Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 11
vamarsvæðis Atlantshafsbanda-
lagsins, sk. „out of area“-aðgerðum?
„Ég vil fara mjög hægt í sakirnar
í þeim efnum. Hvað Þjóðverja varð-
ar þá myndi slíkt krefjast breyting-
ar á stjórnarskránni. Núverandi
stjómarskrá Þýskalands leyfir ekki
það sem maður kallar „out of area“-
aðgerðir. Þegar ég undirritaði skjöl-
in um inngöngu Þýskalands í Sam-
einuðu þjóðirnar þá gerði ég engan
fyrirvara hvað varðar stofnsáttmál-
ann. í stofnsáttmálanum er gert ráð
fyrir að herdeildir einstakra ríkja
taki þátt í friðargæsluaðgerðum
undir stjórn Sameinuðu þjóðanna.
Það er mikil spenna í kringum þetta
mál núna. Hvernig verða skyldur
okkar við Sameinuðu þjóðirnar á
næstu árum og hvemig ætla Evr-
ópubúar að grípa til aðgerða utan
athafnasvæðis NATO? Ég mæli ekki
með að Þjóðverjar hlaupi fyrstir til
en tel rétt að athuga ítarlega hvað
hægt sé að gera í samvinnu við
önnur ríki.“
Þér er talsmaður þess að Evrópu-
bandalagið þróist þannig að inn-
byrðis tengsl ríkjanna verði enn
nánari. Hversu langt á þessi þróun
að ganga? Alla leið að einhvers kon-
ar Bandaríkjum Evrópu?
„Þetta er fallegt orð og ég hef
auðvitað ekkert á móti því ef mönn-
um er ljóst að þetta verður ekki
eins og Bandaríki Ameríku. Banda-
ríkin eru land blöndunar, sk. „melt-
ing pot“, en Bandaríki Evrópu eiga
að nýta kosti samstarfsins en sam-
tímis vernda þjóðleg og menningar-
leg sérkenni hinna einstöku ríkja.
í fyrirlestri mínum við Háskóla
ísland sagðist ég vera andvígur
þeim röddum í Brussel sem vilja
einbeita sér að innra samstarfi
bandalagsins á kostnað útvíkkunar
þess. Það er mín skoðun að innra
samstarfið eigi ekki að standa í
vegi stækkunar. Eitt af lokastigum
þessarar þróunar er innri markaður-
inn. Annað er sameiginleg peninga-
stefna. Það þarf ekki endilega strax
að taka upp sameiginlega mynt
heldur má áfram notast við evr-
ópsku mynteininguna, ECU, sam-
hliða hinum þjóðlegu gjaldmiðlum
þó við tökum upp sameiginlega pen-
ingastefnu. Og við þurfum sameig-
inlega stefnu á mörgum mikilvæg-
um sviðum. Við þurfum sameigin-
lega skatta, sameiginlega félagslega
stefnu og sameiginlega umhverfis-
málastefnu. Þetta verða viðfangs-
efni tíunda áratugarins.
Síðan bætist það við sem kallað
er pólitísk sameining. Hvernig getur
maður aukið pólitískan hlut banda-
lagsins? Við erum auðvitað nær
þessu markmiði í dag en fyrir 25
árum síðan. Þá komu utanríkisráð-
herrarnir við og við saman og sögðu
hver öðrum frá síðustu ferðum sín-
um tii framandi landa. Nú eru tengsl
embættismanna, diplómata og
stjórnmálamanna mun nánari og
menn tala sig saman. Þetta er ekki
síst svona hjá Sameinuðu þjóðunum
í New York. Hvenær þessi miklu
samskipti breytast í nýtt stig evróp-
skrar utanríkisstefnu veit ég ekki
heldur. Þetta er ferli sem mun taka
mörg ár í viðbót en er þegar komið
vel á veg.“
Þér hafið verið í fremstu línu
stjórnmálanna í marga áratugi. Er
að yðar mati til eitthvað sem kalla
mætti heimspeki Brandts?
„Það verða aðrir að meta. Ég
komst að því mjög snemma að í
fyrsta lagi eru aðstæður í pólitík
nánast aldrei slíkar að engra kosta
sé völ. í öðru lagi að það er árang-
ursrikt að leggja áherslu á sameig-
inlega hagsmuni. Þeir eru til jafnvel
í þeim tilvikum þegar maður efast
um það.
Það var eðlilegt fyrir mig, eftir
þátt minn í að binda enda á tog-
streitu austurs og vesturs, að beita
mér í auknum mæli að málefnum
norðurs og suðurs, þ.m.t. einnig
umhverfismálum um heimsbyggð-
ina alla. Þessi leit að sameiginlegum
. hagsmunum er ekki alltaf auðveld
en ég held að ég geti sagt að hún
sé eitt af því sem ég hafi sett svip
minn á.“
Viðtal:
Steingrímur Sigurgeirsson
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
11
ILLA hefur gengið í veiðiám í
Húnavatnssýslu það sem af er.
Ekki er það vatnsleysi sem hrjá-
ir þær góðu ár, þau skilyrði sem
hafa verið slæm eru veðrið sem
hefur verið „of gott“ eins og
glaðbeitt starfsstúlka í Tjarnar-
brekku við Víðidalsá komst að
orði við Morgunblaðið. Það vant-
ar einfaldlega Iaxinn og ekki er
laust við að svartsýni sé farið að
gæta.
Vatnsdalsá dauf
Björg Erlingsdóttir í veiðihúsinu
að Flóðvangi við Vatnsdalsá sagði
í samtali við Morgunblaðið undir
kvöldið á föstudaginn að veiðin
hefði alls ekki gengið nógu vel og
hollin, sem eru 6 stangir í 3 daga,
hefðu verið að fá 3 til 4 laxa hvert.
Á föstudagsmorgun hefði þó sú
breyting til batnaðar orðið, að menn
sáu þokkalega torfu af fiski ganga
inn á neðsta svæðið og nokkru síðar
var hún á bak og burt. Að sjálf-
sögðu vonuðu menn að laxarnir
hefðu gengið fram ána. Fyrsti lax-
inn af efri svæðunum veiddist á
föstudaginn. Alls voru komnir 20
laxar á þurrt, flestir 10 til 12 pund
og sá stærsti 14 pund. Gott vatn er
í ánni, en sól og hiti hefur haft sitt
að segja. Aðalvandinn er þó sá, að
lítill sem enginn fiskur hefur geng-
ið. Björg sagði að menn hefðu dreg-
ið marga urriða og bleikjur, en lítil
sárabót væri í þeirri veiði, „Þessir
menn eru hingað komnir til að veiða
lax,“ sagði Björg.
Lítið betra í Víðidalnum
Starfsstúlka í Tjarnarbrekku við
Víðidalsá sagði litla veiði hafa verið
I ánni og þegar rætt var við hana
undir kvöldið á föstudag var kominn
31 lax á land, flestir 9 til 12 pund,
en þeir stærstu 14 punda. Þá um
morguninn höfðu þrír laxar verið
dregnir og þótti gott miðað við. það
sem á undan var gengið. Þökkuðu
menn veiðiaukninguna skýjuðu
veðri. Stúlkan í Tjarnarbrekku bar
veiðivörð staðarins fyrir því að sést
hefði til laxa á óvenjulegum og lítt
reyndum stöðum, það gæti því brátt
farið að rætast eitthvað úr í Víði-
dalnum.
Lélegt í Miðfirði...
Enn er léleg veiði í Miðfjarðará,
aðeins um 35 laxar voru komnir
þar á land á miðjum föstudeginum
eftir því sem Morgunblaðið komst
næst. Fiskur er dreifður þótt nokkr-
ir staðir gefi best. Hafa Kisturnar
í Vesturá borið þar af til þessa, en
nokkrir laxar hafa einnig veiðst í
Austurá, en lítið í Núpsá og Mið-
íjarðará sjálfri.
Morgunblaðið/gg
Stórir silungar af Ai'narvatns-
heiði.
nákvæmar tölur um slíka veiði þar
sem hún er óvíða skráð í bækur
eins og laxveiðin. Þó má segja frá
því, að Arnarvatnsheiðin opnaði
nýverið og vart hefur veiði þar í
opnun verið jafngóð í áraraðir.
Frést hefur af mikilli veiði í Arnar-
vatni mikla, Arnarvatni litla, Úlfs-
vatni, Veiðitjörn og Reykjavatni svo
eitthvað sé nefnt. Fengu sumir hóp-
arnir á annað hundrað silunga og
margt af fiskinum var um tvö pund,
en það er óvenjulega góð meðal-
þyngd á þessu svæði þótt frægt sé
fyrir góða veiði. Þeir sem eru á leið
á Heiðina mega til með að athuga
að logandi mývargur er þar þessa
daganna, óvenjulega mikill og
bitskæður.
Veiði hefur og verið góð á köflum
í Þingvallavatni að undanförnu.
Menn hafa verið að draga 15 til
20 vænar bleikjur á kvöld- eða
morgunstundum. Hefur spurst um
allt að 5 punda fiska þótt allur
þorrinn sé 1 til 2 pund og eitthvað
af 3 punda í bland. Þá væri mörgum
stundum vitlausar varið en við veiði-
skap I Elliða- og Helluvatni. Þar
hefur verið mjög góð veiði á köflum
og sumir fengið mikla veiði á
skömmum tíma. Það á þó hér við
eins og annars staðar, að það moka
ekki allir upp fiski. Þá hefur vel
veiðst í vötnum í Svínadal, Eyrar-
vatni, Þórisstaðavatni. og Geita-
bergsvatni og veiðimaður einn sem
ræddi við Morgunblaðið sagði að
þó nokkrir mjög stórir urriðar hefðu
veiðst í vötnunum, 5 til 7 punda
fiskar, sérstaklega í Geitabergs-
vatni, en einnig í hinum tveimur,
bara færri.
Serena-kórinn
________Tónlist__________
Jón Ásgeirsson
Stúlknakórinn Serena frá Esbo
í Finnlandi hélt tónleika sl. föstu-
dag í Norræna húsinu, undir
stjórn Kjerstin Silkström. Kórfé-
lagar eru allir nemendur við tón-
listarskólann í Esbo og stunda
ýmist nám á hljóðfæri eða í söng.
Á efnisskránni voru alþýðlegir
söngvar og tvö nútímaverk,
Söngvar um hafið, eftir Sallinen
og Aglepta, eftir Mellnes. Auk
nefndra verka voru á efnisskránni
þjóðlögin Vallvísa og Vem kan
segla, Ave maris stella, úr Piae
cantiones, Hur har en blomma var
till, spiá söngverk eftir Holmstöm
og Paradisfageln eftir Gustafsson.
Á eftir Aglepta komu tveir alþýð-
legir söngvar og þtjú dægurlög
með púi og öllu tilheyrandi. Tón-
leikunum lauk með kórnum úr
Finnlandíu.
Kórinn var vel æfður en söng
á köflum nokkuð hikandi, sem er
stjórnandans, að sleppa söngfólk-
inu aldrei lausu og kom einnig
að nokkru fram í vali verkefna,
sem flest reyndu lítið á sönggetu
stúlknanna, auk þes sem seinni
hluti tónleikanna var að mestu
byggður upp á léttmeti. Best
sungnu verkin voru Söngvar um
hafið eftir Sallinen og Aglepta,
galdraþulan eftir Mellnes, sem var
frábærlega vel flutt. Nokkrir kór-
félagar sungu einsöngsstrófur og
leikið var á þverflautu, sem allt
var þokkalega gert.
Tónleikarnir í heild voru fram-
færðir af þeirn þokka sem æsku-
fólki er eiginlegur, því æskan er
tími yndis og fegurðar og allt
verður fallegt, sem hún fer hönd-
um um og leikur með.
Serena-kórinn
'S‘621600
13*621600
Borgartuni 29
Borgartúni 29
Brekkubær - raðhús
Höfum fengið í einkasölu glæsilegt 254 fm raðhús, auk
bílskúrs, á besta stað í Brekkubæ. Eignin er á þremur
hæðum og möguleiki er á séríbúð á jarðhæð með sér-
inngangi. Eignin er í mjög góðu ásigkomulagi. Ákveðin
sala. Verð 15,9 millj.
Ragnar Tómasson hdl., Brynjar Harðarson, viðskfr.,
Haukur Geir Garðarsson, viðskfr., Guðrún Árnad., viðskfr.
Silungar eru líka fiskar
Allgóð silungsveiði er nú víða um
land, en sem fyrr er erfitt að fá
Vandaðar vörur á
betra verði
Nýborg"#
Skútuvogi 4, sími 812470
^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðiU!
f S 62-20-30
| FASTEIpNA
IMIÐSTOÐIN
* SKIPHOLTI 50B
NÆFURÁS 3260
Nýkomin í einkasölu glæsil. 120
fm endaíb. á 2. hæð í fallegu
fjölb. 3 svefnherb., sjónvarpshol
og björt stofa. Þvottah. i ib. Frá-
bært útsýni. Góð sameign. Áhv.
1,6 millj. húsnstjlán. Ákv. sala.
VESTURBÆR/SKJÓLIN7243
Glæsil. nýl. einb. á tveimur hæðum m.
innb. bílsk. Stærð alls 225 fm.
HRAUNBÆR 3230
LAUS í ÁGÚST
Glæsil. ca 100 fm 4ra herb íb. á 1. hæð.
Frábært útsýni. Parket. Hús allt endurn.
REYKÁS 2292
Glæsil. 95 fm íb. á ’ 2. hæð ásamt
bilskplötu. Tvennar svalir. Fráb. útsyni.
Áhv. ca 2,5 millj. húsnstjlán.
EFSTIHJALLI 3256
Nýkomin í einkasölu ca 90 fm íb. á 1. hæð
í litlu fjölb. (nýmálað og viðg.). Suðursv.
Parket. Verð 7,2 milij.
HAFNARFJÖRÐUR 7247
Lítið fallegt einb., kj., hæð og ris á þessum
rólega stað í Vesturbæ Hafnarfj. Stutt í
sundlaug og miðbæ. Verð 6,4 millj.
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Með góðu láni í gamla Vesturbænum
Nýlega endurbyggð 2ja herb. íbúð á 2. hæð í steinhúsi. Laus fljót-
lega. Húsnæðisián 2,6 millj.
Raðhús ein hæð - frábært verð
Endaraðhús, ein hæð, með nýrri sólstofu 151,5 fm. 4 svefnherb. Góð-
ur bílskúr 23,1 x 2 fm. Eignaskipti möguleg.
í nágrenni Háskólans
Traustir kaupendur óska eftir 2ja-5 herb. íbúðum.
Sérstaklega óskast 2ja-3ja herb. íbúð sem næst Háskólanum. Má
þarfnast endurbóta. Rétt eign að mestu staðgreidd.
í borginni eða Kópavogi
óskast góð 4ra herb. ibúð með bílskúr. Skipti möguleg á efri hæð í
tvíbýlishúsi með 4 svefnherb., öllu sér og bílskúr.
Um 150-200 fm skrifstofuhúsnæði
miðsvæðis í borginni óskast til kaups. Aðrar stærðir koma til greina.
Skipti möguleg á mjög góðu um 70 fm husnæði i lyftuhúsi á úrvals-
stað. Milligjöf staðgreidd.
• • •
Um 100 fm góð íbúð óskast
miðsvæðis í borginni.
Skipti möguleg ___________________________
á úrvals sérhæð. LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN