Morgunblaðið - 14.06.1991, Page 20
I!20
MORGUNBLADIÐ PÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 1991
Uppgjör á pólska þinginu:
Tókst ekki að hnekkja
neitunarvaldi Walesa
Varsjá. Reuter.
LECH Walesa, forseti Póllands, vann nokkurn sigur á þingi í gær
þegar því tókst ekki að hnekkja neitunarvaldi hans gegn umdeiidum
drögum að nýjum kosningalögum. Það voru fyrrverandi kommúnist-
ar og klofningshópur úr Samstöðu, sem vildu samþykkja þau en
skorti nokkur atkvæði á aukinn meirihluta.
Þingmenn kommúnistaflokksins
fyrrverandi eru enn margir á pólska
þinginu enda verða fyrstu eiginlega
fijálsu kosningarnar í Póllandi ekki
fyrr en á hausti komanda. Fyrir
nokkru voru lögð fyrir þingið drög
að nýjum kosningalögum og gerðu
þau ráð fyrir, að þingmenn væru
ýmist kosnir meirihlutakosningu
eins og gerist í breskum einmenn-
ingskjördæmum eða hlutfallskosn-
ingu. Walesa sagði hins vegar, að
drögin væru óskýr og óskiljanleg
almenningi og myndu þar að auki
hafa í för með sér marga flokka
og veikt þing. Þess vegna beitti
hann neitunarvaldi gegn þeim.
Til að hnekkja neitunarvaldi for-
Reuter
Hungurvofan tek-
ur 30 böm á dag
Að minnsta kosti þijátíu börn
svelta í hel á degi hveijum í
flóttamannabúðum í austur-
hluta Eþíópíu við landamærin
að Sómalíu. Hjálparstofnunum
hefur ekki tekist að koma mat-
vælum til þeirra vegna erfiðra
samgangna. Myndin er af van-
nærðu bami sjúga bijóst móður
sinnar í búðunum. Hætta er á
að átta milljónir manna verði
hungurmorða í landinu berist
þeim ekki matvæli þegar í stað.
seta þarf aukinn meirihluta á þingi,
tvo þriðju atkvæða, en í gær fóru
leikar þannig, að 123 studdu Wal-
esa, 257 voru á móti, 16 sátu hjá
og eitt atkvæði var ógilt. Það vant-
aði því sjö atkvæði upp á, að neitun-
arvaldinu yrði hnekkt en í fyrra-
kvöld gaf Walesa í skyn, að hann
kynni að leysa þingið upp ef það
snerist gegn honum.
Þingið verður nú að koma sér
saman um ný kosningalagadrög en
andstæðingar Walesa halda því
fram, að tíminn fram að kosningum,
sem eiga að vera í október, sé of
naumur vegna þess, að ný lög þarf
að staðfesta fyrir 27. júní nk.
Stuðningsmenn hans eru á öðru
máli og telja unnt að breyta drögun-
um á tveimur dögum.
Reuter
íbúar Leníngrad deila um hvort breyta eigi nafni borgarinnar í Sankti Pétursborg. Eins og sjá má á
spjaldinu fyrir aftan þá má sjá að borgin hét Skt. Petersburg (þýska) frá 1703, Petrograd frá 1914
og Leníngrad frá 1924 en spurningamerki sett við framtíðina.
Kosningarnar í Rússlandi:
Meíríhlutí kjósenda vill kenna
Leníngrad við Pétur postula
Bandamenn Borís Jeltsíns kjörnir borgarstjórar Moskvu og Leníngrad
Leníngrad. Reuter, The Daily Telegraph.
MEIRIHLUTI kjósenda í Leníngrad greiddi atkvæði með því að nafni
borgarinnar yrði breytt í Sankti Pétursborg þrátt fyrir að Mikhaíl
Gorbatsjov Sovétforseti hefði hvatt til þess að hún yrði áfram kennd
við Lenín. Allt benti einnig til þess að róttækir umbótasinnar, banda-
menn Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, næðu kjöri sem borgarstjórar
Leníngrad og Moskvu, tveggja stærstu borga Sovétrílqanna, í kosning-
unum á miðvikudag.
Þegar öll atkvæði höfðu verið tal-
in í 20 af 22 kjördeildum í Len-
íngrad voru 55% kjósenda fylgjandi
nafnbreytingunni en 43% á móti.
Rússneska þingið verður að stað-
festa breytinguna til að hún verði
að lögum og talið er að það sé eng-
an veginn öruggt að þingið vilji
breyta nafninu. Þá hafa kommúnist-
Vilja að norðlæg ríki ræði
stofnun samstarfsráðs
Helsinki. Reuter.
BRIAN Mulroney, forsætisráð-
herra Kanada, hyggst bjóða leið-
togum sjö norðlægra ríkja, þar
á meðal Islands, til fundar um
stofnun samstarfsráðs um mál-
efni norðurheimsskautssvæðis-
ins.
Fulltrúi kanadísku stjómarinnar,
Tom Siddon, skýrði frá þessu í gær
á fundi ríkjanna í borginni Rovani-
emi í Norður-Finnlandi þar sem
fjallað er um náttúruvernd á norð-
urheimsskautssvæðinu. Eiður
Guðnason umhverfísráðherra situr
fundinn fyrir íslands hönd.
Auk Kanada og íslands sitja
fundinn ráðherrar og embættis-
menn frá Bandaríkjunum, Sov-
étríkjunum, Finnlandi, Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku.
ar sagt að sovéska þingið þurfí einn-
ig- að leggja blessun sína yfír
slíka breytingu.
Úrslitin eru mikið áfall fyrir
kommúnistaflokkinn og Gorbatsjov,
sem hafði hvatt til þess að borgin
yrði áfram kennd við Lenín og höfð
til vitnisburðar um frækilega mót-
spyrnu Sovétmanna í 900 daga
umsátri þýskra nasista um borgina
í heimsstyijöldinni síðari. Samtök
hermanna í stríðinu voru sömu skoð-
unar.
Leníngrad hefur verið kennd við
byltingarleiðtogann frá árinu 1924,
er Lenín lést, en Pétur mikli, sem
lét reisa borgina árið 1703, gaf henni
nafnið Sankti Pétursborg eftir Pétri
postula. ítalskir arkitektar hönnuðu
borgina og varð hún ein af glæsileg-
ustu borgum Evrópu. Hún var höf-
uðborg Rússlands í tvær aldir.
Róttækur umbótasinni, Anatolíj
Sobtsjak, var kjörinn borgarstjóri
Leníngrad með 65% atkvæða. Hann
hafði hvatt kjósendur til að styðja
nafnbreytinguna til að „binda enda
á 70 ára bölvun kommúnismans".
Frambjóðandi kommúnistaflokksins
í kosningunum, Júrí Sevenard, galt
mikið afhroð.
Umbótasinnaður hagfræðingur,
Gavrííl Popov, hafði einnig fengið
65% atkvæða í borgarstjómarkosn-
ingunum í Moskvu er atkvæði höfðu
verið talin í 30 af 33 kjördeildum.
Helsti keppinautur hans, kommún-
istinn Valeríj Sajkín, sem gegndi
embættinu fyrir nokkrum árum,
fékk aðeins um 16% atkvæða.
Borgarráð Leníngrad og Moskvu
höfðu nokkrum mánuðum áður kjör-
ið Sobstjak og Popov sem borgar-
stjóra. Þeir eru báðir í Lýðræðislegu
Rússlandi, helstu hreyfíngu stjómar-
andstæðinga landsins, ásamt Borís
Jeltsín. Þeir sögðu sig allir þrír úr
kommúnistaflokknum í fyrrasumar.
Tígrarnir stóðu að
baki morðinu á Gandhi
Madras, Amritsar, Nýju Delhí. Reuter.
EMBÆTTISMENN sem sjá um rannsóknina á morðinu á Rajiv Gand-
hi segjast þess fullvissir að skæruliðahreyfingin Tígrarnir, sem berst
fyrir sjálfstæði tamíla á Sri Lanka, hafi staðið að baki morðinu.
Gandhi var myrtur á þann hátt
að kona nokkur gekk að honum
með sprengju á baki sér og þegar
hún þóttist lúta honum sprakk
sprengjan. Konan þekktist af and-
liti sínu sem afskræmdist ekki. í
ljós kom að mæðgin höfðu hýst
hana og þau voru handtekin á
þriðjudag. Það leiddi til þess að lög-
reglan hóf leit að fjórum meintum
vitorðsmönnum og tókst í framhaldi
af því að tengja morðið við Tígrana.
19 frambjóðendur í indversku
kosningunum hafa nú verið myrtir,
nú síðast Satnam Singh, sem var
frambjóðandi eins herskáasta
flokks síka í Punjabhéraði.
Albanski kommúnistfalokkurinn:
Umbótasinnar og harðlínumenn deila hart
TílMlníi Pnnlnt*
Tírana. Reuter.
FJÖGURRA daga stormasömu flokksþingi albanska kommúnista-
flokksins lauk í gær með því að kosinn var nýr leiðtogi og skipt um
nafn á flokknum. Umbótasinnar innan flokksins sögðu að þrátt fyr-
ir það hefði flokknum ekki tekist að segja að fullu skilið við stal-
ínska fortíð sína.
Nýi flokksleiðtoginn er Fatos
Nano, 38 ára umbótasinnaður hag-
fræðingur, en hann var forsætisráð-
herra skammlífrar ríkisstjórnar sem
tók við völdum eftir fjölflokka kosn-
ingar í apríl. Stjómin neyddist til
að segja af sér eftir fjögurra vikna
valdatíð vegna yfírvofandi allsheij-
arverkfalls.
Eftir langar og harðskeyttar deil-
ur á flokksþinginu var kosin 81
manns miðstjórn sem í sitja umbót-
asinnar og harðlínumenn.
Umbótasinnar lýstu vonbrigðum
með niðurstöður þingsins. Þeir
höfðu vonast eftir því að flokkurinn
segði algjörlega skilið við 46 ára
fortíð sína. „Umræður leiddu ræki-
lega í ljós hversu mikillar uppstokk-
unar er þörf í flokknum. Stór hluti
flokksmanna skilur ekki nauðsyn
breytinga eða kjarna þeirra,“ sagði
Spiro Dede, fijálslyndur flokksmað-
ur sem kosinn var einn af riturum
flokksins.
Flokksmenn deildu hart um ar-
fleifð Envers Hoxha, fyrrum ein-
ræðisherra,_en risastór bronzmynd
af honum hékk á aðalvegg fundar-
salarins og tróndi yfír ræðumönn-
um. Margir gagnrýndu rithöfundinn
Dritero Agolli sem fordæmt hefur
Hoxha opinberlega fyrir handtökur
á pólitískum andstæðingum og leiða
þjóðina út í efnahags-, siðferðis-
og félagslegt hrun. Agolli hlaut
kosningu bæði til miðstjórnarinnar
og stjórnmálaráðsins, sem í sitja
13 menn. Hét hann að stuðla að
algjörri nýskipan mála í flokknum.
Ekkja Hoxha, Nexhmija, kom
svartklædd til þingsins og gagn-
rýndi flokkinn fyrir að koma manni
sínum til varnar að undanfömu.
Var hún fjarverandi þegar ný
flokksforysta var kynnt.
Vestrænir stjórnarerindrekar
spáðu í gær, að framundan væru
harðar deilur í flokknum sem líkast
til myndu enda með uppgjöri og
hugsanlegri klofnun í tvo nýja
flokka.
Ný stjórn Ylli Bufi forsætisráð-
herra sór embættiseiða í Albaníuu
í gær en í henni sitja fulltrúar fimm
helstu stjórnmálaflokka landsins.
Hefur hún það verkefni m.a. að
undirbúa nýjar þingkosningar að
ári. Bufi dró upp dökka mynd af
ástandinu og sagði ríkið ramba á
barmi gjaldþrots og efnahagshruns.
Hét hann því að nýja stjórnin myndi
vinna hratt að því að koma á mark-
aðshagkerfi, hraða einkavæðingu
og gera ráðstafanir er ýttu undir
og leiddu til fjárfestinga erlendra
aðila í landinu.
150 drepnir
á Sri Lanka
Colombo. Reuter.
YFIR 150 manns voru lamin
og höggvin til dauðs í þrem-
ur þorpum í Batticaloa-hér-
aðinu í austurhluta Sri
Lanka í kjölfar átaka milli
skæruliða Tamila og örygg-
issveita stjórnarhersins á
miðvikudag, að sögn þing-
mannsins Pararajasingham
Joseph.
Joseph, sem situr á þingi fyr-
ir Batticaloa-hérað, sagði að 20
manns til viðbótar hefðu særst
og kveikt hefði verið í 300 íbúð-
arhúsum í þorpunum þremur.
Hann hefur krafist opinberrar
rannsóknar í málinu.
Foringi í her landsins sagði
að staðfest hefði verið að 52
almennir borgarar hefðu verið
drepnir og nokkrir særðir í
átökum sem urðu eftir að sex
hermenn létu lífíð af völdum
jarðsprengju.