Morgunblaðið - 20.06.1991, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1991
15
að stefnan vísi fram á við, í stað
þess að skírskota sífellt til liðinna
tíma og ótta við framtíðina. íslensk
stjórnmál, ekki hvað síst á vinstra
vængnum, eiga við heilmikinn raun-
veruleikavanda að glíma. Ólafur
Ragnar áleit með réttu það einn
sinn markverðasta sigur, þegar frá
miðstjórn Alþýðubandalagsins kom
ályktun um landsmái sem að nokkr-
um hluta tók tillit til raunveruleik-
ans í kringum sig, og kallaði flokk-
inn Raunveruleikabandalag tii að-
greiningar frá Alþýðubandalaginu.
Þegar búið er að viðurkenna raun-
veruleikann sem er fyrsta skrefið,
er það næsta að finna sameiginleg-
an samstarfsgrundvöll, áður en
lengra er haldið. Þegar það er kom-
ið gæti farið að eygja undir tíma
sameinaðrar fylkingar íslenskra
jafnaðarmanna.
í hugleiðingum um samruna
vinstri manna má ekki gleyma því
sem að framan er sagt. Hugtökin
hægri og vinstri eru ónothæf í þessu
samhengi. Afturhaldssömustu
skoðanir á mörgum sviðum þjóð-
mála eru í Framsóknarflokki en þó
enn frekar í Alþýðubandalaginu.
Meðan Alþýðuflokkurinn hefur bar-
ist fremur öðrum fyrir frjálslyndi,
efnahagslegri opnun landsins og
viðskiptalegu fijálsræði, sem undir
venjulegum kringumstæðum ætti
að vera hlutverk þess flokks sem
atvinnurekendur styðja og styrkja.
Kannski Alþýðuflokkurinn eigi jafn
mikla eða meiri samleið með laun-
þegafylgi Sjálfstæðisflokksins eins
og svokölluðum vinstri flokkum ?
Þegar stjórnarsamstarf núver-
andi stjórnarflokka var ákveðið,
töldum við jafnaðarmenn okkur
hafa mun meiri möguleika á því að
geta með afgerandi hætti haft áhrif
á marga mikilvæga málaflokka.
Sumt af þessu voru málaflokkar
sem ekki hafði verið samstaða um
í fyrrverandi ríkisstjórn, eða mál
sem urðu að deiluefni þáverandi
stjórnarflokka í kosningabar-
áttunni. Við töldum okkur hafa vil-
yrði fyrir verulegri tiltekt á þremur
megin sviðum: landbúnaðarmálum,
sjvarútvegsmálum og ríkisflármál-
um, auk þess sem haldið yrði fram
stefnu fyrrverandi stjórnar á samn-
ingum um EES, Atlantsál og í hús-
næðismálum. Þá yrðu umhverfismál
sett í mun meiri brennidepil er var.
Auðvitað bæri það vott um barn-
askap, ef ég fuliyrti eitthvað um
pólitíska niðurstöðu úr þessum
málum, þegar upp verður staðið.
Kannski verða þátttakendur báðir
fyrir vonbrigðum. Verkefnin eru
stór og viðfangsefnin erfið.
Samningarnir um Evrópska
efnahagssvæðið eru afar erfiðir og
ólíklegt er annað en niðurstaðan
muni valda deilum. Því meira sem
frávikið frá ítrustu kröfum verður
þeim mun erfiðara verður að sætta
fólk við niðurstöðurnar. Þar verður
fiskurinn viðkvæmastur.
Endurnýjun þjóðarsáttar verður
einnig vandasöm, ekki hvað síst ef
óraunhæf eftirvænting nær tökum
á almenningsálitinu. Þo verða ríkis-
fjármálin sá mikli prófsteinn sem
mikið veltur á að takist að um-
breyta úr sífelldri uppsprettu verð-
bólgutilhneiginga og umframeyðslu
í það að jafnvægi sem ásamt öðru
er forsenda stöðugleika í efnahags-
málum.
Svona má vissulega halda áfram.
Fyrir Alþýðuflokkinn skiptir miklu
að ná áfanga í að létta iandbúnaðar-
byrðum af almenningi og ná ásætt-
anlegri niðurstöðu í sjávarútvegs-
málum. Þessi mál hefur hann sett
á oddinn og því skiptir hann miklu
hver afdrif þeirra verða.
Niðurstaða þessara hugleiðinga
er sú að vissulega steðji ýmsar innri
sem ytri hættur að núverandi ríkis-
stjórn.
Mesta hættan er sú, ef hún nú
strax í upphafi ferils síns megnar
ekki að ljúka þeim samningum um
framtíðai’viðskiptaramma evrópu-
ríkjanna, sem unnið hefur verið að
um tevggja ára skeið.
Þeir samningar eru slíkt iífs-
spursmál fyrir þjóðina að um þá
verður að skapast þolanleg eining.
Su eining verður að byija hjá stjórn-
arflokkunum sjálfum.
17. júní hátíðahöld
í Kaupmannahöfn:
Karlakórinn
Heimir úr
Skagafirði
setti svip
sinn á þau
Kaupmannahöfn, frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgfunblaðsins.
AÐ VENJU var haldið upp á
þjóðhátíðardaginn í Kaupmanna-
höfn. Laugardaginn 15. júní var
strandveisla úti á Amager, þar
sem hægt var að glóðarsteikja
kjöt á langeldum. Það hefur rignt
af krafti undanfarna daga og
gert hagl og þrumuveður, en ein-
mitt þetta kvöld hékk hann þurr
og veðrið var milt og hlýtt.
Sunnudaginn 16. júní var hátíð-
arguðsþjónusta í Sankti Pálskirkju.
Fyrir athöfnina spilaði lúðraflokkur
safnaðarins fyrir utan kirkjuna í
20 mínútur. Karlakórinn Heimir úr
Skagafirði, sem er á ferð um Dan-
mörku þessa dagana, söng tvö lög
í kirkjunni og sr. Sigurður Guð-
mundsson vígslubiskup að Hólum
prédikaði, en hann er einnig kórfé-
lagi. Stjórnandi kórsins er Stefán
R. Gíslason. Um þijú hundruð
manns voru við athöfnina, þar af
mörg börn, sem bæði gátu setið í
kirkjunni, en einnig var boðið upp
á barngæslu. Eitt barn var skírt
og sr. Lárus Guðmundsson Hafnar-
prestur hefur þann góða sið að
bjóða viðstöddum börnum að standa
í kringum skírnarfontinn meðan
skírt er, svo börnin settu fallegan
svip á athöfnina.
Eftir messuna var að vanda
gengið í messukaffi upp í Jónshús
sem liggur steisnar frá. Fyrir utan
húsið söng karlakórinn aftur, auk
þess sem harmónikuleikari lék og
stjórnaði almennum söng og sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn,
Ingvi S. Ingvarsson, hélt þjóðhátíð-
arræðu.
Á sjálfan 17. júní voru svið á
boðstólum í Jónshúsi og niðri í
Koge, sem er nágrannabær Kaup-
mannahafnar, stóð Karlakórinn
Heimir fyrir samsöng.
ISLANDSBANKI
Veðdeild íslandsbanka
,kt. 421289-9569
Ármúla 7, Reykjavík
Skuldabréfaútboð 1. flokkur 1991
Heildarfjárhæð kr. 1.000.000.000.
Utgáfudagur 4. júní 1991
Flokkur Gjalddagi Upphæð
l.fl.A1991 03.04.1995 100.000.000
l.fl.B1991 03.04.1996 200.000.000
1.Í1.C1991 03.07.1996 100.000.000
l.fl.D1991 03.04.1997 200.000.000
1.H.E1991 03.07.1997 200.000.000
1 .fl.F 1991 03.07.1998 100.000.000
l.fl.G1991 03.07.1999 100.000.000
Skuldabréfin eru verðtryggð skv. lánskjaravísitölu.
Grunnvísitala er 3093.
Ávöxtun yfir hækkun lánskjaravísitölu nú 8,7%
Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf.
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26.
iiargii ISStl írl
Góðan daginn!
ÞAB GENGUR MED
Ginge P 420
□ Vönduö, létt og lipur
□ kraftmikill Briggs & Stratton Quantum mótor
□ 42 sm hnífur
□ þægileg hæöarstilling í einu handfangi
□ grassafnari sem lætur ekki sitt eftir liggja
Ginge er val hinna vandlátu - gæðanna vegna.
Ginge Park 46 BL drifvél
□ Fagmennirnir kalla hana „Rolls Roys"
sláttuvélanna
□ valsasláttuvél; 46 sm vals, klippir grasflötina
listavel
□ Briggs & Stratton mótor
Góö varahluta- og viðhaldsþjónusta.
Sparaðu þér sporin og komdu beint til okkar.
Slátluféla
mdrkaðurínn G.A. Pétursson hf.
Nútíöinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
Ilöfundur er aðstoðarmaður
utanríkisráðherra.