Morgunblaðið - 20.06.1991, Side 17

Morgunblaðið - 20.06.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1991 17 Strætó fyrir heilsuna eftir Kristínu A. Ólafsdóttur Nú, þegar þjóðin er rækilega að vakna til vitundar um umhverf- isvernd, ákveða snillingar Sjálf- stæðisflokksins í stjórn Strætis- vagna Reykjavíkur að minnka þjónustu almenningsvagna. Þeir hafa lagt til að vagnarnir ferðist á tuttugu mínútna fresti allan árs- ins hring og auk þess verði skorið aftan af kvöldakstrinum á virkum dögum og framan af morgun- akstri á sunnudögum. Fyrir nokkr- um árum fækkuðu Sjálfstæðis- menn ferðum vagnanna úr fjórum á klukkustund niður í þrjár yfír sumartímann og nú á það sama að ganga yfir vetrartímann. Samhengið gleymist Þetta er eina leiðin sem meiri- hlutinn í stjórn SVR kann til þess að bregðast við fækkun viðskipta- vina vagnanna. Viðskiptavinunum er refsað fyrir það að allir hinir nota einkabílinn. Sjálfstæðismenn- irnir sjá ofsjónum yfir niður- greiðslum borgarsjóðs á rekstri strætisvagnanna sem er u.þ.b. 1 milljón á dag þetta árið. Þeir gleyma þá að telja þar á móti sam- félagslegan sparnað sem vinnst með strætisvagnaþjónustunni. Eða hve háar skyldu upphæðirnar verða ef allir núverandi farþegar strætisvagnanna ferðuðust á einkabilum. Þar þyrfti að tína til gjaldeyriskostnað vegna fleiri bíla og meira eldsneytis, aukinn kostn- að við gatnakerfi og bílastæði borgarinnar og örugglega aukinn kostnað af óhöppum og slysum í umferðinni. Þetta samhengi gleymist þegar býsnast er yfir kostnaði borgarsjóðs vegna stræt- isvagnanna að ekki sé nú minnst á þátt almenningssamgangna í að sporna gegn umhverfismengun einkabílaflotans. 011 höfum við áhyggjur af fækk- un viðskiptavina SVR. Síðustu 3 árin hafa þeir verið u.þ.b. 7.3 millj- ónir árlega en voru tæplega 10 milljónir 1985 og 14 milljónir 1973. En viðbrögð meirihlutans í stjórn SVR bera vott um vanhæfni til stjórnunar. Ýtt er undri áfram- haldandi samdrátt með því að leggja uppp laupana í stað þess að nýta þau sóknarfæri sem vissu- lega eru fyrir hendi. Vannýtt sóknarfæri Sóknarfærin felast m.a. í vakn- andi vitund almennings um um- hverfisvernd og hollustu. í nýlegri skoðanakönnun Felagsvísinda- stofnunar Háskóla íslands lagði stærsti hluti svarenda (rúm 86%) áherslu á umhverfisvernd sem meginverkefni nýrrar ríkisstjórn- ar. Hér í Reykjavík er varla hægt að stíga stærri skref til umhverfis- verndar en með því að draga úr umferð einkabíla. Þess vegna á að auglýsa strætó sem umhverfis- vænan farkost. Nútímafólki er ljóst að auk margvíslegrar mengunar eru streita og hreyfingarleysi skæð- ustu óvinir heislu okkar. Strætó getur þjónað heilsu stressaðra kyrrsetumanna mun betur en einkabíllinn. Spölurinn til og frá stoppustöð setur blóðrásina af stað, liðkar skrokkinn og gefur . vænan súrefnisskammt. Strætó- ferðina má nota til slökunar og hugleiðslu eða til þess að kíkja í morgunblöðin. Nokkuð sem bílstjórum einkabílanna er ómögu- legt að njóta á meðan þeir koma sér milli staða. Strætó er því óhætt að auglýsa sem hentuga heislubót. Sparað með strætó Þá er eftir að tíunda persónuleg- an sparnað þeirra sem draga úr notkun einkabílsins með því að ferðast t.d. úr og í vinnu með strætisvögnum. Skrifstofustjóra SVR reiknaðist svo til fyrir hálfu öðru ári að tveggja bíla heimili sparaði 40-50 þúsund krónur á ári ef bæði hjónin notuðu strætó til og frá vinnu fjóra daga af fimm. Forsendurnar voru þær að hjónin byggju í austurhverfunum, Breið- holti eða Grafarvogi og sæktu vinnu í Kringlu og miðbæ. Strætó er því óhætt að auglýsa sem leið til sparnaðar, bæði fyrir hvern við- skiptavin og fyrir heildina. Mér er ljóst að strætisvagnar borgarinnar geta ekki nýst öllum, t.d. ekki þeim sem þurfa að kom- ast á marga staði í stuttum tíma. Ég er þó sannfærð um að margur maðurinn sem nú ferðast tvisvar á dag á sínum einkabíl og til og frá föstum vinnustað gæti fundi kosti þá sem bjóðast honum og borgarsamféláginu með því að nýta frekar þjónustu SVR. En það þarf oft að ýta rækilega við okkur til þess að við breytum lífsháttum okkar, ekki síst ef þeir tengjast stundarþægindum og leti. Markaðssókn Strætisvagnar -Reykjavíkur ættu nú að leggja talsvert fé í markaðsátak og áróður fyrir þjón- ustu vagnanna og freista þess að ná í fleiri viðskiptavini, ná til nýrra „markhópa" eins og fagmenn í markaðsmálum myndu orða það. Það er inntakið í tillögu Nys vett- vangs og Kvennalista sem lögð var fram í borgarráði sem andsvar við uppgjafatillögu sjálfstæðís- GARÐASTAL Afgreitt eftir máli. Allir fylgihlutir. = HÉÐINN = STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 52000 manna. Tillaga okkar kveður einn- ig á um það að þjónustan verði aukin og bætt á þeim tímum sem flestir fara í og úr vinnu. Borgarstjórn Reykjavíkur á nú valið á milli þessara tveggja kosta til þess að bregðast við minnkandi notkun almenningssamgangna í borginni. .Vonandi verða borgar- fulltrúar nógu víðsýnir til þess að skapa SVR möguleika á að þjóna umhverfi, heilsu og buddu borg- arbúa betur en meirihluti stjórnar- innar vill gera. Höfundur er borgarfulltrúi Nýs vettvangs. „Strætó getur þjónað heilsu stressaðra kyrr- setumanna mun betur en einkabíllinn. Spölur- inn til o g frá stoppustöð setur blóðrásina af stað, liðkar skrokkinn og gefur vænan súrefn- isskammt. Strætóferð- ina má nota til slökunar og hugleiðslu eða til þess að kíkja í morgun- blöðin.“ Kristín Á. Ólafsdóttir ■ ■ fýrir Charbroiled QRbA- ^ v_ _i i i mM’ STTSM ásamt sðpu og salatbar, með fersku garðsalati og ótal tegund- um af öðru grænmeti. Charbroiled þýðir glóðarsteikingu yfir opnum eldi, sem gefur steikinni sérstakt bragð, betra en þú átt að venjast. Hálft gjald fyrir börn 6-12 ára og ekkert fyrir þau yngri. Fyrir foreldra og tvö börn t.d. 12og5ára Það er ódýrara en að elda jafngóða máltíð heima. Svo höfum við barnahorn með skemmtilegum leikföngum, sem hafa ofan af fyrir smáfólkinu meðan for- eldrarnir borða. ASKUR Steikhús Suðurlandsbraut 4 S? 38550

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.