Morgunblaðið - 20.06.1991, Side 43

Morgunblaðið - 20.06.1991, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ j ^ - ^ 'k s-\ J i- T , () IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 1991 43 KNATTSPYRNA / 1. DEILD (SAMSKIPADEILDIN) Ásgeir Elíasson vildi þakka húf- unni góðu sigurinn gegn Víði. Fyrsti sigur FH ÞAÐ var tilviljunarkenndur langspyrnubolti sem boðið var upp á í leik FH og Stjörnunnar í Kaplakrika. Leikurinn var þó langt ífrá tíðindalaus. FH nýtti færin og vann fyrsta leikinn á tímabilinu, 2:0. Liðin skiptust á að sækja í fyrri hálfleik en sóknaraðgerðir beggja liða voru tilviljunarkenndar og sendingar yfirleitt afleitar. Leik- urinn einkenndist Guðjón öðru fremur af Guðmundsson miklu fáti leik- skrífar manna beggja liða, sendingar voru óná- kvæmar og leikmenn lengi að finna samheija. í síðari hálfleik var heldur meiri pressa á vöm Stjömumanna en þess á milli datt leikurinn niður í langspymur án markmiðs og hroða- le'g varnarmistök sáust á báða bóga. Bæði lið verða að taka sig verulega áj- þétta vamir og ná upp betra samspili, ef þau eiga ekki að verða öðmm liðum auðveld bráð í kom- andi átökum. SKOTFIMI Carl í 3. sæti í Danmörku Carl J. Eiríksson hafnaði í 3. sæti riffilskotfimi í A-flokki á opnu móti í Danmörku um helgina. Carl hlaut 588 stig. Carl keppti nýlega á tveimur heimsbikarmótum í riffilskotfimi með það fyrir augum að ná ólympíu- lágmarki, sem er 590 stig. A fyrra mótinu sem fram fór í Miinchen náði hann 580 stigum og á hinum mótinu sem fram fór í Ziirich hlaut hann 586 stig. Þakka veiðihúf- unni sigurinn sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram „VIÐ vorum allt of linir í fyrri hálfleik og hefðum átt að geta skapað okkur miklu fleiri færi,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, eftir sigur á Víði í Garðin- um ígærkvöldi, 1:2. „Við nýtt- um þau færi sem við fengum þokkalega, en ég get ekki sagt að við höfum átt nein dauða- færi og ég verð að þakka veiði- húfunni góðu þennan sigur." Það voru Víðismenn sem byij- uðu leikinn af krafti og sóttu stíft í fyrri hálfleik. Þeir uppskáru árangur erfiðisins áður en stundar- fjórðungur var lið- inn af leiknum. Framarar komust fljótlega inn í leikinn en náðu aldrei að skapa hættu í nálægð við Víðis- markið. Er 10. mín. voru til leikhlés náðu þeir þó að jafna. Helgi Bragi Bárðarson skrifar úrGarðinum Gestirnir komu grimmari í leikinn eftir hlé og létu meira á sér bera. Víðismenn fengu vítaspyrnu þegar tvær mínútur voru liðnar, er Karli Finnbogasyni var skellt gróflega í vítateig Fram. Vilberg Þoivaldsson tók spyrnuna, en Birkir Kristinsson kastaði sér í hægra hornið og varði örugglega. Skömmu síðar komust Framarar yfir og héldu til leiksloka. „Þetta er alveg með ólíkindum. Við spiluðum vel, en það vantar bara að skora og nýta þau færi sem við fengum," sagði Óskar Ingi- mundarson, þjálfari Víðis. „Framar- ar skora hins vegar þessi mörk upp úr engu. Það má segja að þetta hafi verið unninn leikur sem fór í vaskinn. Þetta er alls ekki búið hjá okkur og það er vel hægt að vinna næstu leiki, þó svo að á brattan sé að sækja. Skilyrðið er þó að við náum að skora mörk.“ 1B^%Steinar Ingimundarson tekur homspymu á 13. mín. og boltinn fer beinl á höfuð Daníels Einarssonar, sem skallar knöttinn í netið. Birkir Kristinsson, markvörður Fram, átti ekki möguelika á að verja. 1B Steinar Guðgeirsson ■ I bmnaði með boltann upp vinstri kantinn og lék af sér nokkra Víðismenn. Gaf knöltinn í vinstra vítateigshomið þar sem Jón Erling Ragnarsson tók bolt- ann lék í átt að markinu og af- gieiddi hann í netið á 35. rnínútu. 1B Kristinn R. Jónsson ■ sendi knöttinn fni hægri vængnum yfir á Steinar Guðgeirs- son, sem var í vitateig Víðis- manna. Hann kom stuttri sendingu á Ríkharð Daðason sem komst í nágvígi við Jón Örvar við mark- stöng, en náði að renna knettinum framhjá honum og í netið á 72. Morgunblaðið/Bjarni Júgóslavinn Dervic tekur hér á loft og nær til knattarins áður en leikmaður Stjömunnar nær að hreinsa frá. Hörður Magnússon skoraði markið á 82. mín. — Hann fékk langa sendingu frá Bimi Jónssyni, lék í átt að marki og skaut fostu skoti í fjærhornið. 2a^\ Andri Marteinsson skoraði markið á 90. mín. ■ —* Hann fékk boltann á miðjum eigin vallarhelm- ingi, lék í átt að marki, sneri á varnamann og markvörð Stjömunnar og sendi knöttinn í mannlaust markið. FRJALSIÞROTTIR „Boðið frá Bislett ekki áhugavert“ - segir Sigurður Einarsson, spjótkastari Boðið um að keppa á Bislett var Strákamir hefðu þurft að borga með ekki svaravert," sagði Sigurður sér,“ sagði Magnús, sem sagði að það Einarsson, spjótkastari. Eins og sagt væri alfarið í hönduin íþróttamanna var frá í gær var boð til Sigurðar sjálfra að velja þau mót sem jieim Einarssonar og Péturs Guðmundsson- hentar hveiju sinni. ar, kúluvarpara, dregið til baka, en boð til Einars Vilhjálmssonar, sem Einar Vilhjálmsson, sem er einn hefur margoft keppt á Bislett, stendur cftirsóttasti spjótkastari heima á al- enn. Leikamir á Bislett er Grand þjóðlegum mótum, hefur átt við Prix-stigamót. meiðsli að stríða. Hann sagði í viðtali Magnús Jakobsson, formaðúr við Morgunblaðið á dögunum, að hann Frjálsíþróttasambands íslands, sagði hefði áhuga að keppa á Grand Prix- að boðið sem hafi komið frá Bislett móti í Stokkhólmi 2. júlí og á Bislett hafi ekki verið áhugavert fyrir þá. 6. júlí, en honum var boðið að keppa „Þeim var boðið frítt uppihald, en á þessum mótum, eins og flestum aðeins greiðsla á hálfu fargjaldi. Grand Prix-mótum. KORFUKNATTLEIKUR Bigir þjálf- ar KR-liðið BIRGIR Guðbjörnsson var í gær ráðinn þjálfari úrvalsdeildarl- iðs KR í körfuknattleik. Hann tekur við liðinu af Páli Kol- beinssyni. Birgir var aðstoðarmaður Páls frá síðustu áramótu með góð- um árangri. Páll mun þjálfa yngri flokka félagsins, en snúa sér alfarið að því að leika með meistaraflokki. Birgir þjálfaði KR 1987 og kom liðinu þá. í úrslit gegn Njarðvík. Hann á yfir 300 leiki að baki með meistaraflokki KR og þekkir því vel til í herbúðum Vesturbæinga. Að sögn Ingólfs Jónssonar, form- anns körfuknattleiksdeildar KR, bendir allt til þess að KR verði með sama lið næsta vetur, nema að Birgir Guðbjörnsson. Axel Nikulásson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Jonathan Bow verður líklega með KR áfram, en hann er nú í Bandaríkjunum og á aðeins eftir að ganga frá forms- atriðum. Ivar Webster, sem þjálfaði UÍ A síðasta vetur, æfir nú með KR. faém FOLK ■ JANI Zilnik, leikmaður Víkings, var úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd KSI í gær fyrir brottrekstur í leik IBV og Víkings í 4. umferð. Hann leikur því ekki með Víkingum gegn Breiðabliki í kvöld. ■ KRISTJÁN Halldórsson úr 2. deildarliði IR og Kristján Þór Kristjánsson úr 2. deildarliði Hauka fengu einnig eins leiks banlT hjá aganefnd. Tveir leikmenn úr 3. deild fengu sömu meðferð; Garð- ar Níelsson og Kristján Sigurðs- son úr Reyni Arskógströnd. ■ STÖÐVA varð leik KR og ÍBV um tíma, þar sem annar línuvörður- inn, Arnfinn Jensen, meiddist á hendi þegar hann veifaði rangstöðu á KR. Arnfinn varð að yfirgefa völlinn, en Guðmundur Stefán Maríasson tók stöðu hans á línunni. ■ PÉTUR Pétursson lék sinn 100. leik fyrir KR og fékk bikar og blómvönd afhentan fyrir leikinn. Gunnar Skúlason fékk það einnig, en hann lék sinn 100. leik gegn Val á dögunum. r ^ ■ BIRGI Sigfússyni, varnar- manni Stjörnunnar, var vikið af leikvelli þegar fimm mínútur voru til leiksloka í leiknum gegn FH eft- ir gróft brot á Dervice. ■ HÖRÐUR Magnússon, marka- skorari úr FH, fékk að líta gula spjaldið fyrir að fara úr peysunni þegar hann fagnaði marki sínu. ■ JOHN Aldridge verður ekki áfram hjá Real Sociedad í Portúg- al, þar sem hann gerði 40 mörk á tveimur árum. Aldridge, sem lék ■HHMM áður með Liver- Frá Bob pool, hyggur á forn- Hennessy ar slóðir — Tran- lEnglandi mere Rovers, sem er í næsta nágrenni við Liverpool og leikur í 2. deild ~ næsta tímabil, hefur gert honum girnilegt tilboð. ■ PAUL Parker, landsliðsmaður Englands í knattspyrnu, var seldur frá QPR í gær til Everton fyrir 1,2 millj. pund (liðlega 122 millj. ÍSK). ■ JIMMY Case, fyrrum leikmað- ur Liverpool, fékk fijálsa sölu frá Southampton og skipti óðar um félag, en fór eki langt — gerði samning við Bournemouth. ■ CYRIL Knowles, sem var þekktur leikmaður enska landsliðs- ins og Tottenham á árum áður, en hefur verið við stjórnvölinn hjá Hartlepool undanfarin ár, verður að hætta öllum afskiptum af knatt- spyrnu. Hann er óvinnufær vegna heilaskemmda og félagið verður að finna annan mann. „Þetta er erfið- asta ákvörðun, sem ég hef tekið," sagði formaður félagsins, sem gaf Knowles átta þúsund pund (liðlega 800.000 ÍSK) að skilnaði. ■ PREDRAG Spasic, sem hefur verið í herbúðum Real Madrid, hefur gengið til liðs við Osasuna, eftir að hafa verið aðeins eitt ár í Madrid, af fjögurra ára samning sem hann gerði við Real. ■ LUBIK Kubik, landsliðsmaður Tékkóslóvakíu, sem hefur leikið með Fiorentina á Italiu, gekk í gær til liðs við franska félagið Metz. ■ LJUPKO Petrovic, þjálfari Evrópumeistara Rauðu Stjörnunn- ar frá Júgóslavíu, tilkynnti í gær að hann væri hættur sem þjálfari meistaraliðsins. ■ ANDY Groni, markvörður Hibs, var seldur í gær til Glasgow Rangers á eina millj. steiiings- punda. ■ CHRIS Woods, landsliðsmark- vörður Englands, sem hefur leikið með Glasgow Rangers, er á leið til Englands. Hann hefur hug á að leika með ensku liði til að veija sæti sitt í landsliðinu, sem hann hefur misst til David Seamans hjá Arsenal. Woods hefur veriö orðað- ur við Nottingham Forest, Liverpool og Everion.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.