Morgunblaðið - 14.06.1991, Síða 44
LYklLI.IV> All kÓIII HVÖLDI
ÍBECMS
LÉTTÖL
- svo vel
setryggt /
SJÓVÁooALMENNAR
FOSTUDAGUR 14. JUNI 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Kynferðisleg’ misnotkun barna:
Eldri systkini tilkynna
meint brot gegn yngri
BÖRN sem eru misnotuð af kyn-
feðrum eru mun yngri en börn
misnotuð af stjúpum og virðist
tiðni misnotkunar stjúpa aukast
KR-ingar
á toppinn
KR-INGAR sigruðu Val 3:0 að
Hlíðarenda í gærkvöldi. Með
sigrinum hafa KR-ingar haft
sætaskipti við Val á toppi 1.
deildar. Valsmenn höfðu unnið
alla leiki sína í deildinni fram
að þessum leik og Bjarni Sig-
urðsson ekki fengið á sig mark
í 317 mínútur þegar Gunnar
Skúlason skoraði gegn Val í
gær. Talsvert á þriðja þúsund
manns fylgdist með leiknum,
sem fram fór í blíðskaparveðri.
A myndinni berjast þeir Gunnar
Oddsson og Steinar Adólfsson
um knötttinn.
Sjá nánar bls. 43.
með hærri aldri barnanna. Þetta
kemur m.a. fram í skýrslu Aðal-
steins Sigfússonar, yfirsál-
fræðings Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, sem stofn-
unin hefur gefið út, um kynferð-
islegt ofbeldi gegn börnum og
unglingum i Reykjavík.
Skýrslan byggist á rannsókn á
61 máli sem bárust fjölskyldudeild
Félagsmálastofnunar Reykjavíkur
frá 1. janúar 1983 til 31. mars
1990, en í þeim voru gerendur kyn-
feður barna í 23 tilvikum, stjúpar
í 10 tilvikum og nágrannar í 10
tilvikum, en óþekktir aðilar í 5 tii-
fellum. Flestar tilkynningar bárust
frá mæðrum barna, en áberandi
margar einnig frá unglingum sem
hafa flúið heimili sín vegna kyn-
ferðisofbeldis og óttast um afdrif
yngri systkina sinna.
Um þessar staðreyndir og aðrar
sem viðkoma skýrslunni, s.s. eðli
kynferðisofbeldisins og tíðni, er
fjallað í Daglegu lífi, fylgiriti Morg-
unblaðsins í dag. Þá er greint frá
meðferð kynferðisafbrotamála í
Ósló, en Norðmenn eru taldir standa
einna fremst á þessu sviði, sérstak-
lega hvað varðar vitnisburð barna
gagnvart dómstólum.
ÞJOÐHATIÐ UNDIRBUIN
Morgunblaðið/Þorkell
Ný hagræðingarlán verða
heimiluð úr Fiskveiðasjóði
Leyfilegt verður að kaupa erlend fiskiskip sem eru eldri en fjögurra ára
Morgunblaðið/KGA
Sjóðfélagar geta fengið 1,7-1,8
milljónir króna að hámarki að láni
úr sjóðnum eftir 10 ára starf og
er lánstími lengstur 30 ár. Lánið
er verðtryggt samkvæmt láns-
kjaravísitölu. 1.200-1.500 manns
greiða iðgjöld til sjóðsins en auk
starfsmanna Landsbanka og
Seðlabanka eru starfsmenn Fisk-
veiðasjóðs, Visa-íslands og Reikni-
stofu bankanna félagar í sjóðnum.
Heildarávöxtun á verðbréfaeign
sjóðsins var 5,9% á síðasta ári, en
lán til sjóðfélaga voru um þriðj-
NÝ reglugerð um starfsemi
Fiskveiðasjóðs er nú um það bil
að taka gildi. Sjávarútvegsráð-
herra kynnti hana á ríkisstjórn-
arfundi í gær. Samkvæmt nýju
ungur verðbréfaeignarinnar.
Iðgjöld til sjóðsins eru 12%
og greiða starfsmenn 4% en
bankarnir 8%. Réttindin sem
sjóðurinn tryggir eru þó meiri
en sem nemur þessum iðgjöld-
um og þurfa bankarnir þess
vegna að leggja sérstaklega til
hliðar vegna eftirlaunaskuld-
bindinga. I ársreikningi Lands-
banka íslands fyrir 1990 var
áætluð skuldbinding hans sam-
kvæmt úttekt tryggingastærð-
fræðings 2.250 milljónir króna
reglugerðinni verða útlánaregl-
ur sjóðsins einfaldaðar verulega
og honum heimilt að veita ný lán
til hagræðingar eða fjárhags-
legrar endurskipulagningar.
í lok ársins. Bankinn hafði lagt
til hliðar 1.412 milljónir til að
mæta þessum skuldbindingum
sínum og skuld hans var 958
milljónir á verðlagi þá. Ákveðið
hefur verið að færa þessa fjár-
hæð til gjalda á átta árum með
jöfnum árlegum afborgunum og
voru í því skyni færðar 117
milljónir meðal óreglulegra
gjalda. Skuld bankans í efna-
hagsreikningi er því vantalin
um nálega 838 milljónir.
Seðlabankinn hefur að fullu
staðið við lífeyrisskuldbinding-
ar vegna starfsmanna sinna og
lagt til hliðar í því skyni 748,5
milljónir króna. Á síðasta ári
voru lögð til hliðar 10% af ið-
gjaldslaunum ársins eða 22
milljónir króna.
Heildareign sjóðsins nam
2.914 milljónum í árslok 1990,
en var 2.411 milljónir í árslok
1989.
Með tímanum hefur orðið til
töluverður fjöldi reglugerða um
lánveitingar sjóðsins, um það bil
tveir tugir, en samkvæmt nýju
reglugerðinni verða lánaflokkar
nú þrír, skipalán, fasteignalán og
hagræðingarlán. Kröfur sjóðsins
um tryggingar og veð eru óbreytt-
ar, það er að ekki verður lánað í
skipum nema á fyrsta rétti og til
fasteigna verður aðeins lánað
gegn veðum, sem stjórnendur
sjóðsins telja fullnægjandi.
Talin er þörf á þessum breyting-
um í ljósi minnkandi fjárfestingar
í nýsmíði fiskiskipa vegna kvóta-
kerfisins og endurskipulagningar
margra fyrirtækja í ljósi þess, en
Fiskveiðasjóður stendur vel um
þessar mundir og eru vanskil við
hann í lágmarki. Þá er felld úr
gildi sú takmörkun til lána við
kaup notaðra fiskiskipa að utan,
að þau megi ekki vera eldri en
fjögurra ára.
Með þessum hagræðingarlánum
er verið að opna fleiri leiðir til lán-
töku í sjóðnum, en áfram mun
krafizt fullgildra veða og trygg-
inga fyrir endurgreiðslu viðkom-
andi lána og jafnframt munu allar
umsóknir vandlega metnar og að-
eins samþykktar, telji stjórnendur
sjóðsins þær bæði nauðsynlegar
og líklegar til að bæta rekstur og
afkomu viðkomandi fyrirtækja.
Oljóst er hver eftirsókn verður
eftir þessum lánum, meðal annars
í ljósi veitinga umtalsverðra upp-
hæða úr Atvinnutryggingarsjóði
útflutningsgreina og Hlutafjár-
sjóði. Líklega eiga illa stödd fyrir-
tæki litla möguleika á þessum
hagræðingarlánum vegna tak-
markaðrar veðhæfni.
-----*-*-*---
Ólafsvík:
Uppboði á
togaranum
Má fréstað
LANDSBANKI íslands fór í gær
fyam á að bæjarfógetinn í
Ólafsvík frestaði öðru og síðara
uppboði á togaranum Má, sem
átti að fara fram í dag. Að sögn
Björns Líndals, aðstoðarbanka-
sljóra, verður uppboðinu frestað
þar til réttarhléi lýkur síðar í
sumar.
Ólafsvíkurbær, Verkalýðsfélagið
Jökull og útgerðarfélögin Tungufell
og Útver í Ólafsvík hafa stofnað
með sér hlutafélag til að hefja aftur
vinnslu í húsum Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur.
Lögðu fulltrúar þessara aðila í
gær tilboð fyrir bústjóra þrotabús
Hraðfrystihússins um að taka eign-
ir þess á leigu.
Landsbanki íslands er stærsti
kröfuhafi í búið og segist Björn
Líndal, aðstoðarbankastjóri, vera
svartsýnn á að af hálfu Landsbank-
ans verði fallist á þær hugmyndir,
sem fram hafi komið af hálfu hins
nýja félags.
Afstaða verði tekin til þeirra í
næstu viku.
Sjá nánar á miðopnu.
Lífeyrissjóður Landsbanka og Seðlabanka:
Vextir hækkaðir á lánum
til félaga í lífeyrissjóðnum
Skuld Landsbanka Islands vegna lífeyris-
skuldbindinga 838 milljónir í árslok 1990
LÍFÉYRISSJOÐUR Landsbanka og Seðlabanka íslands hefur
hækkað vexti af lánum til sjóðfélaga úr 4% og 4,5% í 4,9% og af
nýjum lánum úr 4% í 5,5%. í ályktun stjórnar lífeyrissjóðsins vegna
hækkunarinnar segir að hún sé gerð vegna þess að krafa um
samræmingu vaxtakjara sé orðin almenn og til þess að styrkja
getu eftirlaunasjóðsins til að standa undir lífeyrisgreiðslum.