Morgunblaðið - 20.06.1991, Síða 25
'kb'RGtíMBli&S’^ÍÆÍÍÍÍtfMSé^^O-.’ m 1991
25
ALMANWATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar
1. júní 1991 Mánaðargreiðslur
Elli / örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) ................. 12.123
’A hjónalífeyrir ...................................... 10.911
Full tekjutrygging .................................... 22.305
Heimilisuppbót ......................................... 7.582
Sérstök heimilisuppbót ................................. 5.215
Barnalífeyrirv/1 barns ................................. 7.425
Meðlag v/1 barns ....................................... 7.425
Mæðralaun/feðralaun v/1 barns ...........................4.653
Mæðralaun/feðralaunv/2ja barna ........................ 12.191
Mæðralaun/feðralaun v/3ja barnaeðafleiri .............. 21.623
Ekkjubætur/ekkilsbætur6mánaða ......................... 15.190
Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaða ...................... 11.389
Fullurekkjulífeyrir ................................... 12.123
Dánarbætur Í8 ár (v/slysa) ............................ 15.190
Fæðingarstyrkur ....................................... 24.671
Vasapeningarvistmanna ................................... 7.474
Vasapeningarv/sjúkratrygginga .......................... 6.281
Daggreiðslur
Fullirfæðingardagpeningar ........................... 1.034,00
Sjúkradagpeningareinstaklings ......................... 517,40
Sjúkradagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri .............. 140,40
Slysadagpeningareinstaklings .......................... 654,60
Slysadagpeningarfyrirhvertbarnáframfæri ............... 140,40
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
19. júní.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur sl. 92,00 67,00 79,12 47,428 3.752.459
Ýsa sl. 120,00 45,00 78,58 37,757 2.966.959
Karfi 35,00 31,00 34,72 38,808 1.347.378
Ufsi 50,00 45,00 47,14 3,673 173.145
Steinbítur 62,00 46,00 53,19 2,295 122.120
Langa 47,00 44,00 46,07 0,282 12.993
Lúða 305,00 30,00 143,79 0,858 123.375
Skarkoli 72,00 59,00 59,89 7,172 429.585
Sólkoli 60,00 60,00 60,00 0,071. 4.260
Keila 10,00 10,00 10,00 0,008 80
Rauðmagi 35,00 35,00 35,00 0,044 1.540
Skata 20,00 20,00 20,00 0,032 640
Skötuselur 170,00 170,00 170,00 0,482 81.940
Grálúða 75,00 75,00 75,00 0,058 4.350
Blandað 20,00 20,00 20,00 0,148 2.960
Undirmál 69,00 20,00 63,70 1,646 104.856
Samtals 64,85 140,764 9.128.641
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur (sl.) 99,00 69,00 82,34 55,244 4.548.712
Ýsa (sl.) 139,00 78,00 87,05 7,642 665.273
Keila og bland 15,00 15,00 15,00 0,053 795
Steinbítur 50,00 34,00 45,14 0,293 133.226
Skata 79,00 79,00 79,00 0,004 316
Keila 29,00 15,00 28,64 0,392 11.228
Undirmál 65,00 50,00 56,81 2,590 147.125
Hlýri/Steinbítur 40,00 40,00 40,00 2,385 95.400
Sólkoli 83,00 83,00 83,00 0,495 41.085
Lúða 395,00 255,00 288,19 0,069 19:885
Ufsi 47,50 41,00 46,19 66,034 3.050.187
Skarkoli 41,00 41,00 41,00 0,496 20.336
Langa 55,00 47,00 47,52 1,734 82.402
Karfi 46,00 15,00 36,22 55,003 1.992.074
Blandað 15,00 15,00 15,00 0,016 240
Samtals 55,54 192,450 10.688.284
Selt var Or Hauki GK, Sveini Jónssyni og fl.
FISKMARKAÐURINN ÞORLÁKSHÖFN
Þorskur sl. 79,00 79,00 81,40 1,339 168.998
Þorskur smár 78,00 78,00 78,00 0,801 39.076
Ýsa sl. 85,00 74,00 74,68 8,025 599.329
Karfi 34,00 31,00 31,82 53,278 1.695.143
Ufsi 49,00 45,00 48,13 0,512 24.644
Steinbítur 36,00 33,00 33,57 3,300 110.802
Langa 60,00 60,00 60,00 0,082 4.929
Öfugkjafta 20,00 20,00 20,00 0,104 2.080
Skarkoli 44,00 30,00 30,55 5,706 174.359
Keila 20,00 20,00 20,00 0,044 880
Skata 270,00 270,00 270,00 0,035 5.950
Blandað 64,00 64,00 64,00 0,154 9.856
Undirmál 79,00 73,00 73,40 8,025 599.329
Samtals 42,62 79,130 3.113.315
Olíuverð á Rotterdam-markaði, síðustu tíu vikur,
9. apríl -18. júní, dollarar hvert tonn
Dans-og söngskemmtun á
hótel Islandi í allt sumar
í HJARTASTAÐ, eða „Love Me
Tender,“ er heiti á dans- og
söngvaskemmtun sem verður
frumsýnd á hótel íslandi annað
kvöld. A sýningunni verða aðal-
lega leikin lög frá gullöld rokks-
ins, 1955 - 1965 en fjöldi þekktra
söngvara, tónlistarmanna og
dansara mun taka þátt í henni.
Að sögn Björns G. Björnssonar,
leikstjóra sýningarinnar, er þetta í
fyrsta sinn sem svo viðamikilli sum-
arskemmtun er hleypt af stokkun-
um í hótelinu. Öll lögin, sem spiluð
verða, eru erlend og ætti sýningin
því ekki síður að henta útlendum
ferðamönnum en íslendingum.
„Margir hafa kvartað undan doða
og tilbreytingarleysi í skemmtana-
lífi höfuðborgarinnar á sumrin. Til-
gangurinn með þessari skemmtun
er ekki síst sá, að auka fjölbreytn-
ina hvað þetta varðar og nú ættu
íslendingar ekki að vera í vanda
staddir ef þá langar til að bjóða
erlendum vinum upp á mat og
skemmtun,“ segir Bjöm.
Auk leikstjórnar skrifaði Björn
handrit og sá um útlitshönnun sýn-
ingarinnar. Björgvin Halldórsson
er tónlistarstjóri en auk hans sjá
þau Anna Vilhjálms og Ari Jónsson
um sönginn. Hljómsveitin „Sputn-
iks“ sér um hljóðfæraleik undir
stjórn Jons Kjells en Helena Jóns-
dóttir og danshópurinn Stjörnurní r
um dansatriði. Alls eru um tuttugu
manns sem syngja, leika og spila á
skemmtuninni og hafa flestir þeirra
tekið þátt í svipuðum sýningum.
Skemmtunin, í hjartastað, hefst
með þríréttuðu borðhaldi, eins og
venja er með aðrar stórsýningar á
hótel Islandi. Að því loknu hefst
sjálf skemmtunin. Hún saman-
stendur af fjörutíu lögum frá því
tímabili sem margir nefna gullöld
rokksins, 1955 - 65. Sum lögin
verða spiluð í fullri lengd en hlutar
úr öðrum í syrpum. Sérstakar
söngvasyrpur verða teknar með lög-
um Elvis Presleys, Everly bræðra,
Pauls Anka, Brendu Lee, Connie
Frances og Platters.
Svo skemmtilega vill til að nú í
ár á Anna Vilhjálms merkilegt
starfsafmæli sem söngkona en hún
kom fyrst fram í Gúttó við Tjörn-
ina, fyrir þijátíu árum. í samtali
við Morgunblaðið sagði hún að
mörg laganna sem hún syngi nú í
sumar hefði hún einnig sungið
snemma á ferli sínum og sýndi þetta
betur en margt annað hvernig rokk-
ið stæðist tímans tönn.
Sérstök dansatriði verða á milli
rokksyrpanna og rná þar meðal
annars nefna dansa við lög úr söng-
leiknum „West Side Story.“ Helena
Jónsdóttir danshöfundur sagði að
henni fyndist mjög ánægjulegt að
starfa við þessa sýningu því að
rokkið byði upp á óþijótandi mögu-
leika við samningu nýrra dansa.
Það ætti einkar vel við að nota lög
úr „West Side Story“ því að sá söng-
leikur hefði einmitt verið saminn
þegar rokkið var upp á sitt besta.
En hvernig finnst ungum dönsur-
um að taka þátt í sýningu sem er
byggð á meira en aldarfjórð-
ungsgömlum rokklögum? Morgun-
blaðið tók þau Ernu Ómarsdóttur,
Gunnar Már Sverrisson og Jóhann
G. Johannsson tali en þau hafa
ekki áður tekið þátt í slíkri sýn-
ingu. Þeir Gunnar Már og Jóhann
sögðu að rokkið væri í miklu uppá-
haldi hjá þeim enda væri það ekki
tilviljun að það væri nánast orðið
sígilt meðan aðrar yngri tónlistar-
stefnur hefðu liðið undir lok. Erna
tók undir orð piltanna og kvaðst
ekki vera í vafa um að rokkið væri
í sókn, ekki síst á meðal ungs fólks.
„Margir af yngri kynslóðinni verða
undrandi þegar þeir kynnast þeim
fjölbreytileika sem rokkið býður upp
á, bæði hvað varðar fjör og ró-
mantík. Sífellt fleiri dansarar kjósa
að dansa eftir gömlu rokklögunum
enda virðist rokkið yngjast með
aldrinum," sagði Erna að lokum.
Alþjóðasamtökin Delta Kappa Gamma:
*
Landssambandsþing Is-
landsdeilda samtakanna
SEX íslandsdeildir alþjóðasam-
takanna Delta Kappa Gamma
héldu landssambandsþing að Bif-
röst í Borgarfirði dagana 1.-2.
júní sl. Dr. Janet W. Shelver, nú-
verandi alþjóðaforseti Delta
Kappa Gamma, var gestur á þing-
inu.
Dr. Janet W. Shelver er skólasál-
fræðingur að mennt og starfar í
Suður - Dakota. Starf hennar sem
forseta felst m.a. í því að heim-
sækja lands- og ríkjasambönd og
kynna sér störf þeirra.
Alþjóðasamtökin Delta Kappa
Gamma voru stofnuð í Texas,
Bandaríkjunum árið 1929. Á íslandi
var fyrsta deildin stofnuð árið 1975
en fyrsta Evrópudeildin var stofnuð
í Noregi árið 1970. Nú eru sex
deildir starfandi innan íslensku
samtakanna.
í Alþjóðasamtökunum eru nú um
167 þúsund konur í frá hinum
ýmsu löndum heims. Alþjóðasam-
tökin skapa alþjóðleg tengsl milli
kvenna sem starfa að kennslu- og
rannsóknarstörfum og greiða leiðir
til skoðanaskipta bæði heima og
erlendis. Hlutverk samtakanna er
að veita konum tækifæri til þess
að ræða uppeldis- og fræðslumál á
öllum skólastigum, allt frá leikskóla
upp í háskóla, og leitast við að
hafa áhrif á skólastefnur og löggjöf.
Aðalverkefni íslenska landssam-
bandsþingsins var að þessu sinni
að ræða álitsgerðir deildanna er
unnar voru úr nokkrum þáttum
Framkvæmdaráætlunar Mennta-
málaráðuneytisins í skólamálum:
„Til nýrrar aldar.“ Aðalframsögu-
maður var Gerður G. Óskarsdóttir
M. Ed.
Dr. Janet W. Shelver Alþjóðafor-
seti Delta Kappa Gamma Society
International.
Á landssambandsþinginu var
Hertha Jónsdóttir, hjúkrunarfræð-
ingur, kosin nýr forseti landssam-
bandsins til næstu tveggja ára.
Fráfarandi forseti dr. Sigríður Þ.
Valgeirsdóttir er núverandi fulltrúi
Evrópu og situr í stjórn Alþjóða-
samtakanna.
Sólstöðugangan á miðnætti
SJÖUNDA Sólstöðuganga Nátt-
úruverndarfélags Suðvesturlands
hefst á fimmtudagskvöldið á mið-
nætti með næturgöngu í Viðey.
Þátttakendur mæta út í Viðey við
kirkjuna klukkan 24. Ferðir verða
úr Sundahöfn með Maríusúðinni
kl. 22.50 og 23.20.
Gengið verður austur eyna og
miðnæturbál kveikt kl. 1.30 síðan
gengið til baka og beðið sólarupprás-
ar á Sjónarhóli. Þaðan verður gengið
um vestureyna til kl. 5 að-farið verð-
ur í siglingu um sundin. Úr þeirri
ferð verður komið kl. 7 og árbítur
snæddur við útigrill. Við brottför frá
eynni kveður Þórir Stephensen stað-
arhaldari hópinn. Þá verður siglt út
á Engeyjarsund og inn á gömlu höfn-
ina að Miðbakka við Grófarbryggju.
Um kl. 8 verður gengið frá borði og
ströndin skoðuð og sjávargatan
gengin að fyrsta bænum á göngunni.
Þar verður Mjöll Snæsdóttir forn-
leifafræðingur spurð til vegar.
Kvöldgangan hefst kl. 20 rneð því
að gengið verður-um sýningu nem-
enda í Barnaskóla Bessastaðahrepps
um náttúru- og umhverfisvemd. Eft-
ir að hafa skoðað sýninguna verður
bryddað upp á þeirri nýjung að þátt-
takendur sjálfir gangi án fararstjóra
á milli fræðslustöðva sem settar hafa
verið upp á nokkrum stöðum. Á sól-
stöðumínútunni kl. 21.19 verður
stutt athöfn á Breiðabólstaðaeyri á
Álftanesi. Lýkur göngunni í
Öskjuhlíð kl. 12 á miðnætti.
Öllum er heimil þátttaka í sól-
stöðugöngunni og geta komið og
-farið hvenær sem er. -