Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Áðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Að sætta
sjónarmið
Sl. sunnudag birtist hér í
Morgunblaðinu athyglis-
vert viðtal við Einar Svansson,
framkvæmdastjóra tveggja
sjávarútvegsfyrirtækja á
Sauðárkróki. í viðtali þessu
sagði Einar Svansson m.a.:
„Gallinn við kvótaumræðuna,
eins og hún hefur verið á milli
þeirra, sem aðhyllst hafa nú-
verandi kvótakerfi og hinna,
sem aðhyllst hafa einhvers
konar óskilgreint veiðileyfa-
gjald, er sá, að ekki hefur
verið talað nógu skýrt. Menn
hafa í raun verið að hafna
báðum aðferðum án þess að
hafa reynt að fara hlutlægt
ofan í málin. Að mínu mati
er það jafn mikil skammsýni
þeirra, sem fylgjandi eru nú-
verandi kerfi að hafna veiði-
leyfagjaldi og hinna að hafna
núverandi kvótakerfi. Það
verður að finna millileið til að
sætta sjónarmiðin, sem uppi
eru. Deilan verður ekki leyst
með því að annar aðilinn valti
yfir hinn.“
Síðan segir Einar Svansson:
„Það er alveg klárt mál, að
kvótinn er sameign þjóðarinn-
ar og í mínum huga er ekki
til nema ein millileið í stöð-
unni, sem sætt getur þau sjón-
armið, sem uppi eru. Þá leið
vil ég kalla „afnotagjalds-
kerfi“. Þannig yrði tekið
ákveðið afnotagjald, sem
þyrfti ekki að vera há pró-
senta, af veiðirétti hvers og
eins. Og grundvallaratriðið í
þessu kerfi yrði það, að fjár-
munirnir, sem þannig fengj-
ust, yrðu áfram í greininni.
Þeir yrðu annaðhvort notaðir
til hafrannsókna eða látnir
renna inn í hagræðingarsjóð
sjávarútvegsins til viðbótar
þeim veiðiheimildum, sem
sjóðurinn hefur sjálfur heimild
til að kaupa. Þannig yrði hægt
að efla þann sjóð, sem nauð-
synlegur er í hagræðingar-
skyni.“
Ef sjónarmið áf þessu tagi
yrðu ofan á meðal sjávarút-
vegsmanna almennt og menn
sýndu í verki vilja til að koma
til móts við skoðanir þeirra,
sem halda fram lögbundnum
eignarrétti þjóðarinnar á fiski-
miðunum, yrðu fljótt breyting-
ar á þeim umræðum, sem nú
fara fram um fiskveiðistjórn-
unina. Grundvallaratriði er, að
sjávarútvegurinn fallist á, að
eðlilegt sé, að atvinnugreinin
greiði gjald í einhveiju formi
fyrir réttinn til þess að nýta
fiskimiðin. Þegar menn hafa
fallizt á það meginatriði mun
sjávarútvegurinn mæta mikl-
um skilningi, þegar kemur að
útfærslu fiskveiðistefnunnar
að öðru leyti.
í þessu sambandi er ekki
úr vegi að vitna til greinar
eftir Jón Sigurðsson, iðnaðar-
o g viðskiptaráðherra, sem
birtist hér í Morgunblaðinu 26.
júní sl., en þar sagði m.a.:
„Það kemur vel til álita, að
þessar breytingar á fiskveiði-
stjórn og rekstrarskilyrðum
verði gerðar á alllöngum tíma,
t.d. á næstu 5 til 10 árum.
Aðalatriðið er hins vegar að
skipulega og skynsamlega
verði nú á málinu tekið.“ Og
Jón Sigurðsson sagði enn-
fremur: „Til þess að ná þessu
marki þarf að breyta kvóta-
kerfinu og taka í áföngum upp
kerfi, sem byggir á endur-
gjaldi fyrir veiðileyfi til þess
að auðvelda megi hagi’æðingu
í fiskveiðum og þjóðinni allri
verði tryggð réttlát hlutdeild
í arði af auðlindum sjávar.“
Deilan um fiskveiðistefnuna
verður ekki til lykta leidd
nema með málamiðlun, eins
og Einar Svansson réttilega
bendir á. Fyrr eða síðar verða
hagsmunasamtök sjávarút-
vegsins að stíga það skref að
fallast á greiðslu fyrir veiði-
rétt. Þegar sú afstaða liggur
fyrir mun sjávarútvegurinn
mæta miklum skilningi ann-
arra þjóðfélagsþegna.
Það skiptir verulegu máli
fyrir sjávarútveginn sjálfan,
að deilur um fiskveiðistefnuna
standi ekki of lengi, að ákvörð-
un verði tekin og niðurstaða
fáist. Ef dráttur verður á því
getur það haft neikvæð áhrif
á það starf, sem nú þegar fer
fram við endurskipulagningu
og hagræðingu innan atvinnu-
greinarinnar. Óvissa í mörg
ár um framtíðarstefnu í fisk-
veiðimálum er það versta, sem
fyrir útgerðina getur komið
og þjóðarbúskap okkar einnig.
Þeir, sem berjast fyrir breyttri
fiskveiðistefnu hafa hvað eftir
annað lýst sig reiðubúna til
að mæta sjónarmiðum sjávar-
útvegsins með skilningi. Nú
er komið að forystumönnum
sjávarútvegsins að stíga
næsta skref.
Varðarfélagar fylgjast með ræðu Davíðs að Laugum í Sælingsdal. Morgunbiaðið/Kjartan Magnússon
Stöðugleikinn er for-
senda bættra lífskjara
- sagði Davíð Odds-
son í Varðarferð
„STÖÐUGLEIKI er forsenda þess
að við Islendingar glutrum ekki
niður hinum hæga efnahagsbata
sem nú á sér stað í þjóðfélaginu.
An slíks stöðugleika verður ekki
unnt að bæta lífskjör," sagði Dav-
íð Oddsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins og forsætisráðherra, í
ræðu sem hann hélt í sumarferð
landsmálafélagsins Varðar síðast-
liðinn laugardag. I þetta sinn var
förinni heitið vestur í Dali. Um
þrjú hundruð manns tóku þátt í
ferðinni og ríkti blíðskaparveður
mestan hluta Ieiðarinnar.
Sumarferð hefur um árabil verið
fastur liður í starfsemi Varðar. Lagt
var af stað frá Reykjavík snemma
morguns og ekið sem leið lá að
Munaðarnesi í Borgarfirði. Þar
snæddu Varðarfélagar nesti og
hlýddu á ávörp Ólafs Klemenssonar,
formanns Varðar, og Sturlu Böð-
varssonar, fyrsta þingmanns Vest-
urlandskjördæmis. Síðan var ekið
vestur í Dali, um Bröttubrekku, og
var hádegisverður snæddur á Laug-
um í Sælingsdal. Þar flutti Davíð
Oddsson ræðu en Friðjón Þórðarson,
sýslumaður, flutti héraðslýsingu og
fræddi Varðarfélaga um sögu sýsl-
unnar. Síðdegis var ekið eftir Fells-
strönd, fyrir Klofning og komið við
að Skarði á Skarðsströnd. Á heim-
leið var ekið um Skógarströnd og
Heydali.
í ræðu sinni vék Davíð að hinum
miklu umskiptum sem orðið hafa í
íslenskum stjórnmálum á síðustu
mánuðum. Sagði Davíð að fyrri rík-
isstjórn hefði ekki leyst vandamálin
heldur reynt að sópa þeim undir
teppið og fela þau þannig fram yfir
kosningar. Vinstri flokkarnir hefðu
talið almenningi trú um að allt væri
í stakasta lagi í ríkisfjármálum en
annað kom á daginn. Nauðsynlegt
hefði verið að hraða myndun nýrrar
stjórnar sem gæti tekið á vandanum
án tafar. Það tókst á nokkrum dög-
um en áður hefðu kjósendur mátt
venjast því að stjórnarmyndunarvið-
ræður drægjust fram á haust. Nú-
verandi ríkisstjórn hefði þegar tekið
vandann föstum tökum og gripið til
aðgerða. Slíkar aðgerðir væru ef til
vill ekki til vinsælda fallnar en nauð-
synlegar eigi að síður. Mikilvægt
væri að halda verðbólgunni í skefj-
um og stefnt væri að því að hún
yrði ekki meiri en 8% frá upphafi
til loka þessa árs. Því þyrfti að ríkja
stöðugleiki í þjóðfélaginu ef sá hægi
efnahagsbati, sem nú á sér stað,
ætti að skila sér í betri lífskjörum.
íslenzka bridslandsliðið er komið heim eftir frægðarför
til írlands þar sem þeir náðu 4. sæti á Evrópumótinu
og öðluðust rétt til þátttöku í heimsmeistaramótinu sem
fram fer í Yokohama í Japan. íslendingarnir voru að
vonum kátir þegar þeir heilsuðu móttökunefnd frá
Bridssambandinu í Leifsstöð sl. sunnudagskvöid. Þeir
létu vel af sér og var ekki annað að heyra en þeir
væru tilbúnir í slaginn í Yokohama í haust. Heimsmeist-
aramótið verður skipað 16 sveitum sem spila í tveimur
riðlum. Það hefst 29. september og stendur til 11.
október. Meðfylgjandi mynd var tekin í Leifsstöð. Ta-
lið frá vinstri: Björn Eysteinsson fyrirliði, Guðmundur
Páll Arnarson, Áðalsteinn Jörgensen, Jón Baldursson,
Þorlákur Jónsson og Elín Bjarnadóttir forseti Bridssam-
bands íslands. Tveir spilaranna, Guðlaugur R. Jóhanns-
son og Örn Arnþórsson eru ókomnir til landsins.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
27
Háskóli íslands:
385 kandídatar braut-
skráðir á háskólahátíð
Afbragðsárangnr Kristjáns Guðmundssonar á lyfjafræðiprófi
Sigmundur Guðbjarnason háskólarektor flytur ræðu sína.
HÁSKÓLI íslands brautskráði
385 kandidata á háskólahátíð á
laugardaginn var. Á hátíðinni
var einnig lýst kjöri fjögurra
heiðursdoktora. Tvö þeirra sem
útskrifuðust sýndu sérlega góð-
an árangur í námi sínu.
Hátíðin hófst með leik þeirra
Guðnýjar Guðmundsdóttur á fiðlu
og Gunnars Kvaran á selló. Að leik
þeirra loknum var lýst kjöri heiðurs-
doktora, þeirra Páls S. Árdal og
Harðar Ágústssonar í heimspeki-
deild, Einars Baldvins Pálssonar í
verkfræðideild og Ingólfs Davíðs-
sonar í raunvísindadeild.
Páll S. Árdal fæddist árið 1924.
Hann lauk doktorsprófi frá Háskól-
anum í Edinborg árið 1961 og
kenndi um árabil við þann skóla,
en frá árinu 1969 hefur Páll verið
prófessor við Queens-háskóla í
Kingston í Kanada.
Hörður Ágústsson fæddist árið
1922. Hann stundaði myndlist-
arnám í Reykjavík, Kaupmanna-
höfn og París. Hörður var um ára-
bil skólastjóri Myndlista- og handíð-
askóla Islands. Hann hefur unnið
mikið að varðveislu íslenskra menn-
ingarminja og ritun íslenskrar hús-
agerðarsögu.
Einar Baldvin Pálsson fæddist
árið 1912. Prófi í byggingarverk-
fræði lauk hann í Dresden árið
1935. Einar Baldvin var um tíu ára
skeið prófessor í byggingarverk-
færði við Háskóla íslands og hefur
frá árinu 1984 starfað við Verk-
fræðistofnun Háskólans.
Ingólfur Davíðsson fæddist árið
1903. Hann lauk magistersprófi í
náttúrufræði með grasafræði sem
sérgrein frá Kaupmannahafnarhá-
skóla árið 1936. Ingólfur varð að
námi loknu sérfræðingur í plöntu-
sjúkdómum við Búnaðardeild At-
vinnudeildar Háskólans, síðar
Rannsóknarstofnun landbúnaðar-
ins. Starfinu gegndi hann til ársins
1973 en annaðist jafnframt kennslu
í grein sinni og hefur skrifað fjölda
greina og ritgerða um grasafræði.
Þegar kjöri heiðursdoktora hafði
verið lýst ræddi dr. Sigmundur
Guðbjarnason háskólarektor- mál-
efni háskólans og ávarpaði kandíd-
ata. Því næst afhentu deildarforset-
ar prófskírteini og í lok hátíðarinn-
ar söng Háskólakórinn undir stjórn
Ferenc Utassy og Egils Gunnars-
sonar.
í hópi nýútskrifaðra kandídata
var Kristján Guðmundsson sem út-
skrifaðist með kandídatspróf í lyfja-
fræði og sýndi afburða námsárang-
ur. Hann hlaut meðaleinkunnina
9,77 úr 44 einkunnum alls. Árang-
Þyrlu vamarliðsins flog-
ið ofan af Snæfellsjökli
Settir voru í hana varahlutir úr annarri þyrlu
ÞYRLU varnarliðsins, sem brotlenti á Snæfellsjökli 22. júní, var á
laugardaginn flogið til Keflavíkur. Þyrlunni var komið í flughæft
ástand með því að setja í hana parta úr annarri þyrlu varnarliðs-
ins. Nú er beðið eftir að viðeigandi varahlutir komi til landsins en
þá er gert ráð fyrir að mjög skamman tíma taki að gera við þyrluna.
Þyrlan brotlenti á Snæfellsjökli
laugardaginn 22. júní síðastliðinn
þegar hún var þar við björgunar-
störf. Á miðvikudaginn fór hópur
viðgerðarmanna frá varnarliðinu
ásamt íslenskum björgunarsveit-
armönnum á jökulinn til að ná henni
niður.
Að sögn Friðþórs Eydal, blaðafull-
trúa varnarliðsins, var þyrlunni flog-
ið ofan af jöklinum laust fyrir há-
degi á laugardag eftir að búnaðar
hennar hafði verið kannaður.
Henni var fyrst flogið að Rifi, þar
sem ástand hennar var athugað bet-
ur og þaðan meðfram ströndinni til
Keflavíkur.
Friðþór segir, að til þess að koma
þyrlunni í flughæft ástand hafi þurft
að setja í hana búnað úr annarri
þyrlu varnarliðsins, þar á meðal
skrúfublöð, mótor, glugga og fleira.
Þessir partar hafi nú aftur verið sett-
ir í hina þyrluna og nú sé beðið eft-
ir að varahlutir berist til landsins svo
hægt verði að gera við vélina, sem
brotlenti á jöklinum. Þegar þeir komi
eigi viðgerðin ekki að taka nema um
8 klukkustundir.
Suðureyri:
Góður afli
hand-
færabáta
Suðureyri.
SÍÐUSTU daga hefur afli hand-
færabáta sem gerðir eru út frá
Suðureyri verið mjög góður.
Jafnframt hefur tíðarfarið verið
þokkalegt, að undangengnum
brælukafla í byijun júnímánaðar.
Flestir trillukarlar eru einir á bát
og stunda dagróðra. Ekki er óal-
gengt að aflinn losi tonn eftir dag-
inn af þokkaleg'um þorski úr Nes-
dýpiskantinum. Þorskurinn er fullur
af síli og að sögn trillukarlanna er
svo krökkt af svartfugli á miðunum
. að elstu menn muna vart annað
eins.
- Sturla Páll
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Þorsteinn Guðbjörnsson á mb. Berta G. hampar hér tveimur vænum
þorskum úr Nesdýpiskantinum.
Morgunblaðið/Bjarni
Ingólfur Davíðsson tekur við heiðursdoktorsskjali sínu úr hendi Unn-
steins Stefánssonar deildarforseta raunvísindadeildar.
ur Kristjáns, sem verður 24ra ára
síðar á árinu, er einn sá albesti sem
kandídat hefur náð á lokaprófi frá
Háskóla íslands. Kristján hefur
áður sýnt frábæran námsárangur.
Hann varð dúx á stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík vorið
1986 og sat þó aðeins þijá vetur í
skólanum.
Foreldrar Kristjáns voru báðir
lyfjafræðingar. Móðir hans, Erna
Kristjánsdóttir, starfar í apótekinu
Lyíjabergi, þar sem faðir Kristjáns,
Guðmundur Steinsson, var apótek-
ari, en hann lést nýlega. Góður
námsárangur er ekki ný saga í Tjöl-
skyldunni því að þegar Guðmundur
útskrifaðist frá Kaupmannahafnar-
háskóla hlaut hann gullverðlaun frá
skólanum. Ólafur Steinn, bróðir ^
Kristjáns, er við nám í lyfjafræði í
Háskóla Islands. Kristján hyggur á
framhaldsnám við Michigan-
háskóla í Bandaríkjunum.
Sólveig Einarsdóttir, sem út-
skrifaðist úr heimspekideild, sýndi
einnig óvenjulegan árangur í námi.
Eftir þriggja ára nám við Háskól-
ann lauk hún tvöföldu BA-prófi,
annars vegar í íslensku og latínu
með aðaleinkunninni 8,53 og hins
vegar í almennum málvísindum og
grísku með 8,96 í aðaleinkunn. .
Fyrir hafði Sólveig B.ed-próf frá
Kennaraháskóla íslands sem hún
lauk árið 1986. Sigrún kveðst hafa
1 hyggju að leggja stund á fram-
haldsnám í íslenskri málfræði.
Morgunblaðið/Bjarni
Leikári Þjóðleikhússins lauk á sunnudaginn með síðustu sýningu á
söngleiknum Söngvaseiði. Að sýningu lokinni var efnt til veislu í Perl-
unni í Oskjuhlíð en þar voru meðal gesta þeir Benedikt Árnason, leik-
stjóri Söngvaseiðs og gamall skólafélagi hans, breski leikarinn Jeremy
Brett, sem meðal annars er þekktur fyrir leik sinn í hlutverki Sherlock
Holmes í samnefndum sjónvarpsþáttum.
Rúmleg'a 26 þúsund sáu
Söngvaseið í Þjóðleikhúsi
RUMLEGA 26 þúsund manns sáu sýningu Þjóðleikhússins á söngleikn-
um Söngvaseið eftir Rogers og Hammerstein í vor. Sýningum á verk-
inu lauk á sunnudaginn og var uppselt á allar sýningar á verkinu, sem
alls voru 60.
Leikári Þjóðleikhússins lauk á
sunnudaginn. Mestan hluta leikárs-
ins vai' stóra svið leikhússins lokað
en sýnt var á Litla sviðinu, í íslensku
óperunni, Borgarleikhúsinu, auk
þess sem farið var í grunnskóla og
víðar. Verkefni leikársins voru 12,
sýningar 338 og voru áhorfendur
alls 84.107.
I fréttatilkynningu frá Þjóðleik-
húsinu kemur fram, að flestir áhorf-
endur, eða 35.043, hafi séð verkið
Næturgalann, sem meðal annars var
sýnt í grunnskólum landsins, næst
mest liafi aðsókn verið á Söngva-
seið, eða 26.291 og þá hafi 9.742
séð verk Spaugstofunnar, Örfá sæti
laus, sem sýnt var í íslensku ópe-
runni.
Fram kemur, að á að giska 4.000
manns hafi séð sýningar nemenda
Listdansskóla Þjóðleikhússins sem
alls hafi sýnt 15 sinnum á leikárinu.
Æfingar vegna fýrstu verkefna
næsta leikárs eru hafnar. Fyrsta
verkefni á stóra sviðinu verður Gleði-
spilið eftir Kjartan Ragnarsson en á
litla sviðinu leikrit frá Sovétríkjunum
sem heitir Kæra Jelena eftir Ludm-
ilu Razumovskaju.