Morgunblaðið - 02.07.1991, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚLÍ 1991
Selfoss:
Átta luku námi í
Ritaraskólanum
Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nemendur Ritaraskólans sem luku námi á fyrsta ári á Selfossi.
ÁTTA nemendur luku prófi á
fyrsta ári almenns starfsnáms í
Ritaraskólanum á Selfossi sem
starfæktur er af Stjórnunarfé-
lagi Islands. Nægur markaður
virðist fyrir þá sem stunda nám
í almennum skrifstofustörfum.
Dæmi eru um að nemendur séu
ráðnir á staðnum eftir að hafa
verið í starfsþjálfun í fyrirtækj-
um.
Stjómunarfélagið starfrækir
útibú frá ritaraskólanum á Sel-
fossi, í Vestmannaeyjum, Keflavík
og á Ísafirði. Kennslan á Selfossi
fór fram á tímabilinu september-
apríl og var kennt á kvöldin frá
klukkan 18.00-22.00, alls 400
tímar á 6 mánuðum.
Um er að ræða tveggja ára
nám. Fyrsta árið er almenn starfs-
þjálfun en á öðru ári fara nemend-
ur í framhaldsnám. Nemendur á
öðru ári hafa rétt til námslána hjá
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
íslandsbanki hefur veitt nemend-
um fyrirgreiðslu til þriggja ára.
Strangar námskröfur eru í skói-
anum og er lágmarkseinkunn 7,0
í öllum greinum. Þeir átta nemend-
ur sem luku 1. árs námi á Sel-
fossi stóðust allir próf. Af þeim
átta sem luku námi fóru fjórar
stúlkur í starfsþjálfun til Reykja-
víkur.
Sig. Jóns.
■ VEITINGAHÚSIÐ Gaukur á
Stöng býður upp á lifandi tónlist á
hveiju kvöldi í sumar. Hljómsveitib
Upplyfting spilar miðvikudaginn
3. júlí og fimmtudaginn 4. júlí.
Hljómsveitin Deep Jimmy and the
Zep Creams sér um tónlistina
föstudaginn 5. og laugardaginn 6.
júlí. Sálin hans Jóns míns leikur
sunnudaginn 7. og mánudaginn 8.
júlí. Að lokum spilar hljómsveitin
Loðin rotta þriðjudaginn 9., mið-
vikudaginn 10. og fimmtudaginn
11. júlí.
■ MAURICE B. LINE, fyrrver-
andi forstjóri British Library Docu-
ment Supply Centre í Boston Spa,
Yorkshire, heldur fyrirlestur í stofu
101 í Odda miðvikudaginn 3. júlí
kl. 17.15 um bókasafns- og upp-
lýsingamál. Fyrirlesturinn, sem er
öllum opinn, heitir „Modem trends
in academic and research libraries
in Great Britain and their relation-
ship to teaching and research.“
Fyrirlesturinn er á ensku.
Meiraprófsbílstjóri
óskast
Viljum ráða vanan meiraprófsbílstjóra í af-
leysingar.
Upplýsingar í síma 603420.
Olíufélagið hf.
>-
Kennarar
Kennara vantar að grunnskólanum í Breið-
dalshreppi. Æskilegar kennslugreinar:
Almenn kennsla og íþróttakennsla.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-56696 eða formaður skólanefndar í síma
97-56628.
Matartæknar
Kristnesspítali óskar að ráða matartækna frá
og með 1. september nk. Starfsmenn, vanir
eldhússtörfum, koma einnig til greina.
Upplýsingar gefur yfirmatráðskona í síma
96-31100.
Kristnesspítali.
Kennarar
Okkur vantar áhugasama og hressa kennara
að Grunnskólanum í Grundarfirði á Snæfells-
nesi. Viðfangsefni: Almenn bekkjarkennsla í
4., 5. og 7. bekk, líffræði, eðlisfræði og hann-
yrðir. í skólanum eru 150 nemendur í 1.-10.
bekk; að meðaltali 14 í bekk. Skoðið málið.
Upplýsingar gefa skólastjóri, Gunnar, í síma
93-86802 eða 93-86637 og yfirkennari,
Ragnheiður, í síma 93-86772.
Skólanefnd.
Krakkakot
Nýbyggður leikskóli í ört stækkandi sveitarfé-
lagi óskar eftir fóstrum eða starfskrafti með
reynslu í hálfsdags- eða heilsdagsstarf frá
og með 1. september.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí. Upplýsingar
gefur forstöðukona í síma 651388.
Rækja - bolfiskur
Vil skipta 125 tonnum af rækju fyrir ýsu og
ufsa þessa eða næsta árs.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 97-81544.
Garðey hf.
SAMHANI) UNdKA B I — ■- — X Ok I | Ok
siAuzLLtíi^i?NNA n6ST3Tero oUo
fram í Fellaskála og Arnarvatnsheiði
Hestaferð SUS verður farin helgina 19.-21. júlí nk. Dagskrá:
Föstudagur 19. júlí: Kl. 12.30 mæting í Víðigerði, Víðidal. Farið fram
í Fellaskála.
Laugardagur 20. júlí: Val um: 1) Hestaferð fram að Arnarvatni og
Réttarvatni eða 2) Skoðunarferð uppá Söðurmannasandfell eða 3)
Stangveiði í Kolgrímsvötnum.
Sunnudagur 21. júlí: Farið til baka. Áætlaður komutími í Víðigerði kl. 18.
Hestar, reiðtygi og matur innifalið í ferðinni. Þátttakendur verða að
koma með svefnpoka, hlífðarfatnað og annan persónulegan búnað.
Frekari upplýsingar og pantanir á skrifstofu SUS í síma 91-682900.
Fjöldi verður takmarkaður við 15 manns þ.a. áhugasamir SUS-arar
eru hvattir til að panta sem fyrst.
SUS.
FÉLAGSLÍF
Sjálfboðaliðasamtök um
náttúruvernd
Vinnuferð að
Seljalandsfossi
Sjálfboðaliðasamtökin og land-
eigendur standa fyrir vinnuferð
að Seljalandsfossi 5.-7. júli.
Unnið verður að stígagerð og
gróðurvernd. Rútuferð frá BSi
föstudaginn 5. júli kl. 17.00. Öll-
um er heimil þátttaka, ekki síst
Rangæingum. Tekið á móti þátt-
tökutilkynningum fyrir 5. júlí og
veittar nánari upplýsingar í sima
43232 (Rannveig) ,og 680019
(Þorvaldur).
Ljósgeislinn
Vegna komu miðilsins Terry
Evans til landsins að Sumri til,
þjóðum við utanfélagsfólki kost
á einkatímum hjá honum.
Skrifstofan er opin alla virka
daga kl. 10-12 og 13-16. Sími
686086. Cl.. .
Stjornm.
FERBAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533
Dagsferðir Ferðafélagsins
Þriðjudaginn 2. júli kl. 20.00 -
kvöldsigling að lundabyggð
(Lundey). Einnig gengið á land í
Viðey. Verð kr. 700,-.
Miðvikudaginn 3. júlí kl. 08.00
- dagsferð til Þórsmerkur.
Stansað 3-4 klst. Verð kr.
2.300,- (hálft gjald 7-15 ára).
Kynnið ykkur tilboðsverð á sum-
arleyfisdvöl í Þórsmörk, lengd
dvalar eftir óskum hvers og eins.
Miðvikudaginn 3. júlí kl. 20.00. -
Almenningur - Gjásel (í Kapellu-
hrauni sunnan Hafnarfjarðar).
Ferðafélag íslands.
FERÐAFEIAG
# ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S 11798 19533
Helgarferðir 5.-7. júlí
1) Þórsmörk/Langidalur. Gist i
Skagfjörðsskála. Gönguferðir
um Mörkina.
2) Hagavatn - Jarlhettur. Gist
í húsi/tjöldum. Gönguferðir um
Jarlhettudal og að Hagavatni.
3) Hagavatn - Hlöðuvellir -
Geysir, bakpokaferð. Gist í
sæluhúsum FÍ v/Hagavatn og
Hlöðuvelli. Gengið á laugardag
til Hlöðuvalla og á sunnudag að
Geysi. Forvitnilegt landslag,
þægileg gönguleið.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Helgarferð með Ferðafélaginu
er hvíld frá amstri hversdags-
ins - allir velkolmnir félagar og
aðrir.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Fjölbreyttar
sumarleyfisferðir
1. 5.-12. júlí (8 dagar) Horn-
strandaganga 1991. Skemmti-
leg bakpokaferð frá Sæbóli um
Jökulfirði í Hornvík.
2. Hornstrandaferðirnar hefj-
ast 3/7. Hús og tjöld í Hornvík
og Hlöðuvik. Kynnið ykkur ferða-
tilhögun. Það er að verða upp-
pantað í gistingu inni.
3. 18.-23. júlí (6 dagar).
Aðalvík. Dvöl að Látrum með
spennandi gönguferðum.
4. 19.-23. júlí (6 dagar). Kjal-
vegur hinn forni: Hvítárnes -
Þverbrekknamúli - Hveravellir.
Biðlisti í skáia. Hægt að hafa
með göngutjöld.
5. 20.-28. júlí (9 dagar).
Miðsumarsferð á hálendið.
Sprengisandur, Herðubreiðar-
lindir, Askja, Kverkfjöll, Snæfell.
Fá sæti laus.
6. 26/7-7/8 (7 dagar). Borgar-
fjörður eystri - Loðmundar-
fjörður. Gist í húsum. Skoðunar-
og gönguferðir um þetta fjöl-
skrúðuga landsvæði.
7. 26/7-1/8 (7 dagar). Seyðis-
fjörður - Borgarfjörður eystri.
Bakpokaferð um Loðmundar-
fjörð og Vikurnar.
8. 2.-5. ágúst (4 dagar). Þóris-
dalur - Hlöðuvellir. Bakpoká-
ferð um verslunarmannahelgina.
9. 2.-11. ágúst (10 dagar).
Vonarskarð - Kverkfjöll.
Bakpokaferð.
Áhugaverðar utanlands-
ferðir fyrir félagsmenn
Ferðafélagsins:
a. Á slóðum Eiríks rauða á
Suður-Grænlandi 22.-29. júlf.
Einstakt tækifæri til að kynnast
þessu nágrannalandi okkar, sem
alltof fáir þekkja til. Hagstætt
verð. Dagskrá liggur frammi á
skrifstofunni. Pantið strax. Fá
sæti laus.
b. Gönguferð um Jötunheima í
Noregi 17.-26. ágúst. Þekkt-
asta fjallasvæði Noregs. Ferð í
samvinnu við Norska ferðafélag-
ið.
Nánari upplýsingar á skrifstof-
unni, Öldugötu 3, símar 19533
og 11798.
Ferðafélag íslands.
H ÚTIVIST
5RÓFINNI1 - REYKJAVÍK - SÍMI/SÍMSVARI14606
Um næstu helgi, 5.-7. júlí:
Básará Goðalandi
Út frá Básum eru skipulagðar
gönguferðir fyrir farþega, t.d. inn
í Tungur, á Útigönguhöfða, á
Heiðarhorn eða yfir í Hamra-
skóga og fyrir gönguglaða á
Rjúpnafell. Á kvöldin er safnast
saman við varðeld og margt sér
til gamans gert.
Fimmvörðuháls - Básar
Farið inn í Bása. á föstudags-
kvöldi og gist þar. Á laugardags-
morgun er ekið yfir að Skógum
og gengið þaðan upp með
Skógaá og yfir sjálfan hálsinn á
milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjalla-
jökuls. Komið niður Heljarkamb
á Morinsheiði og þaðan er geng-
ið yfir svokallaða Kattarhryggi,
yfir stutt einstig'i og niður í
Strákagil og í Bása. Gangan tek-
ur 8-9 klst.
Hindísvík - Hvítserkur -
Borgarvirki
Farið kringum Vatnsnes með
viðkomu á Breiðabólsstað og í
Borgarvirki. Komið að Ásbjarn-
arstöðum, Hvítserk, Hindísvík
og víðar. Fararstjórar: Fríða
Hjálmarsdóttir og Jóhanna
Sigmarsdóttir.
Aðrar helgarferðir í júlí:
12.-14. Þjórsárdalur - Hekla.
Tjöld.
19.-21. Jörundargleði: Einhyrn-
ingsflatir - Álftavatn. Bakpoka-
ferð, tjöld.
26.-28. Hólmsárlón - Bryta-
lækir. Tjöld.
Sumarleyfisferðir
15.-31. júlí:
19.-24. Eyðifirðir Austfjarða.
28.-1/8. Sóleyjarhöfðavað -
Þjórsárdalur.
Sjáumst!
Utivist.
Hútivist
GRÓFINNII • REYKJAVÍK • SÍMI/5ÍMSVARII4606
Kvöldganga
miðvikud. 3. júlf kl. 20.00.
Gengin gömul þjóðleið bakvið
Slösu austan Isólfsskála.
Sjáumst! ýtivist