hafí skilað sér seint og illa og því ekki komið að tilætluðum notum. Helstu ráð- stafanir á þessum tíma vora að ríkisstjórnin veitti Álafossi víkjandi lán að upphæð 82,5 milljónir króna til markaðsaðgerða í Bandaríkjun- um í samvinnu við Hildu hf. og gaf eftir leigu á Hekluhúsinu árin Póróur Friójónsson sljórnar- formaóur Framkvæmda- sjóós: „Ekki- réttlætanlegt að leggja meira fé í fyrirtækið." 1990-92 en húsið háfði ríkissjóður keypt af Álafossi 1989. Leigan nam 24 milljónum. Þá var veitt 60 milljónum króna víkjandi lán til ijárhagslegrar endurskipulagn- ingar og lofað skuldbreytingu hjá Atvinnuleysistryggingarsjóði að upphæð samtals 300 milljónir króna. Við þessa síðustu „björgunartil- raun“ rétti rekstur Álafoss sig viss- ulega úr kútnum og tapið á síð- asta ári minnkaði í tæpar 300 milljónir króna úr um 800 milljón- um árið áður. Ef horft er á tap án afskrifta hinsvegar er batinn mun meirí, það var 607 milljónir 1989 en féll í 140 milljónir í fyrra. Og þegar litið er á rekstrargjöld umfram tekjur á milli áranna 1989 og 1990 kemur í ljós að mismunur- inn hefur minnkað úr 282 milljón- um króna niður í 67 milljónir króna. En þetta dugir engan veg- inn til. Eftir báðar þessar tilraunir voru ráðamenn bjartsýnir á_ að nú væri málið komið í höfn. í viðtali við Morgunblaðið í september 1990 sagði Ólafur Ólafsson forstjóri m.a.: „Ef okkur tekst vel til við framkvæmd þeirra áætlana sem við vinnum eftir þá mun Álafoss hf. ná að rétta sig við og verða blómlegt fyrirtæki sem við getum verið stolt af.“ Og í viðtali við Morgunblaðið í maí í fyrra sagði Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra að Ólafur Ólafsson forstjóri Ál- afoss: „Takmörkuðum tilgangi þjónar að tjalda til einnar nætur með rekstur fyrirtækisins.“ helstu lánardrottnar og aðstand- endur málsins telji aðgerðirnar þá nægilegar til að koma Álafossi iyrir vind og skapa svigrúm til að koma á raunveralegum úrbótum í rekstri og markaðsátaki. Lánardrottnar seinþreyttir Kaup Framkvæmdasjóðs á verk- smiðjuhúsinu í Mosfellsbæ komu til framkvæmda í apríl í fyrra og þá gerði stjórn sjóðsins sérstaka bókun um málið. í þeirri bókun segir m.a.: „Stjórnin samþykkti að verða við tilmælum ríkisstjórnar- innar um kaup verksmiðjuhússins enda næðust viðunandi samningar um leigugreiðslur eða sem stjórnin taldi eðlilegra, að Framkvæmda- sjóður lánaði Álafossi hf. andvirði eignarinnar þannig að gera mætti upp áhvílandi skuldir. Stjórn sjóðs- ins byggir þessa ákvörðun ein- göngu á eindregnum tilmælum rík- isstjórnarinnar því í raun er frek- ari fyrirgreiðsla sjóðsins við Ála- foss hf. sjóðnum ofviða." Þórður Friðjónsson stjórnarfor- maður Framkvæmdasjóðs segir að stjórnin hafi gert þessa bókum sökum þess að hún taldi ekki rétt eða eðlilegt að sjóðurinn hætti meira af fé sínu til þessa fyrirtæk- is. „Við höfum þegar afskrifað allt hlutafé okkar í Álafossi að upphæð tæpar 500 milljónir króna, þetta lán vegna verksmiðjuhússins stendur nú í um 324 milljónum króna og við eram í ábyrgðum fyrir um 90 milljónum í viðbót. Þetta er of mikið,“ segir Þórður. „Við getum alls ekki mælt með því að hið opinbera leggi meira fé í þetta dæmi, slíkt er ekki réttlæt- anlegt i Ijósi þeirrar stöðu sem fyrirtækið er í.“ Vonlaust dæmi frá upphafi? Sú spurning hefur vaknað hvort stofnun Álafoss hf. hafi ekki verið vonlaust dæmi frá upphafi og að sjá hefði mátt fyrir þá þróun sem síðan varð í rekstri fyrirtækisins. Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðntækni- stofnunar telur svo vera og segir að sér sýnist sem svo _að ef horft er á veltu og skuldir Álafoss árið 1987 verði ekki séð hvernig fyrir- tækið átti að standa undir skuldun- um. „Gróflega mælt voru upphafs- stærðir í þessu dæmi þær áð heild- areign nam tveimur milljörðum, heildarskuldir 1.300 milljónum og veltan var áætluð um einn milljarð- ur. Ef horft er á veltu og skuldir er ljóst að veltan stóð aldrei undir skuldunum," segir Páll. Hann seg- ir einnig að framlegð hefði verið áætluð um 30% af veltu og gekk það eftir en það rétt nægði til að standa undir föstum kostnaði, ekk- ert hefði verið til upp í fjármagns- kostnað og afskriftir. Hvað títtnefndar „björgunartil- raunir" varðar segir Páll að þær hafi ekki verið lausn á hö'fuðvand- anum, það er að afkoman stóð aldr- ei undir rekstrinum og því hafi fyrirtækið siglt aftur og aftur í þrot þrátt fyrir þær. „Ég hef áður bent á að björgunaraðgerðir sem felast í að breyta skammtíma- skuldum í langtímalán hafa ekkert að segja ef fyrirtækið heldur áfram að tapa. Skuldirnar bara vaxa,“ segir Páll. Páll segir að hluti vanda Álafoss sé fólginn í því að fyrirtækið hefur aldrei átt neitt aflögu í rannsóknir og markaðsþróun og hafi af þeim sökum ekki getað brugðist rétt við samdrættinum á markaði sínum. Aðspurður um hvort hann sjái ein- hveija lausn á vandanum segir Páll að hann telji best að koma fyrirtækinu úr ríkiseign í hendur einstaklinga, reyna að seíja það eða jafnvel gefa það ef enginn kaupandi finnst. „Það væri mikill skaði að mínu mati að ætla að nota gömlu úrræðin einu sinni enn því þau virka ekki,“ segir Páll. Ullariðnaðurinn á framtíð Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss tók við fyrirtækinu í lok ársins 1989 og honum hefur tekist að rétta hag þess nokkuð á síðasta ári. Hann segir hinsvegar að þegar í fyrra hafi verið ljóst að rekstur Álafoss hafi ekki getað gengið til lengdar að öllu óbreyttu. Og í greinargerð hans til stjórnar kem- ur fram að þær aðgerðir sem gerð- ar hafa verið frá stofnun fyrirtæk- isins séu því marki brenndar að ekki var gert meira en nauðsynlega þurfti til að forða fyrirtækinu frá gjaldþroti. Það ætti að vera öllum fyllilega ljóst að Álafoss verður ekki rekið áfram í óbreyttri mynd og að takmörkuðum tilgangi þjón- ar að tjalda til einnar nætur með rekstur fyrirtækisins. Þótt vandi Álafoss sé lýsandi dæmi um þann vanda, sem ulla- riðnurinn í heild hefur átt við að búa undanfarinn áratug og sést best á að pijóna- og saumastofum hefur fækkað úr 52 og í 13 milli áranna 1985 og 1991, eru margir sem hafa trú á framtíð þessa iðnað- ar. Einn þeirra er Ágúst Eiríksson forstjóri Árbliks. Hann segir að ullariðnaðurinn standi ekki og falli með Álafossi og líf sé í nokkrum smærri fyrirtækjum áþessum'vett- vangi. Hvað Árblik til dæmis varð- ar hefur söluaukningin á síðasta ári numið 40%. „Ég tel að Ála- fossi þyrfti að skipta í smærri ein- ingar en ekki hafa þetta allt á einni hendi eins og verið hefur,“ segir Ágúst. „Það er ekki spurning í mínum huga að ullariðnaðurinn á framtíð fyrir sér ef rétt er á málun- um haldið.“ Ullarvöruútflutningur Á gengi SDR hinn 20. júlí ár hvert. >82 ’83 ’84 ’85 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 Afstæður launakostnaður mið- aður við raungengi krónunnar 120 1980=100 '81 '82 '83 '84 '85 '86 '87 '88 '8 f-J 1988 1989 1990 o -200 -400 -000 -800 -1000 -1200 Tap Alafoss Talíð í milljónum kr. á verðlagi hvers árs. Miðað er við byggingarvísitölu 31.12.1990.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.