Morgunblaðið - 02.07.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
Bandaríkin:
Mælt með að her-
stöðvum verði lokað
Washington. Reuter.
OPINBER nefnd mælti með því á sunnudag að ýmsum herstöðvum
í Bandaríkjunum yrði lokað og starfsemi annarra breytt eða úr
henni dregið í því skyni að varnarmálaráðuneytinu takist með því
að spara 1,7 milljarða dollara (um 107 milljarða ísl. kr.) á ári.
Búist er við að George Bush
Bandaríkjaforseti samþykki tillög-
ur nefndarinnar, sem kveða á um
að 69 herstöðvum verði lokað, en
starfsemi 38 til viðbótar breytt eða
úr henni dregið.
Forsetinn hefur frest til 15. júní
til að endurskoða tillögurnar og
Reuter
Díana prins-
essa þrítug
Díana prinsessa af Wales varð
þrítug í gær og var þessi
mynd tekin á samkomu sem
haldin var á Savoy-hótelinu í
Lundúnum til að safna fé fyr-
ir griðastað handa börnum í
Walsall, skammt frá Birming-
ham.
eftir það fær þingið 45 daga til
að samþykkja þær eða hafna þeim,
en getur ekki gert á þeim neinar
breytingar.
Þegar heimildarmaður í Hvíta
húsinu var spurður hvort forset-
inn, sem er í sumarfríi í Maine
nú um stundir, mundi samþykkja
tillögurnar sagðist hann ekki sjá
neitt því til fyrirstöðu.
Varnarmálaráðuneytið hafði
áður sent tillögur sínar til nefndar-
innar sem úrskurðar um þær áður
en þær koma til umfjöllunar í
Hvíta húsinu.
Reuter
Slóvenskur hermaður í Júgóslavíuher fórnar höndum á meðan Slóvenar reyna að rífa skriðdreka við
landamærin að Austurríki.
Átökin í Júgóslavíu:
Málamiðlun á ný í deilum
Slóvena við alríkisstjómina
T ■■iltli'in-i Fra Onmi RiomadnHnr fmHantara MnrmnihlaActnc
Ljubljana. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ALLAR okkar samþykktir og gerðir standa,“ sagði Dimitri Rupel,
utanríkisráðaherra Slóveníu, eftir fund með fréttamönnum i höfuð-
borginni Ljubljana í gærmærgun. „Hvað þurfum við að endurtaka
það oft?“ Hann var þreyttur og óþolinmóður eftir næturfund í Zagreb,
höfuðborg Króatíu, með þremur utanríkisráðherrum Evrópubanda-
lagsríkja og fulltrúum Króatiu. Leiðtogar Slóveníu og Króatíu, júgó-
slavnesku sambandslýðveldanna tveggja sem lýstu yfir sjálfstæði 25.
júní sl., samþykktu á ný málamiðlun ráðherranna sem felur í sér
kjör Króatans Stipe Mesic í embætti forseta Júgóslavíu. Frestað
verður frekari skrefum í átt að fullu sjálfstæði ríkjanna tveggja og
vopnahlé verður milli júgóslavneska hersins og heimavarnarliðs Sló-
veníu.
Leiðtogar Serbíu og sambands- sunnudag. Allir aðilar að samkomu-
stjómar Júgóslavíu samþykktu laginu höfðu reyndar einnig sam-
einnig málamiðlun ráðherranna á þykkt það á föstudagskvöld en þá
Sjö áratuga ríkiseinokun afnumin í Sovétríkjunum:
Harðlínumenn koma í veg
fyrir öra einkavæðingn
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA þingið nam sjö ára-
tuga ríkiseinokun úr gildi í gær
með því að samþykkja lög um
afnám þjóðnýtingar en harðlínu-
kommúnistum tókst þó að koma
í veg fyrir öra einkavæðingu og
Svarthúf-
iirnar tekn-
ar á beinið
Moskvu. Rcuter.
SOVÉSKA innanríkisráðuneytið
hefur veitt sérsveitum sínum,
svarthúfunum, ádrepu fyrir
glannalegar aðgerðir í Eystra-
saltslýðveldinu Litháen, að því er
7’ASS-fréttastofan sagði á laugar-
dag.
Yfirmenn óeirðasveitanna, sem
einnig ganga undir nafninu OMON,
voru kallaðir til Moskvu á föstudag.
Þeir voru varaðir við að ganga of
langt í störfum sínum og lögð rík
áhersla á að þeir samræmdu störf
sveitanna almennri löggæslu í Lithá-
en.
Þungvopnaðar sveitir svarthúf-
anna lögðu undir sig landsímastöð
Litháens á miðvikudag í síðustu viku
og héldu landinu sambandslausu við
umheiminn í tvær klukkustundir.
þeir fengu því framgegnt að
nokkur mikilvæg fyrirtæki yrðu
áfram þjóðnýtt. Rússneski hag-
fræðingurinn Grígoríj Javlínskíj
kynnti í gær tillögur sinar um
róttækar umbætur í efnahags-
málum, sem miða að því að koma
á frjálsu markaðshagkerfi í Sov-
étríkjunum líkt og í Vestur-Evr-
ópu fyrir árið 1997.
Sovéska þingið samþykkti að
lögð yrði áhersla á að selja ríkisfyr-
irtæki samvinnufyrirtækjum starfs-
manna þeirra eða leigja þau. Tillaga
umbótasinna um að almenningur
fengi stóran hluta eigna ríkisins
gefins náði ekki fram að ganga.
„Þetta eru fyrst og fremst lög
um afnám þjóðnýtingar en þau
fjalla aðeins að litlu leyti um einka-
væðingu," sagði forseti þingsins,
Anatolíj Lúkjanov.
Sovéska stjórnin gerir ráð fyrir
því að um helmingur allra eigna
ríkisins verði seldur eða leigður á
næsta ári og 75% fyrir árið 1995.
Grígoríj Javlínskíj kynnti tillögur
sínar um róttækar umbætur í efna-
hagsmálum fyrir blaðamönnum í
Moskvu í gær. Míkhaíl Gorbatsjov
Sovétforseti hyggst samræma til-
Iögurnar neyðaráætlun sovésku
stjórnarinnar í efnahagsmálum og
leggja þær fram á fundi hans með
Ieiðtogum sjö helstu iðnríkja heims
í Lundúnum síðar í mánuðinum.
I tillögum Javlínskíjs, sem eru í
sex liðum, er gert ráð fyrir eftirfar-
andi:
• Að einkaeignarréttur verði lög-
leiddur, meðal annars í landbúnaði.
• Flest ríkisfyrirtæki verði
einkavædd og smáfyrirtæki seld á
uppboði.
• Einokun verði afnumin til að
hægt verði að stofna ný fyrirtæki
og stuðla að samkeppni.
• Dregið verði sem fyrst úr út-
gjöldum til hergagnaiðnaðarins til
að minnka ijárlagahallann og skapa
stöðugleika í peningamálum.
• Verðlag verði gefið frjálst og
Iátið ráðast af framboði og eftir-
spurn.
• Reglum um utanríkisviðskipti
verði breytt í samræmi við við-
skiptahætti á Vesturlöndum og
rúblan gerð skiptanleg.
Javlínskíj segir að verði ekki
komið á róttækum umbótum blasi
við óðaverðbólga í Sovétríkjunum
og mikill samdráttur í framleiðslu.
Skýrt var frá því í gær að olíu-
framleiðslan í Iandinu hefði minnk-
að fimm fyrstu mánuði ársins og
sérfræðingar spáðu þvi að fram-
leiðslan í ár yrði minni en dæmi eru
um í áratug. Þá greindi Pravda,
málgagn kommúnistaflokksins, frá
því að hörgull væri á klæðnaði og
skóm í landinu og hætta á matvæla-
skorti vegna síminnkandi fram-
leiðslu.
rann það út í sandinn. Nú eru meiri
vonir bundnar við það. Mesic hefur
þegar verið kjörinn forseti sam-
bandsríkisins og Milan Kucan, for-
seti Slóveníu, segir að vopnahlé ríki,
það sé aðeins tímaspursmál hvenær
og hvernig júgóslavneski herinn
hverfi aftur til herbúða sinna. Her-
inn var kallaður út á fimmtudag,
Slóvenum til mikillar skelfingar, en
var yfirbugaður af heimavarnar-
sveitum sem heftu för hans með
vegatálmum. Sérstök nefnd Júgó-
slava og Slóvena á að hefja eftirlit
með ferðum hersins i Slóveníu
næstu daga og skera úr um hvort..
hann heldur öllum vopnum eða ekki.
Nokkrar herdeildir verða að húka
þar sem þær eru niðurkomnar
þangað til nefndin kemst að sam-
komulagi.
Hver fyrirskipaði
aðgerðirnar?
Enginn í Júgóslavíu hefur geng-
ist við því að hafa gefið hernum
fyrirmæli um að skjóta og sprengja
eins og hann gerði í Slóveníu í síð-
ustu viku. Ante Markovic, forsætis-
ráðherra Júgóslavíu, sagði á sunnu-
dag að herinn hefði ekki farið að
fyrirskipunum heldur tekið eigin
ákvarðanir. Mesic er nú formlegur
yfirmaður hersins og það þykir
fróðlegt að sjá hvort hann mun hlíta
skipunum forsetans. Herinn var
kallaður út að nafninu til í því skyni
að taka landamærastöðvar Júgó-
slaviu í Slóveníu í sínar hendur.
Honum tókst það að hluta til og
náði um 40% þeirra. Stjórnvöld í
Belgrad, höfuðborg Júgóslavíu,
sættu sig ekki við að fáni Slóveníu
blakti við hún á landamærum sam-
bandslýðveldisins. En Rupel sagði
Morgunblaðinu í gærmorgun að sló-
venski fáninn yrði við landamæri
hins nýja ríkis eftir sem áður.
Hið takmarkaða traust sem ríkti
milli sambandslýðvelda Júgóslavíu
er nú fullkomlega þrotið. Kucán
sagði að erlendir aðilar, fulltrúar
Ráðstefnunnar um öryggi og sam-
vinnu i Evrópu eða EB, yrðú að
hafa eftirlit með samskiptum sam-
bandsríkisins og sjálfstæðu ríkj-
anna tveggja næstu mánuði. Hann
sagði að það væri líklegt að Mesic
yrði áhrifalaus í forsetaembættinu
og hann útilokaði ekki að stjórnvöld
í Króatíu ákvæðu að hann segði af
sér embætti þar sem Króatía væri
nú sjálfstæð.
Skelfing á meðal íbúanna
Hápunktur taugastríðs júgóslav-
neska hersins í Slóveníu var á
sunnudagsmorgun klukkan 9 að
staðartíma. Herforingi hafði gefið
stjórnvöldum frest til þess tíma til
að kalla landamærasveitir heim og
hótað að herinn myndi annars grípa
til örþrifaráða. Loftvarnaflautur
glumdu við í Ljubljana rétt rúmlega
níu og ibúum var sagt að leita
hælis í kjöllurum. Herflugvélar
hefðu tekið sig á loft á þremur
hervöllum og stefndu í átt að borg-
inni. Fólk varð logandi hrætt en
hættan leið hjá án átaka og það
var talið óhætt að fara úr kjöllurun-
um eftir tæpa klukkustund.
Fréttaritari Morgunblaðsins var
að sóla sig við Adria-strönd þegar
þetta var. Starfsmaður hótels á
ferðamannastað skammt sunnan
við hafnarborgina Koper vakti mig
klukkan hálf sjö til að segja að land-
amærin til Ítalíu væru opin. Hann
varð steinhissa þegar ég sagðist
alls ekki vilja fara úr landi. Það var
ágætt að vakna snemma og leggj-
ast í flæðarmálið á strqndinni. En
strandvörðurinn rak mig þaðan
klukkan rúmlega níu og sagði að
það væri hætta á loftárás! Ég varð
að flytja mig ofar á ströndina og
hann lánaði mér legustól ókeypis í
huggunarskyni. Sjálfur hengdi
hann upp Rauða kross fána hér og
þar um ströndina, væntaniega til
að koma í veg fyrir að auð ströndin
yrði fyrir árás.
Slóvenar geta hrósað sigri
Leiðin frá Ljubljana að ströndinni
var lokuð skammt frá hafnarborg-
inni Kaper á laugardag. Tveir her-
menn beindu fólki þá til baka, en
þeir voru fyrstu júgóslavnesku her-
mennirnir sem ég sá í Slóveníu síð-
an á föstudag. Vegatálmar komu í
veg fyrir að maður nálgaðist herinn
annars staðar. Sárafáir íbúar voru
á ferð um helgina en þeir urðu að
fara síðasta spölinn í átt að strönd-
inni um ófæran skógarstíg. Leiðin
til höfuðborgarinnar var opin á
sunnudag.
Þungavinnuvélar og flutningabíl-
ar loka enn mörgum helstu vegum
Slóveníu og það er flókið mál að
komast leiðar sinnar í Ljubljana.
Ástandið í landinu ætti að komast
í eðlilegt horf á næstu dögum. SIó-
venar geta þá hrósað sigri yfir júgó-
slavneska hernum og kannski síð-
ustu tilraun kommúnista til að
halda völdum með hervaldi. En fólki
hér kemur saman um að afskipti
hersins hafi ekki verið annað en
barátta gömlu kommúnistanna í
landinu við að halda miðstjórn sam-
bandsríkisins í sínum höndum.